DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Belle yarn
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Raspberry Kiss

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 202-6

#raspberrykisscardigan

DROPS Design: Mynstur vs-058
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 11, bleikfjólublár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Blóm (bleik) NR 616: 5 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1-A.5). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 36. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 35. og 36. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um fram- og bakstykki og ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.6 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.6, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.6, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 189 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 7,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni á ermum og prjónað er mynstur á fram- og bakstykki.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4 næstu með ca 7-7-8-8-9-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 118-118-123-128-138-143 lykkjur á hringprjón 3 með Belle. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu: 5 kantlykkjur að framan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stroffið mælist 2 cm – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-3-2-7-1-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 115-115-121-121-137-137 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (5 kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni).

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 0-0-1-1-0-0 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 16-16-16-16-21-21 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= vinstra framstykki), prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 yfir næstu 3-3-5-5-7-7 lykkjur, A.3a yfir næstu 14-14-14-14-16-16 lykkjur, A.3b yfir næstu 11-11-11-11-13-13 lykkjur, A.4 yfir næstu 3-3-5-5-7-7 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= bakstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 15 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.5 yfir næstu 16-16-16-16-21-21 lykkjur, 0-0-1-1-0-0 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 24-26-29-32-35-38 sinnum = 307-323-353-377-417-441 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina heldur mynstrið áfram alveg eins. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð mælist stykkið ca 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: ATH: Í stærð S og L skiptist stykkið nú fyrir ermar og fram- og bakstykki við prjónamerki. Í stærð M, XL, XXL og XXXL eru prjónaðar nokkrar af lykkjum (= 1-2-1-3 lykkjur) á ermum inn á prjóninn fyrir fram- og bakstykki þannig að skiptingin á milli fram- og bakstykkis og erma er ekki lengur við prjónamerkin: Prjónið fyrstu 47-50-53-58-64-69 lykkjur, setjið næstu 65-67-75-77-85-87 lykkjur á band (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 83-89-97-107-119-129 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 65-67-75-77-85-87 lykkjur á band (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 47-50-53-58-64-69 lykkjur sem eftir eru í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 193-209-227-247-271-295 lykkjur. Prjónið mynstur A.6 (= 8 lykkjur) yfir miðju 8 lykkjurnar undir ermi, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og prjónið áfram með eins margar mynstureiningar með gatamynstri í A.2a/A.2b eins og pláss er fyrir út að hvorri hlið (mynstrið á að passa yfir mynstur á berustykki), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við A.6 í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri) = 189-205-223-243-267-291 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15 cm – stillið af þannig að endað sé eftir heilt gatamynstur á hæðina og e.t.v. nokkrar umferðir með sléttprjóni), aukið út 24-28-35-40-46-47 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 213-233-258-283-313-338. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjón þegar fellt er af. Peysan mælist ca 40-42-44-46-48-50 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 65-67-75-77-85-87 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-10-12-12-12-14 lykkjum undir ermi = 73-77-87-89-97-101 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og prjónið A.6 yfir miðju 8 lykkjur undir ermi. Þegar stykkið mælist 4-4-3-3-3-2 cm er fækkað um 2 lykkjur undir ermum – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í mismunandi stærðum þannig:
Stærð S: Fækkið lykkjum svona til skiptis með 2 og 3 cm millibili alls 11 sinnum.
Stærð M: Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 12 sinnum.
Stærð L: Fækkið lykkjum svona með 1,5 cm millibili alls 16 sinnum.
Stærð XL: Fækkið lykkjum svona með 1,5 cm millibili alls 16 sinnum.
Stærð XXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 19 sinnum.
Stærð XXXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 20 sinnum.
Þegar öll úrtaka fyrir ermi hefur verið gerð til loka eru 51-53-55-57-59-61 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 31-30-29-27-25-23 cm. Aukið nú um 4-7-5-8-6-9 lykkjur jafnt yfir = 55-60-60-65-65-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar fellt er af. Ermin mælist ca 33-32-31-29-27-25 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
Hnútur: Prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju þar til aukið hefur verið út frá 1 til 5 lykkjur. Nú eru 5 lykkjur á hægri prjón. Steypið 2. lykkju (næst ysta lykkjan á hægri prjóni) yfir ystu lykkjuna, steypið 3. lykkju yfir ystu lykkju, steypið 4. lykkju yfir ystu lykkju, steypið 5. lykkju yfir fyrstu lykkju (= 1 hnútur). = Hnútur: Prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju þar til aukið hefur verið út frá 1 til 5 lykkjur. Nú eru 5 lykkjur á hægri prjón. Steypið 2. lykkju (næst ysta lykkjan á hægri prjóni) yfir ystu lykkjuna, steypið 3. lykkju yfir ystu lykkju, steypið 4. lykkju yfir ystu lykkju, steypið 5. lykkju yfir fyrstu lykkju (= 1 hnútur).
Diagram for DROPS 202-6
Diagram for DROPS 202-6
Diagram for DROPS 202-6
Diagram for DROPS 202-6
Diagram for DROPS 202-6
Diagram for DROPS 202-6
Diagram for DROPS 202-6
Diagram for DROPS 202-6

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (87)

country flag Inma skrifaði:

Hola!! No entiendo cómo hacer el nudo. Tienen un vídeo sobre la realización de este punto?? Gracias

16.05.2025 - 17:38

DROPS Design svaraði:

Hola Inma, aquítienes el video sobre cómo trabajar el nudo.

18.05.2025 - 14:56

country flag Marleen skrifaði:

Hoi goedemiddag, Ik heb een vraagje over hoe ik de chart moet lezen in de verschillende stukken…….. zijn het 28 nld aan de goede kant die het patroon aangeeft (met ertussen de (niet afgebeelde) purl toeren? En lees ik de charts van rechtsonder naar links, of van linksonder naar rechts? Dat is me niet duidelijk uit de tekst geworden Dank je wel alvast

16.05.2025 - 16:57

DROPS Design svaraði:

Dag Marleen,

In de telpatronen zijn alle naalden aangegeven, dus zowel de heengaande als de teruggaande naalden. Je leest de patronen inderdaad van rechts naar links aan de goede kant en dan de volgende naald terug van links naar rechts. Zo ga je steeds heen en weer.

16.05.2025 - 19:07

country flag Hélène skrifaði:

Hi this is a lovely pattern thank you. Just a little comment on the french translation it just makes no sense it misses a lot of words and all the references to the charts. I will do it in the original version.

31.03.2025 - 16:51

DROPS Design svaraði:

Dear Helène, should you have noticed anything wrong with the French translation, please feel free to share so that pattern can be checked and edited; you are always welcome to edit language and follow original pattern (in Norwegian). Thanks already. Happy knitting!

01.04.2025 - 09:19

country flag Gio skrifaði:

Salve, avete tanti bellissimi prodotti e soprattutto i modelli sono davvero belli. Io ho iniziato a fare questo modello 202-6 ma essendo alle prime armi mi perdo nella spiegazione. Chiedo se avete a disposizione 1 video dove oltre a spiegare fa vedere la realizzazione del modello. Esiste 1 video per aiutare i principianti a realizzare i vs modelli? Grazie

10.01.2025 - 01:20

DROPS Design svaraði:

Buonasera Gio, non ci sono tutorials per la realizzazione dell'intero modello, ma ci sono dei video che la possono aiutare nelle singole tecniche. Buon lavoro!

13.01.2025 - 18:37

country flag Carla Burger skrifaði:

Refer to yoke Instruction..the first 6 rows are not mentioned but they show on diagram A1...also how do I work with diagrams..where do I start from?..thank you

20.11.2024 - 10:58

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Burger, when working yoke, work diagrams as explained, ie when working the first rows in A.1 just work these rows in stocking stitch = knit from right side/purl from wrong side (just as other diagrams as pattern start on same row for all diagrams). Happy knitting!

20.11.2024 - 13:45

country flag Alexa Fujise skrifaði:

Sorry, but if I count the stitches as you do, the numbers do not work out. I have 3 stitches between each body piece and sleeve piece. If I always knit these three stitches with the adjacent front/back piece, will that work out?

20.09.2024 - 02:56

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Fujise, if your number of stitches is right after all increases for raglan just divide piece as explained, it might have more sense when you see what happens; then you will have enough stitches to make pattern fit over alls stitches after dividing. Happy knitting!

20.09.2024 - 08:51

country flag Alexa Fujise skrifaði:

Thanks so much for your help! I have another question. After the raglan increases in the Yoke, I don't understand how to "work the next row" by "work[ing] some of the stitches, ("2") on sleeves on to needle for body." The Left front section of the body (size M) is 50 stitches and ends just after the 3-stitch transition to the sleeve. Do I add 2 stitches to the Left Front, making the Left Front 52 stitches? That would decrease the transition from that sleeve to the back body section.

16.09.2024 - 08:33

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Fujise, this mean here that the first and last stitch of each sleeve (in size M) will go to the front/back pieces, so for left front piece work the first 50 sts (including the 2 raglan stitches + the first stitch sleeve), slip the next 67 sts on a thread then work the next 89 sts for back piece (including the last stitch on sleeve + the 2 raglan sts before back piece and the 2 raglan sts + the first stitch on sleeve at the end of back piece), slip the next 67 sts on a thread and work the remaining stitches (including the last stitch 2nd sleeve + the 2 raglan sts). Happy knitting!

18.09.2024 - 15:58

country flag Alexa Fujise skrifaði:

I also have a question regarding row 3 of the pattern. (See Kathy C's question of 06-08-2020). In other words, in addition to the charted stitches (A.1, A.2 , etc) you also increase by two stitches when stitching the separate 15 stitches (in the first row), so that between A.1 and A.2 and between A.4 and A.5 you stitch 17 stitches in row 3?

29.08.2024 - 03:13

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Fujise, as you increase 8 sts on every row from right side, you will increase the number of stitches of each front piece by 1 stitch and of sleeves and back piece by 2sts; so that the 15 sts for sleeves on row 1 are becoming 17 after 1st row, then 19 after 3rd row and so on. (If I understood your question properly). Happy knitting!

30.08.2024 - 07:28

country flag Moira Garner skrifaði:

For some reason I cannot visualise that my marker placement is in the correct places for the band, front left , sleeve, back, sleeve, front right and band? (Working on the size XXL) I thought if I asked someone else I would understand, could you please explain how many stitches I should have in each section as I have described above example 5sts m, 7 sts m and so on I would be really grateful for your help thank you 🙏

08.08.2024 - 09:44

DROPS Design svaraði:

Dear Moira, you should have, in the first row: 5 band sts, 21 sts of A.1, 1 yarn over, k2, 1st marker (= 28 sts + yarn over; left front piece), k1, 1 yarn over, k15, 1 yarn over, k1, 2nd marker (16 sts + 2 yarn overs; sleeve), k2, 1 yarn over, 7 sts of A.2, 16 sts of A.3a stitches, 13 sts of A.3b, 7 sts of A.4, 1 yarn over, knit 2, 3rd marker (= 47 sts + 2 yarn overs back piece), k1, 1 yarn over, k15, 1 yarn over, k1, 4th marker (16 sts + 2 yarn overs; sleeve), k2, 1 yarn over, 21 sts of A.5, 5 band sts (= 28 sts + yarn over; right front piece). Happy knitting!

11.08.2024 - 13:13

country flag Anka Sander skrifaði:

Betrifft Ihre Antwort 06.08.2024 - 15:48 Also die Armlöcher erkenne ich! Ich spreche von dem Muster 8 A6; 1 Umschlag + 2M. zusammenstricken: das sind Löcher, die da entstehen!

07.08.2024 - 22:19

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Sander, ja genau, an beiden Seiten der Jacke sowie an der unteren Mitte der Ärmel wird man A.6 : ein Lochmuster stricken. Die Abnahmen der Seiten/Ärmel wird beidseitig von A.6 gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!

08.08.2024 - 09:41