DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Merino Extra Fine yarn
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4508.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Cable Snooze

Prjónaður poki fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með gatamynstri, tvöföldu perluprjóni og hettu. Stærð fyrirburar – 4 ára.

DROPS Baby 33-7

#cablesnoozebuntingbag

DROPS Design: Mynstur me-066-by
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: (0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára
Stærð jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
(350) 400-450-500-600 (650) gr litur 15, ljós grágrænn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
1 mynstureining A.4/A.4 (18 lykkjur) mælist ca 7 cm á breidd.
1 mynstureining A.6 (32 lykkjur) mælist ca 12 cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, Eik NR 503: (8) 9-10-11-12 (12) st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4508.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Stærð (0) 0/1 mán: Sjá mynsturteikningu, A.1, A.3, A.4 og A.5.
Stærð 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára: Sjá mynsturteikningu A.2, A.3 og A.6.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT-1 (á við um neðst á poka):
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Þessi (4) 4-4-5-5 (5) hnappagöt eru staðsett jafnt yfir með ca (4½) 5-6-5½-6 (6) cm millibili.

HNAPPAGAT-2 (á við um kant við miðju að framan):
Fellið af fyrir hnappagati frá réttu á hægra kanti. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist (mælt frá prjónamerki):
(0) mán: 2, 8, 14 og 20 cm
0/1 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm
1/3 mán: 2, 7, 13, 18, 24 og 29 cm
6/9 mán: 2, 9, 16, 23, 29 og 35 cm
12/18 mán: 2, 8, 14, 20, 26, 32 og 38 cm
(2) ára: 2, 8, 15, 21, 28, 34 og 41 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

POKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í 2 hlutum. Fitjaðar eru upp lykkjur á hvorri hlið fyrir ermum. Stykkið er saumað saman á öxlum/mitt á ermum og undir ermum. Að lokum er prjónuð hetta.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp (48) 56-68-74-78 (82) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Merino Extra Fine.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist (2) 2-2-2½-2½ (2½) cm fellið af fyrir (4) 4-4-5-5 (5) hnappagötum jafnt yfir – sjá HNAPPAGAT-1. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (4) 4-4-5-5 (5) cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:

STÆRÐ (0) 0/1 MÁN: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2) 6 lykkjur brugðið, A.1 (= 14 lykkjur sem auknar er út til 18 lykkjur), prjónið (14) 14 lykkjur brugðið, prjónið A.1 (= 14 lykkjur sem auknar eru út til 18 lykkjur), prjónið (2) 6 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = (56) 64 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.3 yfir fyrstu (2) 6 lykkjur, A.4 (= 18 lykkjur), prjónið (14) 14 lykkjur brugðið, prjónið A.5 (= 18 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu (2) 6 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR!

STÆRÐ 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ÁRA: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 0-2-4 (6) lykkjur brugðið, prjónið A.2 (= 26 lykkjur sem auknar eru til 32 lykkjur), prjónið 14-16-16 (16) lykkjur brugðið, prjónið A.2 (= 26 lykkjur sem auknar eru til 32 lykkjur), prjónið 0-2-4 (6) lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 80-86-90 (94) lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 yfir fyrstu 0-2-4 (6) lykkjur, prjónið A.6 (= 32 lykkjur), prjónið 14-16-16 (16) lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 (= 32 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 0-2-4 (6) lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan eins og útskýrt eru undir ALLAR STÆRÐIR!

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (16) 18-22-26-32 (38) cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, skiptist framstykkið við miðju að framan og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.
Klippið þráðinn frá. Setjið fyrstu (25) 29-37-40-42 (44) lykkjur séð frá réttu á þráð (= vinstra framstykki). Nú eru (31) 35-43-46-48 (50) lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= (31) 35-43-46-48 (50) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – prjónamerkið á að nota síðar til að mæla fjarlægð frá hnappagötum. Byrjið frá réttu og haldið áfram með mynstur eins og áður, en 6 ystu lykkjur við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur að framan). Fellið af fyrir hnappagötum í kanti að framan – sjá HNAPPAGAT-2.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (30) 37-45-54-63 (72) cm frá uppfitjunarkanti eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar frá réttu (þ.e.a.s. að hlið) þannig: Fitjið upp (4) 6-6-7-9 (12) lykkjur alls 3 sinnum og síðan (14) 15-16-17-18 (18) lykkjur 1 sinni = (57) 68-77-84-93 (104) lykkjur á prjóni (nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3). Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp er haldið áfram með mynstur eins og áður, en 12 ystu lykkjurnar á ermi eru prjónaðar í garðaprjóni (kantur með uppábroti).
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca (37) 45-52-62-71 (81) cm. Það á að hafa verið prjónaður ca 1 cm á eftir síðasta hnappagati í kanti að framan, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Í næstu umferð (rétta) eru ystu (7) 8-9-10-10 (11) lykkjur við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju (2) 2-2-2-3 (3) sinnum = (46) 56-64-70-78 (88) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist (39) 47-55-65-75 (85) cm, en stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið jafnframt um (4) 4-6-6-6 (6) lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.5/A.6 = (42) 52-58-64-72 (82) lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Stykkið mælist ca (40) 48-56-66-76 (86) cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka (25) 29-37-40-42 (44) lykkjur af þræði á vinstra framstykki á hringprjón. Byrjið frá réttu og haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT í lok fyrstu umferðar eru prjónaðar upp 6 nýjar lykkjur aftan við hægri kant að framan, þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 kantlykkjum að framan = (31) 35-43-46-48 (50) lykkjur á prjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en 6 ystu lykkjurnar við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur að framan – ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (30) 37-45-54-63 (72) cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar frá röngu (þ.e.a.s. að hlið) þannig: Fitjið upp (4) 6-6-7-9 (12) lykkjur alls 3 sinnum og síðan (14) 15-16-17-18 (18) lykkjur 1 sinni = (57) 68-77-84-93 (104) lykkjur á prjóni (nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3). Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp er haldið áfram með mynstur eins og áður, en 12 ystu lykkjur á ermi eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur með uppábroti).
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca (37) 45-52-62-71 (81) cm – stillið af eftir hægra framstykki og passið uppá að næsta umferð sé frá röngu.
Í næstu umferð (ranga) eru ystu (7) 8-9-10-10 (11) lykkjurnar við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig. Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju (2) 2-2-2-3 (3) sinnum = (46) 56-64-70-78 (88) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist (39) 47-55-65-75 (85) cm, stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið jafnframt um (4) 4-6-6-6 (6) lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4/A.6 = (42) 52-58-64-72 (82) lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Stykkið mælist ca (40) 48-56-66-76 (86) cm. Prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp (48) 56-68-74-78 (82) lykkjur og prjónið garðaprjón í (4) 4-4-5-5 (5) cm. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist (30) 37-45-54-63 (72) cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermar í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp (4) 6-6-7-9 (12) lykkjur alls 3 sinnum í hvorri hlið og síðan (14) 15-16-17-18 (18) lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = (100) 122-136-150-168 (190) lykkjur í umferð (nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3). Þegar fitjaðar hafa verið upp allar lykkjur er haldið áfram með A.3 eins og áður, en 12 ystu lykkjur á báðum ermum eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur með uppábroti).
Þegar stykkið mælist (38) 46-54-64-74 (84) cm fellið af miðju (12) 14-16-18-20 (22) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = (42) 52-58-64-72 (82) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til 1 cm er eftir þar til stykkið mælist (40) 48-56-66-76 (86) cm, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma/sauma ofan á ermum innan við affellingarkant. Saumið saum undir ermum og niður meðfram hliðum á fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju. Brjótið upp neðstu 3 cm á hvorri ermi og saumið við uppábrot með nokkrum smáum sporum á hvorri hlið. Saumið tölur í neðst niðri á poka (tölur eru saumaðar í meðfram miðju á kant með garðaprjóni á bakstykki, en á röngu þannig að hneppt er í gegnum hnappagöt á framstykki). Saumið í þær tölur sem eftir eru á vinstri kant að framan.

HETTA:
Prjónið upp frá réttu ca 52 til 72 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út jafnt yfir til (68) 76-84-88-92 (96) lykkjur. Prjónið A.3 fram og til baka yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir kanti með uppábroti = (80) 88-96-100-104 (108) lykkjur. Haldið áfram með A.3 yfir allar lykkjur þar til hettan mælist ca (18) 19-20-21-22 (23) cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Brjótið hettuna saman tvöfalda og saumið saman toppinn innan við affellingarkantinn. Brjótið niður 6 ystu lykkjur í hvorri hlið út að réttu og saumið niður kant með uppábroti fallega að hálsmáli með smáu spori.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.11.2018
Leiðrétting: Prjónað er brugðið frá miðju, á milli kaðla á framstykki
Yfirfarið á vefsvæði: 26.09.2019
Leiðrétting: HÆGRA FRAMSTYKKI:.. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið jafnframt um (4) 4-6-6-6 (6) lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.5/A.6 = (42) 52-58-64-72 (82) lykkjur á prjóni. VINSTRA FRAMSTYKKI:.. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið jafnframt um (4) 4-6-6-6 (6) lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4/A.6 = (42) 52-58-64-72 (82) lykkjur á prjóni.

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
brugðið frá réttu, slétt frá röngu = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðinn svo að það myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðinn svo að það myndist gat
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn svo að ekki myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn svo að ekki myndist gat
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
Diagram for DROPS Baby 33-7
Diagram for DROPS Baby 33-7
Diagram for DROPS Baby 33-7
Diagram for DROPS Baby 33-7

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (152)

country flag Mette Brottmann Hansen skrifaði:

Hej Drops Jeg mangle mønster A.3 ifølge opskriften, skal jeg bare udvide A.4 - A.5 med lidt ekstra masker? mvh Mette

09.08.2020 - 20:32

country flag Véro skrifaði:

Bonjour en haut du devant,on tricote en jersey envers sur les deux derniers rangs?les manches sont elles continuées en point de blé? Merci de votre réponse . Cordialement.

15.07.2020 - 20:46

DROPS Design svaraði:

Bonjour Véro, quand l'ouvrage mesure (39) 47-55-65-75 (85) cm, vous tricotez toutes les mailles à l'endroit sur l'endroit en diminuant à intervalles réguliers au-dessus des diagrammes, tournez, tricotez toutes les mailles à l'endroit, tournez et rabattez toutes les mailles à l'endroit (vous avez maintenant 1 côte mousse en haut de l'épaule/de la manche). Bon tricot!

16.07.2020 - 09:52

country flag Bernice Howie skrifaði:

Wish the pattern was printed in words row by row. Not one for following diagrams!

12.07.2020 - 20:18

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Howie, there are only diagrams to this pattern, but you will find how to read diagrams here. Happy knitting!

13.07.2020 - 09:29

country flag Martine skrifaði:

Bonjour ce modèle est magnifique mais doit-il impérativement êre tricoté avec une aiguille circulaire ? j'ai du mal avec ce genre d'aiguille :(

09.07.2020 - 09:17

DROPS Design svaraði:

Bonjour Martine, ce modèle se tricote en allers et retours, on utilise ici une aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour toutes les mailles. Découvrez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

09.07.2020 - 09:46

country flag Susanne skrifaði:

Hallo ihr lieben, ich bin am Rückenteil angelangt und fesge mich wie ich die 16 Maschen für den halsausschnitt abkette. Teile ich die arbeitnin zwei und arbeite wie die vorderseite ab oder kette ich die einfach ab und stricke ganz normal weiter. Ist der halsausschnitt hinten dann mit grade ecken ? Was mach ich dann mit den maschen der anderen Schulter solange ? Ganz liebe Grüße!

16.05.2020 - 19:57

DROPS Design svaraði:

Liebe Susanne, bei 54 cm (3. Größe) stricken Sie die nächste Hinreihe (im Muster wie zuvor): 60 Maschen stricken, 16 Maschen abketten, 60 Maschen stricken. Jezt stricken Sie eine Schulter nach der anderen. Wenden Sie und die Rückreihe über die 60 M stricken, die 2 ersten Maschen am Anfang der nächste Reihe stricken = 58 M bleiben. Stricken Sie dann bis zur Ende wie beschrieben und abketten Sie die Maschen von der 1. Schulter. Dann die Maschen von den anderen Schulter stricken (wie bei der 1. aber spiegelverkehr, die 2 Maschen für den Halsauschnitt werden bei einer Rückreihe abgekettet). Viel Spaß beim stricken!

18.05.2020 - 08:16

country flag Malin skrifaði:

Jeg skal lage hull til sikkerhetsbelte og lurte på om dere hadde mål til det? Strikker i str 12/18mnd.

09.05.2020 - 12:10

DROPS Design svaraði:

Hej Malin, størrelse 2 år har samme mål som DROPS 0-1052 og her skriver vi at man kan lave hul for bælte når arbejdet måler 58 cm fra skulderen og ned. God fornøjelse!

12.05.2020 - 15:04

country flag Sylvie Roy skrifaði:

Je suis rendu à faire la capuche. Les 6 mailles augmentées de chaque coté qui servent pour le revers, sont tricotées en A3 comme toutes les mailles, le revers sera sur l'envers du tricot, qui est différent de l'endroit. Est-ce que je suis correcte dans ma façon de comprendre le patron? Est-ce que le revers doit être plutôt tricoté au point mousse comme le revers des manches?

21.04.2020 - 15:42

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Roy, toutes les mailles de la capuche sont tricotées en suivant A.3, même les 6 mailles des revers de chaque côté. Bon tricot!

21.04.2020 - 16:08

country flag Sonja skrifaði:

Wordt de lengte bij : start rechter voorpand gemeten inclusief boord of vanaf start telpatroon.

23.03.2020 - 14:44

DROPS Design svaraði:

Dag Sonja,

De afmetingen zijn altijd vanaf het opzetten, dus vanaf het begin, tenzij anders aangegeven.

25.03.2020 - 10:57

country flag Anne skrifaði:

I mønster A6, skal jeg gjenta mønsteret fra høyre mot venstre også etter midtpartiet? eller skal mønsteret snus og strikkes fra venstre mot høyre på venstre del av midtstykket?

09.03.2020 - 21:55

DROPS Design svaraði:

Hej Anne, ja du gentager mønster A6 på samme måde efter midterpartiet. God fornøjelse!

10.03.2020 - 11:37

country flag Trudy Brown skrifaði:

I have just started for size 1-3 months. Cast on 56st. The row after garter stitch (ie the increase row) says knit A2 (26 st), purl 14 , knit A2. This is 66 stitches without the edge stitch. Where did the extra 10 come from? Have I misread something? Thanks in advance for help.Trudy

08.03.2020 - 11:59

DROPS Design svaraði:

Hi Trudy, For size 1-3 months you need to cast on 68 stitches (including 1 edge stitch on each side). Therefore there are 66 stitches for the 2 x A.2 and the 14 purled stitches. Happy knitting!

08.03.2020 - 15:39