Lotta skrifaði:
Jag får inte ihop mönstret från varv 16. Ska det verkligen vara 6 rm på slutet o diagrammet växer inte på bredden trots att man ökar maskor genom omslag. Jag gör storlek L.
27.02.2020 - 20:25DROPS Design svaraði:
Hei Lotta. På 15. omgang og i siste maske (sort firkant) i hver rapport skal det strikkes 3 masker i samme maske slik: Strikk masken rett, men vent med å slippe masken det ble strikket i over på høyre pinne, lag 1 kast om høyre pinne og strikk masken rett 1 gang til = 3 masker (2 masker økt per rapport av A.1 = 34 masker økt på omgangen). På 16. omgang slutter hver rapport med 2 vrang og 3 rett masker. Hvor leser du at det skal være 6 rettmasker på slutten? Jakken som er lik denne genseren har stolpemasker i hver siden, men ikke genseren. Mvh DROPS design
02.03.2020 - 10:23
Gloria Landry skrifaði:
Thank you for another beautiful project
26.01.2020 - 05:11
Connie Jensen skrifaði:
Utrolig smuk. Den må jeg eje.
17.01.2020 - 20:16
Marja skrifaði:
Prachtig motief
17.01.2020 - 12:12
BERTRAND skrifaði:
Très joli empiècement...
16.01.2020 - 18:33
Violetta skrifaði:
Bardzo ciekawy wzór, na pewno wykorzystam
14.01.2020 - 23:18
Mária Schmidtova skrifaði:
Veľmi pekné elegantné
12.01.2020 - 23:09
Malihe Asgari skrifaði:
Vackert og elgant :)
06.01.2020 - 13:20
Inger Victoria skrifaði:
Denne var nydelig ville kalt den for " DRÅPEGENSER "
05.01.2020 - 14:33
Gabriele skrifaði:
Wunderschönes Muster!Ich freue mich sehr auf diese Anleitung
03.01.2020 - 18:50
Listen to Nature#listentonaturesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með blaðamynstri og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 213-1 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkið er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-96-102-114-114-120 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stykkið mælist 3 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merki í byrjun umferðar fyrir miðju að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu merki! BERUSTYKKI: Prjónið A.1 (= 6 lykkjur) hringinn yfir allar lykkjurnar (= 16-16-17-19-19-20 sinnum á breiddina). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 288-320-340-380-418-440 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14-16-16-16-18-18 cm frá merki. Prjónið sléttar lykkjur hringinn. Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá merki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir fyrstu 40-45-49-53-60-65 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 63-69-72-84-89-90 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur (= framstykki), setjið næstu 63-69-72-84-89-90 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur undir ermi og prjónið yfir síðustu 41-46-49-53-60-65 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 174-194-208-224-256-280 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í 6-6-6-6-8-10 lykkjur undir ermi í hvorri hlið (= í hliðum á fram- og bakstykki). Nú eru 87-97-104-112-128-140 lykkjur á milli merkja á framstykki og bakstykki. Látið merkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingunni, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 5-4-4-5-5-5 sinnum = 194-210-224-244-276-300 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingunni, aukið út 13-12-13-14-15-15 lykkjur jafnt yfir = 207-222-237-258-291-315 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingunni. ERMI: Setjið 63-69-72-84-89-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-75-78-90-97-100 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-6-6-8-10 lykkjur undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Síðar er lykkjum fækkað hvoru megin við þennan merkiþráð. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum með 3-2-2-1½-1-1 cm millibili alls 11-13-14-19-21-22 sinnum = 47-49-50-52-55-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-37-36-34-33-31 cm, aukið út 1-2-1-2-2-1 lykkjur í næstu umferð = 48-51-51-54-57-57 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 4 cm. Ermin mælist 42-41-40-38-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #listentonaturesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.