Louise Godet wrote:
Merci pour votre réponse. J'espère que, maintenant, je vais pouvoir réaliser ce modèle qui me plait. Cordialement.
01.09.2023 - 09:14Louise GODET wrote:
Bonjour, Ce gilet me tente beaucoup mais je souhaite le faire avec des manches longues. Pensez-vous que je puisse faire une réhausse (dos) et quand ? Pendant les premières côtes ? Merci pour votre avis et conseil de réalisation. Cordialement.
31.08.2023 - 16:31DROPS Design answered:
Bonjour Mme Godet, effectivement, je pense qu'il serait plus simple de la réaliser en côtes, avant de commencer les diagrammes. Bon tricot!
01.09.2023 - 08:35Margaret Tigchelaar wrote:
Thank you!- Again!
28.02.2023 - 17:04Margaret Tigchelaar wrote:
I am working on row 35 of the diagrams, when the last stitch is not to be used and I go to the next symbol. Do I just slide that unused stitch over to the needle on the right then? Thank you, I so enjoy making this pattern!
28.02.2023 - 02:37DROPS Design answered:
Dear Mrs Tigchelaar, on this row, work A.1 until 1 stitch remain, then YO (this is now the last stitch A.1), slip the last stitch A.1 + the first stitch A.2 as if to K tog, K1 and psso = this is the new first stitch A.2, continue diagram that way, ie the last stitch A.2 will be worked together with the first 2 sts next A.2/A.3. Happy knitting!
28.02.2023 - 10:54Margaret Tigchelaar wrote:
Thank you so much!!
14.02.2023 - 19:35Margaret Tigchelaar wrote:
I want you to know, though, that I love the forum. I have checked all questions to see if anyone else had the same problem, but no. So it must be me. I hope you will not tire of me, I am 85 and have knitted since I was 3 yrs. old and yet.... I started with 111 stitches (M). Would I love to visit Drops!, but there is no store in my area. Maybe when I visit the Netherlands in May! Hope to wear this sweater then, though.
14.02.2023 - 16:59Margaret Tigchelaar wrote:
Hello, I have tried row 1 of the diagram 4 times and still get stuck. I end up with 14 st. at the end of row 1 all right, but only need 5 to do diagram 3, which only becomes 7 because of the yos. What do I do with those last 2 stitches before the band? According to my figures all 3 diagrams are equal that first row. The yarn overs add the stitches for the following rows but I still have those two extras in row one. Ending up with 14, use 5 for diagram 3 and then the band. Help and thank you!
14.02.2023 - 16:54DROPS Design answered:
Dear Mrs Tigchelaar, first row A.1 in all sizes is worked over 6 stitches and you increase 2 stitches, this means there are 8 sts in A.1 after the first row has been worked, then repeat the 6 stitches in A.2 (you increase 2 sts in each A.2, there are 8 sts in each A.2) then end with the 7 sts in A.3 (increasing 2 sts as shown in diagram). Just skip the spaces in the diagrams, ie each diagram starts and end with Knit 1, the spaces are there because you will increase stitches later but on first row there are still no stitches. Hope it can help. Happy knitting!
14.02.2023 - 18:05Margaret Tigchelaar wrote:
Hello, I want you to know how I love Drops! I received yarn from my daughter for a sweater for myself and I am knitting 213-21. I was confused as well as Amal about the number of times to repeat the diagrams, but you answered my question and now I hope to continue. One other question, though, what do the numbers 6 under Diagram 1 and 2 mean and number 7 under diagram 3? Thank you!
09.02.2023 - 23:44DROPS Design answered:
Hi Margaret, The 7 and 6 refer to the number of stitches in the first rows of diagrams A.3 and A.2. Happy knitting!
10.02.2023 - 08:33Bettie Scheepers wrote:
Heb patroon 213-21 uitgeprint maar helaas staat het telpatroon er niet bij.hoop dat jullie het kunnen oplossen
28.03.2022 - 17:58
Lavender Charm |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stuttum ermum, blaðamynstri og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 213-21 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 . Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING(á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu 4 lykkjur eins og áður. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 7½-7½-8-8½-7½-7½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Kantar á ermum eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-111-117-129-129-135 lykkjur (meðtaldar 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt*, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja garðaprjón. Nú er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið (= kantur að framan), A.1 (= 6 lykkjur), A.2 (= 6 lykkjur) þar til 14 lykkjur eru eftir (= 14-14-15-17-17-18 sinnum á breidd), A.3 (= 7 lykkjur) og yfir kant að framan eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 303-335-355-395-431-453 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14-16-16-16-18-18 cm frá prjónamerki. Prjónið kantlykkju að framan eins og áður og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, sléttprjón yfir næstu 41-45-49-53-60-64 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 63-69-72-84-89-90 lykkjur á þráð fyrir kant á ermi og fitjið upp 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið sléttprjón yfir næstu 81-93-99-107-119-131 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 63-69-72-84-89-90 lykkjur á þráð fyrir kant á ermi og fitjið upp 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 41-45-49-53-60-64 lykkjur sléttprjón og prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 189-209-223-239-269-293 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 51-55-59-63-71-76 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 87-99-105-113-127-141 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram með sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 5-4-4-5-5-5 sinnum = 209-225-239-259-289-313 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, aukið út 13-12-13-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 222-237-252-273-303-327 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING. Stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu. KANTUR Á ERMUM: Setjið 63-69-72-84-89-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-75-78-90-97-100 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 2 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-0-0-0-1-1 lykkju = 69-75-78-90-96-99 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 4 cm (þ.e.a.s. 6 cm frá skiptingu). Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Jacqueline wrote:
Bonjour et merci pour vos magnifiques modèles je viens seulement de comprendre que c'est A2 qu'il faut répété 14fois et un A 1 au début et A 3 à la fin je suis longue a la détente 😂
05.09.2023 - 11:15