Maja skrifaði:
Jeg kan ikke finde målene til at finde ud af hvilken str jeg skal strikke?
21.09.2018 - 13:31DROPS Design svaraði:
Hei Maja. Målskissen ligger helt nederst på siden, sammen med diagrammene til oppskriften. God fornøyelse
21.09.2018 - 14:43
Hanneke Zwart skrifaði:
Waarom kan het lijf niet ook een omgekeerde tricotsteek zijn? Zoals u het voorschrijft zullen de mouwen en het lijf er anders uitzien.
19.09.2018 - 14:43DROPS Design svaraði:
Dag Hanneke, De mouwen worden vanaf waar het lijf en de mouwen gescheiden zijn, in averechte tricosteek gebreid en zien er daardoor inderdaad anders uit. Zo is dit patroon ontworpen. Je bent natuurlijk vrij om het naar je eigen smaak aan te passen :)
19.09.2018 - 16:01
Zabeth skrifaði:
J'ai déjà craqué pour les gilets manches courtes/manches longues, je rajoute le pull, un beau trio pour la saison automne/hiver.
27.06.2018 - 21:43
Marianne Stahl skrifaði:
Enkel, blød og lækker i en dejlig himmelblå farve.
14.06.2018 - 18:49
Margaretha Olsson skrifaði:
Jättefin modell i det garnet.
14.06.2018 - 16:18
Uschi skrifaði:
Schlicht mit dem besonderem Schick; Das wirkt in Kid-Silk besonders gut.
13.06.2018 - 17:06
Marisa skrifaði:
Molto fine
11.06.2018 - 14:04
Way to Go#waytogosweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum, garðaprjóni og A-formi. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-29 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,66. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykki er prjónað í hring, síðan skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring í garðaprjóni. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna í sléttprjóni frá röngu. BERUSTYKKI: Fitjið upp 92-96-100-106-110-118 lykkjur á hringprjón 3 með Kid-Silk. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og aukið úr um 12-8-8-14-10-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 104-104-108-120-120-128 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan þannig (umferðin byrjar við miðju að aftan): Prjónið 8-8-9-12-12-14 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 16 lykkjur), 4 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 16 lykkjur, 16-16-18-24-24-28 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 16 lykkjur, 4 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 16 lykkjur og endið með 8-8-9-12-12-14 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 128-128-132-144-144-152 lykkjur í umferð. Prjónið nú A.2 (= 22 lykkjur) yfir A.1 JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í fyrstu umferð í A.2 þannig: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert A.2 (= 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð og síðan í garðaprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-13-17-18-20-22 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 13-14-13-14-15-16 sinnum (þ.e.a.s. aukið er út alls 23-27-30-32-35-38 sinnum) = 312-344-372-400-424-456 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og garðaprjón þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti Í næstu umferð er fækkað um 3 lykkjur yfir hvern kaðal (þ.e.a.s. 6 lykkjur í hverju A.2 = alls 24 lykkjur færri) = 288-320-348-376-400-432 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt með 5 kantlykkjum að framan brugðið frá röngu. Nú skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 42-46-50-55-60-66 lykkjur garðaprjón, setjið næstu 60-68-74-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 84-92-100-110-120-132 lykkjur garðaprjón, setjið næstu 60-68-74-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og endið með 42-46-50-55-60-66 lykkjur garðaprjón.= 184-200-220-240-264-288 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 nýrra lykkja undir hvorri ermi (= 92-100-110-120-132-144 lykkjur á hvoru framstykki/bakstykki). Haldið áfram í garðaprjóni. Þegar bakstykki mælist 2 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 að ofan. Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 10 sinnum = 224-240-260-280-304-328 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til fram- og bakstykki mælist 31-31-32-32-32-32 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum. Fellið af. Stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMI: Setjið til baka 60-68-74-78-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki, á sokkaprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir ermi. Prjónið síðan hringinn með sléttum lykkjum frá röngu, þ.e.a.s. stykkinu er snúið og prjónað er nú frá röngu til loka (ermar verða brugðnar frá réttu). Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur frá röngu þar til stykkið mælist 40-38-38-36-35-33 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið garðaprjón hringinn í 3 cm. Fellið af með 2 þráðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waytogosweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.