Cinzia skrifaði:
Buongiorno non riesco a capire la correzione che avete fatto per lo sprone rispetto allo schema iniziale grazie
21.05.2019 - 10:50DROPS Design svaraði:
Buongiorno Cinzia. le correzioni indicate sono già inserite nel testo. L'ultimo segnapunti deve essere inserito dopo 19 maglie (inizialmente era stato indicato dopo 9 maglie) e rimangono 9-9-11-11-13-11 maglie prima del primo segnapunti. Buon lavoro!
21.05.2019 - 11:10
Regina DeCosse skrifaði:
I"m not sure what to do when it comes to slipping the stitches onto a stitch holder for the sleeves. Am I knitting those and then slipping them, or slipping them before knitting and attaching another ball of yarn to each sleeve to cast on the additional stitches?
18.05.2019 - 00:58DROPS Design svaraði:
Dear Mrs DeCosse, do not work the stitches for the sleeves before slipping them, just slip them on a thread/st holder, cast on the new sts for under arm and continue with next stitches - see video below - time code 6:59 approx. Happy knitting!
20.05.2019 - 09:49
Regina DeCosse skrifaði:
Sorry, me again. It looks like I started it in the medium size, my bust is 42" will that be okay? Is this pattern designed to be loose, i want something that isn't clingy. Should I frog and start again at the large size?
08.05.2019 - 19:38DROPS Design svaraði:
Dear Regina, at the bottom of pattern page you can find the sketch with the final measures: compare it to a garment you have and you like and you'll find the right size. Happy knitting!
08.05.2019 - 20:40
Regina DeCosse skrifaði:
I'm working on the large size of this pattern, I think that's the 3rd one in on the list, I can't find anywhere where it states the yardage for that size. I have 720 yds. of yarn someone gave me and I want to make sure I have enough. Thanks
08.05.2019 - 18:21DROPS Design svaraði:
Dear Regina, the yarn amount is next to the picture, on the right. For size L (the fourth), you'll need 200g of DROPS Melody. As one skein of DROPS Melody is 153yds you'll need approx. 612 yds. Happy knitting!
08.05.2019 - 19:13
Regina DeCosse skrifaði:
I'm making the size large in this pattern and already have found mistakes and i'm only an inch into the pattern. I had to improvise to get to 60 stitche increase after the cast on, and the patterns says put stitch markers at 19, 11, 9, 11 stitches. Is there an erata for this pattern?
08.05.2019 - 15:44DROPS Design svaraði:
Dear Mrs DeCosse, you are right, you should work 19 sts for front piece in all sizes, so in size L you have 19 sts (back piece), 11 sts (sleeve), 19 sts (front piece), 11 sts (sleeve). Thanks for letting us know. Pattern will be edited as soon as possible. Happy knitting!
08.05.2019 - 16:07
Jette Stengaard-Knudsen skrifaði:
Jeg vil kalde den Swing eller Solskins-Swing.
20.02.2019 - 14:41
Vanilla Sky skrifaði:
Kleur doet mij denken aan een ijsje
15.02.2019 - 19:35
Arnhild skrifaði:
Håper oppskriften kommer snart.
13.02.2019 - 14:10
DELERUE Francoise skrifaði:
J'adore! Pour les explications, vous les diffusez?
09.02.2019 - 10:23
Inge skrifaði:
Wanneer komt dit patroon online?
08.02.2019 - 14:54
Sunny Swing#sunnyswingsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 200-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 8,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = það eiga að myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur (í sléttprjóni á ermi, í sléttprjóni á bakstykki og í mynstri/sléttprjóni á framstykki). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman = 1 lykkja (færið prjónamerkið til fyrir þessa lykkju á eftir hverja úrtöku). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 50-50-52-56-58-60 lykkjur á hringprjón 7. Prjónið 2 cm sléttprjón, síðan er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-4-6-0 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 56-56-60-60-64-60 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið ÁN þess að prjóna þær – setjið prjónamerkin þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 9-9-11-11-13-11 nýjar lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 9-9-11-11-13-11 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi). Næsta umferð er prjónuð þannig: Umferðin byrjar við fyrsta prjónamerki á bakstykki. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17 lykkjur sléttprjón (= framstykki)), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Þetta var fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-17-18-19-20-22 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 176-192-204-212-224-236 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður en án útaukninga þar til stykkið mælist 21-24-26-27-29-31 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Eftir berustykki er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið 50-54-57-60-63-68 lykkjur sléttprjón (= á bakstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 51-55-57-60-63-68 lykkjur sléttprjón (= á bakstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 51-55-59-63-67-73 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 1-1-2-3-4-5 lykkjur (= á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-118-126-138-150-166 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Prjónið áfram í sléttprjóni. Byrjið umferð við prjónamerki og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Jafnframt er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4-4-4-6-8-10 lykkjur mitt undir ermi í hvorri hlið (= 4 nýjar lykkjur í umferð). Endurtakið þessa útaukningu alls 5 sinnum með 4 cm millibili = 130-138-146-158-170-186 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-24-24-25-25-25 cm frá skiptingu (ca 49-51-53-55-57-59 cm frá öxl) prjónið nú 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 146-156-164-178-192-210 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er fellt af með prjónum nr 8. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 37-41-43-43-45-45 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 41-45-47-49-53-55 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 lykkjur og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-2½.-2-2 cm millibili alls 7-8-9-9-11-11 sinnum = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-33-32-31-30-28 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5 lykkjur jafnt yfir = 32-34-34-36-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Ermin mælist ca 41-39-39-37-37-35 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjónum nr 8. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunnyswingsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.