DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Way to Go Jacket

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum, garðaprjóni og A-formi. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-31
DROPS Design: Mynstur ks-137
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-200 g litur 11, fjólublár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 41 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 80 cm fyrir garðaprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPGRJÓNAR NR 3: lengd 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-7-7-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur), mínus kanta að framan (= 92 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,66.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman og prjónið síðustu lykkjuna brugðið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagati þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu með ca 8-8-7½-7½-7-7 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykki er prjónað fram og til baka, síðan skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka í garðaprjóni. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna í sléttprjóni annað hvort frá röngu eða frá réttu.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 102-106-110-116-120-128 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með Kid-Silk. Prjónið 5 kantlykkjur að framan brugðið, prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar til 5 lykkjur eru eftir og endið með 5 kantlykkjum að framan brugðið.
Kantur að framan er prjónaður brugðið í öllum umferðum (þ.e.a.s. gagnstætt garðaprjón) og þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. Prjónið alls 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan brugðið, prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 12-8-8-14-10-10 lykkjur jafnt yfir þar til 5 lykkjur eru eftir – sjá ÚTAUKNING-1 að ofan og endið með 5 kantlykkjur að framan brugðið = 114-114-118-130-130-138 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu með 5 kantlykkjur að framan brugðið í hvorri hlið.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan brugðið, 8-8-9-12-12-14 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 16 lykkjur), 4 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 16 lykkjur, 16-16-18-24-24-28 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 16 lykkjur, 4 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 16 lykkjur, 8-8-9-12-12-14 lykkjur garðaprjón og endið með 5 kantlykkjum að framan brugðið.
Kantur að framan er prjónaður brugðið í öllum umferðum til loka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 138-138-142-154-154-162 lykkjur í umferð. Prjónið nú A.2 (= 22 lykkjur) yfir A.1 JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í fyrstu umferð í A.2 þannig: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert A.2 (= 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð og síðan í garðaprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-13-17-18-20-22 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 13-14-13-14-15-16 sinnum = 322-354-382-410-434-466 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur og garðaprjón þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 3 lykkjur yfir hvern kaðal (þ.e.a.s. 6 lykkjur í hverju A.2 = alls 24 lykkjur færri) = 298-330-358-386-410-442 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt með 5 kantlykkjum að framan brugðið frá röngu.
Nú skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 5 lykkjur brugðið, 42-46-50-55-60-66 lykkjur garðaprjón, setjið næstu 60-68-74-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 84-92-100-110-120-132 lykkjur garðaprjón, setjið næstu 60-68-74-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 42-46-50-55-60-66 lykkjur garðaprjón og endið með 5 lykkjur brugðið = 194-210-230-250-274-298 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 nýrra lykkja undir hvorri ermi (= 92-100-110-120-132-144 lykkjur á bakstykki og 51-55-60-65-71-77 lykkjur á hvoru framstykki). Haldið áfram í garðaprjóni og brugðnum lykkjum yfir kant að framan eins og áður. Þegar fram- og bakstykki mælist 2 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 að ofan.
Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 10 sinnum = 234-250-270-290-314-338 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til fram- og bakstykki mælist 31-31-32-32-32-32 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn herði ekki á stykki. Fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið til baka 60-68-74-78-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki, á sokkaprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi.
Prjónið síðan áfram í hring í sléttprjóni annað hvort frá réttu eða frá röngu. Ef prjónað er sléttprjón frá röngu er stykkinu snúið við og þá er prjónað frá röngu til loka (ermarnar verða þá brugðnar frá réttu).
Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur frá röngu þar til stykkið mælist 40-38-38-36-35-33 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan, í 3 cm. Fellið af með 2 þráðum. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.11.2018
Leiðrétting: HNAPPAGAT:..Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðnar saman og prjónið síðustu lykkjuna brugðna. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðinn svo að það myndist gat.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2019
Leiðrétting: ERMAR:..Prjónið síðan áfram í hring með sléttprjóni annað hvort frá réttu eða frá röngu. Ef prjónað er sléttprjón frá röngu er stykkinu snúið við og þá er prjónað frá röngu til loka (ermarnar verða þá brugðnar frá réttu).

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga EKKI að myndast göt
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Martina wrote:

Hallo, Kommen die Raglanmaschen ( Zopf) beim Teilen des Strickstückes mit zum Arm? Lieben Gruß Martina

14.09.2021 - 16:33

DROPS Design answered:

Liebe Martina, ja genau, je die Maschen von A.2 kommen teilweise zum Vorderteil/Rückenteil und zu den Ärmeln. Viel Spaß beim stricken!

15.09.2021 - 07:11

country flag Vivian Eersels wrote:

Dit begrijp ik niet: Meerder tegelijkertijd voor de raglan op de eerste naald in A.2 als volgt: Meerder met 1 omslag aan elke kant van iedere A.2 (= 8 steken gemeerderd). als ik het zo doe: 5- 12- meerdering-A2-meerdering-4-meerdering-A2-meerdering-24-meerdering-A2-meerdering-4-meerdering-A2-meerdering-12-5 = 8keer gemeerderd maar dan is de volgende rij zo en klopt het telpatroon toch niet meer 5- 13-A2-6-A2-meerdering-24-A2-meerdering-4-A2-13-5 Of wat zie ik verkeerd?

11.07.2021 - 20:55

country flag Emilita wrote:

Cómo saber cuál es mi talle?

13.04.2021 - 01:06

DROPS Design answered:

Hola Emilita, mira la leccion drops AQUI. Buen trabajo!

15.04.2021 - 17:12

country flag Heike wrote:

Warum werden die Ärmel glatt links gestrickt? Kann man auch Krausrippenin Runden stricken?

13.01.2021 - 20:34

DROPS Design answered:

Liebe Heike, Sie können entweder glatt rechts oder glatt links stricken (wie im Foto), wenn Sie krausrippen stricken möchten, brauchen Sie vielleicht etwas mehr Wolle, denn Krausrippen benutzt mehr als Glatt rechts. Viel Spaß beim stricken!

14.01.2021 - 07:39

country flag Simona Gasser wrote:

Guten Tag Ich habe vor diese Jacke zu stricken. Meine Kleidergrösse ist 38. Ich möchte die Jacke aber auf ca 70 verlängern. Wie viel Garn brauche ich dann total? Auch möchte ich das Plüschtier, Mister Bean, stricken. Es wird leider nicht beschrieben wie man den Mund, die Augen und die Nase stickt. Ich habe auch keine Anleitung online gefunden. Haben Sie eine für mich? Besten Dank und freundliche Grüsse Simona Gasser

26.03.2020 - 14:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gasser, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter, auch telefonisch oder per E-Mail. Für MisterBean lassen Sie sich einfach von den Bildern inspirieren. Viel Spaß beim stricken!

26.03.2020 - 15:05

country flag Laura wrote:

Buongiorno, sarebbe possibile inserire un'alzata sullo scollo dietro per ridurre la scollatura e in caso affermativo come potrei fare? Grazie

28.09.2019 - 11:18

DROPS Design answered:

Buongiorno Laura. Sì, è possibile inserire un'alzata sul dietro lavorando ferri accorciati. Purtroppo in questa sede non riusciamo a soddisfare le richieste di personalizzazione ai modelli. Può rivolgersi al suo rivenditore Drops di fiducia o verificare se ci sono modelli simili con già presente la spiegazione per l'alzata. Buon lavoro!

28.09.2019 - 16:04

country flag Ida Varani wrote:

Buona sera, io l'ho realizzato mettendo il filato doppio ed utilizzando i ferri del 3.75 e del 4.5 anziché il 3 ed il 4. E' venuto perfetto, bellissimo e soprattutto è una nuvola calda. Spiegazione perfetta, sono molto soddisfatta. Grazie

08.05.2019 - 22:07

country flag BERENGERE CHARRIER wrote:

Bonjour , les jetés de chaque coté de A2 doivent -ils former un trou après les avoir tricotés ? merci d'avance

04.05.2019 - 15:41

DROPS Design answered:

Bonjour Berengere. Au rang suivant, Vous tricotez les jetés torse à l’endroit. Aucun trou n’est formé. Bon tricot!

04.05.2019 - 16:39

country flag Renata wrote:

Po zakończeniu karczku mam zamknąć po 3 oczka ponad każdym warkoczem, które dokładnie są to oczka w schemacie A2?

23.04.2019 - 12:46

DROPS Design answered:

Witaj Renato! Nie ma to znaczenia: ja przerobiłabym razem na prawo 2-gie i 3-cie, 4-te i 5-te oraz 6-te i 7-me oczko (zamiast 8 o. warkocza zostanie ci 5 o.). Miłej pracy nad sweterkiem!

23.04.2019 - 20:23

country flag Lotta Hviden wrote:

Om jag stickar slätstickning från aviga så set ju det helt annorlunda ut än övriga koftan som är stickad i rätstickning. Jag undrar varför

05.04.2019 - 11:11

DROPS Design answered:

Hei Lotta. Ja, ermene blir annerledes enn resten av jakken. Det er selvfølgeligikke noe i veien for at du også strikker ermne i rettstrikknin, om du ønsker det. Vær da obs på at du da må strikke fler omganger i høyden. God forøyelse

11.04.2019 - 14:37