DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Aster

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferð og gatamynstri. Stærð S – XXXL.

DROPS 194-4
DROPS Design: Mynstur ai-127
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-500 g litur 10, þoka

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með mynstri A.1 = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá rétu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Prjónað er ofan frá og niður á hringprjón.

FRAMSTYKKI:
Vinstri öxl:
Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4-4-4-4-5-5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu:
UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= að hálsi) = 26-28-30-30-32-34 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir er 1 lykkja, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið hægri öxl.
Hægri öxl:
Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4-4-4-4-5-5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu:
UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= að hálsi) = 26-28-30-30-32-34 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú hægri og vinstri öxl saman frá réttu þannig:
Prjónið eins og áður yfir 26-28-30-30-32-34 lykkjur á hægri öxl, fitjið upp 21-21-21-25-25-25 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli, prjónið eins og áður yfir 26-28-30-30-32-34 lykkjur á vinstri öxl = 73-77-81-85-89-93 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu í mynstri eins og áður og með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli er prjónað brugðið).
Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 11-13-15-17-19-21 lykkjur, A.2 (= 49 lykkjur), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 11-13-15-17-19-21 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 13-14-13-14-15-15 cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-0-2-2-3-4 sinnum og 4-4-2-2-4-4 lykkjur 1 sinni (alls 6-6-8-8-12-14 lykkjur fleiri fyrir handveg í hvorri hlið á stykki) = 85-89-97-101-113-121 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Haldið svona áfram fram og til baka þar til allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Þegar A.2 er lokið á hæðina hefur verið fækkað um 2 lykkjur í mynsturteikningu = 83-87-95-99-111-119 lykkjur. Haldið nú áfram með mynstur A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

BAKSTYKKI:
Hægri öxl:
Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 2 lykkjur) þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= að hálsi) = 26-28-30-30-32-34 lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl.
Vinstri öxl:
Fitjið upp 25-27-29-29-31-33 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 26-28-30-30-32-34 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eins og áður þar til eftir er 1 lykkja, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú vinstri og hægri öxl saman frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 26-28-30-30-32-34 lykkjur á vinstri öxl, fitjið upp 21-21-21-25-25-25 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli, prjónið eins og áður yfir 26-28-30-30-32-34 lykkjur á hægri öxl = 73-77-81-85-89-93 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu í mynstri eins og áður og með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli er prjónað brugðið). Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 13-14-13-14-15-15 cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2-2-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-0-2-2-3-4 sinnum og 3-3-1-1-3-3 lykkjur 1 sinni (alls 5-5-7-7-11-13 lykkjur fleiri fyrir handveg í hvorri hlið á stykki – ATH: Fitjið upp 1 lykkju færri fyrir handveg í hvorri hlið á bakstykki en á framstykki til að mynstrið gangi jafnt upp í hlið á fram- og bakstykki) = 83-87-95-99-111-119 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

ERMI:
Fitjið upp 19-23-25-27-27-27 lykkjur á hringprjón 6 með Air.
Prjónið mynstur A.1 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1. Haldið svona áfram fram og til baka, JAFNFRAMT í lok hverrar umferðar eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 3-3-3-3-2-2 sinnum, 1 lykkja 0-0-0-0-4-5 sinnum, 2 lykkjur 2-2-2-2-2-2 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni = 47-51-53-55-59-61 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1. Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp er sett prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram fram og til baka með mynstur A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-5-4-4-3-3 cm millibili alls 7-8-8-9-10-10 sinnum = 33-35-37-37-39-41 lykkjur.
Haldið áfram þar til ermin mælist 44-44-43-43-41-39 cm frá prjónamerki (styttri ermar í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við uppfitjunarkant á ermum og innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki. Saumið saum undir erum og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 66-78 lykkjur frá réttu á stuttan hringprjón 6. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með brugðnum lykkjum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.10.2018
Leiðrétting: Síðasta útaukning fyrir handveg á fram/bakstykki hefur verið leiðréttur. FRAMSTYKKI:...4-4-2-2-4-4 lykkjur 1 sinni. BAKSTYKKI:...3-3-1-1-3-3 lykkjur 1 sinni
Yfirfarið á vefsvæði: 19.11.2018
Leiðrétting: Þegar axlir á bakstykki eru prjónaðar saman er fyrst prjónuð vinstri öxl, síðan hægri öxl.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt.
symbols = prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem lykkjan var felld af áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Elvira Gustke wrote:

Ich habe eine Frage!Kann man diesen Pullover auch in runden stricken. Ich nähe nicht gern zusammen. Fg Fr.Gustke

18.01.2024 - 20:10

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gustke, der Pullover wird von oben nach unten gestrickt, jede Schulter wird zuerst separat gestrickt, dann strickt man beide Schulter zusammen, nimmt man für die Armausschnitt zu und strickt bis zur Ende. So Nahte kann man hier nicht vermeiden, da der Pullover von Schulter bis Armausschnitt separat (Vorder- und Rückenteil) Gestrick wird. Am besten folgen Sie die Anleitung genauso wie beschrieben. Viel Spaß beim stricken!

19.01.2024 - 09:14

country flag Elvira Gustke wrote:

Ich habe eine Frage zu dem schönen Pullover. Stricke ich die Rückreihe wie sie erscheint oder mit Muster. Mg Elvira

22.11.2023 - 20:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gustke, alle Reihe werden im Diagram gezeichnet, dh die Rückreihen lesen Sie links nach rechts je nach der Zeichenerklärung: das leere Kästchen stricken Sie links bei den Rückreihen und die x stricken Sie rechts bei den Rückreihen (Rippenmuster A.1 = 1 Masche glatt rechts, 1 Masche krausrechts). Viel Spaß beim stricken!

23.11.2023 - 08:35

country flag Neirynck Sonia wrote:

Patroon 1,hoe moet ik starten met A1 enA2

03.04.2023 - 21:24

DROPS Design answered:

Dag Sonia,

Je begint onderaan het telpatroon aan de rechter kant en je leest het patroon van rechts naar links. Als je de eerste rij klaar hebt. Ga je verder met de volgende rij en, omdat je heen en weer breit, lees je de volgende, teruggaande naald, van links naar rechts.

05.04.2023 - 07:47

country flag Nadine PIBRE wrote:

Bonsoir, je suis surprise car j\'ai imprimé le modèle et il n\'y a pas de diagramme A1 ????\r\nPourriez-vous m\'aider svp ?\r\nMerci

23.01.2023 - 22:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pibre, le diagramme A.1 est un petit diagramme de 2 mailles x 4 rangs qui se trouve à droite du schéma des mesures, sous la manche. Bon tricot!

24.01.2023 - 12:06

country flag Marina wrote:

Liebes Dropsteam, ich habe Probleme mit den Armausschnitten bei Vorder- u.Rückenteil. Ich stricke Gr.L. Lt. Anleitung beim VT : 1Ma je 2x, 2 Ma je 2 x, 4 Ma je 1 x. Macht nach meiner Rechnung 10 Ma je Seite statt 8 Ma lt. Anleitung. Ebenso komme ich beim RT auf ein anderes Ergebnis. Hab ich einen Denkfehler? Vielen Dank für die Hilfe im Voraus und auch für die vielen tollen Anleitungen, die ich schon nachgestrickt hab.

26.02.2021 - 22:04

DROPS Design answered:

Liebe Marina, es soll am Ende nich 4 sondern 2 Maschen angeschlagen werden - deutsche Anleitung wird angepasst, danke für den Hinweis, so sollen Sie so in L aufnehmen: 1 m x 2, 2 M x 2 und 2 M x 1 (= 2 M x 3 Mal ingesamt in L). Viel Spaß beim stricken!

01.03.2021 - 07:50

country flag Guyot wrote:

Si j'ai bien suivi, certaines correstions sont déjà notées dans les explications et d'autre non? Pour les manches çà correspond bien mais il faut corriger les emmenchures dos et devant et l'ordre des épaules dos. Merci de votre précision Salutations et merci pour tous vos très beaux modèles et bons modèles

12.12.2020 - 23:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Guyot, si vous avez imprimé le modèle après les dates des corrections, le modèle est alors complet et correct. Bon tricot!

14.12.2020 - 08:47

country flag Edeltraut wrote:

Hallo, ich verstehe nicht ganz wann ich mit den Aufnahmen zu den Armausschnitten beginnen soll. Werden die cm ab dem Halsausschnitt oder von ganz oben gemessen? Vielen Dank für ihre Antwort

06.09.2020 - 19:19

DROPS Design answered:

Liebe Edeltraut, die Aufnahmen zu den Armauschnitten fangen je nach der Größe wenn die Arbeit 13 - 15 cm von der Anschlagskante (= ganz oben) misst. Viel Spaß beim stricken!

07.09.2020 - 09:28

country flag Maria Pia wrote:

Salve, se volessi realizzare il modello con uno scollo minore, come potrei apportare le modifiche necessarie? grazie

21.02.2020 - 14:36

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria Pia. Per uno scollo meno profondo, può lavorare il diagramma A1 sul davanti per meno cm prima di unire le due spalle. Per uno scollo meno largo, può avviare più maglie per entrambe le spalle. Buon lavoro!

23.02.2020 - 20:50

country flag Muriel wrote:

Bonjour, Il semble y avoir un bug, on ne peut imprimer que la première page du modèle. Pouvez-vous contrôler ? cordialement Muriel

02.09.2019 - 17:24

DROPS Design answered:

Bonjour Muriel, nous avons pu imprimer ce modèle avec succès, vérifiez bien les paramètres de votre imprimante pour que toutes les pages soient imprimées (et pas seulement la première, en fonction des données précédentes conservées par votre imprimante). Bon tricot!

03.09.2019 - 08:55

country flag Je Maintiendrai wrote:

Bonjour, Je souhaiterais tricoter ce modèle mais je ne sais pas quelle taille choisir et je n'ai jamais tricoté de pull pour moi. Je fais habituellement un 42 et parfois du 40 dans les tailles du commerce. Pourriez-vous s'il vous plait me guider dans la taille à choisir? Merci d'avance.

07.04.2019 - 16:50

DROPS Design answered:

Bonjour! Si vous faites un garment vous trouverez en bas de la page un schéma avec toutes les mesures (en cm) du vêtement terminé. Si vous suivez les explications et gardez la bonne tension/le bon échantillon, votre vêtement aura la même taille que les mesures du schéma. Si vous ne savez pas quelle taille choisir, la solution peut être de mesurer un pull que vous avez et dont vous aimez la taille. Vous pouvez ensuite regarder les mesures dans le schéma et y trouver la bonne taille. Bon tricot!

07.04.2019 - 22:04