DROPS Super Sale · 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af ullargarni
DROPS Baby Merino
100% Wełna
frá 665.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Autumn & Winter 26/27

Baby Talk

Prjónaður galli án ermasauma og húfa fyrir börn í perluprjóni, garðaprjóni og hekluðum kanti. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino. Stærð á galla: 1 mán til 2 ára. Stærð á húfu: fyrirburar til 4 ára.

DROPS Baby 33-30

#babytalkonesie

DROPS Design: Mynstur bm-102-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

GALLI:

Stærð: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2-3/4) ára
Stærð jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92-98/104)

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300 (300-300) gr litur 37, ljós lavender
50-100-100-100 (100-100) gr litur 23, ljós beige

HÚFA:

STÆRÐ: (fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál:
(28/32) 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir Garnflokki A)
(50) 50-50-50-50 (50-50) gr litur 37, ljós lavender

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 41 umferð á hæð með perluprjóni = 10 x 10 cm.
24 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5: fyrir kanta og snúru.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Baby Merino
100% Wełna
frá 665.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um húfu):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um galla):
Aukið er út innan við 1 kantlykkju. Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um galla):
Lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju. Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fyrstu eru prjónaðar 2 skálmar, síðan eru skálmarnar prjónaðar saman og prjónað er áfram fram og til baka upp að ermi. Síðan eru fitjaðar upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið á stykki, framstykki og bakstykki er síðan prjónað til loka hvort fyrir sig. Axla- og ermasaumar eru saumaðir og í lokin er heklaður er kantur í kringum opið á gallanum. Allur gallinn er prjónaður í perluprjóni.

SKÁLM:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur.
Fitjið upp 46-50-54-58 (66-70) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum ljós lavender DROPS Baby Merino.
Prjónið PERLUPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin á stykki innan við 1 kantlykkju (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 3.-4.-5.-5. (7.-7.) hverri umferð alls 11-11-12-14 (13-16) sinnum = 68-72-78-86 (92-102) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24 (29-34) cm fellið af 5 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir klofi/skrefbót (þ.e.a.s. fellið af lykkjur hvoru megin á stykki) = 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt.

GALLI:
Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón 3 með affellingarkant að hvorum öðrum = 116-124-136-152 (164-184) lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 6 umferðir perluprjón, fram og til baka, með byrjun við miðju að framan.
Prjónið síðan þannig: Fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða (fyrir kant) = 122-130-142-158 (170-190) lykkjur. Setjið 1 merki 32-34-37-41 (44-49) lykkjur inn frá hvorri hlið. Látið merkin fylgja með í stykkinu, þau merkja framstykkin og bakstykkið.
Nú eru lykkjur auknar út við miðju að framan (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) þannig að framstykkin komi yfir hvort annað: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Aukið síðan út í 4. hverri umferð 3-2-5-5 (15-16) sinnum til viðbótar, síðan í 6. hverri umferð 8-11-15-15 (18-12) sinnum (= alls 12-14-17-21 (24-29) lykkjur fleiri í hvorri hlið á stykki) = 44-48-54-62 (68-78) lykkjur á hvoru framstykki = 146-158-176-200-218-248 lykkjur alls.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM OG LYKKJUM ER FÆKKAÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI INNAN VIÐ 1 KANTLYKKJU JAFNFRAMT SEM STYKKIÐ SKIPTIST OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI.
FÆKKIÐ LYKKJUM VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN FYRIR HÁLSMÁLI ÞANNIG:
Prjónið yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-20-25-28 (32-34) cm frá merki. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju fyrir hálsmáli í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur færri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 20-24-27-31 (35-41) sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umferð 2 sinnum (= alls 23-27-30-34 (38-44) lykkjur færri í hvorri hlið á stykki).
HÉÐAN SKIPTIST STYKKIÐ OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI ÞANNIG:
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Þegar stykkið mælist 21-26-30-35 (40-43) cm frá merki, skiptist stykkið við 2 merkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvert fyrir sig. Stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Prjónið nú yfir lykkjur að fyrsta merki (= hægra framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Fitjið nú upp lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar frá réttu þannig (ATH: Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju í byrjun umferðar eins og áður): Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrir ermi).
Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp og öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 54-62-70-80 (90-102) lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 45-53-62-70 (81-90) cm alls, mælt frá skálm að öxl. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið yfir síðustu lykkjurnar sem settar voru á þráð, fram að merki.
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt – þ.e.a.s. fitjið upp lykkjur fyrir ermi í lok umferðar frá röngu. Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í lok umferðar eins og áður.

BAKSTYKKI:
= 58-62-68-76 (82-92) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir ermar þannig: Fitjið upp 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls 4-4-5-6 (7-8) sinnum, síðan 17-17-16-16 (18-20) lykkjur alls 1 sinni (= alls 33-41-46-52 (60-68) lykkjur fitjaðar upp fyrri ermi í hvorri hlið á stykki) = 124-144-160-180 (202-228) lykkjur.
Þegar stykkið mælist alls 44-52-61-69 (80-89) cm fellið af miðju 16-20-20-20 (22-24) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig (= 54-62-70-80 (90-102) lykkjur eftir á öxl). Prjónið þar til stykkið mælist alls 45-53-62-70 (81-90) cm, mælt frá skálm að öxl, stillið af mál við framstykkin. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma ofan á ermi/axlasauma með lykkjuspori frá réttu.
Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana.
Saumið skálmar saman innan við 1 kantlykkju og saumið 5 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma saman frá miðju að framan að miðju aftan á galla. Saumið klauf upp þar sem fitjaðar voru upp 3 nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir kantlykkjur og saumið þær 3 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki á gallanum.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige í kringum allt opið við miðju framan á gallanum þannig:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Byrjið við miðju að framan neðst niðri á vinstra framstykki, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur), haldið áfram að hekla kantinn í kringum gallann fram að horni þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjaði á vinstra framstykki, heklið snúru þannig: 1 fastalykkja í hornið, heklið síðan loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki, heklið síðan í hring að næsta horni (þ.e.a.s. á hægra framstykki), heklið snúru, haldið áfram eins og áður í kringum afganginn af gallanum niður þar sem fitjaðar voru upp 3 kantlykkjur, stillið af að endað sé með 1 fastalykkju.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að heklað sé yfir snúru þannig að snúran liggi undir kanti, þ.e.a.s. ekki hekla í lykkju í snúru), endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð. Klippið frá og festið þráðinn.

Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige neðst í kringum báðar skálmar þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið við saum. Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, prjónið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkjur í byrjun á umferð.

Heklið með heklunál 2,5 með litnum ljós beige neðst í kringum báðar ermar þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju neðst niðri á ermi, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur) og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
Heklið síðan 1 snúru alveg eins og í horni á hægra og vinstra framstykki, að utan verðu á vinstra framstykki, undir ermi (þ.e.a.s. í hlið) og á innan verðu á hægra framstykki – passið uppá að bandið komi í sömu hæð og horn á framstykki.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið laust upp (68) 80-92-96-104 (112-116) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum ljós lavender DROPS Baby Merino.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í (2) 2-3-3-3 (4-4) cm.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir = (60) 72-84-88-96 (104-108) lykkjur.
Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (9) 10-11-11-13 (13-14) cm – prjónið stykkið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð, fækkið um (6) 8-7-8-8 (8-9) lykkjur jafnt yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð með sléttum lykkjum), (5) 5-5-5-5 (6-6) sinnum til viðbótar (= alls (6) 6-6-6-6 (7-7) úrtöku umferðir) = (24) 24-42-40-48 (48-45) lykkjur.
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Prjónið 1 umferð brugðið og endurtakið úrtöku í næstu umferð í 1/3, 6/9, 12/18 mán og (2 - 3/4) ára (ekki er fleiri lykkjum fækkað í hinum stærðunum) = (12) 12-11-10-12 (12-12) lykkjur.
Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.03.2019
Leiðrétting: GALLI:.. Prjónið 6 umferðir perluprjón, fram og til baka, með byrjun mitt að framan.
Yfirfarið á vefsvæði: 15.05.2019
Leiðrétting: það þarf einungis (50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 37, ljós lavender í húfu
Yfirfarið á vefsvæði: 15.08.2019
Efnismagni fyrir stærð 0/1 og 3/4 hefur verið bætt við
Yfirfarið á vefsvæði: 10.10.2025
Uppskriftin hefur verið uppfærð. Leiðrétting í úrtöku á húfu - stærð 1/3 mánaða.

Mynstur

prjónstefna = prjónstefna
Diagram for DROPS Baby 33-30

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (123)

country flag Fallecker Bernadette skrifaði:

BONJOUR Sil vous plait pourriez vous m expliquer la partie COMBINAISON à partir de glisser les 2 jambes et surtout la suite, je ne comprends pas comment mettre les mailles rabattues je vous remercie cordialement

02.11.2026 - 05:19

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Fallecker, à la fin des jambes vous avez rabattu 5 m de chaque côté pour l'entrejambe, lorsque vous reprenez les 2 jambes vous commencez sur l'endroit et tricotez la 1ère jambe (= la jambe droite) en commençant par la 1ère m (=après les 5 premières mailles rabattues sur l'endroit) et jusqu'aux 5 mailles rabattues à la fin du dernier rang sur l'envers, puis tricotez les mailles de la 2ème jambe en commençant par la 1ère maille = après les 5 mailles rabattues en début de rang sur l'endroit jusqu'aux 5 mailles rabattues en début de rang sur l'envers = vous avez tricoté toutes les mailles des 2 jambes. Tricotez encore 5 rangs. Montez ensuite 3 mailles à la fin des 2 rangs suivants et placez vos marqueurs comme indiqué. Vous allez maintenant augmenter pour les devants puis former l'encolure et il vous faudra aussi diviser l'ouvrage à la hauteur indiqué pour les manches. Bon tricot!

02.11.2026 - 10:06

country flag Simone skrifaði:

Skal man være meget øvet for at kunne strikke denne opskrift?

20.10.2026 - 17:47

country flag Caroline skrifaði:

Hej, Nu har jag börjat med höger framstycke och har ökat 46 maskor samtidigt som jag minskat i början på varje rätt varv men detta gör ju att jag har 62 maskor kvar INTE 70 som det står att man ska ha? Vet något vad jag kan ha gjort för fel?

27.09.2026 - 17:08

DROPS Design svaraði:

Hei Caroline. Ut fra maskeantallet du skriver, tipper jeg du strikker str. 6/9 mnd. Du skal ha 54 m på hvert forstykke (og 68 m på bakstykket = 176 masker totalt). Så skal det felles det 1 maske innenfor 1 kantmaske til hals i hver side av arbeidet. Det felles totalt 30 ganger i hver side. Du har 54 masker minus 30 fellinger = 24 masker, samtidig som det legges opp masker til erme (det legges opp 6 masker totalt 5 ganger = 30 masker , deretter 16 masker 1 gang (=46 masker lagt opp til erme). Altså: 24 masker (forstykke) + 46 masker (erme) = 70 masker når alle maskene er lagt opp og alle fellingene er ferdig. mvh DROPS Design

28.09.2026 - 10:47

country flag Rósa skrifaði:

Ég er að byrja á ermi og er með 21 lykkju á hægra framstykki. Bæti við 4x4 eða 16 og svo 17 og þetta verða samtals 54 eins og gert er ráð fyrir. En það á að taka úr við kantlykkju svo þessi tala gengur ekki upp. Er ég að misskilja e-ð ?

24.07.2026 - 23:04

DROPS Design svaraði:

Blessuð Rósa Þú ert með 44 lykkjur fyrir hvort framstykki og 58 lykkjur fyrir bakstykki. 44 lykkjur – 23 lykkjur færri fyrir hálsmáli + 4 lykkjur x 4 (= 16 lykkjur) + 17 lykkjur = 54 lykkjur. Það sem ég held að sé að trufla þig er að kaflarnir hanga saman og það er aftur minnst á að halda áfram að fækka lykkjum. Þú byrjar að fækka lykkjum fyrir hálsmáli þegar stykkið mælist 17 cm síðan þegar stykkið mælist 21 cm skiptist stykkið og þú heldur samt áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli ásamt því að fitja upp fyrir ermum. Vona að þetta hjálpi þér. Gangi þér vel.

25.07.2026 - 11:45

country flag Donna skrifaði:

Bonjour,\\r\\nQuand je couds les 10 mailles rabattues de l’entre jambe, je me retrouve avec un trou sur le dos de l’ouvrage. Si Valerie a résolu le problème, j’aimerais beaucoup qu’elle partage sa solution . D’avance merci.

11.05.2026 - 09:41

DROPS Design svaraði:

Bonjour Donna, vous devez assembler entre elles les 10 m du milieu devant aux 10 mailles du milieu dos, l'entrejambe a donc une couture plate devant/dos de 10 m. En espérant que cela puisse vous aider, bon tricot!

11.05.2026 - 16:10

country flag Jenny skrifaði:

Etter å ha lagt opp til erme på høyre forstykke, hvor langt skal ermet strikkes?

30.04.2026 - 18:10

DROPS Design svaraði:

Hei Jenny. Lengden på ermet = de maskene det er økt til erme (legges opp forskjellige maskeantall i de ulike str., men man skal ha lagt opp totalt 33-41-46-52 (60-68) masker til erme. Det strikkes til arbeidet måler 45-53-62-70 (81-90) cm totalt, målt fra ben til skulder. Se gjerne på målskissen (nederst på siden), der ser du de ulike målene på de forskjellige størrelsene. mvh DROPS Design

04.05.2026 - 08:43

country flag Satu skrifaði:

Hei! Ohjeessa housupuvussa lahkeiden teon jälkeen lisätään keskelle eteen molempiin reunoihin 3 silmukkaa. Neulotaanko välissä kerroksia, ennen kuin aletaan lisäämään molempiin reunoihin yksi silmukka kerrallaan (reunasilmukan sisäpuolelle)? Eli lisätään 3 silmukkaa, käännetään työ ja lisätään heti perään 1 silmukka, vai väliin kerroksia ilman lisäyksiä?

29.03.2026 - 20:47

DROPS Design svaraði:

Hei, aloita 1 silmukan lisäykset heti, kun olet luonut 3 silmukkaa kumpaankin reunaan.

30.03.2026 - 17:30

country flag Tea skrifaði:

Hei, igjen! Oppfølging til forrige spørsmål: Leste i et annet svar at øketips ikke gjelder for benene. Skal man bare øke på rettsiden? Hvis jeg skal øke på hver 5. pinne, blir det da annen hver 4. og 6. eller kan jeg øke på vrangsiden også?

23.02.2026 - 12:27

DROPS Design svaraði:

Hei Tea. Når du strikker beina økes det når arbeidet måler 6 cm. Det økes i siden av arbeidet innenfor 1 kantmaske (= 2 masker økt). Øk slik på hver 3.-4.-5.-5.(8.-8.) pinne totalt 11-11-12-14 (13-16) ganger. Om du skal øke på hver 5. pinne, øker du annen hver gang fra retten og vrangen. Det økes med 1 kast. Kastet strikkes vridd rett på neste pinne, det skal ikke lage hull. mvh DROPS Design

03.03.2026 - 08:02

country flag Tea skrifaði:

Hei, Hvordan skal man øke etter kantmasken på benene? Vanlig rett på alle?

22.02.2026 - 18:05

DROPS Design svaraði:

Hei Tea, Øketips under Forklaringene på toppen av oppskriften beskriver hvordan man øker med kast, som er strikket vridd rett på nest omgang. Hilsen Drops Team.

23.02.2026 - 06:49

country flag Tii skrifaði:

Hi, is this difficult to do for first timer? Have you video tutorial from this on YouTube or somewhere?

06.01.2026 - 18:15

DROPS Design svaraði:

Hi Til, This is probably not the easiest pattern for a beginner but you can always give it a go! We have many tutorials showing knitting techniques and stitches. Click on Tips & Help at the top of the page and scroll through our knitting videos on the left-hand side. Good luck and regards, Drops Team.

07.01.2026 - 06:52