DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5016.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Climbing Ivy

Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-1
DROPS Design: Mynstur as-142
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-175-200-200-225-250 g litur 21, salvíugrænn

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5016.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við einingu af A.2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo EKKI myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 19 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 3,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 106-106-114-114-122-122 lykkjur á hringprjóna 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff frá miðju að aftan þannig:

STÆRÐ S-M-XXL-XXXL:
1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 0-0-4-4 lykkjur, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 4-4-12-12 lykkjur, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 0-0-4-4 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið.

STÆRÐ L-XL:
1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 8 lykkjur, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 22 lykkjur), 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt.

ALLAR STÆRÐIR:
Endurtakið 2 fyrstu umferðir í A.1 og prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður þar til stykkið mælist 3 cm, setjið 1 prjónamerki hér (= mitt að framan, það er notað til að mæla frá síðar), haldið áfram með 2 fyrstu umferðir í A.1 og prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður þar til stykkið mælist 7 cm. Prjónið síðustu umferð í A.1 (með útaukningum). Nú eru 122-122-130-130-138-138 lykkjur í umferð.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjóna 5. Næsta umferð er prjónuð þannig: prjónið 3-3-5-5-7-7 lykkjur slétt, prjónið A.2 (= 26 lykkjur) yfir A.1 (= hálft bakstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 7 lykkjur ermi), prjónið A.2 yfir A.1, prjónið 6-6-10-10-14-14 lykkjur slétt og prjónið A.2 yfir A.1 (= framstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, (= 7 lykkjur ermi), prjónið A.2 yfir A.1, prjónið 3-3-5-5-7-7 lykkjur slétt (= hálft bakstykki) = 130-130-138-138-146-146 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð með mynstri, þeir 4 uppslættirnir í hvorri hlið yfir hvorri ermi eru prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið nú áfram með A.2 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 17-21-22-25-27-31 sinnum = 266-298-314-338-362-394 lykkjur. Haldið nú áfram með útaukningu á ermum 4-2-4-4-2-0 sinnum til viðbótar (= alls 21-23-26-29-29-31 lykkjur fleiri í hvorri hlið á ermum), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í mynstri eins og áður.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, eru 282-306-330-354-370-394 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist 23-25-28-30-31-32 cm frá prjónamerki mitt að framan. Ef stykki mælist minna en þetta, haldið áfram með mynstur eins og áður, en án útaukninga.

Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 46-50-53-56-60-64 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 49-53-59-65-65-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 92-100-106-112-120-128 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 49-53-59-65-65-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-50-53-56-60-64 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 196-212-224-240-260-280 lykkjur fyrir fram- og bakstykki.
Haldið áfram hringinn með A.2 og sléttprjóni eins og áður. Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist 26-26-25-25-26-27 cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð í A.2 sé umferð með köðlum. Skiptið yfir á hringprjóna 4. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 19-23-26-29-33-37 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-2-3-3-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (= 20-24-28-32-36-40 lykkjur í stroffi), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 6-6-6-8-10-12 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 6-6-6-10-10-14 lykkjur stroff), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið*, endurtakið frá *-* yfir næstu 40-48-54-60-68-76 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir (= 42-50-54-62-70-78 lykkjur stroff), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 6-6-6-8-10-12 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 6-6-6-10-10-14 lykkjur stroff), prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 19-23-26-29-33-37 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-2-3-3-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (= 20-24-28-32-36-40 lykkjur í stroffi), 1 lykkja slétt.
Í næstu umferð heldur stroff áfram eins og útskýrt hefur verið og A.4 er prjónað yfir lykkjur í A.3 = 184-200-212-236-252-276 lykkjur í umferð. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 49-53-59-65-65-69 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á hringprjóna/sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 55-59-65-73-75-81 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 6-6-6-8-10-12 lykkjur undir ermi (= 3-3-3-4-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-4-2½-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-10-13-13-14 sinnum = 43-45-45-47-49-53 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 35-34-32-30-30-30 cm – ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-3-3-1-3-3 lykkjur jafnt yfir = 44-48-48-48-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, ermin mælist ca 39-38-36-34-34-34 cm.

Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 sléttar lykkjur, prjónið 2 sléttar lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 sléttar lykkjur, prjónið 2 sléttar lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 sléttar lykkjur, prjónið 4 sléttar lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 sléttar lykkjur, prjónið 4 sléttar lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Climbing Ivy

Nore - Perrignon Fanny, France

Climbing Ivy

Natalie, United States

Climbing Ivy

Joe5, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (83)

country flag Ira Hnida wrote:

Habe alle Rätsel selbst gelöst. Konnte nicht warten. Vg

27.03.2024 - 16:51

country flag Vish wrote:

Hi! I finished working on the yoke and the increases on the sleeves for the size L. After making the increases on the sleeves 4 times (for size L), the number of stitches on the needle =346 stitches NOT 330 stitches. Is there some error with the math on the pattern? Basically, 314 sts after the yoke increases for size L + 16 sts + 16 stitches on each of the sleeves (=346 sts). What am I missing? Please help! Thanks!

26.03.2024 - 04:56

DROPS Design answered:

Dear Vish, after you get 314 stitches you increase 4 more times only in the sleeves. You have 2 increases per sleeve. So you increase 2 increases x 2 sleeves x 4 times =16 increases. 314 stitches +16 increases = 330 stitches. Happy knitting!

31.03.2024 - 23:02

country flag Ira Hnida wrote:

Hallo Drops Team , nun bin ich immernoch beim Übergang zur Passe habe meinen 1 Fehler begriffen , trotzdem fehlen mir immer noch 2 Maschen .Komme auf 136 bei 4 mal 4 Maschen Zunahme. Das erste Rätsel habe ich geschafft,nun fehlen noch 2 M Auch auf dem Papier beim Rechnen. VG

25.03.2024 - 01:03

DROPS Design answered:

Siehe Antwort unten :)

02.04.2024 - 09:25

country flag Ira Hnida wrote:

Hallo Drops Design Team ,wenn ich ganz am Anfang 122 M mit A1 stricke ,komme ich in der letzten Reihe auf 20 Umschläge,also auf 142 Maschen ,nicht 138. Das ist mir ein Rätsel. Viele Grüße

24.03.2024 - 18:04

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hnida, bei der letzten Reihe in A.1 wird man 4 Maschen (siehe Umschläge) zunehmen, so wird man insgesamt 4 Maschen in jedem A.1 (4Mal) = 16 Maschen zunehmen, so hat man 122 + 16 = 138 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 09:18

country flag Vish wrote:

Thank you for your response! This really helps. I have a follow up question -- When you/the pattern says "increasing on the 2nd round a total of 17-21-22-25-27-31 times," second round of A.2 pattern or every second (alternate) round in the pattern? Meaning in rounds 1, 3, 5, 7 of the A.2 pattern? I am a new knitter and this is my first raglan pattern, so I am very confused about how to do the increases.

13.03.2024 - 20:27

DROPS Design answered:

See answer below :)

14.03.2024 - 08:20

country flag Vish wrote:

Thank you for your response! This really helps. I have a follow up question -- When you/the pattern says "increasing on the 2nd round a total of 17-21-22-25-27-31 times," second round of A.2 pattern or every second (alternate) round in the pattern? Meaning in rounds 1, 3, 5, 7 of the A.2 pattern? I am a new knitter and this is my first raglan pattern, so I am very confused about how to do the increases.

13.03.2024 - 19:21

DROPS Design answered:

Dear Vish, yes that's right, you will work alternately 1 round with increases, 1 round without increases until you have worked 17 - 31 times (see size). Happy knitting!

14.03.2024 - 08:14

country flag Vish wrote:

Hi, I am making this pattern in size L. I am now working the yoke. I knit the 1st round of yoke and have 138 st (= all good so far). I am extremely confused about how to work round 2 onwards. Do I repeat Round 2 of A.2 with the increases on each side of the sleeves and over the sleeves? What does it mean to "Continue with A.2 and stocking stitch, AT THE SAME TIME on the first round increase 1 stitch on each side of every A.2 to RAGLAN – read description above.?" Please help!

10.03.2024 - 06:32

DROPS Design answered:

Dear Wish, when you start the yoke, on the stitches that were knitted with the pattern A.1 will be continued with the pattern A.2. AND increases on both sides of all repeats of pattern A.2.From then on you continue with the rows (rounds) of pattern A.2 at the raglan lines, increasing as the instructions say ("2nd round a total of 17-21-22-25-27-31 times = 266-298-314-338-362-394 stitches. Continue the increases on the sleeves 4-2-4-4-2-0 more times (= a total of 21-23-26-29-29-31 stitches increased on each sleeve),"), and stocking stitches on the rest. I hopw this helps. Happy Knitting!

10.03.2024 - 22:23

country flag Josephine Lottenburger wrote:

Har I brugt pind 4 eller 5 til strikkefastheden?

12.02.2024 - 17:32

DROPS Design answered:

Hej Josephine, vi bruger pind 5 :)

22.02.2024 - 11:29

country flag Miranda wrote:

Hi! I'm starting to knit the pattern but I don't understand how it should look from behind. Is it the some as the front pattern? It would be really helpful if you could post a backside picture for reference.

26.01.2024 - 11:24

DROPS Design answered:

Dear Miranda, these are the only photos of the pattern that we have available. The back piece and the front piece should look practically the same, since both have the same cable pattern. Happy knitting!

28.01.2024 - 23:44

country flag Bably wrote:

Bonjour je veux tricoter la taille M. Je monte 106 mailles. pour le col, l'alternance des mailles détaillées conduit à avoir 118 mailles. Je ne comprends pas comment faire. Faut il monter 118 mailles? 118 mailles semble cohérent avec la répartition du paragraphe suivant qui après parle d'augmentations (lesquelles?) pour arriver à 122 mailles. Comment les répartitions sont elles réparties? merci

14.01.2024 - 07:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bably, tricotez ainsi en taille M: 1 maille envers, 2 mailles endroit, A.1 (= 22 mailles), 3 mailles endroit, A.1 (= 22 mailles), 2 mailles endroit, *2 mailles envers, 2 mailles endroit*, tricoter de *-* au-dessus des 4 mailles suivantes, A.1 (= 22 mailles), 3 mailles endroit, A.1 (= 22 mailles), 2 mailles endroit, 1 maille envers soit: 1+2+22+3+22+2+4+22+3+22+2+1=106 mailles (notez que les parties indiquées 0 fois en taille M ne se tricotent pas). Bon tricot!

15.01.2024 - 09:26