Liesanne skrifaði:
Reactie op antwoord over de mouwen. Bij de jurk zijn er voor maat M na hals 150st, na A.1 250 st en 25 herhaal voor A.1, na A.2 300 steken en je moet 66 op een hulpdraad zetten. Bij de trui voor M is 130st na hals, na A.1 260st en 26 herh voor A.1, na A.2 zijn er 312st en je moet 64 op hulpdraad zetten. Dus vandaar mijn verwarring omdat de steken aantallen verschillen
16.11.2026 - 14:18
Liesanne skrifaði:
Een aanvulling op vorige vraag, ik zou dan ook lange mouwen willen maken (meer zoals de trui) maar waarom zijn de steken aantallen verschillend in dat patroon voor de mouwen?
16.11.2026 - 09:58DROPS Design svaraði:
Dag Liesanne,
Helaas begrijp ik niet wat je bedoelt; het aantal steken in dit patroon is voor beide mouwen gelijk. Na de pas wordt er een mouwrand aan de mouw gebreid. Verder is het voor ons helaas niet mogelijk om een patroon aan te passen naar persoonlijke wensen.
16.11.2026 - 12:29
Liesanne skrifaði:
Zou ik deze jurk met een zelfde dikte ook van een acryl garen kunnen maken? En als ik de kraag langer maak zou het dan als een col geschikt zijn
16.11.2026 - 09:55DROPS Design svaraði:
Dag Liesanne,
We hebben geen acrylgaren in ons assortiment, maar als je het met een ander garen maakt, maak dan een proeflapje en controleer of de stekenverhouding overeenkomt. Je kunt er inderdaad een col van maken als je de halsrand veel breder maakt.
16.11.2026 - 12:08
Vickie Lemas skrifaði:
Bonjour Quelles sont les rectifications sur le diagramme A1 et A2 ? Merci
15.09.2026 - 16:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lemas, le correctif ne vaut que si vous aviez imprimé les explications avant cette date, dans ce cas, il peut être sage d'imprimer les diagrammes à nouveau, sinon, ils sont déjà à jour tels quels. Bon tricot!
16.09.2026 - 07:19
Eva skrifaði:
Buongiorno Una precisazione nel ferro di aumento ai lati le due maglie vanno aumentate entrambe prima dei segnapunti e a un centimetro e mezzo alterni aumentando dopo ? Dal suggerimento non capisco se l' alternanza è nello stesso ferro o a ferri alterni
23.10.2025 - 12:10DROPS Design svaraði:
Buonasera Eva, l'alternanza è sullo stesso giro. Buon lavoro!
26.10.2025 - 01:11
Steph skrifaði:
I don't understand how to do the knitting tension. Do we knit and knot pattern alternatively for first row and then purl and knot for second row? Please explain.
18.06.2025 - 14:35DROPS Design svaraði:
Hi Steph, You work the swatch according to diagram A.1 (choose diagram for your size) which includes the knots every 4th row. Regards, Drops team.
19.06.2025 - 06:49
Teresa skrifaði:
Hi, when should the waist increases be done? Under "INCREASE TIP-2" is written every 1½ cm, however under body instructions is written to increase every 2 cm. Could you please clarify this? Thank you.
20.05.2025 - 15:14DROPS Design svaraði:
Dear Teresa, you will increase every 2cm as stated for INCREASE TIP-1, while you will increase as in INCREASE TIP-2 every 1 1/2cm. So they aren't always worked in the same round. Happy knitting!
25.05.2025 - 15:49
Mary skrifaði:
Ich habe für eine S nicht 650 g Wolle sondern 410 g benötigt.. also hätten 450 g als Angabe völlig ausgereicht! Obwohl ich alles wie in der Anleitung gemacht habe und die Maschenprobe stimmt
21.02.2025 - 17:44
Wendy skrifaði:
Can you help me with the amount of yarn needed to lengthen the sleeves to 45cm and main body to 105 cm for a M size dress. Is Muskat the best yarn to use. Will the back stretch after sitting down.
06.11.2024 - 17:28DROPS Design svaraði:
Dear Wendy, take inspiration from a similar pattern with long sleeves and same tension to get an idea on how much yarn extra you might need; remember your DROPS store can also help you even per mail or telephone. Happy knitting!
07.11.2024 - 08:33
Ulla skrifaði:
Jag skulle vilja sticka klänningen i Kid silk. Hur beräknar jag garnåtgång till storlek M? Mvh Ulla
27.09.2024 - 15:30DROPS Design svaraði:
Hej Ulla. DROPS Kid-Silk är ett tunnare garn så stickfastheten på det stämmer dessvärre inte med stickfastheten i detta mönster. Vill du sticka i Kid-Silk så måste du välja ett mönster med garn från Garngrupp A. Mvh DROPS Design
01.10.2024 - 09:06
Enchanted Evening#enchantedeveningdress |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, hnútamynstri og stuttum ermum. Stærð S -XXXL.
DROPS 211-1 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 6,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um formið á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki eins og útskýrt er að neðan. AUKIÐ ÚT Á EFTIR MERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuliðinn sem liggur utan um fyrstu lykkju á vinstri prjóni (þ.e.a.s. í lykkjuna frá fyrri umferð). AUKIÐ ÚT Á UNDAN MERKI ÞANNIG: Prjónið fram að merki, prjónið síðan 1 lykkju slétt í lykkjuna sem liggur utan um ystu lykkjuna á hægri prjóni (þ.e.a.s. í lykkjuna frá fyrri umferð). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út alveg eins á undan og á eftir merki eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, en aukið út til skiptis á undan og á eftir merki. Þ.e.a.s. aukið einungis út 1 sinni í hvorri hlið með 1½ cm millibili og þetta er gert til skiptist á undan og á eftir merki (ekki í hvorri hlið). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um aðsnið á fram- og bakstykki): Fyrstu úrtökur koma til með að gerast samtímis og mynstrið er prjónað. Stillið af þannig að lykkjum sé fækkað án hnúta og takið vel eftir að það verða færri lykkjur sléttprjón á milli 2 hnúta eftir eina úrtöku. Fækkið um 1 lykkju eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki eins og útskýrt er að neðan. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-130-134-138-140 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-26-32-16-22-35 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 138-150-162-150-160-175 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Setjið 1 merki mitt í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er nú mælt frá þessu merki! Berustykkið er síðan prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1 hringinn (= 23-25-27-30-32-35 mynstureiningar með 6-6-6-5-5-5 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 230-250-270-300-320-350 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 23-25-27-30-32-35 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og A.2 sýnir. Eftir síðustu útaukningu í A.2 eru 276-300-324-360-384-420 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm frá merki við hálsmáli – ATH: A.2 er prjónað eins langt og hægt er að tilgreindu máli og í einhverjum stærðum verður að endurtaka A.x á hæðina að réttu máli (mynstrið á að halda áfram á fram- og bakstykki). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 38-42-45-51-56-62 lykkjur í mynstri eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 62-66-72-78-80-86 lykkjur á þráð fyrir kant á ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 76-84-90-102-112-124 lykkjur í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-66-72-78-80-86 lykkjur á þráð fyrir kant á ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-42-45-51-56-62 lykkjur sem eftir eru í mynstri eins og áður (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og kantar á ermum er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-180-196-220-244-268 lykkjur. Setjið 1 merki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Að auki eru sett 4 merki í stykkið þannig: Teljið 21-24-27-32-37-42 lykkjur frá merki í annarri hlið á stykki, setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 40-42-44-46-48-50 lykkjur, setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 42-48-54-64-74-84 lykkjur (merkið í hlið situr mitt á milli þessa lykkja), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 40-42-44-46-48-50 lykkjur, setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Nú eru 21-24-27-32-37-42 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki. Látið merkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út. Haldið nú áfram með A.x JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hliðum á fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan: Byrjið umferð við merki í annarri hlið á stykki og prjónið síðan A.x hringinn, en passið uppá að halda áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við þar sem stykkið skiptist og passið uppá að hnútarnir séu staðsettir beint yfir hnútum á berustykki. Þær 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingunni í öllum stærðum, endið A.x, en endið eftir 1 umferð með hnútum. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 3 cm frá skiptingunni í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2½ cm millibili alls 4 sinnum á hæðina = 148-164-180-204-228-252 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingunni í öllum stærðum, aukið út 1 lykkju á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Að auki er aukið út um 1 lykkju við merki í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= alls 6 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út með 2 cm millibili alls 21 sinnum á hæðina í öllum stærðum = 274-290-306-330-354-378 lykkjur. Prjónið áfram án útaukninga þar til stykkið mælist ca 61-62-63-64-65-66 cm frá skiptingunni (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. kjólinn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 20-22-24-26-26-28 lykkjur jafnt yfir = 294-312-330-356-380-406 lykkjur (það er aðeins aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi kantinn saman). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Kjóllinn mælist ca 85-88-91-94-97-100 cm frá öxl og niður. KANTUR Á ERMI: Setjið 62-66-72-78-80-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-86-90-96 lykkjur. Byrjið umferð mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið 3 umferðir sléttprjón. JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 4-4-4-4-2-2 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 64-68-76-82-88-94 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Kantur á ermum mælist ca 4 cm frá skiptingunni. Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #enchantedeveningdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.