DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Truly Wooly

Prjónaður heilgalli fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og hettu. Stærð fyrirburar – 4 ára.

DROPS Baby 33-8
DROPS Design: Mynstur me-069-by
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á bandi í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
(200) 250-300-350-400 (400-450) g litur 15, ljós grágrænn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með A.1 = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Blóm (hvítt) NR 600: (4) 5-6-6-6 (6-7) st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.
1 kantlykkja í garðaprjóni = prjónið lykkjuna slétt frá réttu og slétt frá röngu.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um skálmar í stærð 3/4 ára):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 3,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkjur frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið (eftir því hvar í mynstrinu þú ert) þannig að það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist (mælt frá þar sem skálmar eru settar saman):
(<0): 5, 10, 15 og 20 cm
0/1 mán: 6, 11, 16, 21 og 26 cm
1/3 mán: 5, 10, 15, 20, 25 og 30 cm
6/9 mán: 6, 12, 17, 22, 27 og 32 cm
12/18 mán: 6, 12, 17, 23, 28 og 34 cm
2 ára: 9, 15, 21, 27, 33 og 39 cm
3/4 ára: 7, 13, 19, 25, 31, 37 og 43 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HEILGALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hvor skálm er prjónuð fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Skálmarnar eru settar saman og prjónað er fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og upp að ermum. Síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermar í hvorri hlið og framstykki og bakstykki er síðan prjónað til loka hvort fyrir sig. Stykkið er síðan saumað saman á öxlum. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og hettan er prjónuð.

HÆGRI SKÁLM (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp (32) 36-40-40-44 (44-48) lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Fyrsta umferðin er prjónuðu frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1A þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 7-8-9-9-10 (10-11) mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 2 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 prjónamerki í stykkið (prjónamerki merkir uppábrot). Þegar stykkið mælist 14 cm (á einungis við stærð 3/4 ára) er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1 (ekki er aukið út í hinum stærðunum).
Endurtakið útaukningu í stærð 3/4 ára þegar stykkið mælist 24 cm = (32) 36-40-40-44 (44-52) lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (12) 12-16-23-31 (32-35) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Fækkið um 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. kantlykkjur eru felldar af) = (30) 34-38-38-42 (42-50) lykkjur. Prjónið síðan 2 næstu umferðir með byrjun frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp (3) 3-3-5-5 (7-7) nýjar lykkjur í lok umferðar (= miðja að aftan). Snúið stykkinu, prjónið A.1 eins og áður yfir allar lykkjur, en passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt, fitjið síðan upp (4) 4-4-6-6 (8-8) lykkjur í lok umferðar frá röngu (= miðja að framan). Nú eru (37) 41-45-49-53 (57-65) lykkjur í umferð og stykkið mælist ca (13) 13-17-24-32 (33-36) cm frá uppfitjunarkanti. Geymið stykkið og prjónið vinstri skálm eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI SKÁLM (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp (32) 36-40-40-44 (44-48) lykkjur á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, prjónið A.1A þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 7-8-9-9-10 (10-11) mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 2 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 prjónamerki í stykkið (prjónamerki merkir uppábrot). Þegar stykkið mælist 14 cm (á einungis við stærð 3/4 ára) er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1 (ekki er aukið út í hinum stærðunum).
Endurtakið útaukningu í stærð 3/4 ára þegar stykkið mælist 24 cm = (32) 36-40-40-44 (44-52) lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (12) 12-16-23-31 (32-35) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Fækkið um 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. kantlykkjur eru felldar af) = (30) 34-38-38-42 (42-50) lykkjur. Prjónið síðan 2 næstu umferðir með byrjun frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp (4) 4-4-6-6 (8-8) nýjar lykkjur í lok umferðar (= miðja að framan). Snúið stykkinu, prjónið A.1 eins og áður yfir allar lykkjur, en passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt, fitjið síðan upp (3) 3-3-5-5 (7-7) lykkjur í lok umferðar frá röngu (= miðja að aftan). Nú eru (37) 41-45-49-53 (57-65) lykkjur í umferð og stykkið mælist ca (13) 13-17-24-32 (33-36) cm frá uppfitjunarkanti. Klippið frá. Setjið nú stykkin saman eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið hægri skálm og vinstri skálm á sama hringprjón með hægri skálmina fyrst. Byrjið frá réttu á hægri skálm, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru á hægri skálm (passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt miðað við þar sem skálmin endaði), haldið síðan áfram með mynstur yfir fyrstu (36) 40-44-48-52 (56-64) lykkjur á vinstri skálm (passið uppá að mynstrið haldið áfram rétt) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = (74) 82-90-98-106 (114-130) lykkjur í umferð.
Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið! NÚ ER STYKKIÐ MÆLT FRÁ ÞESSU PRJÓNAMERKI!
Haldið áfram með A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist (3) 3-3-3-4 (5-5) cm frá prjónamerki (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu) fellið af 1 lykkju í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. kantlykkjur eru felldar af). Prjónið síðan 2 næstu umferðir með byrjun frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar (= vinstri kantur að framan).
Snúið stykkinu, prjónið A.1 eins og áður yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi áfram rétt) og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar frá röngu (= hægri kantur að framan).
Nú eru (78) 86-94-102-110 (118-134) lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur (þ.e.a.s. kantlykkjur eru ekki prjónaðar í garðaprjóni). Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist (15) 20-24-27-28 (32-36) cm frá nýja prjónamerkinu, þ.e.a.s. (28) 33-41-51-60 (65-72) cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið í hvorri hlið. Framstykkin og bakstykkið eru nú prjónuð hvert fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður yfir fyrstu (21) 23-25-27-29 (31-35) lykkjurnar, fitjið síðan upp (9) 13-13-17-17 (21-25) nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir ermi. Aðrar lykkjur eru settar á þráð fyrir bakstykki og vinstra framstykki.
Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður, en passið uppá að mynstrið passi yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp (8) 10-14-14-16 (20-22) nýjar lykkjur fyrir ermi í lok 2 næstu umferðum frá réttu = (46) 56-66-72-78 (92-104) lykkjur í umferð.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (22) 28-32-35-36 (41-45) cm frá prjónamerki, þ.e.a.s.(35) 41-49-59-68 (74-81) cm frá uppfitjunarkanti.
Í byrjun á næstu umferð frá réttu eru fyrstu (8) 8-9-11-11 (12-12) lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að koma í veg fyrir að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju (1) 1-2-2-2 (3-3) sinnum = (35) 45-53-57-63 (75-87) lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til allur gallinn mælist ca (24) 30-34-37-39 (44-49) cm frá prjónamerki, þ.e.a.s. (37) 43-51-61-71 (77-85) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Allur gallinn mælist ca (38) 44-52-62-72 (78-86) cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Setjið fyrstu (36) 40-44-48-52 (56-64) lykkjur af þræði (séð frá réttu) á hringprjón 4 og haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir þessar lykkjur eins og áður. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermar í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp (9) 13-13-17-17 (21-25) lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og síðan (8) 10-14-14-16 (20-22) lykkjur 2 sinnum í hvorri hlið = (86) 106-126-138-150 (178-202) lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (23) 29-33-36-38 (43-48) cm frá prjónamerki). Í næstu umferð eru felldar af miðju (12) 12-16-20-20 (24-24) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor ermi/öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = (35) 45-53-57-63 (75-87) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið síðan áfram þar til allur gallinn mælist ca (24) 30-34-37-39 (44-49) cm frá prjónamerki, en stillið af eftir framstykki og passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina/ermina alveg eins. Í lokin er vinstra framstykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka þær (21) 23-25-27-29 (31-35) lykkjur sem eftir eru á þræði á hringprjón 4. Byrjið frá réttu og haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok 3 næstu umferða frá röngu þannig: Fitjið upp (9) 13-13-17-17 (21-25) lykkjur 1 sinni og síðan (8) 10-14-14-16 (20-22) lykkjur 2 sinnum = (46) 56-66-72-78 (92-104) lykkjur í umferð.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist alveg það saman og hægra framstykki.
Í byrjun á næstu umferð frá röngu eru fyrstu (8) 8-9-11-11 (12-12) lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju (1) 1-2-2-2 (3-3) sinnum = (35) 45-53-57-63 (75-87) lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til allur gallinn mælist ca (24) 30-34-37-39 (44-49) cm frá prjónamerki, þ.e.a.s. (37) 43-51-61-71 (77-85) cm frá uppfitjunarkanti, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Allur gallinn mælist ca (38) 44-52-62-72 (78-86) cm frá uppfitjunarkanti.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið sauma undir ermum. Saumið sauminn að innanverðu á skálmum innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið sauminn við miðju að framan frá neðst niðri á kanti að framan og niður innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið saman op á milli skálma. Brjótið uppá stykkið við prjónamerkið neðst á skálm. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

HETTA:
Prjónið upp frá réttu ca 44 til 70 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem aukið er út jafnt yfir til (58) 70-74-74-78 (86-86) lykkjur – sjá ÚTAUKNING-2. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1A þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með A.1B (= 2 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur þar til hettan mælist (17) 18-19-20-21 (22-23) cm frá garðaprjóni í hálsi, en passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá röngu. Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið saum efst innan við affellingarkantinn.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.09.2019
Nýtt efnismagn í stærð 6/9 mán - 350 g
Yfirfarið á vefsvæði: 13.04.2021
Nýtt efnismagn í stærð 1/3 - 6/9 - 12/18 mán - 2 ára (200) 250-300-350-400 (400-450) litur 15, ljós grágrænn.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Truly Wooly

Maria, Poland

Truly Wooly

Aleksandra Karolina Strugacz, Norway

Truly wooly

lottahiet

Overall

Dorothee, Switzerland

Truly Wooly

Cindy Viinikka, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (170)

country flag Jeanette wrote:

Hei! på forstykkene skal man sette 9 masker på en tråd før man fortsetter arbeidet og feller noen masker til hals. Jeg ser ikke hva jeg skal videre med disse 9 maskene som er satt på en tråd?

21.03.2024 - 18:33

DROPS Design answered:

Hei Jeanette. Under HETTE står det: Strikk opp fra retten ca 44 til 70 masker rundt halsen (inkludert maskene på trådene foran). Altså de 9 maskene du satte på 1 tråd. mvh DROPS Design

02.04.2024 - 13:43

country flag Kristina wrote:

Jeg strikker minste størrelse. Jeg har nå satt sammen beina og begynte med bolen. Men når jeg sette maskene sammen fra beina blir det 4 masker med samme mønster( 4r eller 4) på baksiden. Hva skal jeg gjøre for å endre dette slik at mønsteret blir riktig igjen (2r og 2 v)? Hvis jeg feller 2 masker får jeg ikke riktig maskeantall. Men hvis jeg ikke gjør det blir ikke mønsteret riktig oppigjennom hele ryggen på hele dressen. Bør jeg heller øke?

20.01.2024 - 14:40

DROPS Design answered:

Hej Kristina, ja det er bedre hvis du øker 2 masker så mønteret stemmer :)

02.02.2024 - 13:25

country flag Mary-Clare Cavanagh wrote:

When I put the 2 legs together onto the circular needle I cannot match the pattern up. It doesn't match. I've tried it several times and reknit both pieces 3 times now and I still can't get the pattern to match up when I put them together. Please help as my daughter wants this for her baby due in May. Thank you

05.01.2024 - 14:39

DROPS Design answered:

Dear Mary, the pattern on the legs should match up, but it may be mismatched in between the legs, since we increase more stitches there. This part is generally hidden due to the position in the garment and the wearer's posture, so it won't be too visible. Happy knitting!

07.01.2024 - 23:11

country flag Claudia wrote:

Ja die Antwort ist mir klar . Ist es aber so richtig. Weil davor habe ich eine rechte randmasche gestrickt und dann zwei rechts und zwei links usw., Aber jetzt müsste ich eine Randmasche rechts stricken und dann eine Masche rechts und dann 2 links , 2 rechts usw.

05.12.2023 - 09:18

country flag Claudia wrote:

Hallo Liebes Team. Ich habe eine Frage: ich stricke gerade Größe O/1 . Ich bin gerade dabei die Beine auf eine Nadel zu Stricken. Da ich am rechten Teil ja mit den 4 neuen Maschen anfange, geht das Muster nicht ganz auf. Stimmt es das ich eine Randmasche kraus rechts stricke, dann eine rechts , dann 2 links und 2 rechts usw. ? Anders komme ich nicht auf mein Muster zurück! Dann bist zum Ende und dann weiterführend das linke Beinteil dranstricken!

05.12.2023 - 03:44

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, das Muster stricken Sie wie zuvor, dh das Muster über die Maschen von den Beinen genauso wie zuvor stricken, so wissen Sie wie die ersten Maschen gestrickt werden (mit 1 Masche Krausrechts beidseitig). Viel Spaß beim stricken!

05.12.2023 - 09:06

country flag Sonja wrote:

Hei. Joku muukin on tainnut kysyä tätä samaa mutta kielellä jota en ymmärrä. Olen kohdassa missä lahkeet yhdistetään (koko: keskonen) enkä saa mallineuletta täsmäämään. Koska molempien lahkeiden kuvio on samassa vaiheessa lahkeilla, toiseen lahkeeseen tulisi tavallaan kolmas kerros oikeita ja nurjia peräkkäin. Kuuluuko kuviokerroksen vaihtua lahkeiden välissä vai olenko tehnyt jotain väärin?

21.11.2023 - 23:08

DROPS Design answered:

Ota molemmat lahkeet samalle puikolle neulomatta silmukoita, ensin oikea lahje ja sitten vasen lahje. Tällä tavoin voit jatkaa mallineuletta työn oikealta puolelta molemmissa lahkeissa.

11.12.2023 - 17:28

country flag Ellen Westvik wrote:

Kan dere legge ut en tegning som viser målene på dressen? Mage/bryst, ermlengde, beinlengde osv. Så slipper vi å lese hele oppskriften for å finne riktig størrelse.

12.10.2023 - 13:20

DROPS Design answered:

Hei Ellen, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!

13.10.2023 - 10:04

country flag Lilian Pedersson wrote:

Hej Har hittat svaret på min fråga.

27.09.2023 - 19:47

country flag Lilian Pedersson wrote:

Stickar Truly wolly. Ska börja sticka ihop benen. Får inte till mönstret. Ska börja med 1 kantmaska då har jag 5 maskor kvar på de nyligen upplagda maskorna. Det innebär att mönstret inte stämmer när jag stickat de upplagda maskorna och ska börja med mönstret på benet eftersom jag tidigare avmaskning kantmaskan. Tacksam hjälp.

27.09.2023 - 14:55

DROPS Design answered:

Hej Lilian. Så fint att det löste sig. Mvh DROPS Design

03.10.2023 - 14:31

country flag Christin wrote:

Bei der Anleitung hat sich wohl ein Fehler eingeschlichen. Rechtes Vorderteil- Anschlag für den Ärmel 1x17 Maschen und 1x14 (Gr. 68/74) =72 Maschen!!! Da fehlen 14 Maschen! Beim linken Vorderteil muss man 2x14 Maschen anschlagen! Dann sind auch 72 Maschen auf der Nadel.

12.09.2023 - 11:17

DROPS Design answered:

Liebe Christin, ja stimmt ganz genau, Anleitug steht: GLEICHZEITIG je 14 neue Maschen für den Ärmel am Ende der nächsten 2 Hin-Reihen anschlagen = 72 Maschen auf der Nadel. - so werden 2 Mal 14 Maschen angeschlagen, um die 72 Maschen zu haben. Viel Spaß beim stricken!

13.09.2023 - 08:39