Casual Diamond Jacket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í vinkil með köðlum og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-20 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. UPPHÆKKUN: Upphækkunin er prjónuð í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki 74-78-78-84-84-88 lykkjur inn frá miðju að framan (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-11-12-12-12 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-22-24-24-24 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-33-36-36-36 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-44-48-48-48 lykkjur slétt. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 11-11-11-12-12-12 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónaðar hafa verið 12 umferðir garðaprjón. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Þegar A.a-mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, prjónið A.b-mynsturteikningu yfir A.a og A.b er endurtekið á hæðina. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Þar sem lykkjum fækkar og fjölgar í mynsturteikningu A.1b, A.3b, A.6b og A.7b, getur lykkjufjöldinn breyst miðað við þetta með 8 lykkjum, þar sem hefur fækkað. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 130 lykkjur), mínus kanta að framan (= alls 12 lykkjur = 118 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 6,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Prjónið 3 lykkjur í 1 lykkju í sléttprjóni þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju (= 3 lykkjur = 2 lykkjur fleiri). Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.2. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= alls 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu með ca 8½-8½-7½-7½-7-7 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður í vinkil niður að handveg. Berustykkið skiptist í fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka, áður en framstykkin og bakstykkin deilast og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 130-134-138-154-158-162 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 18-22-18-14-10-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 148-156-156-168-168-176 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, en þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýring að ofan. Prjónið nú frá réttu þannig: Vinstra framstykki: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, A.1a (= 6 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 1-3-3-5-5-7 lykkjur A.2, A.3a (= 13 lykkjur), A.4a (= 11 lykkjur). Vinstri ermi: Prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur sléttprjón. Bakstykki: Prjónið A.5a (= 11 lykkjur), A.6a (= 13 lykkjur), 1-3-3-5-5-7 lykkjur A.2, prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, A.7a (= 10 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, 1-3-3-5-5-7 lykkjur A.2, A.3a yfir 13 lykkjur, A.4a yfir 11 lykkjur. Hægri ermi: Prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur sléttprjón. Hægra framstykki peysa: Prjónið A:5a yfir 11 lykkjur, A.6a yfir 13 lykkjur, 1-3-3-5-5-7 lykkjur A.2, 1 lykkja sléttprjón og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, A.1a yfir 6 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón, 4 lykkjur garðaprjón. Prjónamerkin verða að vera í stykkinu til loka (= útauknings lykkjur). Í næstu umferð frá réttu er aukið út þannig: Aukið er út mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1a og A.3a til A.7a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1b og A.3b að A.7b yfir A.1a og A.3a að A.6a. A.2 heldur áfram eins og áður. Öll útaukning er gerð frá réttu! Fram- og bakstykki: Aukið er út um 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2, í annarri hverri umferð alls 8-9-13-15-19-22 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 9-10-9-9-8-8 sinnum (þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur á hvoru framstykki og 4 lykkjur á bakstykki þegar aukið er út). Ermar: Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir A.4 og A.5 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi) í annarri hverri umferð alls 26-29-31-33-35-37 sinnum. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt. Þegar öll útaukning hefur verið gerð, eru 77-83-89-95-101-109 lykkjur á hvoru framstykki, 58-64-68-74-78-82 lykkjur á hvorri ermi og 142-154-166-178-190-206 lykkjur á bakstykki = alls 412-448-480-516-548-588 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 22-24-26-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti, mælt mitt ofan á ermi. Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið þannig: Vinstra framstykki: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, A.1b eins og áður, 1 lykkja sléttprjón, 35-41-47-53-59-67 lykkjur A.2, A.3b og A.4b eins og áður (= alls 29 lykkjur). Vinstri ermi: Setjið næstu 58-64-68-74-78-82 lykkjur á band fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-12-12-12 lykkjur undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa lykkja. Bakstykki: Prjónið A.5b og A.6b eins og áður (= alls 29 lykkjur), 35-41-47-53-59-67 lykkjur A.2, 1 lykkja sléttprjón, A.7b eins og áður, 1 lykkja sléttprjón, 35-41-47-53-59-67 lykkjur A.2, prjónið A.3b og A.4b eins og áður (= alls 29 lykkjur). Hægri ermi: Setjið næstu 58-64-68-74-78-82 lykkjur á band fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-12-12-12 lykkjur undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa lykkja. Hægra framstykki: Prjónið A.5b og A.6b eins og áður (= alls 29 lykkjur), 35-41-47-53-59-67 lykkjur A.2, 1 lykkja sléttprjón, A.1b eins og áður, 1 lykkja sléttprjón og endið með 4 lykkjur garðaprjón = 312-336-360-392-416-448 lykkjur (= 81-87-93-101-107-115 lykkjur á hvoru framstykki og 150-162-174-190-202-218 lykkjur á bakstykki). Prjónið nú fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið nú áfram þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, lykkjur undir hvorri ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. UMFERÐ 2 (= rétta): Vinstra framstykki: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, A.1b eins og áður, prjónið 3 lykkjur í næstu lykkju (= lykkja með prjónamerki = 2 lykkjur fleiri), prjónið mynstur eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), 2 lykkjur sléttprjón. Bakstykki: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið mynstur eins og áður að lykkju með prjónamerki, prjónið 3 lykkjur í næstu lykkju (= lykkja með prjónamerki = 2 lykkjur fleiri), A.7b eins og áður, prjónið 3 lykkjur í næstu lykkju (= lykkja með prjónamerki = 2 lykkjur fleiri), prjónið mynstur eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), 2 lykkjur sléttprjón. Hægra framstykki: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið mynstur eins og áður að lykkju með prjónamerki, prjónið 3 lykkjur í næstu lykkju (= lykkja með prjónamerki = 2 lykkjur fleiri), A.1b eins og áður, 1 lykkja sléttprjón og endið með 4 lykkjur garðaprjón. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í A.2. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður. Þ.e.a.s. í 4. hverri umferð er aukið út um 8 lykkjur og fækkað um 8 lykkjur, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami, en mynstrið í hlið fækkar og hverfur og það verður meiri mynstur A.2. Haldið áfram með mynstur (þegar ekki eru nægilega margar lykkjur fyrir kaðal, endar kaðallinn og haldið er áfram í sléttprjóni yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur). Endurtakið umferð 1 til 4 þar til stykkið mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm mælt frá öxl og niður að horni. Nú skiptist stykkið í næstu umferð frá réttu þannig: Vinstra framstykki: Prjónið mynstur eins og áður að prjónamerki, setjið síðan lykkjur á þráð 1 (= 81-87-93-101-107-115 lykkjur settar á þráð 1). Bakstykki: Prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 75-81-87-95-101-109 lykkjurr (= hálft bakstykki), setjið þær síðan á þráð 2. Prjónið mynstur eins og áður að prjónamerki, setjið síðan lykkjur á þráð 3 (= 75-81-87-95-101-109 lykkjur settar á þráð 3 = hálft bakstykki). Hægra framstykki: Prjónið mynstur eins og áður út umferðina (= 81-87-93-101-107-115 lykkjur). Prjónið nú hvort stykki til loka fyrir sig, þ.e.a.s. hér byrjar klauf í hlið. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, A.1b og 1 lykkja sléttprjón, setjið þær síðan á þráð (= 13 lykkjur og prjónið út umferðina = 68-74-80-88-94-102 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan þannig: Fækkið nú lykkjum hvoru megin á framstykki. UMFERÐ (= frá réttu): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur út umferðina eins og áður. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður út umferðina (= 2 lykkjur felldar af í byrjun á umferð). Endurtakið umferð 1 og 2 þar til eftir eru 2-2-2-4-4-6 lykkjur. Prjónið lykkjurnar 2 og 2 saman og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar. KANTUR (hægra framstykki): Kanturinn er prjónaður fram og til baka. Takið upp ca 45-49-53-57-63-67 lykkjur meðfram kanti að neðan frá réttu í ystu lykkjubogana á hringprjón 3,5 og setjið til baka 13 lykkjur af þræði við miðju framan á prjóninn = ca 58-62-66-70-76-80 lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka. Ef kanturinn að neðan með garðaprjóni herðir á stykkinu verður að taka upp fleiri lykkjur. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka lykkjurnar af þræði 1 á hringprjóninn (= 81-87-93-101-107-115 lykkjur). Í 1. umferð (= frá röngu) er prjónað þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Í næstu umferð frá réttu eru prjónaðar 4 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, A.1b og 1 lykkja sléttprjón, setjið þær síðan á þráð (= 13 lykkjur), fellið af næstu 2 lykkjur og prjónið út umferðina = 66-72-78-86-92-100 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan þannig: Fækkið nú lykkjum í hvorri hlið á framstykki. UMFERÐ (= frá röngu): Prjónið mynstur út umferðina eins og áður. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkju garðaprjón (= alls 3 lykkjur færri). Endurtakið umferð 1 og 2 þar til eftir eru 2-2-2-4-4-6 lykkjur. Prjónið lykkjurnar 2 og 2 saman og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar. KANTUR (vinstra framstykki): Kanturinn er prjónaður fram og til baka. Setjið til baka 13 lykkjurnar af bandi við miðju að framan á hringprjón 3,5 og takið upp ca 45-49-53-57-63-67 lykkjur meðfram kanti að neðan frá réttu í ystu lykkjubogana á hringprjón 3,5 = ca 58-62-66-70-76-80 lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka. Ef kantur að neðan með garðaprjóni herðir á stykkinu verður að taka upp fleiri lykkjur. VINSTRA BAKSTYKKI: Setjið til baka 75-81-87-95-101-109 lykkjur af þræði 2 á hringprjóninn (= hálft bakstykki). Í 1. umferð (= frá röngu) er prjónað þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir í sléttprjóni og hálft A.7b, setjið síðustu lykkjur á þráð án þess að prjóna þær = 68-74-80-88-94-102 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan þannig: Fækkið nú lykkjum hvoru megin á bakstykki. UMFERÐ 1 (= frá réttu): Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkja garðaprjón (= alls 3 lykkjur færri). UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið mynstur út umferðina eins og áður. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til eftir eru 2-2-2-4-4-6 lykkjur. Prjónið lykkjurnar 2 og 2 saman og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar. HÆGRA BAKSTYKKI: Setjið til baka 75-81-87-95-101-109 lykkjurnar af þræði 3 á hringprjóninn (= hálft bakstykki). Setjið fyrstu lykkjur á þráð (frá röngu): 1 lykkja sléttprjón og hálft A.7b og prjónið út umferðina = 68-74-80-88-94-102 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan þannig: Fækkið nú lykkjum í hvorri hlið á bakstykki. UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur út umferðina eins og áður. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Fellið af fyrstu 2 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður út umferðina (= 2 lykkjur felldar af í byrjun á umferð). Endurtakið umferð 1 og 2 þar til eftir eru 2-2-2-4-4-6 lykkjur. Prjónið lykkjurnar 2 og 2 saman og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar. KANTUR (bakstykki): Kanturinn er prjónaður fram og til baka. Takið upp ca 45-49-53-57-63-67 lykkjur meðfram kanti að neðan frá réttu í ystu lykkjubogana á hringprjón 3,5 fram að lykkjum á þræði (= ca hálft bakstykki), setjið til baka lykkjur af þræði við miðju að aftan á prjóninn og takið upp ca 45-49-53-57-63-67 lykkjur meðfram afgang af bakstykki = ca 104-112-120-128-140-148 lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka. Ef kantur með garðaprjóni að neðan herðir á stykki verður að taka upp fleiri lykkjur. ERMI: Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Setjið 58-64-68-74-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4,5 og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-8-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-76-86-90-94 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-12-12-12 lykkja (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermarnar skiptust frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 11-12-14-17-19-19 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-36-34-33-32-30 cm frá þar sem ermarnar skiptust frá fram- og bakstykki, skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 41-40-38-37-36-34 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (33)
Simpel, mooi en elegant
15.07.2018 - 23:07Eine sehr schöne Jacke, die auch im Büro super geht! Bitte die Anleitung!
13.07.2018 - 09:01Eine richtige Winterknuddel Jacke. Bin gespannt auf die Anleitung. Interessant auch die Ärmelschrägung.
14.06.2018 - 20:36