DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Baby Talk

Prjónaður galli án ermasauma og húfa fyrir börn í perluprjóni, garðaprjóni og hekluðum kanti. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino. Stærð á galla: 1 mán til 2 ára. Stærð á húfu: fyrriburar til 4 ára.

DROPS Baby 33-30
DROPS Design: Mynstur bm-102-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

GALLI:

Stærð: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2-3/4) ára
Stærð jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92-98/104)

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300 (300-300) g litur 37, ljós lavender
50-100-100-100 (100-100) g litur 23, ljós beige

HÚFA:

STÆRÐ: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál:
(28/32) 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir Garnflokki A)
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 37, ljós lavender

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með perluprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5: fyrir kanta og snúru.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um húfu):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

ÚTAUKNING (á við um galla):
Aukið er út innan við 1 kantlykkju. Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um galla):
Lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju. Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fyrstu eru prjónaðar 2 skálmar, síðan eru skálmarnar prjónaðar saman og prjónað er áfram fram og til baka upp að ermi. Síðan eru fitjaðar upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið á stykki, framstykki og bakstykki er síðan prjónað til loka hvort fyrir sig. Axla- og ermasaumar eru saumaðir og heklaður er kantur í kringum opið á gallanum í lokin. Allur gallinn er prjónaður í perluprjóni.

SKÁLM:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur.
Fitjið upp 46-50-54-58 (66-70) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum ljós lavender Baby Merino. Prjónið PERLUPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin á stykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 3.-4.-5.-5. (8.-8.) hverri umferð alls 11-11-12-14 (13-16) sinnum = 68-72-78-86 (92-102) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24 (29-34) cm fellið af 5 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir klofi (þ.e.a.s. fellið af lykkjur hvoru megin á stykki) = 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt.

GALLI:
Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón 3 með affellingarkant að hvorum öðrum = 116-124-136-152 (164-184) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 6 umferðir perluprjón, fram og til baka, með byrjun við miðju að framan.
Prjónið síðan þannig: Fitjið upp 3 nýjar kantlykkjur að framan í lok 2 næstu umferða (fyrir kant) = 122-130-142-158 (170-190) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 32-34-37-41 (44-49) lykkjur inn frá hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þær merkja framstykki og bakstykki.
Nú eru auknar út lykkjur við miðju að framan (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) þannig að framstykkin komi yfir hvort annað: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju að framan í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið síðan út í 4. hverri umferð 3-2-0-3 (2-13) sinnum til viðbótar, síðan í 6. hverri umferð 8-11-16-17 (21-15) sinnum (= alls 12-14-17-21 (24-29) lykkjur fleiri í hvorri hlið á stykki) = 44-48-54-62 (68-78) lykkjur á hvoru framstykki = 146-158-176-200-218-248 lykkjur alls.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM OG LYKKJUM ER FÆKKAÐ AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI INNAN VIÐ 1 KANTLYKKJU AÐ FRAMAN JAFNFRAMT ÞVÍ SEM STYKKIÐ SKIPTIST OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI.
FÆKKIÐ LYKKJUM VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI ÞANNIG:
Prjónið yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-20-25-28 (32-34) cm frá prjónamerki. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju að framan fyrir hálsmáli í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 20-24-27-31 (35-41) sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umferð 2 sinnum (= alls 23-27-30-34 (38-44) lykkjur færri í hvorri hlið á stykki).
HÉÐAN SKIPTIST STYKKIÐ OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI ÞANNIG:
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Þegar stykkið mælist 21-26-30-35 (40-43) cm frá prjónamerki, skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið nú yfir lykkjur að fyrra prjónamerki (= hægra framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Fitjið nú upp lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar frá réttu þannig (ATH: Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í byrjun á umferð eins og áður): Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrir ermi).
Þegar allar lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp og úrtökur hafa verið gerðar eru 54-62-70-80 (90-102) lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 45-53-62-70 (81-90) cm alls, mælt frá skálm að öxl. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið yfir síðustu lykkjurnar sem settar voru á þráð, fram að prjónamerki.
Prjónið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt – þ.e.a.s. fitjið upp lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá röngu. Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í lok umferðar eins og áður fyrir hálsmáli.

BAKSTYKKI:
= 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir ermar þannig: Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrri ermi í hvorri hlið á stykki) = 124-144-160-180 (202-228) lykkjur.
Þegar stykkið mælist alls 44-52-61-69 (80-89) cm fellið af miðju 16-20-20-20 (22-24) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig (= 54-62-70-80 (90-102) lykkjur eftir á öxl). Prjónið þar til stykkið mælist alls 45-53-62-70 (81-90) cm, mælt frá skálm að öxl, stillið af við framstykkin. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma ofan á ermi/axlasauma með lykkjuspori frá réttu.
Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana.
Saumið skálmar saman innan við 1 kantlykkju og saumið 5 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma saman. Saumið klauf upp þar sem fitjaðar voru upp 3 nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir kantlykkjur að framan og saumið þær 3 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki á gallanum.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige í kringum allt opið við miðju framan á gallanum þannig:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Byrjið við miðju að framan neðst niðri á vinstra framstykki, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur að framan, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur), haldið áfram að hekla kantinn í kringum gallann fram að horni þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjaði á vinstra framstykki, heklið snúru þannig: 1 fastalykkja í hornið, heklið síðan loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki, heklið síðan í hring að næsta horni (þ.e.a.s. á hægra framstykki), heklið snúru, haldið áfram eins og áður í kringum afganginn af gallanum niður þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur að framan, stillið af að endað sé með 1 fastalykkju.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að heklað sé yfir snúru þannig að snúran liggi undir kanti, þ.e.a.s. ekki hekla í lykkju í snúru), endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð. Klippið frá og festið enda.

Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige neðst í kringum báðar skálmar þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið við saum. Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, prjónið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkjur í byrjun á umferð.

Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige neðst í kringum báðar ermar þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju neðst niðri á ermi, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur) og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
Heklið síðan 1 snúru alveg eins og í horni á hægra og vinstra framstykki, að utan verðu á vinstra framstykki, undir ermi (þ.e.a.s. í hlið) og á innan verðu á hægra framstykki – passið uppá að bandið komi í sömu hæð og horn á framstykki.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið laust upp (68) 80-92-96-104 (112-116) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum ljós lavender Baby Merino.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í (2) 2-3-3-3 (4-4) cm.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir = (60) 72-84-88-96 (104-108) lykkjur.
Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (9) 10-11-11-13 (13-14) cm – prjónið stykkið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð, fækkið um (6) 8-7-8-8 (8-9) lykkjur jafnt yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð með sléttum lykkjum), (5) 5-5-5-5 (6-6) sinnum til viðbótar (= alls (6) 6-6-6-6 (7-7) úrtöku umferðir) = (24) 24-42-40-48 (48-45) lykkjur.
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Prjónið 1 umferð brugðið og endurtakið úrtöku í næstu umferð í 6/9, 12/18 mán og (2 - 3/4) ára (ekki er fleiri lykkjum fækkað í hinum stærðunum) = (12) 12-11-10-12 (12-12) lykkjur.
Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.03.2019
Leiðrétting: GALLI:.. Prjónið 6 umferðir perluprjón, fram og til baka, með byrjun mitt að framan.
Yfirfarið á vefsvæði: 15.05.2019
Leiðrétting: það þarf einungis (50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 37, ljós lavender í húfu
Yfirfarið á vefsvæði: 15.08.2019
Efnismagni fyrir stærð 0/1 og 3/4 hefur verið bætt við

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (86)

country flag Andrea wrote:

Hei! Ved fellingen på beina så skal det felles 5 masker på start av de 2 siste pinnene. Per nå har jeg felt ved å strikke to masker og løfte en løst over, men dette har jo resultert i en skarp kant på hver side, og sannsynligvis hull når det strikkes sammen. Skulle jeg egentlig ha strikket to og to sammen? Takk for svar!

01.11.2022 - 21:36

DROPS Design answered:

Hei Andrea, 5 masker på begynnelse av 2 pinner er felt av (slik at du får en kant). God fornøyelse!

02.11.2022 - 06:49

country flag Malene Sørensen wrote:

Hej Jeg kan ikke forstå at der står at udtagninger i benene kun laves på retsiden dette kommer ikke til at passe i str 6-9 mdr når man skal tage ud på hver 5. Pind ...... fatter det ikke Mvh malene

22.09.2022 - 07:04

DROPS Design answered:

Hej Malene, udtagningstipset gælder nede under dragten ikke for benene :)

22.09.2022 - 15:18

country flag Nina-Birgitte wrote:

Hej, jeg er i tvivl i forhold til den hæklede kant! Som det står beskrevet, skal der hækles et bindebånd på begge spidser foran? Jeg tænker ikke det er rigtigt! Jeg forstår det sikkert forkert, men er det ikke sådan at der kun skal være et bindebånd på venstre forstykke og så et i højre sidesøm? Vh Nina

16.04.2022 - 08:12

DROPS Design answered:

Hei Nina-Birgitte. Det hekles 4 bindebånd, slik at 2 og 2 kan knytes sammen, slik: Derefter hækles der 1 bindebånd tilsvarende det i spidsen på højre og venstre forstykke, på ydersiden af venstre forstykke, under ærmet (dvs i siden) og på indersiden af højre forstykket – sørg for at båndene kommer i samme højde som spidserne på forstykkerne. mvh DROPS Design

19.04.2022 - 14:30

country flag Nanna wrote:

Korleis felle av luen med dobbel tråd? Vis gjerne ein video.

24.03.2022 - 21:23

DROPS Design answered:

Hej Nanna. Du ska inte felle av med dobbel tråd, du ska kun trekke en dobbel tråd genom de sista maskorna, dra maskerna sammen och feste tråden. Mvh DROPS Design

25.03.2022 - 14:48

country flag Kimchi wrote:

Såväl ökning som minskning skall göras från rätsidan. Ökning för benen skall göras på udda antal varv för vissa storlekar vilket torde innebära att med varv menas ökningsvarv. Stämmer det verkligen? Det blir glesa ökningar för dressen med var 6:e varv (12:e varv om med varv menas ökningsvarv). Men samtidigt kan det ju inte ökas på exvis var 3:e varv på benen om man skall följa att ökning görs på rätsida endast.

01.01.2022 - 01:56

DROPS Design answered:

Hej Kimchi, de første økninger er på benet, de gøres både fra ret og vrangsiden :)

13.01.2022 - 12:10

country flag Maria wrote:

Hallo, habe den Baby-Einteiler gestrickt, zusammengenäht und umhäkelt, mit Bindebändern. Es ist mir allerdings nicht klar, wie der Einteiler zugebunden werden soll. Das eine Band ist am linken Vorderteil und liegt unter dem überlappenden rechten Vorderteil. Normalerweise müsste das Band doch am Seitenrand herausgeführt werden, um es vorne mit dem anderen Band zu verbinden. Dafür ist jedoch keine Öffnung vorgesehen. Wie haben Sie sich das gedacht? Mit freundlichen Grüßen Maria

15.11.2021 - 16:02

DROPS Design answered:

Liebe Maria, das Band am linken Vorderteil wird zusammen mit dem Band an der Innen Seite von der rechten Seite gebunden; und das Band am rechten Vorderteil wird zusammen mit dem Band an derAußen Seite von der linken Seite gebunden. Viel Spaß beim stricken!

16.11.2021 - 08:30

country flag Yrsa Saranpää wrote:

Hej. jag funderar på ökningarna mitt fram (omlottsdelarna) - "öka vart 4.e varv gånger, därefter vart 6.e varv x antal gånger" = storlek 1-3 månader 11gånger. hur många cm blir omlottsdelen från grenen fram till att ökningarna är över? tycker vart 6.e varv och 11 gånger låter som det skulle bli enormt?

03.11.2021 - 20:02

DROPS Design answered:

Då man räknar varven som behövs under ökningarna i storlek 1/3 månader blir det totalt 75 varv. Ifall stickfastheten stämmer blir detta ca 15-16 cm.

04.11.2021 - 17:16

country flag Heidi Wang wrote:

Hei Skjønner ikke helt hvordan jeg skal sy ben delen sammen. Ønsker en skritt for skritt forklaring hvis mulig

20.10.2021 - 20:35

DROPS Design answered:

Hej Heidi, har du set videoen (du finder den nederst i opskriften), den viser ganske tydeligt hvordan det hænger sammen :)

21.10.2021 - 10:09

country flag Paula wrote:

Ich stricke meistens nach Schnitt, leider ist keine cm-Angabe vom Makierer bis zum Zubinden. Lt. Ihrer Anleitung für Gr. 2: 6 R Perlmuster, 2 R, dann 2 x in der 4. R u 11 x in der 6. R sind insgesamt 82 Reihen, die ergeben aber keine 20cm, ich muss aber eine schräge Kante haben. Wenn ich von den 53cm minus 18cm Beine minus 20cm Zubinden bleiben keine 9cm Arm/Hals übrig, sondern 15cm. Ich möchte wissen, ab wieviel cm Länge muss ich abnehmen und wieviel Maschen habe ich dann.

08.09.2021 - 17:57

DROPS Design answered:

Liebe Paula, stimmt Ihre Maschenprobe? Damit alle Maßen wie in der Skizze stimmen, sollen Sie 24 M und 48 Reihen im Perlmuster = 10 x 10 cm haben. Leider können wir aber jeder Anleitung nicht nach jedem individuellen Frage bzw Maschenpnrobe anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an dem Laden wo Sie die Wolle gekauft haben, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

09.09.2021 - 08:31

country flag Inger W wrote:

Hei, har strikket bena og satt sammen. Det blir et hull midt foran. Har felt 5 masker., strikket 6 pinner og lagt opp 3 nye masker. Det skal vel ikke være sånn ? Hva er feil? \\r\\nHåper å få hjelp, har kjøpt garn på nett. \\r\\nMvh. Inger

06.07.2021 - 18:42