DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Snow Trail

Prjónuð peysa fyrir herra með laskalínu úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 219-8
DROPS Design: Mynstur ne-328
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-650-700-750-850-900 g litur 02, natur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚTAUKNING (á við um laskalínu):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við öll prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þ.e.a.s. á bakstykki er prjónað í sléttprjóni, á framstykki eru útaukningar prjónaðar fyrst í sléttprjóni, síðan mynstur A.2a/A.3a og síðan í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um í hlið á fram- og bakstykki og ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kraginn og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KRAGI:
Fitjið upp 80-84-88-96-96-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm.
Byrjun á umferð = mitt að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 5-9-13-5-13-5 lykkjur jafnt yfir = 85-93-101-101-109-109 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig (setjið eitt prjónamerki á milli lykkja): Prjónið 13-15-17-17-19-19 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 14 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 2. prjónamerki, 6-8-10-10-12-12 lykkjur sléttprjón, A.1 (=18 lykkjur), 6-8-10-10-12-12 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, 14 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 4. prjónamerki, prjónið 14-16-18-18-20-20 lykkjur sléttprjón (= seinni helmingur af bakstykki).
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki.
Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 19-20-22-24-26-30 sinnum, en eftir að aukið hefur verið út 3-3-2-2-1-1 sinnum, aukið síðan út í mynstur á framstykki. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!

Þegar aukið hefur verið út 3-3-2-2-1-1 sinnum er næsta umferð prjónuð þannig:
Prjónið og aukið út eins og áður að 2. prjónamerki, prjónið 1 lykkju sléttprjón, A.2a (= 1 lykkja) 7-9-10-10-11-11 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir 18 lykkjur eins og áður, 7-9-10-10-11-11 lykkjur sléttprjón, A.3a (= 1 lykkja), 1 lykkja sléttprjón (hér situr 3. prjónamerkið), prjónið og aukið út, út umferðina eins og áður.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2a og A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, aukið út eins og útskýrt er undir ÚTAUKNING (þ.e.a.s. útaukningar á framstykki er prjónaðar inn í sléttprjóni) þar til aukið hefur verið út alls 19-20-22-24-26-30 sinnum og A.2b og A.3b er prjónað yfir A.2a og A.3a (stillið af að kaðlarnir fléttist í sömu umferð og A.1) = 237-253-277-293-317-349 lykkjur. Stykkið mælist ca 19-20-22-24-26-29 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 20-21-23-25-27-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki hér:
Prjónið yfir fyrstu 34-35-39-42-47-52 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-54-58-60-62-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið yfir næstu 72-74-82-88-98-108 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-54-58-60-62-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið yfir síðustu 35-36-40-43-48-53 lykkjur (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 161-165-181-197-217-237 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 10-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur undir ermi (= í hliðum á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum.
Haldið áfram hringinn með sléttprjóni og mynstri eins og áður. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 9 cm millibili alls 3 sinnum = 149-153-169-185-205-225 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-32-32-32-31 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem JAFNFRAMT er aukið út um 11-15-11-15-11-15 lykkjur jafnt yfir = 160-168-180-200-216-240 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 5 cm – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 36-37-37-37-37-36 cm frá skiptingu.

ERMI:
Setjið 48-54-58-60-62-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-68-72-74-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 10-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-4-5-5-5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 10-12-13-15-15-18 sinnum = 38-40-42-42-44-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-43-41-40-39-38 cm frá skiptingu, aukið út jafnt yfir 2-4-2-6-4-4 lykkjur = 40-44-44-48-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 5 cm – sjá AFFELLING!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð – það eiga ekki að myndast göt
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Chhavi Methi wrote:

I got a very weird looking increase part over A2a and A2b sections. It says you start increasing in pattern in A2a after the second stitch marker (aka after knitting right sleeve stitches). So far that means you make 1 yarn over after the second raglan stitch. On the second row you purl it twisted. As 2a graph says that yarn over and 1 st stich, and the next row do we purl , and do we also increase as per the raglan? or just after the 2nd marker, we work as per the 2a graph?

06.01.2024 - 09:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Methi, the increases for raglan are worked on every other round, this means just as shown in diagram, 1 round with increase (yarn over), and the next round without increase. Happy knitting!

08.01.2024 - 09:48

country flag Lynette Toma wrote:

I placed my markers, and increased 2 times on each side of markers following tip. Then it says to increase in pattern on front. Does that mean I only increase in the front? And do I increase every other row in just the front 2 times and then start the pattern increase all around? I have been working all the increases every other round like the increase tip said, but then it said when A.2a and A.3a have been worked 1 time vertically, increase as explained? Thank you for your help.

15.11.2023 - 04:55

DROPS Design answered:

Hi Lynette, The increases front and back are a part of the raglan increases. So work the increases in the patterns after marker 2 and as far as marker 3, the normal raglan increases before marker 2 and after marker 3. Hope this helps and happy knitting!.

15.11.2023 - 06:46

country flag Tigresse wrote:

Bonjour, la suite de mon message. Il n'est pas passé au complet. Donc c'est quoi les augmentations en jersey ? Une jetée et la tricoter torse? Est-ce qu'il faut augmenter à chaque rang ? C'est pas très claire. J'ai du tout défaire à nouveau. Merci d'avance.

02.11.2023 - 23:49

DROPS Design answered:

Bonjour Tigresse, vous trouverez dans sous EMPIÈCEMENT la fréquence des augmentations pour votre taille, soit 19-20-22-24-26-30 fois tous les 2 tours. Pour tricoter les augmentations en jersey, tricotez le jersey torse à l'endroit au tour suivant; pour les tricoter en point fantaisie, tricotez les jetés des devants comme indiqué dans les diagrammes A.2a et A.3a (ces jetés figurent dans les diagrammes). Bon tricot!

03.11.2023 - 06:49

country flag Tigresse wrote:

Bonjour, Tricoter les augmentations au point fantaisie. C'est-à-dire que l'on tricote les augmentations du dos en jersey, celles du devant d'abord en jersey puis en suivant A.2a/A.3a et enfin de nouveau en jersey.

02.11.2023 - 23:45

country flag Tigresse wrote:

Bonjour, 3 fois que je recommence, je ne comprends pas le paragraphe Quand A.2a et A.3a ont été tricotés 1 fois en hauteur, augmenter comme expliqué sous AUGMENTATIONS (c'est-à-dire tricoter les augmentations du devant en jersey) jusqu'à ce qu'on ait augmenté 19-20-22-24-26-30 fois au total. Taille XXL. Ces augmentations se font où exactement ? Combien de fois sur 1 rang? 2 ou 4 fois? Est-ce tout les 2 rangs ? C'est pas assez claire pour moi. Merci d'avance.

01.09.2023 - 12:22

DROPS Design answered:

Bonjour Tigresse, on parle ici des augmentations du raglan, ces augmentations vont se tricoter soit en jersey (dos) soit en suivant les diagrammes A.2a/A.3a puis, quand ces diagrammes sont terminés, on va tricoter les augmentations des devants en jersey. Les augmentations du raglan des manches se tricotent en jersey. Vous allez augmenter 8 mailles à chaque fois - cf AUGMENTATIONS (raglan): 26 fois au total en taille XXL (soit 26 fois *1 tour en augmentant 8 m, 1 tour sans augmenter*). Bon tricot!

01.09.2023 - 15:32

country flag Nadine wrote:

Bonjour, pour la taille XL j’ai 101 mailles au départ, j’augmente 24 x 8 mailles pour les raglans, j’obtiens 293 mailles + les 20 mailles d’augmentations des diagrammes A2a et A3a, soit 313 mailles… le schéma est donc faux, j’ai 20 mailles de trop, que faire pour rectifier ? Je suis complètement perdue !!

14.04.2023 - 00:25

DROPS Design answered:

Bonjour Nadine, vous tricotez A.2a après avoir augmenté 2 fois seulement, autrement dit, quand vous augmentez pour le raglan la 3ème fois tricotez les diagrammes A.2a, A.1 et A.3a; puis, quand A.2a et A.3a sont terminés, continuez à augmenter pour le raglan comme avant et tricotez maintenant A.2b et A.3b au lieu de A.2a et A.3a. Bon tricot!

14.04.2023 - 08:00

country flag Nadine wrote:

Bonjour, les diagrammes A2a et A3a sont composés chacun de 11 mailles ; les diagrammes A2b et A3b ont chacun 10 mailles donc chacun 1 maille en moins. Est-ce normal, si oui pour les raccorder quand doit-on diminuer les 2 mailles en trop ? D’avance merci pour votre réponse.

13.04.2023 - 14:51

DROPS Design answered:

Bonjour Nadine, tricotez A.2b et A.3b au-dessus de la torsade de A.2a et A.3a - la 11ème maille (la dernière de A.2a et la 1ère de A.3b) va se tricoter en jersey endroit. Bon tricot!

13.04.2023 - 16:36

country flag Annick Mertens wrote:

Er staat dat je IEDERE naald moet meerderen voor de raglan. Volgens mij moet dit iedere TWEEDE naald zijn. Zo komt het ook overeen met A.3a en A.2b

29.01.2023 - 19:54

country flag Joe O wrote:

Body directions start with 161 stitches. If I decrease (4 stitches) after 5cm, then three more times after 9cm, my math says 161-4-4-4-4 = 145 stitches, not 149. What am I doing wrong? 2nd Question: usually one decreases when it's time for ribbing on the bottom, but this pattern say increase 11 stitches. Is this correct? Thanks for your help.

25.12.2022 - 20:58

DROPS Design answered:

Dear Joe, you need to work the decreases 3 times in total, not 3 more times. So you decrease in total 12 stitches = 149 stitches. 2) Yes, it's correct, you need to increase for the ribbing on the bottom. Whether you increase or decrease for the bottom rib will depend on if you are working a garment from top bottom or bottom up. Happy knitting!

26.12.2022 - 00:21

country flag Rozemarijn Hessels wrote:

I know how to do raglan, and charts are always read from right to left?? if A2a is knitted after the 2nd marker (=right sleeve) it’s still rather confusing, or is a2a the left sleeve? It would be good if this is stated under the chart. It would be much clearer if the written instructions would say: keep increasing in the raglan way until there is ?? stitches on your needles, but knit the increases according to the chart in 2a/b or something like that. I’ll find my way now

25.10.2022 - 01:48