Kristina Fahlen skrifaði:
Ökningen av oket, ska jag sticka en avig och en rät och inte bry mej om hur det stickades före eller blir det 2 räta ihop och 2 aviga ihop beroende på vilken ökning man är på?
21.10.2020 - 22:37DROPS Design svaraði:
Hej Kristina. Är inte säker på att jag förstår din fråga, men du ökar genom att göra omslag som stickas vridet på nästa varv och de ökade maskorna stickas fortlöpande in i strukturmönster, dvs 1:a ökningen stickas i rätstickning, 2:a ökningen stickas i slätstickning osv. Mvh DROPS Design
22.10.2020 - 11:38
Carla skrifaði:
Bij het breien van de pas staat, meerder zo iedere naald 15, 17, 19........keer, in mijn geval 19 keer, moet dat niet zijn om de andere naald want ik zit nu pas op 12 centimeter en mijn proeflapje klopte....
07.10.2020 - 21:46DROPS Design svaraði:
Dag Carla,
Ja, je hebt gelijk, het moet om de naald zijn en niet iedere naald. Ik pas het aan. Dankjewel voor het doorgeven!
10.10.2020 - 11:00
Elena skrifaði:
Grazie mille della risposta!
01.10.2020 - 21:03
Elena skrifaði:
Buongiorno, grazie della risposta! Potete indicare per favore quali modelli sono lavorati dietro con i ferri accorciati? Almeno un modello. Grazie. Elena.
30.09.2020 - 22:32DROPS Design svaraði:
Buonasera Elena provi a guardare questo modello oppure questo , ma sfogliando le pagine del nostro sito ne può trovare molti altri. Buon lavoro!
30.09.2020 - 23:03
Elena skrifaði:
Buongiorno, sto ammirando i vs modelli e spero di riuscire a fare qualcosa usando le vs istruzioni. La domanda - lavorando con i ferri tondi come proponete voi il collo e la parte sopra sono comodi da portare? C'è la differenza tra davanti e dietro? Sembra che siano uguali e ho visto che tanti lavorano la parte dietro meno profonda facendo i giri corti. Come meglio fare per ottenere un risultato perfetto? Aspetto i vs suggerimenti prima di cominciare fare la maglia. Grazie. Elena.
29.09.2020 - 23:09DROPS Design svaraði:
Buongiorno Elena, in questo modello in particolare il dietro e il davanti sono uguali anche perchè il bordo del collo è doppio e risvoltato. In alcuni modelli top down che può trovare sul nostro sito il dietro è leggermente più alto del davanti per avere una migliore vestibilità, e questo si ottiene lavorando i ferri accorciati sul dietro. Buon lavoro!
30.09.2020 - 08:50
Mariarosaria Corda skrifaði:
Chiedo scusa ma sicuri che il colore è 8912 e non 8910 lampone, non vorrei fare un ordine sbagliato
10.09.2020 - 18:11DROPS Design svaraði:
Buongiorno Mariarosa. Il colore indicato è corretto. Per un maggiore aiuto, può contattare il suo rivenditore Drops di fiducia che la aiuterà nella scelta della tonalità che più le piace. Buon lavoro!
14.09.2020 - 15:46
Lisa skrifaði:
Beautiful 😍
09.09.2020 - 08:49
Louise Townsend skrifaði:
I love the simplicity of this design. A timeless design. When is it available please?
26.08.2020 - 18:10
Carmen-Gabriela skrifaði:
Interessante Rippen-Passe:)
07.06.2020 - 17:11
Lisbeth Erlandsson skrifaði:
En snygg annorlunda modell.
04.06.2020 - 20:08
Abstract Rose#abstractrosesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri og tvöföldum kant í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-27 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (á við um berustykki): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 1., 3., 5. og 7. prjónamerki, Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 2., 4., 6. og 7. prjónamerki. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í áferðamynstur, þ.e.a.s. 1. útaukning er prjónuð í garðaprjóni, 2. útaukning er prjónuð í sléttprjóni o.s.frv. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÁFERÐAMYNSTUR: Prjónið * 1 lykkja slétt, 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-96-96-104-104 lykkjur með 1 þræði Nepal á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist ca 11 cm (kantur í hálsmáli er síðar brotinn saman tvöfaldur, þá kemur kantur í hálsmáli að mælast ca 5 cm í lokin). Í næstu umferð er prjónað sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir í umferð = 80-80-88-88-96-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= ca miðja að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Stykkið er prjónað í ÁFERÐAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir, setjið 8 prjónamerki í lykkjurnar í umferð án þess að prjóna (öll prjónamerkin eru sett í slétta lykkju) þannig: Setjið 1. prjónamerkið í 7.-7.-9.-9.-9.-9. lykkju. Setjið 2. prjónamerkið í 13.-13.-15.-15.-15.-15. lykkju. Setjið 3. prjónamerkið í 27.-27.-31.-31.-33.-33. lykkju. Setjið 4. prjónamerkið í 33.-33.-37.-37.-39.-39. lykkju. Setjið 5. prjónamerkið í 47.-47.-53.-53.-57.-57. lykkju. Setjið 6. prjónamerkið í 53.-53.-59.-59.-63.-63. lykkju. Setjið 7. prjónamerkið í 67.-67.-75.-75.-81.-81. lykkju. Setjið 8. prjónamerkið í 73.-73.-81.-81.-87.-87. lykkju. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 8 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn á undan 1. prjónamerki, á milli 2. og 3. prjónamerkis, á milli 4. og 5. prjónamerkis, á milli 6. og 7. prjónamerkis og á eftir 8. prjónamerki verður sá sami. Lykkjur sem auknar er út eru prjónaðar á milli 1. og 2. prjónamerkis, 3. og 4. prjónamerkis, 5. og 6. prjónamerkis og 7. og 8. prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-17-19-23-24-27 sinnum, í 4. hverri umferð alls 1 sinni og í 6. hverri umferð alls 1 sinni = 216-232-256-288-304-328 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 19-21-23-27-28-31 cm frá prjónamerki. Prjónið síðan sléttprjón (á við um stærð S-M-L) þar til stykkið mælist 21-23-24-27-28-31 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir fyrstu 31-33-36-41-44-49 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-50-56-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 62-66-72-82-88-98 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-50-56-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-8-10-10 nýjar lykkjur undir ermi og prjónið 31-33-36-41-44-49 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-148-160-180-196-216 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-8-10-10 lykkjur undir ermum í hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 70-74-80-90-98-108 lykkjur á milli prjónamerkja. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 prjónamerki fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 3 sinnum = 152-160-172-192-208-228 lykkjur. Þegar fram- og bakstykki mælist 26-26-27-26-27-26 cm frá skiptingu, aukið út um 10-11-11-12-11-12 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 162-171-183-204-219-240 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 46-50-56-62-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-8-10-10 lykkja undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að fækka lykkjum síðar hvoru megin við það. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1-1 cm millibili alls 6-7-9-11-12-12 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 32-32-31-29-27-25 cm frá skiptingu, aukið út um 0-1-2-0-1-2 lykkjur = 42-45-48-48-51-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #abstractrosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.