Catherine skrifaði:
Comment faire le point jacquard en deux couleurs avec la partie au point mousse. Comment faire avec le fil ?
25.03.2024 - 18:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, tricotez le jacquard ainsi: méthode anglaise/américaine ou bien ainsi: méthode continentale. Bon tricot!
02.04.2024 - 10:12
Catherine skrifaði:
Je ne comprends pas comment faire le motif jacquard sur la partie au point mousse.
25.03.2024 - 18:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, vous pensez au diagrammes A.2b/A.3b je suppose? Retrouvez la signification des symboles dans la légende pour savoir de quelle couleur tricoter les mailles en fonction des rangs sur l'endroit et sur l'envers. Bon tricot!
02.04.2024 - 10:11
Sandra Chiodo skrifaði:
I am making the Pyramids jacket. It says to cast on 80 stitches. (« Including 5 band stitches in each side »). Does that mean I should cast on a total of 90 stitches. I just got the Nepal in the post and I am very excited to start, it is lovely yarn! Thank you
15.08.2020 - 02:04DROPS Design svaraði:
Hi Sandra, The band stitches are included in the 80 stitches - so you have 2 x 5 stitches for the bands and 70 stitches on the body. Happy knitting!
17.08.2020 - 07:09
Nicole skrifaði:
Hallo, ich komme mit Strickschrift A3 nicht klar. Normalerweise verkreuze ich in Hinreihen die beiden Fäden auf der Rückseite aller 3 Maschen, damit der nicht benötigte Faden nicht durchhängt. Bei dieser Strickschrift gibt es aber auch in den Rückreihen rechte Maschen. Weil es eine Rückreihe ist, muß ich vor der Arbeit verkreuzen, aber blöderweise sieht man dann auf der richtigen Seite den verkreuzten Faden durch. Haben Sie Tips, wie ich unsichtbar verkreuzen kann? Lieben Dank!
25.05.2020 - 17:05DROPS Design svaraði:
Liebe Nicole, ich würde also bei der erste/letzte Masche mit hellgrau verkreuzen, und dann der Faden Natur auf der Rückseite legen, und nur beachten, daß der Faden nicht zu fest gespannt ist, damit die Arbeit nicht zu fest wird. Viel Spaß beim stricken!
26.05.2020 - 08:24
Anette skrifaði:
Str xxl: efter første udtagning 101 masker. 2×5 kantmasker. 1+5 m i mønster. Jeg skal nu ha 18 baner. Jeg har 15,1 bane ! Hvis jeg skal ha 18 baner, skal jeg vel bruge 119 masker ? Forstår ikke opskriften. Skal jeg strikke xxl med 101 eller 119 masker = 15/18 baner ?
15.03.2019 - 12:32DROPS Design svaraði:
Hei Anette. Du strikker 5 stolpemasker i A.1, så strikker du neste maske som A.2a. Videre gjentar du A.3a 18 ganger (altså over de neste 90 masker), og så avslutter du med 5 stolpemasker i A.1. Det er altså kun A.3a som gjentas, A.2a strikkes kun over den første masken etter stolpen (fra rettsiden).
25.03.2019 - 14:32
Pyramids Jacket#pyramidsjacket |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Alaska eða Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 195-29 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring) – á við um ermar: *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Þegar það verða meira en 6 lykkjur á milli litaskipta í mynstrið, tvinnið þræðina saman með hvorum öðrum, svo að það verði ekki of löng hopp á röngunni. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur), mínus kanta að framan (= 70 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 11,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 11. og 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjurnar slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm. Fellið síða af fyrir 6-6-7-7-8-8 næstu með ca 8-8-7½-7½-7-7 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Stykkið skiptist við ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 80-84-86-94-96-100 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með litnum ljós grár. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 6-12-5-2-5-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 86-96-91-96-101-111 lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og A.1, A.2a (= 1 lykkja sléttprjón), prjónið A.3a (= 5 lykkjur) þar til 5 lykkjur eru eftir (= alls 15-17-16-17-18-20 sinnum á breidd) og endið með 5 kantlykkjum að framan eins og A.1. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2a og A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2b og A.3b yfir A.2a og A.3a. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið kant að framan í garðaprjóni með natur til loka. Þegar A.2b og A.3b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 221-249-267-283-299-331 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-21-24-24-26-26 cm. Stykkið er nú prjónað áfram með natur og sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 31-33-36-39-42-48 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-52-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 62-68-73-79-85-97 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 44-52-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 30-34-36-39-42-48 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= framstykki) = 149-161-175-191-203-227 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-12-12-12 nýrra lykkja í hvorri hlið á stykki (= 70-76-83-91-97-109 lykkjur á bakstykki). Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 7-7-7-8-9-7 sinnum = 177-189-203-223-239-255 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-29-30-30-30-30 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur þar til fram- og bakstykki mælist 31-31-32-32-32-32 cm, frá þar sem stykkið skiptist frá ermum. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist alls ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-52-56-58-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-12-12 lykkjum undir ermi með litnum natur = 52-60-66-70-72-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-12-12-12 lykkja undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur. Þegar ermin mælist 3 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 4-8-10-12-12-13 sinnum = 44-44-46-46-48-50 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-36-36-34-32-31 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, aukið út um 0-0-2-2-0-2 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-48-52 lykkjur. Síðan er skipt yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónað * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 43-41-41-39-37-36 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pyramidsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.