DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Luscious Lilacs

Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með blaðamynstri og stuttum ermum. Stærð XS - XXL.

DROPS 220-36
DROPS Design: Mynstur w-838
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 31, fjólublár

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (fjólublá) NR 609: 5-5-6-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 9) = 8,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin á ermi innan við prjónamerki og 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur fleiri í umferð – að auki eru auknar út lykkjur á framstykki og bakstykki, en þessar lykkjur eru teiknaðar inn í mynsturteikningu).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu með ca 10-10-8½-9-9½-9½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 82-82-86-90-94-94 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4 með 1 þræði Paris.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út 9-9-9-5-5-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 91-91-95-95-99-99 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Nú er mynstrið prjónað þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, A.1a yfir næstu 14 lykkjur, A.1b yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstra framstykki og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-6-8-8-10-10 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), A.1c yfir næstu 3 lykkjur, A.1a yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar á breidd), A.1b yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-6-8-8-10-10 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og hægra framstykkis), A.1c yfir næstu 3 lykkjur, A.1a yfir næstu 14 lykkjur, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Nú er 1 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki í stykki – prjónamerkin fylgja með í stykkinu). Að auki við útaukningu í mynsturteikningu, hefur nú verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við ermar fyrir LASKALÍNA – sjá útaukningu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Aukið út fyrir laskalínu á ermum í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 14-19-20-23-22-21 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-2-2-2-3-5 sinnum (= alls 18-21-22-25-25-26 útaukningar í hvorri hlið á ermum). JAFNFRAMT í 21. umferð í A.1a er prjónað eins og útskýrt er við hvíta stjörnu á eftir kantlykkjum að framan í byrjun á umferð (séð frá réttu) og eins og útskýrt er við svarta stjörnu á undan kantlykkjum að framan (séð frá réttu) – sjá útskýringu í mynsturtáknum.
Þegar A.1a, A.1b og A.1c hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur mynstrið áfram alveg eins. Þ.e.a.s. er prjónað A.1b og A.1c við laskalínu í hliðum á framstykki og bakstykki og það er prjónað blaðamynstur (= A.1a) eins og áður á milli laskalínu á bakstykki (= A.1b og A.1c) og á milli laskalínu og kanta að framan á framstykki þar til prjónaðar hafa verið 36-36-46-48-48-48 umferðir með mynstri á hæðina og það eru 42-42-47-49-49-49 lykkjur á hvoru framstykki (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) og 75-75-85-89-89-89 lykkjur á bakstykki. Prjónið nú áfram mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð M:
Haldið áfram með blaðamynstur alveg eins, en við prjónamerki í hverri laskalínu (á framstykki og bakstykki) er prjónað mynstur A.2 (þ.e.a.s. ekki eru auknar út fleiri lykkjur fyrir laskalínu). Nú eru 47 lykkjur á hvoru framstykki (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) og 85 lykkjur á bakstykki.
Þegar umferð með ör í A.2 (= fyrsta umferð í mynsturteikningu) hefur verið prjónuð (og öll útaukning á ermum er lokið), eru 287 lykkjur í umferð. Stykkið á nú að mælast ca 22 cm frá prjónamerki. Ef stykkið er styttra en þetta, prjónið áfram með blaðamynstri (án þess að auka út fyrir laskalínu) að réttu máli.

Stærð XS, S, L, XL og XXL:
Haldið áfram með blaðamynstur alveg eins, en við prjónamerki í hverri laskalínu (á framstykki og bakstykki) er prjónað mynstur eins og útskýrt er í A.2b og A.2c. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, eru 45-45-52-53-57 lykkjur á hvoru framstykki (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) og það eru 81-81-95-97-105 lykkjur á bakstykki. Þegar prjónað hefur verið upp til og með umferð með ör í þinni stærð í mynsturteikningu (og öll útaukning á ermum er lokið), eru 259-271-319-327-347 lykkjur í umferð. Stykkið á nú að mælast ca 21-21-25-25-28 cm frá prjónamerki. Ef stykkið er styttra en þetta, prjónið áfram með blaðamynstri (án þess að auka út fyrir laskalínu) að réttu máli.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð (= umferð eftir ör) frá röngu er prjónuð þannig:
Í stærð XS eru ystu 3 lykkjur í hlið á framstykki og bakstykki prjónaðar inn á ermum.
Í stærð S, M, L og XL skiptist stykkið við skiptinguna á milli erma og framstykkis og bakstykki.
Í stærð XXL er ysta lykkjan í hvorri hlið á ermum prjónuð inn á bakstykki/framstykki.
Prjónið fyrstu 42-45-47-52-53-58 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 50-50-54-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-8-8-12-14 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 75-81-85-95-97-107 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 50-50-54-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-8-8-12-14 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 42-45-47-52-53-58 lykkjur (= vinstra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 167-179-195-215-227-251 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið mitt í nýjar 4-4-8-8-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 2-2-4-4-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Prjónið mynstur frá réttu þannig – ATH: Mynstrið á að passa yfir mynstur frá berustykki, stillið af að byrjað er í réttri umferð í mynsturteikningu:
Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, blaðamynstri eins og áður yfir næstu 15-15-29-29-29-36 lykkjur, A.3b yfir næstu 16 lykkjur, 9-12-2-7-10-9 lykkjur sléttprjón, prjónamerki situr hér, 9-12-2-7-10-9 lykkjur sléttprjón, A.3a yfir næstu 17 lykkjur, blaðamynstur eins og áður yfir næstu 28-28-56-56-56-70 lykkjur (= 2-2-4-4-4-5 mynstureiningar A.1a á breidd), A.3b yfir næstu 16 lykkjur, 9-12-2-7-10-9 lykkjur sléttprjón, prjónamerki situr hér, 9-12-2-7-10-9 lykkjur sléttprjón, A.3a yfir næstu 17 lykkjur, blaðamynstur eins og áður yfir næstu 14-14-28-28-28-35 lykkjur, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist ca 28-30-30-29-30-29 cm – stillið af að endað sé eftir umferð sem er 11. eða 23. umferð í A.1a. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar slétt) þar sem aukið er út um 1-1-0-1-1-1 lykkjur jafnt yfir = 168-180-195-216-228-252 lykkjur. Prjónið stroff þannig:
4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið fra *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 50-50-54-60-62-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna / hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-8-8-12-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi í hlið = 54-54-62-68-74-76 lykkjur. Byrjið umferð mitt undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 11-11-13-16-19-19 lykkjur, * 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 11-11-12-12-12-13 sinnum (= 11-11-12-12-12-13 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 10-10-13-16-19-18 lykkjur = 43-43-50-56-62-63 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 4 umferð GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan.
Fellið af – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 6-6-6-7-7-7 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.09.2021
Nafni á mynsturteikningu hefur verið leiðrétt á fram- og bakstykki.
Yfirfarið á vefsvæði: 08.11.2023
LASKALÍNA:.. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo það myndist gat.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á við á eftir kanti að framan (séð frá réttu): Á eftir kantlykkjum að framan í garðaprjóni í byrjun á þessari umferð, eru fyrstu 2 lykkjur prjónaðar slétt saman (= 1 lykkja færri) áður en prjónað er áfram eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
symbols = á við á undan kanti að framan (séð frá réttu): Á undan kantlykkjum að framan í garðaprjóni í lok umferðar eru ekki prjónaðar 3 síðustu lykkjur í mynsturteikningu í þessari umferð, heldur prjónið í staðin þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri)
symbols = örin sýnir í hvaða umferð í mynsturteikningu á enda í mismunandi stærðum – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Marie-José wrote:

Als patroon 1x in de hoogte gebreid is, wordt gezegd ga verder zoals voorheen. Op een vraag hierover, van Toni, is van in het Engels antwoord gegeven. Misschien handig om deze uitleg in het patroon mee te nemen, omdat misschien niet voor iedereen duidelijk is dat patroon A1a, voor en na de raglan 2x gebreid moet/ kan worden en vervolgens A1b en A1c als patroon meegenomen moet worden. Ik heb het antwoord op de vraag van Toni zeker 3x moeten lezen voor ik het daadwerkelijk snapte.

23.04.2024 - 10:02

country flag Hanne M wrote:

Ved raglan udtag står der at man skal strikke omslaget drejet vrang på næste pind for at der ikke kommer hus. Men på nærbilledet er der vel netop et hul på hver side af de to retmasker. Eller har jeg misforstået noget?

24.08.2023 - 21:04

DROPS Design answered:

Hej Hanne, det ser ud til at du har ret og at det er en fejl, men vi tjekker med design og laver en rettelse i så fald :)

08.09.2023 - 14:39

country flag Breige McShane wrote:

I am still awaiting an answer to my question regarding placing of buttohoes. Thank you

03.07.2023 - 03:41

DROPS Design answered:

See answer below :) Thanks for your patience!

03.07.2023 - 11:07

country flag Breige McShane wrote:

I end up with the buttonhole at the beginning of the row!!! Cast On and knit 2 ridges 1sr row knit - right side 2nd row knit - wrong side 3rd row knit - right side 4th row knit - wrong side then knit one row right side then purl one row wrong side then start pattern on right side which is right front where buttonholes should be!

01.07.2023 - 16:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs McShane, when you work a jacket top down, you work from RS: left front piece, left sleeve, back piece, right sleeve and right front piece, so you will work the buttonholes at the end of a row from RS so that the buttonholes will be on the right front piece. Happy knitting!

03.07.2023 - 10:11

country flag Anita Jonsson wrote:

Hej igen! Nu har jag löst förra problemet men har nu en ny fråga: Jag har stickat A.2 rätsida och gjort delningen fram- och bakstycke + armar på avigsidan men nu kommer problemet: det står: sticka bladmönstret som förrut??? betyder bladmönstret A1a eller? för alla diagram blir ju bladmönster. Jag är en van stickare men jösses vad man får fundera och klura för att förstå mönstret. Mvh Anita

01.02.2023 - 13:44

DROPS Design answered:

Hej Anita, jo det er samme bladmønster som du har strikket på bolen du skal fortsætte med, du er færdig med alle dem som har formet til raglan :)

03.02.2023 - 11:24

country flag Anita Jonsson wrote:

Jag förstår inte mönstret. När jag stuckit 46 v så ska jag sticka v 47 med A2 mot markörerna i varje raglan men det funkar ju bara mönster A1c som är 15 m vilket krävs för att sticka A2. A1a och A1b är 14 m men efter att ha stickat varv 47 så blir A1b 15 m och därmed blir det 48 m på framstycket istället för 47. ????? Mvh Anita

31.01.2023 - 20:42

DROPS Design answered:

Hej Anita, vi forstår ikke dit spørgsmål... har du ikke A.1b og A.1c i hver side? Diagrammerne er lige store, så hvorfor kan du kun få det til at fungere i den ene side (A.1c)?

03.02.2023 - 11:09

country flag Toni wrote:

I am making pattern w-838 in Paris cotton. I am an experienced knitter, but cannot understand this: I knit the 24 rows in the charts (A. 1a, A.1b and A.1c). The then pattern states "When A.1a, A.1b and A.1c have been worked vertically, continue pattern the same way." "The same way" would restart the charts and be only 2 stitches on A.1b and 3 on A.1c. Where do I go from here? - i.e. row 25 onward? Thanks very much

01.03.2022 - 01:27

DROPS Design answered:

Dear Toni, after you have worked the diagrams one time in height, work them again from the beginning: A.1a over the first 14 sts as before, then work A.1a one more time over the next 14 sts (= the increased sts in previous A.1b) and finish with A.1b (= left front piece); on back piece, work the same way: A.1c over the first 3 sts, then work A.1b 2 more times in width (over the last sts A.1c + the first sts A.1b) between A.1c and A.1b etc. Can this help?

01.03.2022 - 10:04

country flag Diana Mortensen wrote:

Jeg er lidt forvirret!!! Skal der strikkes ret vrang på vrangsiden? Eller er det de lige rækker i diagrammet , jeg skal bruge og hvad ind imellem ? Sagt på en anden måde , jeg forstår ikke hvad jeg skal på vrang siden🙃 på forhånd tak

28.10.2021 - 21:57

DROPS Design answered:

Hej Diana, du strikker hver 2.pind i diagrammet fra vrangen. Mønsterpinden strikkes fra retsiden. Se her hvordan man følger et diagram: Hvordan læses strikkediagrammer

29.10.2021 - 08:15

country flag Jetje wrote:

En waar is blokje A3c in het schema? Dit staat wel in het patroon. Zijn de namen verwisseld?

07.06.2021 - 17:34

DROPS Design answered:

Dag Jetje,

Er is inderdaad geen A.3c, dus wordt er A.3a bedoeld. Ik heb het doorgegeven aan de ontwerpafdeling om te controleren.

13.06.2021 - 10:40

country flag Jetje wrote:

Op de schema's zie ik een blokje A.3a. Dit vind ik nergens terug in het patroon. Waar wordt het gebruikt?

07.06.2021 - 17:09