DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11000.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Birch Grove

Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með köðlum og stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 218-34
DROPS Design: Mynstur ai-284
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-250-300-300-350 g litur 02, hveiti
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-150-150-175-200-200 g litur 04, ljós beige

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11000.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3.

LEIÐBEININGAR:
Þegar fellt er af fyrir handvegi á fram- og bakstykki, er mikilvægt að fella ekki af í oddatölu í mynsturteikningu. Þetta er gert til að þurfa ekki að snúa kaðli frá röngu þegar stykkið er prjónað áfram fram og til baka.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Lykkjur eru felldar af fyrir handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Axlasaumar eru saumaðir. Síðan eru prjónaðar upp lykkjur meðfram handvegi fyrir ermar. Ermar eru prjónaðar í hring, ofan frá og niður til loka. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 120-120-136-136-152-168 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið *-* yfir næstu 4-4-8-8-12-16 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið *-* yfir næstu 8-8-16-16-24-32 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið *-* yfir næstu 4-4-8-8-12-16 lykkjur, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 6 cm, prjónið áfram þannig (skiptið yfir á hringprjón 8): Sléttprjón yfir fyrstu 5-5-9-9-13-17 lykkjur, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 3-5-7-10-13-16 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, A.1 (= 8 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, prjónið A.2 (= 18 lykkjur) yfir næstu 10 lykkjur, JANFRAMT er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, sléttprjón yfir næstu 10-10-18-18-26-34 lykkjur, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 6-10-14-20-26-32 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, A.1 (= 8 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, prjónið A.2 (= 18 lykkjur) yfir næstu 10 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, sléttprjón yfir næstu 5-5-9-9-13-17 lykkjur, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 3-5-7-10-13-16 lykkjur = 128-136-144-156-168-180 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Fellið núna af fyrir handvegi, stillið af að næsta umferð sé umferð í oddatölu í A.1, A.2 og A.3 – sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð þannig:
Fellið af 2 lykkjur fyrir handvegi, prjónið síðan eins og áður yfir næstu 60-64-68-74-80-86 lykkjur, fellið af 4 lykkjur fyrir handvegi, prjónið síðan eins og áður yfir næstu 60-64-68-74-80-86 lykkjur og fellið af þær 2 lykkjur sem eftir eru fyrir handvegi. Klippið frá. Bakstykki og framstykki er nú prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig til loka.

BAKSTYKKI:
= 60-64-68-74-80-86 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir 18 lykkjur í A.2 = 52-56-60-66-72-78 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru felldar af miðju 16-18-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 17-18-20-23-25-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 60-64-68-74-80-86 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir 18 lykkjur í A.2 = 52-56-60-66-72-78 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru miðju 10-12-12-12-14-14 lykkjurnar settar á 1 þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 17-18-20-23-25-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaum innan við affellingarkantinn.

ERMI:
Prjónið upp lykkjur meðfram handvegi á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. byrjið í handvegi í annarri hlið á stykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 40-42-44-46-48-50 lykkjur innan við 1 lykkju á hringprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-6-5½-6-5-5 cm millibili alls 6-7-8-7-8-7 sinnum = 28-28-28-32-32-36 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 46-45-44-42-41-39 cm, (nú er ca 4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 7 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 50-49-48-46-45-43 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið hina ermina alveg eins.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu, ca 40 til 52 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 7 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk.
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður efst í hálsi innan á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsi verði of stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn verði teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Laura wrote:

Thank you for the response I understand where I went wrong. Last question; we only increase A.2 by 8 stitches on that first time around? For subsequent rounds we should ignore the ‘At the same time’ instructions?

19.02.2024 - 00:12

DROPS Design answered:

Hi Laura, Yes, you only do the extra increases on the first round of the pattern, then continue without further increases as described in the text. Happy knitting!

19.02.2024 - 06:48

country flag Laura wrote:

Hello! I just finished the first round of the body section where I’m now at 128 stitches. But I have 14 of those stitches past my initial round-start stitch marker…in other words…114 stitches gets me to my starter stitch marker, and the other 14 stitches are past my stitch marker into the next round. Is that right? I’ve never knitted a patterned Jumper before so not sure.

18.02.2024 - 04:25

DROPS Design answered:

Dear Laura, you should have 128 stitches in the round, not 114 and 14 extra. Remember than when working the round if it says: "Stocking stitch over the first 5-5-9-9-13-17 stitches, AT THE SAME TIME as the number of stitches is adjusted to 3-5-7-10-13-16 stitches" it means that you work 2 decreases in the next 5 stitches, so you should have 3 stitches in stocking stitch remaining. The same would happen if you increase AT THE SAME TIME: "work A.2 (= 18 stitches) over the next 10 stitches, AT THE SAME TIME as you increase 8 stitches evenly over these stitches" means that you increase 8 stitches in order to work A.2. Happy knitting!

18.02.2024 - 23:04

country flag Aurélie Labrecque wrote:

Bonjour, J’ai une question concernant les jetés présents sur les diagrammes. Lorsqu’on fait un jeté entre 2, est-ce qu’on tricote le jeté sur le tour suivant? Si oui, on le tricote à l’endroit ou à l’envers. Aussi, j’ai l’impression que ça aurait comme incidence de décaler les diagrammes et que ma lecture de ces derniers ne sera pas exacte. Merci!

08.07.2023 - 00:08

DROPS Design answered:

Bonjour Aurelie, en travaillant en rond (le debut de votre ouvrage): au tour suivant, les jetes sont tricotes normallement (pas torse) a l'endroit (il y a un trou bien visible). Si vous travaillez en allers et retours (dos et devant separement), les jetes sont tricotes normallement (pas torse) a l'envers, au rang suivant (sur l'envers). Bon tricot!

25.07.2023 - 12:38

country flag CMJI De Veer wrote:

Het is gelukt. Voor de kleinste maat S hoef je geen herhaling te breien. Het wordt erg mooi.

11.02.2021 - 14:08

country flag CMJI De Veer wrote:

Uit het Franse antwoord maak ik op dat er geen herhaling in zit maar dat je bij maat S het moet lezen als “breien “ ipv “herhalen” en dan klopt het precies. Ik heb alle aantallen steken onder elkaar gezet als hulpmiddel. De rest van het patroon ook gepuzzeld. Daar waar TEGELIJKERTIJD tijd staat moet je het letter doen. Rugpand en voorpand: aan het eind en begin 2 steken minderen en aan beide kanten in het midden 8 steken meerderen voor het kabel patroon. Ook dat klopt helemaal.

07.02.2021 - 00:51

country flag CMJI De Veer wrote:

120 steken opzetten. Als je de boordsteek van het lijf volgt en alle steken telt dan zijn dat veel meer steken dan 120. Wat moet het zijn?

06.02.2021 - 17:02

DROPS Design answered:

Dag CMJI De Veer,

Heb het nageteld en ik kom precies op 120 steken. Er staat 3 keer iets tussen sterretjes wat je moet herhalen. Het aantal herhalingen is het totaal, dus als er staat dat je 2 averecht, 2 recht moet breien en dit 4 keer moet herhalen, dan doe je het in totaal 4 keer en niet 6 keer. Misschien dat dit het verschil maakt.

11.02.2021 - 13:52

country flag Loredana wrote:

Buongiorno, mi sembra di capire che il treccione va eseguito anche sul dietro, è esatto? Grazie

30.12.2020 - 12:02

DROPS Design answered:

Buongiorno Loredana, esatto: il motivo A.2 è lavorato sia sul davanti che sul dietro. Buon lavoro!

30.12.2020 - 12:13

country flag Nina Wiggen Skaret wrote:

Jeg forstår vrangborden nå.. Hadde det med gjentagelsene vært skrevet på en annen måte hadde det vært lettere å forstå 😊 Hverken jeg eller mormor, som har strikket i mange år forstår ikke helt det som står videre på bolen

23.11.2020 - 13:21

country flag Nina Wiggen Skaret wrote:

Jeg har justert maskeantallet på vrangborden etter mønsteret og får da 164 masker (XXL) vrangborden er ferdig, men jeg forstår ikke helt mønsteret videre. Hva menes med å justere maskeantallet? Og skal det økes 8 masker hver runde, blir den ikke veldig vid til slutt da? Mønsteret videre har liksom ingen sammenheng med vrangborden, får ingenting til å stemme..

22.11.2020 - 20:44

DROPS Design answered:

Hei Nina, Justering varierer avhengig av størrelsen. Din størrelse, strikker du: Glattstrikk over 13 masker (ingen endring), 3 vrang, A.1, 3 vrang, 3 rett, 3 vrang, A.2, over 10 masker, som økes til 18, 3 vrang, 3 rett, 3 vrang, A.3, 3 vrang, glattstrikk over 26 masker (ingen endring), 3 vrang, A.1, 3 vrang, 3 rett, 3 vrang, A.2, over 10 masker, som økes til 18, 3 vrang, 3 rett, 3 vrang, A.3, 3 vrang, glattstrikk over 13 masker, (ingen endring). Håper dette hjelper og god fornøyelse!

23.11.2020 - 13:32

country flag Jennifer wrote:

Bonjour, j’ai un souci à la réalisation de ce magnifique pull. Je fais le modèle en M (120 mailles pour dos et devant). Lorsque que je compte le nombre de mailles pour le motif des cotes je trouve 132 mailles à tricoter... je ne comprends pas... y aurait-il une erreur ? Merci de vos explications. Hâte de me remettre à l’ouvrage. Cordialement Jennifer

20.11.2020 - 22:57

DROPS Design answered:

Bonjour Jennifer, le mot "répéter" a été modifié par "tricoter", en fait vous devez tricoter soit 1 fois *2 m end, 2 m env* au-dessus des 4 mailles suivantes soit 2 fois *2 m end, 2 m env* au-dessus des 8 mailles suivantes, ainsi, vous aurez bien 120 et non 132 m. Bon tricot!

23.11.2020 - 11:08