Marijke skrifaði:
Ik had dit patroon bij Favorieten staan....maar nu is de hele pagina (plus knop) van de Favorieten, en dus al mijn favorieten verdwenen.... wat is er aan de hand????
16.01.2019 - 20:41
Nina Leknes skrifaði:
Jeg strikker str 5/6 år og når jeg har fulgt alle økningene har jeg 250 masker. Hva kan jeg ha feilet på ?
24.10.2018 - 21:51DROPS Design svaraði:
Hei Nina. Vi har nå gått gjennom alle økinger på bærestykket og får 240 masker i størrelse 5/6 år. Før økingene begynner har du altså 114 masker på pinnen. Ved 1. pil i diagrammet økes 14 masker jevnt fordelt = 128 masker. Ved pil 2 økes 32 masker jevnt fordelt = 160 masker på pinnen. Du har nå nok masker til at du strikkes 20 rapporter av A.1. I tillegg økes det 2 masker per rapport av A.1 mellom pil 2 og 3 = totalt 200 masker på pinnen. Ved pil 3 økes det 24 masker = 224 masker på pinnen. Ved pil 4 økes det 16 masker = 240 masker på pinnen og alle økinger er ferdig. God fornøyelse.
06.11.2018 - 10:13
Stina Robell skrifaði:
Jag kan inte se diagrammet över mönstret på min dator. Bara ????
09.09.2018 - 21:18DROPS Design svaraði:
Hei Stina. Vi har for øyeblikket tekniske problemer med siden vår, dette medfører at diagrammer og bilder dessverre ikke lastes ordentlig. Vi jobber med å løse problemet, og siden vil være tilbake som normalt så snart som mulig. Du kan følge med på vår twitter eller facebookside for oppdateringer. Beklager dette
10.09.2018 - 11:51
Narvik#narviksweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 32-12 |
|||||||||||||||||||
---------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með ljós grár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-14-15-16 lykkjur framhjá lykkju með prjónamerki í, snúið, herðið á þræði og prjónið 25-27-29-29-31-33 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 37-40-43-43-46-49 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 49-53-57-57-61-65 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 61-66-71-71-76-81 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 73-79-85-85-91-97 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að framan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (A.2 á einungis við um stærð 2 og 3/4 ára). Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um norrænt mynstur): Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkja) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 21) = 3,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsimáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 81-84-87-90-93-96 lykkjur á hringprjón 3 með litnum vínrauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 2-2½ cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 21-24-27-30-33-36 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 102-108-114-120-126-132 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónaðu UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR! Prjónið A.1 hringinn (= 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar með 6 lykkjum). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Ör-1: Aukið út um 10-12-14-16-18-20 lykkjur jafnt yfir = 112-120-128-136-144-152 lykkjur (nú er pláss fyrir 14-15-16-17-18-19 mynstureiningar með 8 lykkjum). Ör-2: Aukið út um 24-32-32-40-32-40 lykkjur jafnt yfir = 136-152-160-176-176-192 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-19-20-22-22-24 mynstureiningar með 8 lykkjum – ATH: Passið uppá að fá með útaukningar á milli ör-2 og ör-3 sem eru teiknaðar í mynsturteikningu). Ör-3: Nú eru 170-190-200-220-220-240 lykkjur í umferð. Aukið út um 22-18-24-20-32-30 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 192-208-224-240-252-270 lykkjur (nú er pláss fyrir 12-13-14-15-14-15 mynstureiningar með 16-16-16-16-18-18 lykkjum). Ör-4: Aukið út um 18-26-16-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 210-234-240-246-258-276 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 15-16-17-18-19-20 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár að réttu máli. Næsta umferð prjónað með litnum ljós grár þannig: Prjónið 32-35-37-38-40-43 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 42-48-47-48-50-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 63-69-73-75-79-85 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 42-48-47-48-50-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær lykkjur sem eftir eru 31-34-36-37-39-42 lykkjur slétt (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 138-150-158-166-174-182 lykkjur. Prjónið síðan þannig: STÆRÐ 2 og 3/4 ÁRA: Prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 23-25 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár þar til stykkið mælist 17-20 cm frá skiptingu. Prjónið síðan STROFF eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ára: Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár þar til stykkið mælist 23-26-29-32 cm frá skiptingu. Prjónið síðan STROFF eins og útskýrt er að neðan. STROFF: Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 30-33-34-35-39-43 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 168-183-192-201-213-225 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjur yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 42-48-47-48-50-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-6 lykkjur sem fitjaðar upp undir ermi = 48-54-53-56-58-59 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-6 lykkjurnar undir ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. STÆRÐ 2 og 3/4 ÁRA: Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár. Síðan er prjónað A.2 hringinn (= 8-9 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram með litnum ljós grár eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ára: Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár. Haldið áfram eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-3-3-3 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-3½-4-4-4½ cm millibili alls 6-8-7-7-8-8 sinnum = 36-38-39-42-42-43 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 19-22-26-31-35-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-1-3-3-6-5 lykkjur jafnt yfir = 36-39-42-45-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 23-26-30-35-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #narviksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.