Cécile M skrifaði:
Mon second favori : tricoté en top-down, ce serait parfait !
14.06.2018 - 07:32
Jane skrifaði:
Another one I would like to knit. Beautiful.
11.06.2018 - 03:38
Kristel Mohamedaly skrifaði:
I love this one, but there are so much beautiful other patterns!
10.06.2018 - 14:01
Mona skrifaði:
Wunderschön, möchte ich unbedingt nachstricken
06.06.2018 - 10:28
Ann skrifaði:
I have to knit this. I love the modern pattern. More of these please. :-)
06.06.2018 - 08:56
Jutta Marx skrifaði:
Den muss ich unbestimmt stricken. Ganz moderne Aermel und die eine Seite Zopf bis zum Rollkragen gefaellt mir besonders gut.
06.06.2018 - 01:01
Malmö#malmosweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með kaðli, háum kraga og rúllu kanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-8 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. KAÐALL: Í næsta skipti þegar prjóna á kaðal (þ.e.a.s. í 5. umferð í A.2), færist kaðallinn til um 1 lykkju til vinstri þannig: Prjónið eins og áður til A.2, prjónið 1 lykkju slétt, setjið næstu 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur af kaðlaprjóni. Færið kaðalinn til þannig (Þ.e.a.s. 1 lykkja til vinstri) í hvert skipti sem kaðall er prjónaður þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá prjónamerki (þ.e.a.s. þar til berustykki hefur verið prjónað til loka). ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið 1 uppslátt (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við öll 4 prjónamerkin (= alls 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt! ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= alls 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur slétt. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Fyrst er prjónaður hár kragi, síðan er berustykki prjónað. Berustykki skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. HÁR KRAGI: Fitjið upp 84-88-92-96-104-112 lykkjur á hringprjón 5 með Sky. Prjónið sléttprjón í 3 cm (= rúllukantur). Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur. Prjónið alls 3 umferðir með stroffi. Prjónið síðan áfram þannig (umferðin byrjar við miðju að aftan): Prjónið 44-47-50-53-59-65 lykkjur slétt, A.1 (= 8 lykkjur) og endið með 32-33-34-35-37-39 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 88-92-96-100-108-116 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 (= 12 lykkjur) yfir A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm, setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru sett 4 prjónamerki fyrir laskalínu þannig: Prjónið 15-16-17-18-20-22 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 12 lykkjur slétt (= hægri ermi), setjið 1 prjónamerki, 17-19-21-23-27-31 lykkjur slétt, A.2 eins og áður (= 12 lykkjur), 5 lykkjur slétt (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, 12 lykkjur slétt (= vinstri ermi), setjið 1 prjónamerki og endið með 15-16-17-18-20-22 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Aukið nú út fyrir laskalínu og kaðall í A.2 færist til um 1 lykkju til vinstri í hvert skipti sem kaðallinn er prjónaður – sjá KAÐALL. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 23-26-28-31-33-36 sinnum = 272-300-320-348-372-404 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur og A.2 eins og áður þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið til fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 38-42-44-49-54-60 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 58-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið sléttar lykkjur og A.2 yfir næstu 80-88-92-102-112-124 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-64-70-74-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og endið með 38-42-44-49-54-60 lykkjur slétt (= hálft bakstykki) = 172-188-200-220-244-268 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir hvorri ermi. Haldið áfram hringinn með sléttar lykkjur og A.2 (A.2 er nú prjónað yfir sömu lykkjur til loka, þ.e.a.s. tilfærslan á lykkjum er lokið). Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist upp frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2! Aukið svona út með 4 cm millibili alls 7-7-8-8-7-7 sinnum = 200-216-232-252-272-296 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur þar til stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist upp frá ermum. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 58-64-70-74-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-80-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Prjónið slétt. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptis frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 6-3½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 6-9-12-13-14-16 sinnum = 54-54-56-58-60-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-40-39-37-36-34 cm frá þar sem ermin skipti fram- og bakstykki, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 64-65-65-65-66-67 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #malmosweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.