Fallecker Bernadette skrifaði:
BONJOUR Sil vous plait pourriez vous m expliquer la partie COMBINAISON à partir de glisser les 2 jambes et surtout la suite, je ne comprends pas comment mettre les mailles rabattues je vous remercie cordialement
02.11.2026 - 05:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Fallecker, à la fin des jambes vous avez rabattu 5 m de chaque côté pour l'entrejambe, lorsque vous reprenez les 2 jambes vous commencez sur l'endroit et tricotez la 1ère jambe (= la jambe droite) en commençant par la 1ère m (=après les 5 premières mailles rabattues sur l'endroit) et jusqu'aux 5 mailles rabattues à la fin du dernier rang sur l'envers, puis tricotez les mailles de la 2ème jambe en commençant par la 1ère maille = après les 5 mailles rabattues en début de rang sur l'endroit jusqu'aux 5 mailles rabattues en début de rang sur l'envers = vous avez tricoté toutes les mailles des 2 jambes. Tricotez encore 5 rangs. Montez ensuite 3 mailles à la fin des 2 rangs suivants et placez vos marqueurs comme indiqué. Vous allez maintenant augmenter pour les devants puis former l'encolure et il vous faudra aussi diviser l'ouvrage à la hauteur indiqué pour les manches. Bon tricot!
02.11.2026 - 10:06
Simone skrifaði:
Skal man være meget øvet for at kunne strikke denne opskrift?
20.10.2026 - 17:47
Caroline skrifaði:
Hej, Nu har jag börjat med höger framstycke och har ökat 46 maskor samtidigt som jag minskat i början på varje rätt varv men detta gör ju att jag har 62 maskor kvar INTE 70 som det står att man ska ha? Vet något vad jag kan ha gjort för fel?
27.09.2026 - 17:08DROPS Design svaraði:
Hei Caroline. Ut fra maskeantallet du skriver, tipper jeg du strikker str. 6/9 mnd. Du skal ha 54 m på hvert forstykke (og 68 m på bakstykket = 176 masker totalt). Så skal det felles det 1 maske innenfor 1 kantmaske til hals i hver side av arbeidet. Det felles totalt 30 ganger i hver side. Du har 54 masker minus 30 fellinger = 24 masker, samtidig som det legges opp masker til erme (det legges opp 6 masker totalt 5 ganger = 30 masker , deretter 16 masker 1 gang (=46 masker lagt opp til erme). Altså: 24 masker (forstykke) + 46 masker (erme) = 70 masker når alle maskene er lagt opp og alle fellingene er ferdig. mvh DROPS Design
28.09.2026 - 10:47
Rósa skrifaði:
Ég er að byrja á ermi og er með 21 lykkju á hægra framstykki. Bæti við 4x4 eða 16 og svo 17 og þetta verða samtals 54 eins og gert er ráð fyrir. En það á að taka úr við kantlykkju svo þessi tala gengur ekki upp. Er ég að misskilja e-ð ?
24.07.2026 - 23:04DROPS Design svaraði:
Blessuð Rósa Þú ert með 44 lykkjur fyrir hvort framstykki og 58 lykkjur fyrir bakstykki. 44 lykkjur – 23 lykkjur færri fyrir hálsmáli + 4 lykkjur x 4 (= 16 lykkjur) + 17 lykkjur = 54 lykkjur. Það sem ég held að sé að trufla þig er að kaflarnir hanga saman og það er aftur minnst á að halda áfram að fækka lykkjum. Þú byrjar að fækka lykkjum fyrir hálsmáli þegar stykkið mælist 17 cm síðan þegar stykkið mælist 21 cm skiptist stykkið og þú heldur samt áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli ásamt því að fitja upp fyrir ermum. Vona að þetta hjálpi þér. Gangi þér vel.
25.07.2026 - 11:45
Donna skrifaði:
Bonjour,\\r\\nQuand je couds les 10 mailles rabattues de l’entre jambe, je me retrouve avec un trou sur le dos de l’ouvrage. Si Valerie a résolu le problème, j’aimerais beaucoup qu’elle partage sa solution . D’avance merci.
11.05.2026 - 09:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Donna, vous devez assembler entre elles les 10 m du milieu devant aux 10 mailles du milieu dos, l'entrejambe a donc une couture plate devant/dos de 10 m. En espérant que cela puisse vous aider, bon tricot!
11.05.2026 - 16:10
Jenny skrifaði:
Etter å ha lagt opp til erme på høyre forstykke, hvor langt skal ermet strikkes?
30.04.2026 - 18:10DROPS Design svaraði:
Hei Jenny. Lengden på ermet = de maskene det er økt til erme (legges opp forskjellige maskeantall i de ulike str., men man skal ha lagt opp totalt 33-41-46-52 (60-68) masker til erme. Det strikkes til arbeidet måler 45-53-62-70 (81-90) cm totalt, målt fra ben til skulder. Se gjerne på målskissen (nederst på siden), der ser du de ulike målene på de forskjellige størrelsene. mvh DROPS Design
04.05.2026 - 08:43
Satu skrifaði:
Hei! Ohjeessa housupuvussa lahkeiden teon jälkeen lisätään keskelle eteen molempiin reunoihin 3 silmukkaa. Neulotaanko välissä kerroksia, ennen kuin aletaan lisäämään molempiin reunoihin yksi silmukka kerrallaan (reunasilmukan sisäpuolelle)? Eli lisätään 3 silmukkaa, käännetään työ ja lisätään heti perään 1 silmukka, vai väliin kerroksia ilman lisäyksiä?
29.03.2026 - 20:47DROPS Design svaraði:
Hei, aloita 1 silmukan lisäykset heti, kun olet luonut 3 silmukkaa kumpaankin reunaan.
30.03.2026 - 17:30
Tea skrifaði:
Hei, igjen! Oppfølging til forrige spørsmål: Leste i et annet svar at øketips ikke gjelder for benene. Skal man bare øke på rettsiden? Hvis jeg skal øke på hver 5. pinne, blir det da annen hver 4. og 6. eller kan jeg øke på vrangsiden også?
23.02.2026 - 12:27DROPS Design svaraði:
Hei Tea. Når du strikker beina økes det når arbeidet måler 6 cm. Det økes i siden av arbeidet innenfor 1 kantmaske (= 2 masker økt). Øk slik på hver 3.-4.-5.-5.(8.-8.) pinne totalt 11-11-12-14 (13-16) ganger. Om du skal øke på hver 5. pinne, øker du annen hver gang fra retten og vrangen. Det økes med 1 kast. Kastet strikkes vridd rett på neste pinne, det skal ikke lage hull. mvh DROPS Design
03.03.2026 - 08:02
Tea skrifaði:
Hei, Hvordan skal man øke etter kantmasken på benene? Vanlig rett på alle?
22.02.2026 - 18:05DROPS Design svaraði:
Hei Tea, Øketips under Forklaringene på toppen av oppskriften beskriver hvordan man øker med kast, som er strikket vridd rett på nest omgang. Hilsen Drops Team.
23.02.2026 - 06:49
Tii skrifaði:
Hi, is this difficult to do for first timer? Have you video tutorial from this on YouTube or somewhere?
06.01.2026 - 18:15DROPS Design svaraði:
Hi Til, This is probably not the easiest pattern for a beginner but you can always give it a go! We have many tutorials showing knitting techniques and stitches. Click on Tips & Help at the top of the page and scroll through our knitting videos on the left-hand side. Good luck and regards, Drops Team.
07.01.2026 - 06:52
Baby Talk#babytalkonesie |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónaður galli án ermasauma og húfa fyrir börn í perluprjóni, garðaprjóni og hekluðum kanti. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino. Stærð á galla: 1 mán til 2 ára. Stærð á húfu: fyrirburar til 4 ára.
DROPS Baby 33-30 |
||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um húfu): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um galla): Aukið er út innan við 1 kantlykkju. Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um galla): Lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fyrstu eru prjónaðar 2 skálmar, síðan eru skálmarnar prjónaðar saman og prjónað er áfram fram og til baka upp að ermi. Síðan eru fitjaðar upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið á stykki, framstykki og bakstykki er síðan prjónað til loka hvort fyrir sig. Axla- og ermasaumar eru saumaðir og í lokin er heklaður er kantur í kringum opið á gallanum. Allur gallinn er prjónaður í perluprjóni. SKÁLM: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Fitjið upp 46-50-54-58 (66-70) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum ljós lavender DROPS Baby Merino. Prjónið PERLUPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin á stykki innan við 1 kantlykkju (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 3.-4.-5.-5. (7.-7.) hverri umferð alls 11-11-12-14 (13-16) sinnum = 68-72-78-86 (92-102) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24 (29-34) cm fellið af 5 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir klofi/skrefbót (þ.e.a.s. fellið af lykkjur hvoru megin á stykki) = 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt. GALLI: Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón 3 með affellingarkant að hvorum öðrum = 116-124-136-152 (164-184) lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 6 umferðir perluprjón, fram og til baka, með byrjun við miðju að framan. Prjónið síðan þannig: Fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða (fyrir kant) = 122-130-142-158 (170-190) lykkjur. Setjið 1 merki 32-34-37-41 (44-49) lykkjur inn frá hvorri hlið. Látið merkin fylgja með í stykkinu, þau merkja framstykkin og bakstykkið. Nú eru lykkjur auknar út við miðju að framan (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) þannig að framstykkin komi yfir hvort annað: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Aukið síðan út í 4. hverri umferð 3-2-5-5 (15-16) sinnum til viðbótar, síðan í 6. hverri umferð 8-11-15-15 (18-12) sinnum (= alls 12-14-17-21 (24-29) lykkjur fleiri í hvorri hlið á stykki) = 44-48-54-62 (68-78) lykkjur á hvoru framstykki = 146-158-176-200-218-248 lykkjur alls. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM OG LYKKJUM ER FÆKKAÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI INNAN VIÐ 1 KANTLYKKJU JAFNFRAMT SEM STYKKIÐ SKIPTIST OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI. FÆKKIÐ LYKKJUM VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-20-25-28 (32-34) cm frá merki. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju fyrir hálsmáli í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur færri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 20-24-27-31 (35-41) sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umferð 2 sinnum (= alls 23-27-30-34 (38-44) lykkjur færri í hvorri hlið á stykki). HÉÐAN SKIPTIST STYKKIÐ OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI ÞANNIG: HÆGRA FRAMSTYKKI: Þegar stykkið mælist 21-26-30-35 (40-43) cm frá merki, skiptist stykkið við 2 merkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvert fyrir sig. Stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið nú yfir lykkjur að fyrsta merki (= hægra framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Fitjið nú upp lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar frá réttu þannig (ATH: Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju í byrjun umferðar eins og áður): Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrir ermi). Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp og öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 54-62-70-80 (90-102) lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 45-53-62-70 (81-90) cm alls, mælt frá skálm að öxl. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið yfir síðustu lykkjurnar sem settar voru á þráð, fram að merki. Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt – þ.e.a.s. fitjið upp lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá röngu. Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í lok umferðar eins og áður. BAKSTYKKI: = 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir ermar þannig: Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrri ermi í hvorri hlið á stykki) = 124-144-160-180 (202-228) lykkjur. Þegar stykkið mælist alls 44-52-61-69 (80-89) cm fellið af miðju 16-20-20-20 (22-24) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig (= 54-62-70-80 (90-102) lykkjur eftir á öxl). Prjónið þar til stykkið mælist alls 45-53-62-70 (81-90) cm, mælt frá skálm að öxl, stillið af mál við framstykkin. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma ofan á ermi/axlasauma með lykkjuspori frá réttu. Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana. Saumið skálmar saman innan við 1 kantlykkju og saumið 5 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma saman frá miðju að framan að miðju aftan á galla. Saumið klauf upp þar sem fitjaðar voru upp 3 nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir kantlykkjur og saumið þær 3 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki á gallanum. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige í kringum allt opið við miðju framan á gallanum þannig: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Byrjið við miðju að framan neðst niðri á vinstra framstykki, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur), haldið áfram að hekla kantinn í kringum gallann fram að horni þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjaði á vinstra framstykki, heklið snúru þannig: 1 fastalykkja í hornið, heklið síðan loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki, heklið síðan í hring að næsta horni (þ.e.a.s. á hægra framstykki), heklið snúru, haldið áfram eins og áður í kringum afganginn af gallanum niður þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur, stillið af að endað sé með 1 fastalykkju. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að heklað sé yfir snúru þannig að snúran liggi undir kanti, þ.e.a.s. ekki hekla í lykkju í snúru), endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð. Klippið frá og festið þráðinn. Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige neðst í kringum báðar skálmar þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við saum. Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, prjónið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkjur í byrjun á umferð. Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige neðst í kringum báðar ermar þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju neðst niðri á ermi, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur) og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Heklið síðan 1 snúru alveg eins og í horni á hægra og vinstra framstykki, að utan verðu á vinstra framstykki, undir ermi (þ.e.a.s. í hlið) og á innan verðu á hægra framstykki – passið uppá að bandið komi í sömu hæð og horn á framstykki. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið laust upp (68) 80-92-96-104 (112-116) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum ljós lavender DROPS Baby Merino. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í (2) 2-3-3-3 (4-4) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir = (60) 72-84-88-96 (104-108) lykkjur. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (9) 10-11-11-13 (13-14) cm – prjónið stykkið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð, fækkið um (6) 8-7-8-8 (8-9) lykkjur jafnt yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð með sléttum lykkjum), (5) 5-5-5-5 (6-6) sinnum til viðbótar (= alls (6) 6-6-6-6 (7-7) úrtöku umferðir) = (24) 24-42-40-48 (48-45) lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Prjónið 1 umferð brugðið og endurtakið úrtöku í næstu umferð í 1/3, 6/9, 12/18 mán og (2 - 3/4) ára (ekki er fleiri lykkjum fækkað í hinum stærðunum) = (12) 12-11-10-12 (12-12) lykkjur. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babytalkonesie eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.