DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Snow yarn
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 219-4

#trailsheadsweater

DROPS Design: Mynstur ee-697
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
650-700-750-850-950-1000 g litur 46, milligrár

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um laskalínu):
Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykki í annarri hverri umferð – byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt í þessum 4 lykkjum) og prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Þegar lykkjum hefur verið fækkað fyrir hálsmáli, er prjónað fram og til baka – lykkjum er fækkað þá í laskalínu í hverri umferð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna (skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf). Setjið síðan ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er síðan prjónað í hring. Kraginn er prjónaður í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 96-104-112-120-128-148 lykkjur á hringprjón 7 með Snow. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og setjið eitt nýtt prjónamerki eftir 48-52-56-60-64-74 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón.

Nú á að prjóna stroff í hringinn, prjónið mismunandi eftir stærðum þannig:
STÆRÐ S, L og XXL: Byrjið með 1 lykkja brugðið, síðan er prjónað stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir næstu 6-10-14 lykkjur, haldið áfram eins og útskýrt er að neðan undir ALLAR STÆRÐIR.
STÆRÐ M, XL: Byrjið með 1 lykkja slétt, síðan er prjónað stroff með 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt yfir næstu 8-12 lykkjur, haldið áfram eins og útskýrt er að neðan undir ALLAR STÆRÐIR.
STÆRÐ XXXL: Byrjið með 2 lykkjur brugðið, síðan er prjónað stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir næstu 18 lykkjur, haldið áfram eins og útskýrt er að neðan undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
Umferðin heldur áfram þannig: Prjónið mynsturteikningu A.1a yfir 8 lykkjur, A.2a yfir 18 lykkjur, A.3a yfir 8 lykkjur, prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið út umferðina. Í síðustu umferð í mynsturteikningu eru lykkjur auknar út þannig að nú eru 58-62-66-70-74-84 lykkjur á framstykki, það eru enn 48-52-56-60-64-74 lykkjur á bakstykki. Stykkið mælist ca 5 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið sléttprjón yfir fyrstu 7-9-11-13-15-20 lykkjur, prjónið A.1b yfir A.1a, A.2b yfir A.2a, A.3b yfir A.3a og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með sléttprjón og mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12-12-12-12-12-12, cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki -sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtaki útaukningu með ca 6-10-10-10-10-10 cm millibili alls 3 sinnum = (118) 126-134-142-150-170 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 41-41-42-42-42-42 cm, í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= 3 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki) = 58-62-66-70-74-84 lykkjur á framstykki og 48-52-56-60-64-74 lykkjur á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 24-24-24-32-32-36 lykkjur á sokkaprjóna 7 með Snow. Prjónið 2 umferðir sléttprjón, síðan er prjónað stroff með 2 lykkjum slétt og 2 lykkjum brugðið þar til ermin mælist 6-6-6-7-7-7 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjón 8, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8-10-10-9-9-9 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan.
Endurtakið útaukningu með ca 5½-4-3½-5-4½-4 cm millibili alls 8-10-11-8-9-9 sinnum = 40-44-46-48-50-54 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 51-50-49-48-46-46 cm, í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur mitt undir ermi (3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 34-38-40-42-44-48 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki – þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg = 174-190-202-214-226-254 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis = 4 prjónamerki. Prjónið 2-1-1-0-0-0 umferðir áður en úrtaka fyrir laskalínu byrjar.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan – í annarri hverri umferð 13-15-16-17-18-21 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm fækkið um 4-4-4-4-4-4 lykkjur yfir köðlum í A.2b. Setjið síðan miðju 8-8-10-12-14-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Stykkið er síðan prjónað fram og til baka á meðan lykkjum er fækkað fyrir laskalínu frá réttu eins og áður og lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 1 sinni.
Á eftir öllum úrtökum fyrir laskalínu og hálsmáli, eru 52-52-54-56-58-60 lykkjur í umferð.

KRAGI:
Notið sokkaprjóna 7. Prjónið upp lykkjur fyrir kraga og setjið lykkjur af þræði á prjóninn, þannig að það verða ca 14 til 22 lykkjur í hálsmáli að framan. Alls eiga að vera ca 60 til 76 lykkjur í umferð (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið 1 umferð brugðið, prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið í 9 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjur yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.02.2022
FRAM- OG BAKSTYKKI:...STÆRÐ M, XL: Byrjið með 1 lykkja slétt, síðan er prjónað stroff með 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt yfir næstu 8-12 lykkjur, haldið áfram eins og áður undir allar stærðir.
Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
Ný mynsturteikning A.3a.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
prjónið 2 lykkjur slétt í sömu lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju í aftari lykkjuboga og 1 lykkju í fremri lykkjuboga) = prjónið 2 lykkjur slétt í sömu lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju í aftari lykkjuboga og 1 lykkju í fremri lykkjuboga)
prjónið 2 lykkjur brugðið í sömu lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju í aftari lykkjuboga og 1 lykkju í fremri lykkjuboga) = prjónið 2 lykkjur brugðið í sömu lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju í aftari lykkjuboga og 1 lykkju í fremri lykkjuboga)
Diagram for DROPS 219-4
Diagram for DROPS 219-4
Diagram for DROPS 219-4

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Linda Van Rooij skrifaði:

Hallo, ik raak al bij het begin in de war. Bij ALLE MATEN staat in de 2e regel: op de laatste naald meerdert u steken zodat er 74 steken op het voorpand... etc. Ga verder... A.1b over A.1a, A.2b over A.2a etc. Maar zoals ik het lees lijkt het of de steken worden gemeerderd op 1 plek op de laatste naald. Maar als ik het patroon bekijk lijkt het me dat de steken op verschillende plekken gemeerderd moeten worden zodat de patronen in elkaar overlopen. Klopt dat?

16.02.2022 - 22:47

DROPS Design svaraði:

Dag Linda,

Je meerdert op de laatste naald in de steek met het ruitje in het telpatroon door 2 steken in 1 steek te haken. Aan het eind van A.1a en A.3a heb je dan 10 steken, zodat deze aansluiten op A.1b en A.3b. Aan het eind van A.2a heb je 24 steken door het meerderen, zodat deze aansluit op A.2b. (Bij telpatroon A.3a zie ik trouwens dat er 10 steken onder staat, dat moet 8 steken zijn).

17.02.2022 - 09:53

country flag Susan Oneill skrifaði:

I have knit most of this sweater and now that I'm on the yoke, i'm at a complete loss. I don't have the technical know how to join facebook. Can I find a tutorial somewhere? I don't understand where to decrease 4 stitches in A.2b, I don't know what is meant by "continued back and forth" and I can't understand how to "decrease for neck ...bind off 2 stitches 1 time and 1 stitch 1 time". The most confusing instructions I've ever encountered.

08.02.2022 - 03:19

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Oneill, depending on the row in A.2b you have to work, decrease these 4 sts evenly in the set of 2 or 3 cables by K2 sts tog a total of 4 times accross A.2. Then slip the middle sts for neck on a thread. And now you will work back and forth starting on the neckline (after the stsvon a thread) towards the other side of neckline (before the sts on the thread) from RS (and from WS in the other direction). At the beginning of each the next 2 rows you will cast off 2 sts then at the beginning of the next 2 rows cast off 1 st (= 3 sts cast off on each side), but at the same time, remember to continue to decrease for raglan as before. Happy knitting!

08.02.2022 - 09:34

country flag Marjon skrifaði:

Bij de tekeningetjes van de kabels, staan bij de 2 onderste dat de 1 over 10 steken gaat en de andere over 8, maar de tekeningetjes gaan allebij over 8 steken. Volgens de tekeningen zijn ze hetzelfde, maar welke is goed? Het gaat over A.3a en A.1a.

17.12.2021 - 10:39

DROPS Design svaraði:

Dag Marjon,

Ze zijn beide goed en ze gaan beide over 8 steken en niet over 10 steken. Bij A.3a onder het telpatroontje hoort dus 8 steken te staan. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling om te controleren en een correctie door te voeren.

19.12.2021 - 20:15

country flag Heather skrifaði:

Hi there! A question with the start, working on the medium, it says to k1 and then k2p2. At the halfway point (52 stitches) I added another k1 to make it even. Other than the charts I am doing the k2p2 rib. But when I get to the end of the row I have 5 knit stitches (the 3 knit stitches at the start, and 2 knit stitches at the end of the row from the rib). Am I missing something? The only way I can think to make it work is to do the cabling on the back too. Thanks so much!! :)

16.12.2021 - 08:13

DROPS Design svaraði:

Dear Heather, we will send your question to the Design department so that they can check the pattern.

10.01.2022 - 20:30

country flag Orietta skrifaði:

Come si riprendono le maglie intorno allo scollo? Devo poi lavorare con i ferri a doppia punta n.7 per terminare il collo ?

15.11.2021 - 14:56

DROPS Design svaraði:

Buonasera Orietta, provi a vedere questo video che le mostra come riprendere le maglie: . Deve riprendere le maglie con i ferri n° 7 mm. Buon lavoro!

16.11.2021 - 22:14

country flag Liz skrifaði:

Hi, I’m finding the Yoke section of this pattern very confusing. When decreasing 4 stitches on A2b, which 4 stitches should be decreased? And what does “bind off 2 stitches one time and 1 stitch one time” mean? Do you alternate on different rows, so bind off 2 stitches on one row and 1 stitch the next? Or what does it mean? Thank you Liz

11.10.2021 - 11:20

DROPS Design svaraði:

Dear Liz, what is important is that you decrease 4 sts over the stitches worked in A.2b to keep the correct width, but the stitches that have to be decreased are not that important, you can knit togheter the knit sts 2 and 2 or the purl/knit sts togeter, just remember the width is the important thing here, these stitches will be worked in rib for neck edge afterwards. Happy knitting!

11.10.2021 - 11:30

country flag Marika Van Ruth skrifaði:

Brei ik de voor- EN achterkant met kabel-telpatronen? ik zie alleen foto's vd voorzijde vd trui? op zich Niet verkeerd, ..

01.10.2021 - 20:30

DROPS Design svaraði:

Dag Mariska,

Nee de kabels worden alleen over het voorpand gebreid, op het achterpand brei je tricotsteek.

02.10.2021 - 10:19

country flag Maria Jonsson skrifaði:

Hej! Stickat diagram A1a-A2a-A3a. Bytte till sticka 8. I instruktionen står det att jag ska sticka 7 rm och därefter sticka A1b över A1a - A2b över A2a och A3b över A3a. Om jag stickar 7 rm så kommer mönstret inte stämma. Har jag missat sticka 7 rm före det att börjat med första diagrammet, hittar inget i isnturiktionen. Vad missar jag?

16.05.2021 - 14:17

DROPS Design svaraði:

Hei Maria. Tar utgangspunkt i at du strikker den minste str. Fra starten av har du 7 masker (du starter med en vrangmaske, deretter vrangbord over 6 masker) før du strikker diagrammene A.1a, A2.a og A.3a. På siste omgang av diagrammene skal du øke 10 masker på forstykket. Se siste rad i diagrammene A.1a, A2.a og A.3a hvor det skal økes (2 steder i A.1a + A.3a og 4 steder i A.2a). Da skal mønstret stemme, lykke til. mvh DROPS design

19.05.2021 - 09:03

country flag Gulden Kiyici skrifaði:

Hallo, ich möchte das mittlere Muster (A2b) nicht stricken. Würde sich die Maschen Anzahl des Rumpfteils aendern? Danke für die Antwort..

15.02.2021 - 18:46

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Kiyici, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder individuelln Anfrage umrechnen - vielleicht können Sie hier die Zunahmen von A.2a nicht stricken (so wird die Maschenanzahl unterschiedlich als in die Anleitung sein), dh diejenigen, die vor A.2b gestrickt sind. Am besten wenden Sie sich an Ihrem DROPS Laden, dort bekommen Sie Hilfen, auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

16.02.2021 - 09:15

country flag Hetty skrifaði:

Ik begrijp de volgende zin niet denk ik: "minder voor de raglan aan elke kant van de 4 steken op elke markeerdraad." Want als ik de tip voor het minderen (voor de raglan) volg, zit de markeerdraad in de mindering in het midden. Daardoor krijg ik aan de ene kant de overgehaalde steek op het voorpand en aan de andere kant op de mouw? Wat doe ik niet goed?

03.02.2021 - 22:37

DROPS Design svaraði:

Dag Hetty,

De markeerdraden zitten in het midden van de raglanlijn en je mindert aan beide zijden van deze markeerdraden. Bij 'tip voor het minderen (voor de raglan)' staat aangegeven hoe je dit precies doet (verschillend voor en na de markeerdraad, zodat de steek de goede kant op leunt).

06.02.2021 - 11:58