Annette Franzen skrifaði:
Beim Stricken in Gr. M. kann etwas beim Bündchen nicht stimmen. Stricke ich wie angegeben am Ende der Runde 2M. rechts bleibt 1 M. übrig. Stricke ich diese links, habe ich an der Stelle nur 1M.links bevor die neue Runde wieder mit nur 1M.rechts beginnt.Oder ich stricke diese M. rechts und habe dann 4M.rechts in Folge und nicht 2M.rechts und dann 2 M. links. Was mache ich verkehrt? Danke für eure Hilfe. Liebe Grüße,Annette
02.02.2021 - 19:48DROPS Design svaraði:
Liebe Annette, so stricken Sie in M; 1 M re, 2 M li, 2 M re, 2 M li, 2 M re, A.1a (= 8 M), A.2a (= 18 M), A.3a (= 8 M), 2 M re, 2 M li, 2 M re, 2 M li, 1 M re = 52 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
03.02.2021 - 08:42
Carla Sforza skrifaði:
Buongiorno, dopo aver diminuito a destra le 4 maglie nelle trecce ho messo in attesa su un fermamaglie le 10 centrali dello scollo ma come faccio a diminuire quelle a sinistra? Come devo proseguire? Grazie mille
21.01.2021 - 17:13DROPS Design svaraði:
Buongiorno Carla, da questo punto in poi deve proseguire la lavorazione in piano, per cui il lavoro inizierà a un lato del collo. Buon lavoro!
21.01.2021 - 20:21
Hilde skrifaði:
Ik begrijp de instructie niet voor de pas. Er staat ‘ ...minder tegelijkertijd als het werk 56-66 cm meet 4 steken over de kabels in A.2BE.’ Worden de kabels zelf smaller of moet je aan de zijkant minderen in de averecht steken?
27.12.2020 - 20:51DROPS Design svaraði:
Dag Hilde,
Nee, je mindert over de kabels, dus de 8 steken van de kabels minder je door deze steken 2 aan 2 samen te breien. Alleen over de kabels dus.
17.01.2021 - 14:50
Alessia skrifaði:
Buongiorno, non capisco come diminuire 4 maglie nelle trecce di A2b. In che punto dello schema? Grazie
21.12.2020 - 00:48DROPS Design svaraði:
Buongiorno Alessia, da questo punto in poi le trecce non saranno più lavorate, può diminuire dove preferisce. Buon lavoro!
21.12.2020 - 08:57
Bente skrifaði:
Rett helst opp oppskriften på norsk.\r\nKjedelig å strikke feil når tegnforklaringen ikke stemmer
01.12.2020 - 07:01
Joyce Geene skrifaði:
Wordt het telpatroon al in de boord gestart? Of brei je eerst 5 cm boord en daarna starten met telpatroon kabel? En is de kabel alleen aan de voorkant vd trui
24.11.2020 - 22:10DROPS Design svaraði:
Dag Joyce,
Ja, dat klopt, het patroon begint gelijk al aan het begin, midden voor en midden achter. De delen waar geen patroon wordt gebreid, wordt er 5 cm boordsteek gebreid.
30.11.2020 - 20:35
Sylviane AMOURET-LEBIDEAU skrifaði:
Bonjour Quand on diminue 4 mailles sur A2b pour l'encolure de la taille S, ce sont bien 2 mailles de part et d'autre des 6 mailles centrales qui sont à diminuer? Merci pour votre aide.
13.09.2020 - 12:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Amouret-Lebideau, vous devez diminuer 4 mailles dans A.2b, au tour suivant, vous allez mettre en attente les 8 m centrales, et ne pourrez donc plus tricoter les torsades, pour éviter que ces mailles ne soient trop larges, on doit diminuer (on tricote les mailles comme elles se présentent mais on n'a plus de torsades). Bon tricot!
14.09.2020 - 08:58
Anna Pranga skrifaði:
Hi! I have 16 pieces drops nepal ( typ c, 800 g). It's enough to made size M, if i will add two of filaments tougether?
26.08.2020 - 11:56DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Pranga, you would need 934 g DROPS Nepal to replace Eskimo - try out yarn converter to check. Happy knitting!
26.08.2020 - 12:54
Dóra skrifaði:
Uppskriftin er röng miðað við þá norsku. 4 munstrið í munsturlistanum er rangt þýdd. Það ætti að standa: setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur SLÉTT (ekki brugðið) af kaðlaprjóni.
19.08.2020 - 18:53DROPS Design svaraði:
Takk fyrir þetta Dóra. Þetta hefur verið lagfært.
20.08.2020 - 12:58
Trails Head#trailsheadsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með laskalínu, köðlum og háum kraga úr DROPS Snow. Stærð S - XXXL.
DROPS 219-4 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um laskalínu): Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykki í annarri hverri umferð – byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt í þessum 4 lykkjum) og prjónið 2 lykkjur slétt saman. Þegar lykkjum hefur verið fækkað fyrir hálsmáli, er prjónað fram og til baka – lykkjum er fækkað þá í laskalínu í hverri umferð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna (skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf). Setjið síðan ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er síðan prjónað í hring. Kraginn er prjónaður í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 96-104-112-120-128-148 lykkjur á hringprjón 7 með Snow. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og setjið eitt nýtt prjónamerki eftir 48-52-56-60-64-74 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Nú á að prjóna stroff í hringinn, prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, L og XXL: Byrjið með 1 lykkja brugðið, síðan er prjónað stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir næstu 6-10-14 lykkjur, haldið áfram eins og útskýrt er að neðan undir ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ M, XL: Byrjið með 1 lykkja slétt, síðan er prjónað stroff með 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt yfir næstu 8-12 lykkjur, haldið áfram eins og útskýrt er að neðan undir ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXXL: Byrjið með 2 lykkjur brugðið, síðan er prjónað stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir næstu 18 lykkjur, haldið áfram eins og útskýrt er að neðan undir ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Umferðin heldur áfram þannig: Prjónið mynsturteikningu A.1a yfir 8 lykkjur, A.2a yfir 18 lykkjur, A.3a yfir 8 lykkjur, prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið út umferðina. Í síðustu umferð í mynsturteikningu eru lykkjur auknar út þannig að nú eru 58-62-66-70-74-84 lykkjur á framstykki, það eru enn 48-52-56-60-64-74 lykkjur á bakstykki. Stykkið mælist ca 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið sléttprjón yfir fyrstu 7-9-11-13-15-20 lykkjur, prjónið A.1b yfir A.1a, A.2b yfir A.2a, A.3b yfir A.3a og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með sléttprjón og mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-12-12-12-12-12, cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki -sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtaki útaukningu með ca 6-10-10-10-10-10 cm millibili alls 3 sinnum = (118) 126-134-142-150-170 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 41-41-42-42-42-42 cm, í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= 3 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki) = 58-62-66-70-74-84 lykkjur á framstykki og 48-52-56-60-64-74 lykkjur á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 24-24-24-32-32-36 lykkjur á sokkaprjóna 7 með Snow. Prjónið 2 umferðir sléttprjón, síðan er prjónað stroff með 2 lykkjum slétt og 2 lykkjum brugðið þar til ermin mælist 6-6-6-7-7-7 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 8, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8-10-10-9-9-9 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu með ca 5½-4-3½-5-4½-4 cm millibili alls 8-10-11-8-9-9 sinnum = 40-44-46-48-50-54 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 51-50-49-48-46-46 cm, í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur mitt undir ermi (3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 34-38-40-42-44-48 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki – þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg = 174-190-202-214-226-254 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis = 4 prjónamerki. Prjónið 2-1-1-0-0-0 umferðir áður en úrtaka fyrir laskalínu byrjar. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan – í annarri hverri umferð 13-15-16-17-18-21 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm fækkið um 4-4-4-4-4-4 lykkjur yfir köðlum í A.2b. Setjið síðan miðju 8-8-10-12-14-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Stykkið er síðan prjónað fram og til baka á meðan lykkjum er fækkað fyrir laskalínu frá réttu eins og áður og lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 1 sinni. Á eftir öllum úrtökum fyrir laskalínu og hálsmáli, eru 52-52-54-56-58-60 lykkjur í umferð. KRAGI: Notið sokkaprjóna 7. Prjónið upp lykkjur fyrir kraga og setjið lykkjur af þræði á prjóninn, þannig að það verða ca 14 til 22 lykkjur í hálsmáli að framan. Alls eiga að vera ca 60 til 76 lykkjur í umferð (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið 1 umferð brugðið, prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið í 9 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjur yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #trailsheadsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.