Anja Machowetz skrifaði:
Bei den Raglanzunahmen schreibt ihr, dass insgesamt 8 per Runde zugenommen werden sollen. Aber gleichzeitig sagt ihr 2 Maschen vor und 2 Maschen ach der Raglanlinie. Das macht dann aber 16 M per Runde. Was ist denn nun die korrekte Anzahl oder verstehe ich etwas falsch?
28.02.2021 - 11:51DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Machowetz, es wird nur beim Vorder und Rückenteil zugenommen, dh nich bei den Ärmeln, so nehmen Sie zuerst nur 8 Maschen (= jeweils 4 Maschen beim Vorder- bzw Rückenteil. Viel Spaß beim stricken!
01.03.2021 - 09:27
Birgitta Laget-thelin skrifaði:
Skulle så gärna vilja sticka denna jumper med raglanärm på vanliga stickor, alltså ej rundsticka, kan någon hjälpa mig? Modell w 806
11.02.2021 - 17:29DROPS Design svaraði:
Hei Birgitta. Vi har dessverre ikke mulighet til å skrive om denne oppskriften til å strikke med parpinner. mvh DROPS design
15.02.2021 - 15:03
Loredana Daviddi skrifaði:
Buonasera, aumentare ogni 2 giri cosa significa? Lavoro 1 ferro con aumenti e 1 ferro senza ... grazie Lore
04.02.2021 - 17:55DROPS Design svaraði:
Buonasera Loredana, sì esatto, lavora 1 giro con aumenti e 1 giro senza. Buon lavoro!
04.02.2021 - 19:11
Sonja skrifaði:
Anleitung wird zum Kauf angeboten im Internet bei etsy , mit Ihren original Fotos
26.01.2021 - 06:13
Cecilie Nissen Jøhnk skrifaði:
Hej, jeg er ved at være færdig, og læser nu i jeres vaske-instruktioner, at det er vigtigt at vaske Drops bomuldsgarn ved *høj* nok temperatur, ellers løber farverne. 1) Hvordan kan det være? Havde håbet at vaske ved 30 grader som resten af mit tøj 2) Gælder det også for recycled denim, som jeg strikker i? Tak og venlig hilsen Cecilie
20.01.2021 - 10:21DROPS Design svaraði:
Hei Cecilie. Vi anbefaler at man vasker all garn etter vaskeanvisningen, det er den anbefalingen vi har fått fra vår leverandør. Ved å vaske på 30`C blir ikke plagget sentrifugert fort nok, slik at det kan bli liggenede (får bare en lett sentrifugering) ganske vått i maskinen over litt tid, derav kan fargen farge av. Dette gjelder jo spesielt når man har et plagg med flere farger. mvh DROPS design
27.01.2021 - 13:55
Cecilie Nissen Jøhnk skrifaði:
Hej, jeg er ved at være færdig, og læser nu i jeres vaske-instruktioner, at det er vigtigt at vaske Drops bomuldsgarn ved *høj* nok temperatur, ellers løber farverne. 1) Hvordan kan det være? Havde håbet at vaske ved 30 grader som resten af mit tøj 2) Gælder det også for recycled denim, som jeg strikker i? Tak og venlig hilsen Cecilie
20.01.2021 - 00:01DROPS Design svaraði:
Hej Cecilie, vore anbefalinger gælder generelt for bomuld. Hvis du ikke vil følge dem, kan du lave en strikkeprøve og vaske først. God fornøjelse!
20.01.2021 - 07:35
Mirta skrifaði:
Posso avere le istruzioni per lavorare con ferri normali ? Grazie
04.01.2021 - 16:13DROPS Design svaraði:
Buonasera Mirta, questo modello è stato progettato per la lavorazione in tondo; per lavorarlo in piano dovrebbe spostare l'inizio del lavoro su un lato e aggiungere una maglia di vivagno a ogni lato per la cucitura. Buon lavoro!
04.01.2021 - 18:22
Ann E Urick skrifaði:
INCREASE TIP-2: Increase 1 stitch by making 1 yarn over. On next round purl yarn over twisted to avoid holes. Purl the new stitches. What do you mean by "purl yarn over twisted" to avoid holes?
29.12.2020 - 20:36DROPS Design svaraði:
Hi Ann, This means you purl in the back loop of the yarn-over so the yarn-over twists and doesn't leave a hole. Happy knitting!
30.12.2020 - 08:07
Simone skrifaði:
Klopt het dat de halsboord afw. met 2 r, 2 av wordt gebreid en gedeeltes met 1 av, 2 r? Of moet de hele boord 2r 2 av zijn?
17.12.2020 - 13:57DROPS Design svaraði:
Dag Simone,
De gehele boord wordt met 2 recht, 2 averecht gebreid. Op bepaalde plekken voeg je een markeerdraad in tussen 2 rechte steken, om de overgang tussen de mouwen en de panden aan te geven. Hierdoor ontstaat de verwarring denk ik.
17.12.2020 - 22:28
Paula Farias skrifaði:
Buenas tardes, estoy intentando tejer este patrón (Patrón nº w-806), pero tengo una duda muy básica. Una vez comenzada la labor y separado los puntos y puesto los marcadores, dice seguir con el elástico hasta tener 3 cm. En ese momento ya está circular? Estoy tejiendo talla M (108 puntos) se unen desde la primera hilera? gracias! saludos
25.10.2020 - 02:06DROPS Design svaraði:
Hola Paula. La prenda se trabaja en redondo desde la primera vuelta. Utilizamos el termino "vuelta", cuando se trabaja en redondo y el termino "fila", cuando se trabaja de ida y vuelta.
25.10.2020 - 15:15
Canyon Clay#canyonclaytop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur með laskalínu úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-15 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 9 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. LASKALÍNA: Í byrjun er aukið út um 2 lykkjur við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 8 lykkjur fleiri í umferð), síðan er aukið út um 1 lykkju við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 2 lykkjur á undan merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, merkið situr hér. Aukið út um 2 lykkjur á eftir merki þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 lykkju á undan merki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merki: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, merkið situr hér. Aukið út um 1 lykkju á eftir merki þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-118-126-138-144-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 8-8-12-12-12-12 lykkjur, 1 lykkja slétt, setjið eitt merki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt, (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 33-36-36-42-45-45 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt merki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt merki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 33-36-36-42-45-45 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt merki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8-8-8-8-8-8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram hringinn þar til stroffið mælist 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur fram að fyrsta merki og aukið jafnframt út 2-3-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir lykkjurnar fram að næsta merki og aukið jafnframt út 1 lykkju í hverri brugðinni einingu – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, prjónið sléttar lykkjur fram að næsta merki og aukið jafnframt út 4-6-5-5-6-8 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur fram að næsta merki og aukið jafnframt út 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-11-11-11-11 lykkjur og aukið jafnframt út 2-3-2-2-3-4 lykkjur jafnt yfir = 144-156-162-178-188-192 lykkjur. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 merki í byrjun á umferð (= ca fyrir miðju að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu merki! BERUSTYKKI: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Það er einungis aukið út á framstykki og bakstykki við hverja laskalínu. Aukið út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 9-9-8-10-12-13 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð 2-4-6-6-8-8 sinnum = 224-244-250-282-316-328 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 12-13-15-16-18-20 cm frá merki. Nú er berustykkið tilbúið. Prjónið síðan ystu lykkjuna í hvorri hlið á framstykki og bakstykki inn á ermum. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 30-33-37-41-47-50 lykkjur eins og áður, setjið næstu 50-54-54-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-10-10-10-14 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-68-71-79-92-98 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-54-54-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-10-10-10-14 lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 32-35-34-38-45-48 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-148-162-178-204-224 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum (= 3-3-5-5-5-7 nýjar lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn). Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu, það á að nota þá síðar þegar aukið er út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 8-7-6-5-4-3 cm millibili alls 2 sinnum = 128-140-154-170-196-216 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-18-16-14-12-10 cm frá skiptingunni, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3. Aukið svona út með ca 3-4-4-5-6-6 cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum = 144-156-170-186-208-228 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30 cm frá skiptingunni (nú eru eftir 3 cm að loka máli – prjónið e.t.v. að óskaðri lengd), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-34-38-40-44 lykkjur jafnt yfir = 172-184-204-224-248-272 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Toppurinn mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-54-54-62-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki til baka á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5 og takið upp 1 lykkju hvoru megin við 6-6-10-10-10-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-72-76-80 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #canyonclaytop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.