DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Lima yarn
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7007.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sheep Happens! Cardigan

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í norrænu mynstri með kindum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 194-1

#sheephappenscardigan

DROPS Design: Mynstur li-100
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-750 g litur 9015, grár
100-100-100-100-100-100 g litur 6235, gráblár
50-50-50-50-50-50 g litur 0100, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 8903, svartur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS TÖLUR, Bogalaga (hvítar) NR 522: 6-6-7-7-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7007.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning er prjónuð í sléttprjóni.
Þar sem það eru löng hopp á milli litaskipta, verður að tvinna þræðina saman við hvern annan eftir ca 7. hverja lykkju, svo að ekki verði eins langir lausir endar á bakhliðinni.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur), mínus kanta að framan (= 10 lykkjur = 90 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 31) = 2,9.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið á kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af 5-5-6-6-7-7 næstu með ca 8½-8½-8-8-7½-7½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist við ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 100-104-108-112-120-128 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með litnum gráblár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjón, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Prjónið stroff í 3 cm, stillið af að síðasta umferð sé frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 31-27-35-33-35-37 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 131-131-143-145-155-165 lykkjur.
Prjónið mynstur svona frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 1 lykkja), A.2 (= 6-6-6-5-5-5 lykkjur) yfir næstu 12-12-12-10-10-10 lykkjur (= alls 2 sinnum), A.3 (= 12 lykkjur), A.2 yfir næstu 42-42-48-50-55-60 lykkjur (= alls 7-7-8-10-11-12 sinnum), A.3 yfir næstu 12 lykkjur, A.2 yfir næstu 42-42-48-50-55-60 lykkjur (= alls 7-7-8-10-11-12 sinnum) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Kantur að framan er prjónaður með sama lit og í A.1.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 255-255-281-333-359-385 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 16 cm (meðtalið stroff).
Prjónið 1 umferð brugðið með grár frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorir hlið og aukið út um 11-11-15-8-12-1 lykkjur jafnt yfir = 266-266-296-341-371-386 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (uppsláttur er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt):
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (kantur að framan er nú prjónaður með litnum grár til loka), A.4 (= 1 lykkja), A.5 (= 15 lykkjur) yfir næstu 255-255-285-330-360-375 lykkjur (= 17-17-19-22-24-25 sinnum á breidd) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 317-351-372-407-443-461 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-23-24-25-25-25 cm (meðtalið stroff). Stykkið er prjónað með litnum grár til loka.
Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm (meðtalið stroff).
Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 45-49-51-57-63-68 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 64-72-79-84-90-90 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi, prjónið 89-99-102-115-127-135 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 64-72-79-84-90-90 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi, 45-49-51-57-63-68 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki) = 205-223-234-259-283-309 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið með sléttprjóni með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 26-26-26-27-27-27 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist fyrir ermar er aukið út um 27-33-34-33-41-43 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá röngu = 232-256-268-292-324-352 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til eftir eru 7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stroffið mælist 4 cm (þ.e.a.s. stykkið mælist ca 30-30-30-31-31-31 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum). Peysan mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm, mælt frá öxl.

ERMI:
Setjið 64-72-79-84-90-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og takið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-10-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-80-89-94-100-104 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-10-14 lykkja undir ermi. Prjónið í hring í sléttprjóni með litnum grár. Þegar stykkið mælist 1 cm frá þar sem ermarnar skiptu fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 11-15-18-19-22-23 sinnum = 50-50-53-56-56-58 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 40-38-37-36-35-33 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki, aukið út um 2-2-3-0-4-2 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 52-52-56-56-60-60 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 44-42-41-40-39-37 cm frá þar sem ermin skipti fram- og bakstykki (= ca 4 cm stroff).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.07.2018
Leiðrétting í mynsturteikningu A.2 í stærð XL-XXL-XXXL.

Mynstur

gráblár = gráblár
natur = natur
svartur = svartur
grár = grár
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð
Diagram for DROPS 194-1
Diagram for DROPS 194-1
Diagram for DROPS 194-1
Diagram for DROPS 194-1

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sheephappenscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (62)

country flag Arianna Balzoni skrifaði:

Che succede se uso un ferro 7 invece di 4 ? avrò meno maglie nel campione ?

15.10.2021 - 16:29

DROPS Design svaraði:

Buonasera Arianna, otterrà un risultato completamente diverso rispetto a quello indicato. Non potrà utilizzare le spiegazioni riportate usando un ferro 7 ma deve utilizzare la misura di ferri che le permette di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!

17.10.2021 - 21:17

country flag Ann Connell skrifaði:

After knitting the sheep going on to grass, pattern A5 A4 knit 15 increased to 19 x 22 times giving 418 . Your instructions say 407 +12 = 419.??? Iam ending up with too many stitches Then adding up breaking up for sleeves adding up to 2x57 2x84; x 115. = 397?? Iam baffled. Please help

31.05.2021 - 18:29

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Connell, could the previous answer help you? Are you working another size than XL as explained below? Let us know if it's now okay or if you need some more help. Happy knitting!

01.06.2021 - 08:13

country flag Ann Connell skrifaði:

Help I am stuck in understanding pattern for sheep happens. After sheep are done, the grass says knit star 15 increase up to 19 stitches. Leaving you up to 418+ 12 for edge. Pattern says 407? Why I have I too many stitches

31.05.2021 - 17:50

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Connell, are you working size XL? Then diagram A.5 is first worked over 15 sts and increases to 18 sts, this means there are 341 sts before diagrams and you work: 5 front band sts, A.4 (= 1 st), the 15 sts in A.5 a total of 22 times (= 330 sts), 5 front band sts = 5+1+330+5=341 sts and after diagams: 5 sts + 1 st + 18 sts x 22 + 5 sts = 407sts. Hope this will help.

01.06.2021 - 08:11

country flag Linda skrifaði:

Hvordan strikker jeg modellen i str 4xl?

15.04.2021 - 12:17

DROPS Design svaraði:

Hej Linda, brystmålet på xxxl = 142 cm, og det får du hvis du følger strikkefastheden som står i opskriften. Du kan få hjælp og tips i garnbutikken om hvordan du kan gøre jakken større. God fornøjelse!

19.04.2021 - 15:40

country flag Jackie Nelson skrifaði:

Can I purchase 194-1 anywhere?

07.01.2021 - 00:21

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Nelson, we only provide the free pattern to this jacket - maybe your DROPS store can help you - don't hesitate to ask them, even per mail or telephone.

07.01.2021 - 10:28

country flag Anne R Jones skrifaði:

On page 4: cast on 104 (medium size) including 5 band stitches. Do I CO 114 stitches?

23.07.2020 - 22:27

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Jones, the 5 band sts are included, this means you cast on 104 sts and work as follows: 5 sts in garter st, rib K2/P2 over the next 92 sts, K2, 5 sts in garter st. Happy knitting!

29.07.2020 - 09:27

country flag Anne R Jones skrifaði:

On page 4: cast on 104 (medium size) including 5 band stitches. Do I CO 114 stitches?

23.07.2020 - 22:25

DROPS Design svaraði:

Dear Anne, You CO 104 stitches (the 5 band stitches are included in the total) Happy Knitting!

24.07.2020 - 11:56

country flag Elke Vennix skrifaði:

Ik ben dit vest aan het breien, ik moet aan A1 tot A3 beginnen maar snap niet de verdeling van voorpand, mouw, achterkant. Is erg onduidelijk ik de beschrijving. Kan iemand mij aub helpen.

13.06.2020 - 16:11

DROPS Design svaraði:

Dag Elke,

Als je de pas aan het breien bent met A.1 t/m A.3 hoef je nog niet te letten op de verdeling van de mouwen en de panden, je hoeft alleen de telpatronen te volgen en de biezen te breien zoals aangegeven in de beschrijving. Nadat A.1 t/m A.3 in de hoogte zijn gebreid brei je verder met alleen grijs en dan wordt ook het werk gesplits (zoals beschreven staat onder het laatste stuk bij de PAS).

18.06.2020 - 11:15

country flag Alice Ableman skrifaði:

There is a glaring error in your pattern, or the photo of the model is backwards. Using the pattern for the sheep, the large on faces to the left while the photo the large sheep faces to the right.

24.02.2020 - 15:19

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Ablemna, the large sheep (= A.3) is shown on the left front piece on the picture, and it will be also worked on the left front piece in the written pattern: working top down, you start with left front piece and work diagram A.2 a total of 2 times (= 2 "standard" sheep), then A.3 (= 1 large sheep) and finishes with A.2 = "standard" sheep on the right front piece. Happy knitting!

24.02.2020 - 15:56

country flag Christel skrifaði:

Ik begrijp in de pas niet hoe er gemeerderd wordt, ik brei maat Xl na de boord moet je meerdere naar 145 steken dat is duidelijk. Maar dan er staat A1 = 1 steek enz enz dan als je verder leest hebben ze bij maat xl gemeerderd tot 333 steken . Waar moeten die gemeerderd worden

27.01.2020 - 10:21

DROPS Design svaraði:

Dag Christel,

De meerderingen staan in de telpatronen aangegeven in de vorm van omslagen die je op de volgende naald gedraaid breit. (laatste symbool in de lijst bij de telpatronen). Als je de naalden van de telpatronen in de hoogte hebt gebreid, dan staan er 333 steken op de naald.

10.02.2020 - 21:54