Liudmila skrifaði:
Hello, would this pattern still work with 100% cotton yarn?
27.02.2019 - 23:38DROPS Design svaraði:
Dear Liudmila, use our yarn converter to see the different alternatives you can use - read more about alternatives here. Happy knitting!
28.02.2019 - 09:39
Sara skrifaði:
Visto che il vestito si lavora top down, gli schemi vanno eseguiti leggendoli dal basso verso l'alto (come farei normalmente) o dall'alto verso basso? Grazie
13.02.2019 - 09:08DROPS Design svaraði:
Buongiorno Sara. Anche nella lavorazione top down, i diagrammi si leggono in maniera tradizionale: dal basso verso l'alto e da destra verso sinistra. Buon lavoro!
13.02.2019 - 09:19
Anne skrifaði:
Ja, bitte die Anleitung, entlich mal Kleider zum Stricken.
21.01.2019 - 21:03
Jenny Strick skrifaði:
Wunderschönes Design! Ich freue mich schon auf die Anleitung!
19.01.2019 - 11:10
Mariandy skrifaði:
Mir gefällt besonders die A-Linie des Kleides. Ich würde es gerne stricken.
31.12.2018 - 11:56
Beti skrifaði:
Dieses Modell ist traumhaft, würde es gern nacharbeiten.
20.12.2018 - 13:26
Eva skrifaði:
Schöne Passe.
16.12.2018 - 19:49
Natacha skrifaði:
Quel modèle ! waouh, bon le mannequin ne gâche rien...
12.12.2018 - 21:29
Desert Whispers#desertwhispersdress |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, garðaprjóni og sléttprjóni. Stærð S – XXXL.
DROPS 200-2 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2, A.3, A.4 og A.5. Veldu mynsturteikningu A.1/A.2 fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32 = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3 hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð. Þegar aukið er út við 1., 3., 4. og 6. prjónamerki er slegið 1 sinni uppá prjóninn og uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð. Þegar aukið er út við 2. og 5. prjónamerki er slegið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 lykkjur (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar í næstu umferð og halda áram í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki með kanti fyrir tölur á baki er prjónaður fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg og stykkið er síðan prjónað í hring. BERUSTYKKI: Fitjið upp 100-104-108-114-118-124 lykkjur á hringprjón 4 með Cotton Light. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út 32-36-40-42-46-50 lykkjur jafnt yfir í umferð SJÁ ÚTAUKNING! = 132-140-148-156-164-174 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu í mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir og prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN, prjónið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir og prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör er aukið út jafnt yfir 40-44-50-52-56-62 lykkjur í umferð. Endurtakið mynsturteikningu og útaukningu alls 4-3-4-3-3-3 sinnum á hæðina. STÆRÐ M, XL, XXL og XXXL: Prjónið mynsturteikningu 1 sinni til viðbótar á hæðina, en við örina er aukið út um 48-54-62-64 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Mynsturteikningin hefur nú verið prjónuð 4 sinnum í öllum stærðum og það eru 292-320-348-366-394-424 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14-14-14-17-17-17 cm. Prjónið síðan eftir mynsturteikningu A.1/A.2 (án útaukningar) með 3 kantlykkjur í garðaprjóni þar til stykkið mælist ca 15-16-17-18-19-20 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið 36-41-46-48-53-59 lykkjur brugðið (= hálft bakstykki), prjónið 68-72-76-81-85-88 lykkjur slétt (= ermi), prjónið 78-88-98-102-112-124 lykkjur brugðið (= framstykki), prjónið 68-72-76-81-85-88 lykkjur slétt (= ermi), prjónið 36-41-46-48-53-59 lykkjur brugðið og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni (= hálft bakstykki). Prjónið frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 39-44-49-51-56-62 lykkjur, fellið af næstu 68-72-76-81-85-88 lykkjur (= ermi), prjónið 78-88-98-102-112-124 lykkjur slétt (= framstykki), fellið af næstu 68-72-76-81-85-88 lykkjur (= ermi) og prjónið út umferðina. Nú hafa lykkjur verið felldar af fyrir handveg í hvorri hlið. FRAM- OG BAKSTYKKI: Héðan er stykkið prjónað í hring (byrjun á umferð er við miðju að aftan). Prjónið 39-44-49-51-56-62 lykkjur slétt, fitjið upp 8-8-8-12-14-14 nýjar lykkjur í hlið, prjónið 78-88-98-102-112-124 lykkjur slétt, fitjið upp 8-8-8-12-14-14 nýjar lykkjur í hlið og prjónið 39-44-49-51-56-62 lykkjur slétt = 172-192-212-228-252-276 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón, en 8-8-8-12-14-14 nýjar lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm frá skiptingu, setjið 6 prjónamerki í stykkið (byrjið við miðju að aftan) þannig: Prjónið 13-15-17-17-19-21 lykkjur sléttprjón og setjið 1. prjónamerki í síðustu af þessum lykkjum. Prjónið 26-29-32-34-37-41 lykkjur sléttprjón, prjónið 4-4-4-6-7-7 lykkjur garðaprjón og setjið 2. prjónamerki á prjóninn hér. Prjónið 4-4-4-6-7-7 lykkjur garðaprjón, prjónið 27-30-33-35-38-42 lykkjur sléttprjón og setjið 3. prjónamerki í síðustu af þessum lykkjum. Prjónið 25-29-33-33-37-41 lykkjur sléttprjón og setjið 4. prjónamerki í síðustu af þessum lykkjum. Prjónið 26-29-32-34-37-41 lykkjur sléttprjón, prjónið 4-4-4-6-7-7 lykkjur garðaprjón og setjið 5. prjónamerki á prjóninn hér. Prjónið 4-4-4-6-7-7 lykkjur garðaprjón, prjónið 27-30-33-35-38-42 lykkjur sléttprjón og setjið 6. prjónamerki í síðustu af þessum lykkjum. Prjónið 12-14-16-16-18-20 lykkjur sléttprjón fram að byrjun á umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður og aukið út í næstu umferð þannig: Aukið út um 1 lykkju á undan 1. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á eftir 3. og 6. prjónamerki. Aukið út 2 lykkjur við 2. og 5. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2! = 8 lykkjur fleiri í umferð. Endurtakið útaukningu í 13.-13.-13.-14.-14.-15. hverri umferð alls 11-11-11-10-10-10 sinnum – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm frá skiptingu, prjónið mynsturteikningu A.3 yfir garðaprjón í hvorri hlið (stillið af að útaukning í hlið er gerð í umferð með sléttum lykkjum í A.3). Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka eru 260-280-300-308-332-356 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 56-57-58-59-61-61 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-20-15-22-13-19 lykkjur jafnt yfir allar lykkjur = 270-300-315-330-345-375 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.4 yfir allar lykkjur (í stærð L, XXL og XXXL er prjónuð 1 lykkja slétt í lok 4. umferðar í mynsturteikningu þannig að lykkjufjöldinn gangi jafnt upp). Eftir mynsturteikningu A.4 er prjónuð mynsturteikning A.5 yfir allar lykkjur. Þegar mynsturteikning A.5 er lokið er fellt af með sléttum lykkjum í næstu umferð. Stykkið mælist ca 61-62-63-64-65-66 cm frá skiptingu og ca 80-82-84-86-88-90 cm alls frá öxl. FRÁGANGUR: Heklið 3 hneslur meðfram vinstri hlið á opi að aftan. 1 lykkja = heklið með heklunál 3,5 og Cotton Light þannig: 1 fastalykkja í ystu lykkju efst við háls, 4 loftlykkjur og síðan 1 keðjulykkja í sömu lykkju og fastalykkjan var hekluð í, klippið frá og festið enda. Heklið 2 lykkjur til viðbótar meðfram opi. Saumið tölur í hægra megin á opi. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #desertwhispersdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.