Lisa skrifaði:
Meine Frage bezieht sich auf die Abnahmen an den Ärmeln, habe ich sie folgendermaßen richtig verstanden: Zuerst nehme ich 2 Maschen je Reihe (sowohl Hin- als Rückreihe) an je einem Ende ab. Danach 1 Masche je Reihe und anschließend 4 Maschen (also je 2 am Anfang und Ende von jeder Hin- und Rückreihe). Schlussendlich noch jeweils zu Beginn einer Hin- und einer Rückreihe 3 Maschen abketten und in der folgenden Reihe die verbliebenen Maschen abketten. Vielen Dank!
27.12.2020 - 00:29DROPS Design svaraði:
Liebe Lisa, Sie nehmen zuerst 2 Maschen siehe ZUNAHMETIPP (gilt für die untere Ärmelmitte): dann in XL nehmen Sie noch 2 Mal 2 Maschen in jeder 8 cm - dann für den Armkugel stricken Sie bis 3 Maschen vor Ende der Runde bleiben, und die nächsten 6 Maschen abketten (= 3 M vor der Ende der Runde + 3 Maschen nach dem Anfang der Reihe). Viel Spaß beim stricken!
04.01.2021 - 09:21
Deman skrifaði:
Ik vind het schandalig dat ik nog niks gehoord heb van jullie hoe gaat de kop mouw hoe moet dat
20.12.2020 - 22:30
De Man skrifaði:
Ik heb een bericht gestuurd nog niks ge hoord ik ben bij de armschaten hoe gaat het verder
10.12.2020 - 15:24DROPS Design svaraði:
Dag De Man,
Het bericht stond bij de algemene opmerkingen, vandaar dat het niet als vraag was opgemerkt.
Vanaf de armsgaten zou je het lijf inderdaad met rechte naalden kunnen breien in plaats van heen en weer met de rondbreinaald.
22.12.2020 - 11:40
De Man skrifaði:
Moet je deze trui ook met gewonen naalden gebreid worden
04.12.2020 - 13:31
Mia skrifaði:
Jeg får ikke mange av maskene etter felling til å stemme, og lurer på om det derfor kan være feil i oppskriften. For eksempel skal jeg felle under armene og har 152 masker, skal jeg felle fire masker i hver side og ende opp med 72 masker både på bakstykke og fremstykket, men dette går ikke med 152 masker, får det altså ikke til å stemme
13.02.2020 - 21:46DROPS Design svaraði:
Hej Mia, jo det stemmer, 4+72+4+72 =152 masker. God fornøjelse!
14.02.2020 - 11:50
Jean skrifaði:
Hvorfor skal man tage ind efter ribstykket? Det er vel fint at ribstykket er strammere end det andet. Hvis man alligevel tager ind, hvorfor så skifte til større pinde?
18.11.2019 - 21:30DROPS Design svaraði:
Hej Jean, design har valgt at gøre det for at de glatstrikkede masker ikke skal udvide sidste pind i de ribstrikkede masker. Det er naturligvis en smagssag og du er velkomment til at lave din rib så den passer din smag ;)
19.11.2019 - 13:20
Jean skrifaði:
Hvorfor skal man tage ind efter ribstykket? Det er vel fint at ribstykket er strammere end det andet. Hvis man alligevel tager ind, hvorfor så skifte til større pinde?
17.11.2019 - 22:21DROPS Design svaraði:
Hei Jean. Man tar inn etter vrangbord og bytter pinner, blant annet for at plagget skal falle penere. Om man ønsker et 80-talls preg, kan man fint ha en strammere vrangbord. God Fornøyelse!
18.11.2019 - 14:36
Lotta skrifaði:
Hey. How much yarn do I need to knit this jumper in only one colour? Size S
01.06.2019 - 08:08DROPS Design svaraði:
Dear Lotta, for one coloured pullover you need aprox. 300 g of DROPS Air for size S. Happy knitting!
01.06.2019 - 17:52
Rita Lippinkhof-Karlsson skrifaði:
Ik zou graag het complete patroon incl. Garen willen bestellen, maar, HOE doe ik dat ????
07.05.2019 - 16:18DROPS Design svaraði:
Hi Rita, please send us your question in english og swedish :)
07.06.2019 - 14:28
Barbro Näslund skrifaði:
Jättefin och borde heta vårens superfina tröja
02.02.2019 - 16:13
Bretagne#bretagnesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með röndum úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-15 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 152 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 12,6. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 11. og 12. hverja lykkju og 12. og 13. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 12. og 13. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Allar rendur eru prjónaðar í sléttprjóni! 3-3-3-3-3-3 cm með lit 02, hveiti 6-6-7-7-7-7 cm með lit 21, sæblár 7-8-8-8-8-9 cm með lit 01, natur 2-2-2-2-2-2 cm með lit 28, rauður múrsteinn 3-3-3-3-4-4 cm með lit 27, sægrænn 7-8-8-8-8-9 cm með lit 02, hveiti 2-2-2-2-2-2 cm með lit 09, sjávarblár 3-3-3-3-4-4 cm með lit 21, sæblár 2-2-2-2-2-2 cm með lit 01, natur 7-7-7-8-8-8 cm með lit 28, rauður múrsteinn 5-5-6-6-6-6 cm (eða að óskuðu máli) með lit 02, hveiti RENDUR ERMI: Allar rendur eru prjónaðar í sléttprjóni! 4 cm með lit 02, hveiti 6 cm með lit 21, sæblár 8 cm með lit 01, natur 2 cm með lit 28, rauður múrsteinn 3 cm með lit 27, sægræn 8 cm með lit 02, hveiti 1 cm með lit 09, sjávarblár 3 cm með lit 21, sæblár 2 cm með lit 01, natur 8 cm með lit 28, rauður múrsteinn 6-6-6-5-5-5 cm (eða að óskuðu máli) með lit 02, hveiti ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Framstykki og bakstykki er síðan prjónað hvort fyrir sig, fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum. Ermar eru saumaðar í og prjónaður er kantur í hálsmáli. Allt stykkið er prjónað í sléttprjóni og röndum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 152-164-184-200-220-240 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-16-16-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 140-152-168-184-200-220 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 2-2-3-3-4-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið 66-72-78-86-92-100 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af 4-4-6-6-8-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið 66-72-78-86-92-100 lykkjur eins og áður (= framstykki) og fellið af 2-2-3-3-4-5 lykkjur fyrir handveg. Prjónið síðan framstykki og bakstykki hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: = 66-72-78-86-92-100 lykkjur. Haldið áfram með rendur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 1-2-2-4-4-4 sinnum í hvorri hlið = 64-68-70-74-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 18-20-20-22-22-24 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og fellið laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 66-72-78-86-92-100 lykkjur. Haldið áfram með rendur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 1-2-2-4-4-4 sinnum í hvorri hlið = 64-68-70-74-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-46-47-49-51 cm. Í næstu umferð eru miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka með rendur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 18-20-20-22-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og fellið laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 36-36-40-40-44-44 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5-5-5-6-6-6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-22-24-22-26 lykkjur jafnt yfir = 56-60-62-64-66-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónamerkið er notað síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjón/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið RENDUR ERMI í hring – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið síðan út um L, XL, XXL og XXXL þannig (ekki er aukið út um fleiri lykkjur í S og M): Aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með 8 cm millibili 1-2-2-3 sinnum til viðbótar. Eftir útaukningu mitt undir ermi eru 58-62-66-70-72-78 lykkjur í umferð. Haldið áfram með rendur. Þegar stykkið mælist 51-51-50-49-47-46 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu), prjónið næstu umferð þannig: Prjónið eins og áður þar til 2-2-3-3-4-5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í umferð og fellið af næstu 4-4-6-6-8-10 lykkjur. Prjónið nú ermakúpu fram og til baka á stuttan hringprjón 5,5 þannig: Haldið áfram með rendur og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum í öllum stærðum og 1 lykkju 1-1-1-2-4-5 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 56 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 57 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í sléttprjóni í hvorri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 80 til 92 lykkjur í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) á stuttan hringprjón 4,5 með litnum hveiti. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bretagnesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.