Sumiyyah skrifaði:
Can you please explain this increase in the sleeve, does it is additional to raglan increases? "Then continue to increase on the sleeves 4-2-4-4-2-0 more times (= a total of 21-23-26-29-29-31 stitches increased on each side of the sleeves"
27.09.2026 - 21:11DROPS Design svaraði:
Dear Sumiyyah, these increases are only worked on the sides of the markers where the sleeves are and are worked additionally to the raglan increases. First you increase for the raglan every 2nd row, then you increase only on 1 side of each marker (towards the sleeves) more times. So you have increased 17-21-22-25-27-31 times for the body and 21-23-26-29-29-31 times for the sleeves. Happy knitting!
28.09.2026 - 01:43
FRANÇOISE skrifaði:
Bonjour, je suis obligée de défaire tout mon tricot car j'ai beaucoup trop de mailles. peut être que j'ai mal compris les augmentations. on fait une augmentation avant ou après chaque motif des torsade mais pas de chaque côté du motif de chaque torsade. pour les manches c'est bon. merci pour votre réponse bonne journée à vous Cordialement
16.09.2026 - 13:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, il y a différentes augmentations: les premières après le col, on augmente dans chaque A.1 et on obtient 130-154 m. On augmente ensuite 8 m pour les manches au 1er rang de l'empiècement = 138-162 m. On augmente ensuite 8 m pour le raglan tous les 2 tours (de chaque côté de chaque A.2) = 274-410 m. Puis on va augmenter pour les manches seulement (plus pour les devants/le dos - sauf en XXXL), on a ainsi 290-410 m avant la division. N'hésitez pas à nous indiquer la taille que vous tricotez et à partir de quel niveau vous n'avez plus le bon compte de mailles, ce sera ainsi plus facile de vous aider. Bonne continuation!
17.09.2026 - 08:57
FRANÇOISE skrifaði:
Bonjour je suis arrivée au diagramme des torsades et je voie sur le chéma croisé 4 mailles sur 8 mailles alors que sur la descriptif il dise croisé 4mailles sur 4 mailes se qui me parait plus plosible a mon sens. se qui fait sur mon diagramme qui contient 12 ailles il y aurait 2 mailles avant et après ma grosse torsade . merci de me donner une réponse car là je suis bloqué pour le moment. cordialement
03.09.2026 - 18:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, la torsade centrale de A.2 se tricote en 2 fois: d'abord on croise les 8 dernières mailles puis la fois suivante, on va croiser les 8 premières mailles; n'hésitez pas à vous entrainer sur un échantillon séparément si besoin, vous verrez ainsi la torsade se former. Bon tricot!
04.09.2026 - 16:32
FRANÇOISE skrifaði:
Bonjour, combien de mailles au début pour le dos entre les torsades dos / devant Merci pour votre réponse cordialement
02.09.2026 - 12:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, merci de bien vouloir nous indiquer la taille que vous tricotez, ce sera ainsi plus simple de vous répondre exactement - cf également réponses ci-dessous. Merci pour votre compréhension.
03.09.2026 - 18:06
LELARGE skrifaði:
Combien de mailles pour le début de la manche entre les motif torsades . merci
01.09.2026 - 15:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lelarge, lorsque vous tricotez l'empiècmeent, le nombre de mailles avant/après chaque manche dépend de votre taille, vous devez avoir 7 mailles pour la manche entre le A.2 tricoté à la fin du devant et le A.2 au début du dos puis après le A.2 à la fin du dos et avant le A.2 au début de l'autre devant. Bon tricot!
02.09.2026 - 17:32
FRANÇOISE skrifaði:
J'attend toujour votre réponse concernant le début du col avec diagramme A1. Merci pour votre réponse. Cordialement
01.09.2026 - 11:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, le nombre de mailles pour chaque taille est indiqué dans les explications, en fonction de votre taille, vous tricoterez un nombre différent de mailles en côtes 2 m end, 2 m env, et entre chaque "groupe" de mailles en côtes, vous tricoterez les 22 mailles de A.1, pour une réponse détaillée correspondant à votre taille, merci de l'indiquer ici, ce sera ainsi plus simple de vous répondre, car chaque taille se tricote différemment (en raison du nombre de mailles différent). Merci pour votre compréhension.
02.09.2026 - 17:22
FRANÇOISE skrifaði:
Bonjour Je n'arrive pas à comprendre le début du gilet on tricote les côtes et le motif A1 en même tant. merci de bien vouloir me l'expliquer. cordialement
31.08.2026 - 18:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, en fonction de votre aille, vous allez tricoter en côtes 2/2 avec les 22 mailles du diagramme A.1 au niveau de chacun des raglans, entre les devants/le dos et les manches - notez qu'au début, vous crochetez A.1 en côtes (2 m env, 2 m end) en terminant par 2 m env, . Quand les côtes mesurent 7 cm, vous allez augmenter dans chaque A.1 (pour les torsades) en tricotant le dernier rang de A.1 - et les autres mailles en côtes juste comme avant; n'hésitez pas à indiquer votre taille pour une aide un peu plus précise si besoin. Bon tricot!
01.09.2026 - 19:59
Rebecca Burghardt skrifaði:
Hi Drops- Team, Habe eine Frage zur ersten Hinreihe der Passe: Man soll sowohl vor und nach A2 per Umschlag zunehmen als auch neben den Ärmelmaschen. Aber dann müsste man an den Grenzen von A2 und den Ärmelmaschen 2 Umschläge nebeneinander machen, was aber technisch nicht möglich ist. Habe ich da was falsch verstanden oder soll man an den Stellen auf andere Art zunehmen? Dank(!) und viele Grüße
05.02.2026 - 19:23DROPS Design svaraði:
Liebe Rebecca, in der 1. Hin-Reihe der Passe nehmen Sie neben A.2 noch nicht zu, das kommt erst in der nächsten Hin-Reihe. In der ersten Hin-Reihe stricken Sie nur die Zunahmen am Ärmel, diese Zunahmen werden dann aber nicht mehr wiederholt. Ab der 3. Reihe (= Hin-Reihe) arbeiten Sie nur noch die Raglanzunahmen beidseitig jedes A.2. Viel Spaß beim Weiterstricken!
05.02.2026 - 23:28
Karin skrifaði:
Stickas tröjan i enkelt eller dubbelt garn?
31.07.2025 - 19:55DROPS Design svaraði:
Hei Karin. Climbing Ivy Cardigan er strikket i 1 tråd DROPS Brushed Alpaca. mvh DROPS Design
25.08.2025 - 09:55
Ana Coma skrifaði:
Siento volver a molestar pero no entiendo la explicación que dice: repetir las dos primeras filas en A1 y trabajar los puntos restantes como antes. Qué quiere decir puntos restantes? Muchas gracias
20.03.2025 - 20:06DROPS Design svaraði:
Hola Ana, en A.1 solo trabajas las primeras 2 filas, ya que la 3ª fila tiene aumentos; esta fila solo se trabaja al final del cuello. El resto de puntos (los que no se trabajan en A.1 en la 1ª fila explicada) se trabajan en punto elástico, de derecho o en punto musgo, tal y como se indicaba en esta fila.
23.03.2025 - 14:06
Climbing Ivy Cardigan#climbingivycardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-2 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við einingu af A.2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo EKKI myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 19 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 114-114-126-126-138-138 lykkjur á hringprjóna 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 0-0-4-4-8-8 lykkjur, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 4-4-8-8-12-12 lykkjur, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 0-0-4-4-8-8 lykkjur og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið 2 fyrstu umferðir í A.1 og prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður þar til stykkið mælist 3 cm, setjið 1 prjónamerki hér (= mitt að framan, það er notað til að mæla frá siðar), haldið áfram með 2 fyrstu umferðir í A.1 og prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður þar til stykkið mælist 7 cm, endið þannig að síðasta umferðin sé frá réttu. Prjónið síðan síðustu umferðina í A.1 (með útaukningu) frá röngu. Nú eru 130-130-142-142-154-154 lykkjur í umferð. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjóna 5. Næsta umferð er prjónuð þannig (rétta): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 2-2-6-6-10-10 lykkjur slétt, prjónið A.2 (= 26 lykkjur) yfir A.1 (= vinstra framstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, 1 lykkja slétt (= 7 lykkjur ermi), prjónið A.2 yfir A.1, prjónið 6-6-10-10-14-14 sléttar lykkjur (= mitt að aftan) og prjónið A.2 yfir A.1 (= bakstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 7 lykkjur ermi), prjónið A.2 yfir A.1, prjónið 2-2-6-6-10-10 sléttar lykkjur og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki) = 138-138-150-150-162-162 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð til baka í mynstri, uppslættirnir 4 í hvorri hlið yfir hvorri ermi eru prjónaðar snúnir brugðið svo ekki myndist gat. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið nú áfram með A.2, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.2 fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 17-21-22-25-27-31 sinnum = 274-306-326-350-378-410 lykkjur. Haldið nú áfram með útaukningu á ermum 4-2-4-4-2-0 sinnum til viðbótar (= alls 21-23-26-29-29-31 lykkjur fleiri í hvorri hlið á ermi), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í mynstri eins og áður. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, eru 290-314-342-366-386-410 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist 23-25-28-30-31-32 cm frá prjónamerki mitt að framan. Ef stykki mælist minna en þetta, haldið áfram með mynstur eins og áður, en án útaukninga. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 50-54-59-62-68-72 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 49-53-59-65-65-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjóni næstu 92-100-106-112-120-128 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 49-53-59-65-65-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 50-54-59-62-68-72 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 204-220-236-252-276-296 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram fram og til baka með A.2 eins og áður, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og sléttprjón eins og áður. Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist 26-26-25-25-26-27 cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð í A.2 sé umferð með köðlum. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 19-23-28-31-37-41 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-0-1-3-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (= 20-24-28-32-40-44 lykkjur í stroffi), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 6-6-6-8-10-12 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 6-6-6-10-10-14 lykkjur stroff), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 40-48-54-60-68-76 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir (= 42-50-54-62-70-78 lykkjur stroff), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 6-6-6-8-10-12 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 6-6-6-10-10-14 lykkjur stroff), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 19-23-28-31-37-41 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-0-1-3-3 lykkjur jafnt yfir (= 20-24-28-32-40-44 lykkjur í stroffi), endið með 5 lykkjum garðaprjón. Í næstu umferð heldur stroffið áfram eins og útskýrt er í uppskrift og A.4 er prjónað yfir lykkjur í A.3 = 192-208-220-244-268-292 lykkjur í umferð. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 49-53-59-65-65-69 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á hringprjóna / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 55-59-65-73-75-81 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 6-6-6-8-10-12 lykkjur undir ermi (= 3-3-3-4-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-4-2½-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-10-13-13-14 sinnum = 43-45-45-47-49-53 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 35-34-32-30-30-30 cm – ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-3-3-1-3-3 lykkjur jafnt yfir = 44-48-48-48-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, ermin mælist ca 39-38-36-34-34-34 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #climbingivycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.