DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Stone Fields

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-8
DROPS Design: Mynstur sk-035
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-400-400 g litur 07, ljós sægrænn

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 25 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir kant með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 96 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 12.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR:
Vegna garðaprjóns þá kemur berustykkið til með að dragast aðeins saman á hæðina þegar það liggur flatt, takið því öll mál þegar stykkinu er haldið uppi, eða dragið létt í á meðan mælt er. Ef berustykkið er of stutt er hægt að prjóna áfram með mynstur eins og áður (án þess að auka lykkjum).

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja) og prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 96-100-104-112-120-124 lykkjur á hringprjón 4 með Sky. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 88-92-96-100-108-112 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Í næstu umferð er mynstrið undirbúið og aukið er út fyrir laskalínu þannig:
(Byrjun á umferð er mitt að aftan). Prjónið 5-6-7-8-9-10 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur brugðið (= garðaprjón, fyrsta umferð byrjar með brugðnum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2-2-2-2-4-4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur brugðið (= garðaprjón), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-12-14-16-18-20 lykkjur sléttprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur brugðið (= garðaprjón), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2-2-2-2-4-4 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur brugðið (= garðaprjón), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 5-6-7-8-9-10 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki) fram og til baka. Prjónið 1 umferð slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn (= útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni).
Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram með sléttprjón/garðaprjón svona og aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 16 lykkjur garðaprjón á milli erma og fram- og bakstykkis, aukið svona út í annarri hverri umferð alls 25-27-29-32-34-36 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan).
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 288-308-328-356-380-400 lykkjur í umferð.
Berustykki á að mælast 20-22-23-26-27-29 cm frá prjónamerki – SJÁ LEIÐBEININGAR!

Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 30-33-36-40-43-46 lykkjur sléttprjón, 12-11-11-12-14-14 lykkjur garðaprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið garðaprjón yfir næstu 12-11-11-12-14-14 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 60-66-72-80-86-92 lykkjur, prjónið 12-11-11-12-14-14 lykkjur garðaprjón (= framstykki), setjið næstu 60-66-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 12-11-11-12-14-14 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir síðustu 30-33-36-40-43-46 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-192-208-228-252-264 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjum og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram hringinn með sléttprjóni og garðaprjóni yfir lykkjur sem eru í hlið (= þær lykkjur með garðaprjóni sem eru eftir í hvorri hlið á framstykki/bakstykki og nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi), JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn á ytri hlið á hverri einingu í garðaprjóni við miðju að framan og miðju að aftan eins og áður (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð) og fækkað er um 2 lykkjur í miðju á hverri einingu með garðaprjóni með því að prjóna 4 miðju lykkjur saman 2 og 2 (= alls 4 lykkjur færri í umferð). Aukið út/fækkið lykkjum svona þar til einungis eru 8 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykkinu. ATH: Lykkjufjöldinn í umferð er sá sami, en lykkjurnar í garðaprjóni kemur smá saman að hverfa og það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni.
Haldið áfram í sléttprjón og 8 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið svona þar til stykkið mælist 23-23-24-23-24-25 cm frá skiptingu (ca 48-50-52-54-56-59 cm frá öxl). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið garðaprjón í 6 cm. Fellið laust af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-65 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 60-66-70-74-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjón 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-74-80-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og garðaprjóni yfir lykkjur sem eru á botni á ermi (= þær lykkjur með garðaprjóni sem eru eftir á ermi og nýjar lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi), JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn á ytri hlið við hverja einingu með garðaprjóni eins og áður (= alls 2 lykkjur fleiri í umferð) og fækkað er um 2 lykkjur í miðju á hverri einingu í garðaprjóni með því að prjóna 4 miðju lykkjur saman 2 og 2 (= alls 2 lykkjur færri í umferð). ATH: Lykkjufjöldinn er sá sami í umferð, en lykkjur í garðaprjóni koma smá saman að hverfa og það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni. Aukið/fækkið lykkjum svona þar til ekki eru nokkrar lykkjur með garðaprjóni eftir og haldið síðan áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjurnar. Nú er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6.-5.-4.-4.-4.-4. Hverri umferð alls 13-15-17-18-18-19 sinnum = 42-44-46-48-50-54 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 37-36-35-33-32-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 6 cm í garðaprjóni.
Ermin mælist ca 43-42-41-39-38-37 cm frá skiptingu. Fellið laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.03.2019
Leiðrétting: Berustykki:..Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 30-33-36-40-43-46 lykkjur sléttprjón, 12-11-11-12-14-14 lykkjur garðaprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-70-74-76-80 lykkjur á 1 band fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið garðaprjón yfir næstu 12-11-11-12-14-14 lykkjurnar, prjónið sléttprjón yfir næstu 60-66-72-80-86-92 lykkjurnar, prjónið 12-11-11-12-14-14 lykkjur garðaprjón (= framstykki), setjið næstu 60-66-70-74-76-80 lykkjur á 1 band fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 12-11-11-12-14-14 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir síðustu 30-33-36-40-43-46 lykkjurnar (= hálft bakstykki).

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (91)

country flag Paula wrote:

Hola! Las hebras se hacen en las vueltas donde los 16 puntos se hacen al revés? Porque entonces no quedan igual las de un lado y las de otro.

28.02.2024 - 23:55

DROPS Design answered:

Hola Paula, los aumentos se hacen a cada lado (antes y después) de los 16 puntos de revés, formando las líneas del raglán. En la siguiente vuelta las hebras se trabajan de derecho retorcido. ¿Puedes aclarar por qué no te quedan iguales estos puntos?

29.02.2024 - 22:59

country flag Idella Meier wrote:

You have so many great videos. I have looked for one on the Stonefield for where you do increases on knits and purls. I can’t find one. Is there one?

03.02.2024 - 20:48

country flag Kat wrote:

Hi, have just started knitting this lovely pattern. When I first read it, I thought „hm, no increases on the collar, won‘t it stick up?“ Decided to just go with it, but exactly what I expected has happened, the collar (the 4 ribs of garter knitted on the smaller needles) are sticking up and it looks more like a mandarin collar than a crewneck. Where did I go wrong?

28.10.2023 - 14:23

DROPS Design answered:

Dear Kat, you don't have any increases on the collar but rather you decrease later on for the beginning of the raglan. You have extra stitches when working the collar so it should be more loose than the next part of the piece. If the collar sticks up it's most likely due to the gauge. Happy knitting!

29.10.2023 - 22:19

country flag Idella Meier wrote:

The pattern doesn’t seem to explain how to increase very well . If you do a yarn over in knit before and after your maker do you knit one stitch first then do the yarn over. If you do it this way how do you do that with the 2 stitches. I hope someone can explain this better then how it explains it in the pattern.

26.10.2023 - 23:57

DROPS Design answered:

Dear Mrs Meier, to increase for raglan, make a yarn over, on next round knit the yarn overs twisted; You increase for the raglan on either side of the 16 sts in garter stitch on each raglan line: work until the 16 sts, make 1 yarn over, work the 16 sts in garter stitch, make 1 yarn over; repeat like this at each raglan line for each increase. Happy knitting!

27.10.2023 - 09:31

country flag Idella Meier wrote:

I am a fairly need knitter and do not read patterns well. Do you put your marker where it says yarn over . This is right after you change your knitting needles from the 4 to 5 mm. Is there any more instructions that could make me understand better for this sweater. Thank you so much

14.10.2023 - 06:43

DROPS Design answered:

Dear Idella, the marker indicated there is inserted in the piece just to measure, so it can be inserted anywhere in the round, although it's normally inserted at the beginning of the round. This marker will stay in this row and not move downward as you continue working. You can personally insert markers in the piece when working the increases so as to remember where to work the increases. All relevant videos and lessons can be found after the pattern instructions and you can always ask your specific questions here. Happy knitting!

16.10.2023 - 00:25

country flag Diane wrote:

Bonjour, en mesurant sur le dessus de la manche je peux qu'à partir du début du tricot, donc de la manche entière avec la bordure du col. J'ai 69cm au lieu de 61cm. Le bout m'arrive déjà en bas du poignet mais par contre, pour ne pas que la manche roule, je me rend compte que je vais devoir faire tout de même une bordure. J'essaierai de 3cm au lieu de 6.

07.05.2023 - 21:28

country flag Diane wrote:

Bonjour, je tricote la 4e taille et je suis rendue à faire les 6cm en mousse au bout de la manche mais je me suis rendue compte qu'elle mesure 41 cm sans ces 6 cm de bordure. J'ai mesuré depuis le marqueur mis au début de la partie de la manche. La partie qu'il fallait rapetisser à tous les 4rangs, est-ce bien 69 rangs qu'il fallait faire?

02.05.2023 - 01:41

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, effectivement, autrement dit, ces 69 rangs doivent mesurer environ 28 cm - mesurez la longueur de la manche au milieu du dessus de la manche (pas le long du milieu sous la manche). Bon tricot!

02.05.2023 - 09:56

country flag Pia wrote:

Hej! Tröjan blev jättefin och mönstret var lätt att följa. MEN den är så noppig, vad ska jag göra för att få den fin igen?

11.10.2022 - 16:58

DROPS Design answered:

Hej Pia. Du kan använda en noppborttagare på tröjan för att få den fin igen. Testa på ett mindre synligt ställe först bara, men det ska gå helt fint. Mvh DROPS Design

13.10.2022 - 13:55

country flag Christina Anderson wrote:

How much ease is intended for this sweater - for the life of me I cannot figure out how much ease to allow in sizing this sweater! thanks in advance!

18.09.2022 - 19:12

DROPS Design answered:

Hi Christina, the positive ease is the difference between chest circumference on the schematic drawing at the bottom of each pattern and your chest circumfence . If you think it is hard to decide what size to make, if can be a good idea to measure a sweater you have and like the size of. Then you can pick the size by looking at the schematic drawing and find the correct size there. For more information please see the lesson Drops HERE. Happy knitting!

19.09.2022 - 07:44

country flag Dominique wrote:

Merci mais je réalise que je n'ai pas les mêmes dessins sur l'empiècement... car j'ai maintenu seulement 2 mailles jersey sur les manches et 10 sur le milieu dos/devant au lieu de créer les augmentations en jersey j'ai tricoté mousse, d'où le nombre et j'étais donc perdue. Je vais récupérer mes diminutions en reprenant au 16ème rang pour finir mes manches et le résultat graphique n'est pas mal aussi. Laine très douce et très agréable à tricoter.

14.02.2022 - 16:25