Berglind skrifaði:
„Færa prjónamerkið... hvert?“ Prjónamerki er ekki hluti af prjóninu. Þú færir það alltaf af vinstri prjóni yfir á þann hægri þegar þú kemur að því. En ef þú ert búin að búa til nýjar lykkjur fyrir merkið, þá vaknar spurningin: 👉 Á merkið að vera: á eftir nýju lykkjunum (þannig að nýju lykkjurnar tilheyri framstykkinu), eða á það að vera á milli tveggja ákveðinna lykkja sem eiga að mynda laskalínuna?
30.07.2026 - 11:36DROPS Design svaraði:
Blessuð Berglind. Þú færir prjónamerkið yfir á þann hægri þegar þú kemur að því. Þegar stendur að merkið situr hér er meint að þú ert komin að merkinu og að það sé staðsett þarna. Þegar þú prjónar áfram þá færir þú merkið. Gangi þér vel.
30.07.2026 - 13:38
Berglind skrifaði:
Ég er að prjóna 212.5 Í laska kaflanum er talað um að slá BARA upp á fram og bakstykki. Samt er sagt að auka út um 1/-2 l á UNDAN pm og þá hlýtur það að færast á axlarstykkið. Það er sagt að það bætist við 8 lykkjur í hv umferð og 4 þegar einni er bætt við en skv þessu gengur það ekki upp. Er þetta prj1 slá upp prj1 eða prj 1 slá upp prj 1 slá upp aftur?
29.07.2026 - 14:58DROPS Design svaraði:
Blessuð Berglind. Í útskýringu í UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR í kaflanum LASKALÍNA er útskýring á því hvernig þú eykur út fyrir LASKALÍNU. Í byrjun er aukið út um 2 lykkjur við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 8 lykkjur fleiri) síðan er aukið út um 1 lykkju við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri). Þegar aukið er út um 2 lykkjur er prjónað þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki síðan er slegið 1 sinni uppá prjóninn, prjónuð 1 lykkja slétt, slegið 1 sinni uppá prjóninn, prjónuð 1 lykkja slétt, merkið situr hér. Vona að þetta hjálpi. Gangi þér vel.
30.07.2026 - 11:05
Berglind skrifaði:
Hæ það sést ekki á myndinni en eru bæði fram-og bakstykkin slétt? Mjög ruglingsleg uppsetning á útaukningunni...
27.07.2026 - 11:56DROPS Design svaraði:
Blessuð Berglind. Fram- og bakstykkið eru prjónuð slétt. Varðandi útaukninguna þá er aukið út á ermum í síðustu umferðinni fyrir berustykki (þegar aukið er út um 1 lykkju í hverri brugðinni einginu á hvorri ermi og aukið er út jafnt yfir á fram- og bakstykki), síðan er aukið út fyrir laskalínu en aðeins er aukið út á fram- og bakstykki en ekki á ermum. Gangi þér vel.
28.07.2026 - 11:36
Gonny skrifaði:
Kan ik voor het boord en de pas/mouwen van patroon 212-15 de combinatie techniek gebruiken?
24.07.2026 - 12:54DROPS Design svaraði:
Dag Gonny,
Wat bedoel je met de combinatietechniek? De mouwen en boorden brei je in 2 recht, 2 avercht.
26.07.2026 - 16:45
Sandra skrifaði:
The knitting gauge is using the size 5mm needle?
23.06.2026 - 01:09DROPS Design svaraði:
Dear Sandra, correct, the knitting gauge should be worked with the larger needle, size 5 mm or the size you will need to get this tension. Happy knitting!
23.06.2026 - 08:59
Pam skrifaði:
Do you have a video on how to do the increases for the shoulder. I just don't understand the pattern
17.06.2026 - 21:03DROPS Design svaraði:
Hi Pam, Here is a link to our video showing you how to work a yoke with raglan: https://www.garnstudio.com/video.php?id=592&lang=en Regards, Drops Team.
18.06.2026 - 05:42
Pam skrifaði:
Having a very difficult time with reading and understanding the pattern. Increases don\'t make sense. Do you have a video of this
14.06.2026 - 18:47
Rosario skrifaði:
Llevo varios días tratando de entender el patrón y no lo consigo. Busco entre las preguntas y tampoco entiendo las respuestas. Por la cantidad de preguntas con respecto a los aumentos (más de 200) me atrevo a pensar que no está claramente explicado y me sorprende que prefieran contestarlas una a una en vez de subir una explicación entendible.
06.06.2026 - 05:34DROPS Design svaraði:
Hola Rosario, puedes hacer tu pregunta concreta aquí y nosotros contestaremos a tu pregunta. Hay veces que algunas técnicas que, por su complejidad, se entienden peor en el texto y requieren una explicación adicional para entenderlo completamente. Por eso, puedes escribir aquí tu duda con respecto al patrón y te contestaremos intentando resolver tu duda lo mejor posible. Puede ser que esta respuesta luego ayude a otras tejedoras con tu misma duda.
08.06.2026 - 02:40
Ann skrifaði:
Brei dan in de buitenste steek aan elke kant van het voorpand en het achterpand in op de mouwen. Ik begrijp niet wat dit betekent, aan het einde van de pas
07.05.2026 - 20:03DROPS Design svaraði:
Dag Ann,
De zin is inderdaad niet zo goed geformuleerd, maar je hoeft daar niets mee te doen; het staat er als aanvullende informatie. Bij het verdelen van de pas komen de buitenste steken van het voorpand en het achterpand uiteindelijk bij de mouw. Maar als het goed is wordt dit in de paragraaf die daar direct op volgt duidelijk.
09.05.2026 - 08:03
Carmen skrifaði:
Me podéis explicar por favor como cojer los puntos de las mangas con los 6 extras?? Gracias
04.05.2026 - 14:21DROPS Design svaraði:
Hola Carmen, los puntos a recoger son los puntos montados en las sisas para las mangas. Puedes ver aquí un vídeo sobre cómo recoger puntos en bordes de montaje.
11.05.2026 - 00:55
Canyon Clay#canyonclaytop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur með laskalínu úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-15 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 9 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. LASKALÍNA: Í byrjun er aukið út um 2 lykkjur við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 8 lykkjur fleiri í umferð), síðan er aukið út um 1 lykkju við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 2 lykkjur á undan merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, merkið situr hér. Aukið út um 2 lykkjur á eftir merki þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 lykkju á undan merki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merki: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, merkið situr hér. Aukið út um 1 lykkju á eftir merki þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-118-126-138-144-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 8-8-12-12-12-12 lykkjur, 1 lykkja slétt, setjið eitt merki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt, (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 33-36-36-42-45-45 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt merki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt merki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 33-36-36-42-45-45 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt merki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8-8-8-8-8-8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram hringinn þar til stroffið mælist 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur fram að fyrsta merki og aukið jafnframt út 2-3-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir lykkjurnar fram að næsta merki og aukið jafnframt út 1 lykkju í hverri brugðinni einingu – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, prjónið sléttar lykkjur fram að næsta merki og aukið jafnframt út 4-6-5-5-6-8 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur fram að næsta merki og aukið jafnframt út 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-11-11-11-11 lykkjur og aukið jafnframt út 2-3-2-2-3-4 lykkjur jafnt yfir = 144-156-162-178-188-192 lykkjur. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 merki í byrjun á umferð (= ca fyrir miðju að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu merki! BERUSTYKKI: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Það er einungis aukið út á framstykki og bakstykki við hverja laskalínu. Aukið út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 9-9-8-10-12-13 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð 2-4-6-6-8-8 sinnum = 224-244-250-282-316-328 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 12-13-15-16-18-20 cm frá merki. Nú er berustykkið tilbúið. Prjónið síðan ystu lykkjuna í hvorri hlið á framstykki og bakstykki inn á ermum. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 30-33-37-41-47-50 lykkjur eins og áður, setjið næstu 50-54-54-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-10-10-10-14 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-68-71-79-92-98 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-54-54-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-10-10-10-14 lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 32-35-34-38-45-48 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-148-162-178-204-224 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum (= 3-3-5-5-5-7 nýjar lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn). Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu, það á að nota þá síðar þegar aukið er út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 8-7-6-5-4-3 cm millibili alls 2 sinnum = 128-140-154-170-196-216 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-18-16-14-12-10 cm frá skiptingunni, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3. Aukið svona út með ca 3-4-4-5-6-6 cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum = 144-156-170-186-208-228 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30 cm frá skiptingunni (nú eru eftir 3 cm að loka máli – prjónið e.t.v. að óskaðri lengd), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-34-38-40-44 lykkjur jafnt yfir = 172-184-204-224-248-272 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Toppurinn mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-54-54-62-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki til baka á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5 og takið upp 1 lykkju hvoru megin við 6-6-10-10-10-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-72-76-80 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #canyonclaytop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.