DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12892.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Snow Ripples

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Apaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-11
DROPS Design: Mynstur ai-292
Garnflokkur C + C + C eða E + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-450-500-550-600 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-125-125-125-150-150 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
7 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með klukkuprjóni og 2 þráðum Air + 1 þræði Brushed Alpaca Silk = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 12.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 12: lengd 80 cm fyrir klukkuprjón og A.1.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 80 cm fyrir stroff neðst á fram- og bakstykki.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12892.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja lykkju (uppslátturinn er gerður aðeins stífur til að koma í veg fyrir stór göt). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring) :
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Endurtakið umferð 2 og 3.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermar):
Öll úrtaka er gerð í umferð í klukkuprjóni þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman.
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL HÆGRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið 3 lykkjum + 2 uppsláttum á undan brugðinni lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni á vinstri prjón, lyftið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem sett var til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir þá lykkju sem eftir er á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL VINSTRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið strax eftir brugðna lykkju með prjónamerki í): Lyftið yfir fyrstu sléttu lykkjuna og uppsláttinn á hægri prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + slétt lykkja og uppsláttur), lyftið síðan yfir lyftu lykkjuna og uppsláttinn yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.
ATH: Allur lykkjufjöldinn sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn er talinn sem 1 lykkja saman með lykkju sem lyft er af prjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 36-38-38-40-42-44 lykkjur á sokkaprjóna 9 með 2 þráðum Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 5 cm í öllum stærðum, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið stroff þar til stykkið mælist 7-7-7-8-8-8 cm frá uppfitjunarkanti.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-20-20-22-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 54-58-58-60-64-66 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna eða hringprjón 12. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 6-7-7-7-8-8 cm eftir kanti í hálsi, prjónið A.1 hringinn ( A.1 = ca 4 cm á hæðina).
JAFNFRAMT í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 28-30-30-30-32-34 lykkjur jafnt yfir = 82-88-88-90-96-100 lykkjur og í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 18-18-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir = 100-106-112-116-124-130 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið klukkuprjón með uppslætti (byrjið með 1. umferð, síðan eru endurteknar umferð 2 og 3 eins og áður).
Þegar stykkið mælist 20-22-22-24-26-27 cm frá prjónamerki í kanti í hálsi, prjónið A.1 hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4-6-10-14-18-24 lykkjur jafnt yfir = 104-112-122-130-142-154 lykkjur.
Þegar berustykkið mælist 21-23-24-26-28-29 cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan (ef rétt mál eru á peysunni, þá eru eftir nokkrar umferðir í A.1 þegar stykkið skiptist – afgangur af A.1 er prjónað á fram- og bakstykki og ermum).
Nú skiptist stykkið þannig: Setjið fyrstu 21-23-25-27-29-31 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið A.1 yfir næstu 31-33-36-38-42-46 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 21-23-25-27-29-31 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-7-7-7 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið A.1 eins og áður yfir þær 31-33-36-38-42-46 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 72-76-82-90-98-106 lykkjur. Byrjið umferð mitt í 5-5-5-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir annarri erminni og prjónið A.1 til loka. Prjónið síðan klukkuprjón eins og áður í 11-11-12-12-12-12 cm. Prjónið A.1. Prjónið síðan klukkuprjón eins og áður í ca 11-11-12-12-12-13 cm – endið umferð á 2. umferð í klukkuprjónsmynstri. Stykkið mælist nú nu ca 29-29-30-30-30-31 cm frá skiptingu og nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd, en passið uppá að enda á 2. umferð í klukkuprjónsmynstri.
Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), en stillið af að stroffið passi fallega yfir mynstur í klukkuprjóni – í fyrstu umferð með stroffi er uppslátturinn prjónaður frá klukkuprjónslykkjum slétt saman með sléttum lykkjum í stroffi.
Haldið áfram með stroff með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 21-23-25-27-29-31 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 12 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-5-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 26-28-30-34-36-38 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðju af 5-5-5-7-7-7 lykkjum undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerki er nú notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð á eftir lykkju með prjónamerki í (þ.e.a.s. lykkja með prjónamerki er nú síðasta lykkjan í umferð). Prjónið A.1 til loka alveg eins og á fram- og bakstykki.
Prjónið nú klukkuprjón hringinn.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur til hægri mitt undir ermi (fækkið um 2 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki í) – sjá ÚRTAKA = 24-26-28-32-34-36 lykkjur.
Þegar ermin mælist 7 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur að vinstri ermi mitt undir ermi (fækkið um 2 lykkjur á eftir lykkju með prjónamerki í) = 22-24-26-30-32-34 lykkjur.
Prjónið klukkuprjón þar til ermin mælist ca 34-33-33-30-28-28 cm frá skiptingu – endið á 2. umferð í klukkuprjónsmynstri. Nú eru eftir ca 6 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd, en passið uppá að enda á 2. umferð í klukkuprjónsmynstri. ATH: Það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-4-6-8-10-10 lykkjur jafnt yfir (í þessari umferð er uppslátturinn prjónaður frá klukkuprjónslykkjum slétt saman með sléttum lykkjum) = 18-20-20-22-22-24 lykkjur eftir.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 9. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 40-39-39-36-34-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Monika wrote:

Nabrałam 44 oczka drutami nr 9 jako początek karczku. Nie wiem jaką trzeba mieć małą głowę aby założyć przez ten otwór sweter. Tu jest jakiś błąd

05.02.2024 - 19:45

DROPS Design answered:

Witaj Moniko, aby brzeg był bardziej elastyczny, zawsze nabieram oczka na 2 drutach. Może to pomoże. Pozdrawiamy!

06.02.2024 - 08:08

country flag ÁNGELA wrote:

¿Se podría hacer este patrón con un sólo hilo de drops air? En caso de que sí se spueda, ¿cuánta lana se necesitaría comprar? Gracias

10.11.2021 - 20:34

DROPS Design answered:

Hola Ángela, Se puede trabajar con 3 hilos de Air o 1 hilo de Air y uno del grupo E, sin necesidad de modificar el patrón. Si quieres trabajar con 1 hilo de Air, ya no podrías seguir las instrucciones del modelo, ya que tendrías que modificar todas las cuentas de puntos y cm y la tensión y la aguja serían diferentes a las recomendadas.

14.11.2021 - 19:22

country flag Rima wrote:

Jeg har strikket den og 100 g af brushed alpaka silk var nok .. har en hele nøgle extra ud af 125g tilbage

15.11.2020 - 13:20

country flag Dupéron wrote:

Bonjour Je suis bloquée dans ce modèle pour les côtes anglaises. N'y a-t-il pas une erreur dans le descriptif? Je ne comprends pas comment faire le tour 2 des côtes anglaises. Merci de vos explications.

03.11.2020 - 17:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dupéron, cette vidéo montre comment tricoter des côtes anglaises en rond; le rang 2 de ce pull correspond au rang 3 de ce modèle, mais on va répéter de la même façon les rangs 2 et 3 dans les 2 cas, cette vidéo devrait toutefois vous permettre de comprendre le système de ce type de côtes anglaises tricotées en rond. Retrouvez la description dans cette leçon. Bon tricot!

04.11.2020 - 08:39

country flag Hildegard Rueda wrote:

Creo que tiene un error la descripción porque en la primera vuelta del English rib se realizan aumentos que posteriormente no son considerados en el conteo de puntos

11.10.2020 - 09:23

country flag Helena wrote:

Hei! Jeg er i gang med å strikke, og nå skal jeg begynne med å strikke helpatent med kast, noe jeg aldri har gjort før. Det jeg legger merke til er at beskrivelsen av helpatent med kast i oppskriften er ulik den hjelpevideoen som det er linket til rett under. Hvilken måte skal jeg følge? Og hvorfor er det to ulike beskrivelser av samme strikkemåte?

26.09.2020 - 14:05

country flag Hildegard Rueda wrote:

Hurry please!

09.09.2020 - 07:51

country flag Sandra wrote:

OMGOSH~ I can't wait! This is beautiful!

20.08.2020 - 18:07

country flag Anna wrote:

Piękny 😍nie mogę się już doczekać wzoru.

05.08.2020 - 15:44

country flag Anita Sundermeier wrote:

"Eiszeit"

22.07.2020 - 10:50