DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Divergence

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði DROPS Snow eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 218-28
DROPS Design: Mynstur ai-274
Garnflokki C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL - XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-450-500-550-600 g litur 26, beige
Eða notið:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
550-600-650-700-800-850 g litur 47, ljus beige
Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
400-450-500-500-600-650 g litur 08, grá beige

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum Air eða 1 þræði Snow = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Lykkjufjöldinn á ermum er sá sami (= 34-34-37-37-40-40 lykkjur í stroffi á ermum).
Ekki auka út í lykkjuna, heldur um þráðinn á milli 2 lykkja.
Aukið út um 3 lykkjur á eftir lykkju með prjónamerki (þ.e.a.s. í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis og í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis) þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt um þráðinn á milli lykkju með prjónamerki og næstu lykkju (= 1 umferð niður), prjónið 1 lykkju slétt um þráðinn á milli lykkju með prjónamerki og næstu lykkju 2 umferðir niður (passið uppá að draga lykkjuna það langa að hún herði ekki á hæðina), prjónið 1 lykkju slétt um þráðinn á milli lykkju með prjónamerki og næstu lykkju 3 umferðir niður (passið uppá að draga lykkjuna það langa að hún herði ekki á hæðina). Nú hefur verið prjónuð 1 lykkja um hverja af síðustu 3 umferðum (= 3 lykkjur fleiri).
Aukið út um 3 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki (þ.e.a.s. í skiptingunni á milli framstykkis og vinstri ermi og í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi) þannig:
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt um þráðinn á undan lykkju með prjónamerki 3 umferðir niður (passið uppá að draga lykkjuna það langa að hún herði ekki á hæðina), prjónið 1 lykkju slétt um þráðinn á undan lykkju með prjónamerki 2 umferðir niður (passið uppá að draga lykkjuna það langa að hún herði ekki á hæðina), prjónið 1 lykkju slétt um þráðinn á undan lykkju með prjónamerki frá fyrri umferð. Nú hefur verið prjónuð 1 lykkja í hverja af síðustu 3 umferðum (= 3 lykkjur fleiri).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Prjónið þar til 4-3-3-3-3-3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í/prjónamerki á milli lykkja, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið næstu 5-2-2-2-2-2 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað í hring í sléttprjóni. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna í stroffprjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 48-48-52-52-56-56 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með 2 þráðum Air eða 1 þræði Snow eða 1 þræði Wish. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð.
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 11 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur (= 11-11-12-12-13-13 lykkjur fleiri), 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (= miðjulykkja á framstykki/bakstykki). Endurtakið 1 sinni til viðbótar í umferð = 70-70-76-76-82-82 lykkjur.
UMFERÐ 2: * Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið uppsláttinn snúin brugðið, 1 lykkja brugðið *, prjónið *-* 11-11-12-12-13-13 sinnum, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið (= miðjulykkja á framstykki/bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið 1 sinni til viðbótar í umferð (= 4 lykkjur fleiri í umferð) = 74-74-80-80-86-86 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið. Setjið eitt prjónamerki í hvern uppslátt frá fyrri umferð (= 1 prjónamerki í lykkju hvoru megin við miðjulykkju). Það eru 34-34-37-37-40-40 lykkjur fyrir hvora ermi og 3 lykkjur á framstykki og bakstykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir 34-34-37-37-40-40 lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið (fyrsta og síðasta lykkjan á ermi er 1 lykkja slétt) og prjónað er sléttprjón yfir 3 lykkjur á framstykki og bakstykki (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat).
Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir byrjar útaukning í hvorri hlið á framstykki og bakstykki – sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 6-6-7-8-9-10 sinnum = 146-146-164-176-194-206 lykkjur. Útaukning í stærð XL, XXL og XXXL er nú lokið.
Í stærð S, M og L er nú aukið út þannig: Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við lykkju með prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 1-2-1 sinnum = 150-154-168 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

Allar stærðir:
Haldið síðan áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 20-21-23-24-25-27 cm frá prjónamerki í miðjulykkju aftan í hnakka.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Setjið fyrstu 34-34-37-37-40-40 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 5-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 41-43-47-51-57-63 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 34-34-37-37-40-40 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 5-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 41-43-47-51-57-63 lykkjur. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 92-102-110-118-130-142 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til fram- og bakstykki mælist 24-25-25-26-26-26 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 34-34-37-37-40-40 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-8-8-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 39-42-45-45-48-48 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt undir ermi. Í stærð S er prjónamerki sett í miðju slétta lykkju undir ermi.
Í stærð M, L, XL, XXL og XXXL er prjónamerki sett mitt á milli miðju 2 lykkjur brugðið.
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn eins og áður.
Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 11-8-6-6-6-6 cm millibili alls 4-5-6-6-6-6 sinnum = 31-32-33-33-36-36 lykkjur. Haldið síðan áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til ermin mælist 45-45-43-43-43-42 cm – eða að óskaðri lengd (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Ioana wrote:

Hello, I have a question related to this Drops218-28 patter: when starting the yoke, after putting the 4 markers it says "When 4 round have been worked, begin increase in each side of front piece and back piece - read INCREASE TIP." Does this mean that I need to work the first 4 rows in the yoke without any increases ? The meaning of "When 4 round have been worked" is not very clear to me. thank you, have a nice day

15.01.2024 - 14:12

DROPS Design answered:

Dear Iona, you are right, just work 4 rounds on yoke before starting the increases for raglan. Happy knitting!

15.01.2024 - 16:19

country flag Bente wrote:

Holder på med denne. Men forstår ikke helt økningen midat bak og foran. Skal det økes 2 maske på hver side av kilen forann og bak? For når jeg har økt som jeg tror, så har jeg for lite masker. Har lest meg blind på oppskriften. Helt sikkert veldig enkelt

30.08.2023 - 09:27

DROPS Design answered:

Hei Bente. Lett å lese seg blind på en oppskrift :) Prøve å se en video istedenfor. Nederst på oppskriften finner du en hjelpevideo som viser hvordan det økes, ta en titt på "Hvordan øke ved å strikke om tråden 3 ganger mellom 2 masker", så kanskje det hjelper. Hvis ikke, skriv tilbake og vi vil prøve å forklare (husk å oppgi str. du strikker). mvh DROPS Design

11.09.2023 - 12:56

country flag Bella wrote:

Hallo, ich habe Schwierigkeiten bei den Zunahmen aus den Querfäden, weil mir nicht klar ist, wo ich die Zunahmen machen muss: ich habe 3 Maschen je Vorder- und Rückenteil. Die äußern beiden Maschen sind markiert. Wenn ich nun wie im Zunahmetipp beschrieben 3 Maschen vor und nach den Markierungen zunehme bin ich im Ärmel… ? Bleiben die Markierungen in den Maschen oder werden mit den Zunahmen versetzt? LG Bella

10.12.2022 - 16:53

DROPS Design answered:

Liebe Bella, haben Sie dieses Video mal geschaut? Es zeigt, wie man diese 3 Maschen zunimmt, zuerst nach der Markierung (nach der Ärmelmaschen, am Anfang Vorder- bzw Rückenteil) und vor der Markierung (am Ende Vorder- bzw Rückenteil und vor der Ärmel). Viel Spaß beim stricken!

12.12.2022 - 09:15

country flag Hansson wrote:

Jag har försökt med garnkonverteraren..... så det är inte frågan om mängden garnystan, utan hur jag ska tänka när jag då väljer storlek? Eftersom Nepal är ett tunnare garn ska jag då sticka en XL fast jag egentligen vill ha Medium. Har försökt att googla också, men förstår tyvärr inte.

05.08.2022 - 11:55

DROPS Design answered:

Hej igen, Når du bruger garnkonverteraren får du kun forslag på de kvaliteter som kan strikkes på samme strikkefasthed som det står i selve opskriften. Det vil sige at hvis du vælger at strikke med 2 tråde DROPS Nepal så skal du få 10 masker på 10 cm som det står i opskriften :)

05.08.2022 - 12:22

country flag Hansson wrote:

Jag har verkligen försökt lära mig hur man byter garn men det går inte..... Vill så gärna sticka denna tröja i 1 st tråd Nepal, men hur ska jag göra då??

03.08.2022 - 20:24

DROPS Design answered:

Hej, prøv vor garn-konverterare. Välj DROPS Air, välj antal gram i din storlek och klicka på Se alternativ ... du kan även dubbelkolla med DROPS Snow:)

05.08.2022 - 11:48

country flag Pamela Poulin wrote:

I ask you a question . But after reading your pattern I find my problem, I'm very sorry to bother you. Best regards Pam

20.06.2022 - 23:25

country flag Pamela Poulin wrote:

Hi , I have my Yarn & very happy to start but I'm having some problem..... I am doing the neck my size is L . My pattern is DROPS 218-28. ROUND 1: No problem for the beginning. But it says "Repeat 1 more time on the round " but when I do this I have a hole. Is this ok? Thank you very much for your help. I could not find a video on this.

20.06.2022 - 20:42

DROPS Design answered:

Dear Mrs Poulin, on the first round you will increase with yarn overs, and on the 2nd round you will work these yarn overs twisted to avoid holes - see video. Happy knitting!

21.06.2022 - 08:53

country flag Hanneke wrote:

Ik kom er niet uit met het schouderzadel. De voorbeelden die ik op youtube heb gevonden zijn anders dan van deze trui. 'de volgende steek eronder oppakken en dan twee eronder en drie eronder oppakken' Aan welke kant pak ik de steek dan op ? Zijkant links of rechts, of bovenkant, of in de lus van de onderkant ? Is er een video van om het duidelijk te maken. Ik kan nu niet verder.....

21.02.2022 - 15:30

DROPS Design answered:

Dag Hanneke,

Je meerdert om de draad die de steek met de markeerdraad en de steek ernaast met elkaar verbindt. In de video hieronder, die specifiek voor dit patroon is gemaakt, wordt het uitgelged.

22.02.2022 - 18:43

country flag Patrizia wrote:

Buona sera, sto lavorando questo modello e sono arrivata allo sprone e quindi devo lavorare a coste le maglie delle maniche ed a maglia rasata le 3 davanti/dietro ma non capisco cosa vuol dire: ( la 1° e ultima maglia sulla manica e 1 maglia diritto) in parentesi. Grazie infinite

04.02.2022 - 17:40

DROPS Design answered:

Buonasera Patrizia, abbiamo corretto il testo per renderlo più comprensibile. In quel punto viene indicato che la 1° e ultima maglia delle coste devono essere lavorate a diritto. Buon lavoro!

05.02.2022 - 21:00

country flag Aggie wrote:

As regards adding stitches to the yoke (size M)- "Increase like this every 4th round 6-6-7-8-9-10 times in total = 146-146-164-176-194-206 stitches". One time = 18 stitches x 4 rounds = 72 stitches. But how is this increase distributed? 18 stitches added PER round (three sets of 3 added stitches on the front/back? - if so, you can't distribute 3 sets of added stitches evenly on both sides of the stitch at the center of front/back) or 18 stitches distributed OVER 4 rounds times four?

30.01.2022 - 16:56

DROPS Design answered:

Dear Aggie, you should increase 12 sts on each increase round: 3 sts at the beg of back/front piece + 3 sts at the end of back/front piece as explained under INCREASE TIP and see also this video showing how to increase at the beg/after the marker and at the end/before the marker of front/back piece. Happy knitting!

31.01.2022 - 09:52