Sylvie skrifaði:
Comment faire pour avoir le modèle en explication? Merci d'avance
24.01.2019 - 19:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, ce modèle n'est pas encore disponible, revenez régulièrement pour voir s'il a été publié. Bon tricot!
25.01.2019 - 08:48
Sandra Marie Stjernholm skrifaði:
Kjempe fiiiiin! Skal sååp strikke den. ❤️
23.01.2019 - 23:28
InEs skrifaði:
Sehr interessantes Muster!
17.12.2018 - 13:26
Sweet Topaz#sweettopazsweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Peysa með blaðamynstri úr DROSP Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-6 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 25 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 8,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 101-113-125-137-149-161 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja brugðið, (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) yfir næstu 18-24-30-36-42-48 lykkjur, A.1a yfir næstu 29 lykkjur, A.2a yfir næstu 28 lykkjur, (3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt) yfir næstu 18-24-30-36-42-48 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 8 fyrstu umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar til loka á hæðina. Næsta umferð er prjónuð þannig: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið brugðið yfir næstu 19-25-31-37-43-49 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-3-6-8-8-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, prjónið næst, síðustu umferð í A.1a og A.2a, prjónið brugðið yfir næstu 19-25-31-37-43-49 lykkjur og fækkið jafnframt 0-3-6-8-8-9 lykkjur jafnt yfir, 3 lykkjur garðaprjón = 88-94-100-108-120-130 lykkjur. Prjónið næstu umferð til baka frá röngu með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið, prjónið síðustu umferð í A.1a og A.2a og sléttprjón með rönguna út (= sléttar lykkjur frá röngu) yfir þær lykkjur sem eftir eru. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú áfram í mismunandi stærðum þannig: Í stærð S og M er prjónað áfram frá næsta kafla að neðan (hoppið yfir afgang af þessum kafla). Í stærð L, XL, XXL og XXXL er mynstur fyrst prjónað þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 25-29-35-40 lykkjur brugðið, A.1b yfir næstu 22 lykkjur, A.2b yfir næstu 22 lykkjur, 25-29-35-40 lykkjur brugðið, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stykkið mælist alls 5-5-6-6 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Allar stærðir: Prjónið nú mynstur þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 1-4-7-11-17-22 lykkjur brugðið, A.3a yfir næstu 40 lykkjur, A.4a yfir næstu 40 lykkjur, 1-4-7-11-17-22 lykkjur brugðið, 3 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17 cm er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok næstu 2 umferða fyrir kantlykkju (þessi lykkja merkir klauf) = 90-96-102-110-122-132 lykkjur. Nýja lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni (= 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið). Þegar A.3a og A.4a hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.3b yfir A.3a og A.4b yfir A.4a alls 2 sinnum á hæðina. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm eru felldar af 2-4-5-5-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 86-88-92-100-110-118 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður og prjónið ystu 3 lykkjur í hvorri hlið í garðaprjóni. Þegar A.3b og A.4b hefur verið prjónað til loka á hæðina 2 sinnum er prjónað A.3c yfir A.3b og A.4c yfir A.4b, síðan eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur til loka. Jafnframt þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm fellið af miðju 36-36-38-38-40-40 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju (fækkið að auki um 1 lykkju í mynsturteikningu A.3c/A.4c) = 23-24-25-29-33-37 lykkjur. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið mynstur á sama hátt og bakstykki. Fellið lykkjur af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki = 86-88-92-100-110-118 lykkjur. Þegar A.3b og A.4b hefur verið prjónað til loka á hæðina 2 sinnum er prjónað A.3c yfir A.3b og A.4c yfir A.4b, síðan eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur til loka. Jafnframt þegar stykkið mælist 53-54-56-57-59-60 cm setjið miðju 20-20-20-20-22-22 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 4 lykkjur, 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3-3-4-4-4-4 sinnum (að auki er fækkað um 1 lykkju í mynsturteikningu A.3c/A.4c) = 23-24-25-29-33-37 lykkjur. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón í sléttprjóni með réttuna út. Fitjið upp 36-36-42-42-42-48 lykkjur á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (prjónamerki fylgir með í stykkinu). Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 54-54-63-63-63-72 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 14-9-0-10-8-14 cm millibili alls 2-4-1-3-4-2 sinnum = 58-62-65-69-71-76 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 47-46-45-44-41-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari axla). Haldið nú áfram fram og til baka (þetta er gert til að það sé hægt að sauma ermina við þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg á fram- og bakstykki). Þegar ermin mælist alls 52-52-52-51-49-48 cm fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki í sléttprjóni (réttan) út – saumið innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hlið á fram- og bakstykki niður þar sem fitjuð var upp 1 lykkja (= ca 17 cm klauf). Endurtakið í hinni hliðinni KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt ofan á annarri öxlinni og prjónið upp 108-108-114-114-120-120 lykkjur frá réttu með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 4. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweettopazsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.