Karin skrifaði:
Hej! Stämmer verkligen diagrammet på varv 29 av A.3? Det ser ut som att en av minskningarna lutar åt fel håll.
05.07.2019 - 19:02DROPS Design svaraði:
Hej Karin, det ser ud som om at du har ret, tak for info, så skal vi få det rettet så hurtigt som muligt :)
09.07.2019 - 10:17
Marja Almqvist skrifaði:
What is the gauge of this pattern please?
29.05.2019 - 15:51DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Almqvist, you will find the gauge for both needle size (larger and smaller) under the header - remember needle size is only a suggestion! If you have too many stitches on 10 cm switch to larger needles. If you have too few stitches on 10 cm switch to smaller needles. Happy knitting!
29.05.2019 - 15:57
Susanne skrifaði:
*RYG- OG FORSTYKKE: = 192-212-232-256-284-312 masker. Fortsæt frem og tilbage i glatstrik.* Jeg forstår ikke, at der skal strikkes frem og tilbage, da der vel strikkes rundt hele vejen ned?
14.08.2018 - 23:39DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, jo det har du ret i, arbejdet fortsættes rundt på rundpind. Tak for info :)
15.08.2018 - 07:58
Beti skrifaði:
Ich bin begeistert.
26.12.2017 - 19:03
Sweet Susan#sweetsusantop |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri, laskalínu og vængjaermum, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyAlpaca Silk.
DROPS 191-31 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til eftir eru 2 lykkjur á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. GÖT ÁN ÚTAUKNINGAR: Þegar útaukningu fyrir laskalínu er lokið er prjónað þannig (til að gataröndin komi til með að halda áfram meðfram laskalínu án þess að auka út lykkjum). Það eru gerð göt án útaukningar hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til eftir eru 4 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið næstu lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið við hvert prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna /stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 116-120-124-132-136-144 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Byrjun á umferð = miðja að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt, JAFNFRAMT eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 19-20-21-23-24-26 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 20 lykkjur (= ermi), setjið 2 prjónamerki, prjónið 38-40-42-46-48-52 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki, prjónið síðustu 19-20-21-23-24-26 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út í annarri hverri umferð alls 24-28-31-35-40-44 sinnum. Eftir allar útaukningar eru 308-344-372-412-456-496 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og prjónið GÖT ÁN ÚTAUKNINGAR – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 17-19-20-22-24-26 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 43-48-52-58-64-70 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 68-76-82-90-100-108 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið 86-96-104-116-128-140 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 68-76-82-90-100-108 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið þær 43-48-52-58-64-70 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-212-232-256-284-312 lykkjur. Haldið áfram í hring í sléttprjóni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2 cm millibili alls 14 sinnum = 248-268-288-312-340-368 lykkjur. Þegar stykki mælist 34-34-35-35-35-35 cm, skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með hringprjón 3 (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Stykkið mælist ca 37-37-38-38-38-38 cm frá þar sem stykkið skiptist og alls ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Setjið 68-76-82-90-100-108 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 78-86-94-102-114-124 lykkjur. Færið umferðina til þannig að byrjað sé mitt undir ermi. Prjónið þannig: Prjónið 4-3-2-1-2-2 lykkjur sem A.2, prjónið A.3 (= 10 lykkjur) yfir næstu 70-80-90-100-110-120 lykkjur (= 7-8-9-10-11-12 mynstureiningar) og endið með 4-3-2-1-2-2 lykkjur sem A.2. Prjónið og aukið út eftir A.2 og A.3 þar til 1 umferð er eftir = 141-158-175-192-213-232 lykkjur. Fellið af eins og útskýrt er í mynsturteikningu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetsusantop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.