Sweet Susan Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og vængjaermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-35 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í fyrstu umferð frá réttu eftir 4 umferðir garðaprjón efst í hálsi. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-8-8-8½ cm millibili. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það á að myndast gat. GÖT ÁN ÚTAUKNINGAR: Þegar útaukningu fyrir laskalínu er lokið er prjónað eins og útskýrt er að neðan til að gataumferðin haldi áfram meðfram laskalínu án þess að auka út lykkjur. Gerið gat án útaukningar hvoru megin við hvert prjónamerki frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið við hvert prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það á að myndast gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, það á ekki að myndast gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 126-130-134-142-146-154 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3, munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, JAFNFRAMT eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 19-20-21-23-24-26 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 20 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 1 prjónamerki, prjónið 38-40-42-46-48-52 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 20 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 1 prjónamerki, prjónið 19-20-21-23-24-26 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón með kantlykkjum að framan í garðaprjóni og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 24-28-31-35-40-44 sinnum. MUNIÐ EFTIR hnappagati í hægra framstykki! Eftir allar útaukningar eru 318-354-382-422-466-506 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og prjónið GÖT ÁN ÚTAUKNINGAR – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 17-19-20-22-26-28 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 48-53-57-63-69-75 lykkjurnar í umferð (= framstykki), setjið næstu 68-76-82-90-100-108 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 86-96-104-116-128-140 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 68-76-82-90-100-108 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið eins og áður yfir næstu 48-53-57-63-69-75 lykkjur (= framstykki). Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-222-242-266-294-322 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2 cm millibili alls 14 sinnum á hæðina = 258-278-298-322-350-378 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-33-33 cm, skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, fellið af með hringprjón 3 (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING í útskýringu að ofan). Stykkið mælist ca 37-37-38-38-38-38 cm frá þar sem stykkið skiptist og alls ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Setjið 68-76-82-90-100-108 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 78-86-94-102-114-124 lykkjur. Færið umferðina til þannig að hún byrji mitt undir ermi. Prjónið þannig: Prjónið 4-3-2-1-2-2 lykkjur í A.2, prjónið A.3 (= 10 lykkjur) yfir næstu 70-80-90-100-110-120 lykkjur (= 7-8-9-10-11-12 mynstureiningar) og endið með 4-3-2-1-2-2 lykkjur í A.2. Haldið áfram með A.2 og A.3 þar til 1 umferð er eftir = 141-158-175-192-213-232 lykkjur. Fellið af eins og útskýrt er í mynsturteikningu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Barbara wrote:
Thanks for the very quick and clear reply. I see where I went wrong. After the single knit row with the 1st buttonhole at the end, I started the next row with stockinette stitch which I thought always started with a Knit row. So then I worked an extra knit row which turned the whole piece from right to left. It's not a big deal, as the buttons will now just be on the right instead of the left.
23.06.2023 - 16:13Barbara Higdon wrote:
This is a great pattern, seemingly easy and straight forward. But as I interpret the instructions, the buttonholes end up on the left side. If you work the 1st buttonhole on the Knit row immediately following the 2 knit ridges of 4 rows (that would be row 5 and a knit row) and need to work the buttonhole at the end of the row as indicated, for me, that works out to be the front left side of the cardigan (as correct side is facing).
22.06.2023 - 19:29DROPS Design answered:
Dear Mrs Higdon, when you work a jacket top down you start from right side with left front piece and finish with right front piece, reason why the buttonholes will be worked at the end of a row from right side - for the right front piece. Happy knitting !
23.06.2023 - 07:50Sheryl wrote:
When knitting in the round the graph shows I need to knit from the wrong side. I am knitting from the right side and not purling from the wrong side. Do I purl the stitches the graph tells me to knit from the wrong side since all stitches are completed from the right side?
24.06.2021 - 20:54DROPS Design answered:
Dear Sheryl, diagrams alwas show the patterns as you would see the stitch from the right side. So if there is a stitch that shows a knit stitch, that should be knitted from the right side and purled from the wrong side. When knitting on the round (always from the right side, always knit as shown in the pattern. Happy Stitching!
24.06.2021 - 21:01Sheryl wrote:
Working in the round from a graph. The graph shows knit from the wrong side but in the round all knitting is from the right side. How do I handle this row?
24.06.2021 - 06:41DROPS Design answered:
Hi Sheryl, When working in the round on the sleeves, you work all rows in the diagram straight after each other, so from right to left and as you say all from the right side. Happy knitting!
24.06.2021 - 08:25Abelia wrote:
Je salue le retour du mannequin senior qui m’avait manqué !
05.02.2021 - 22:20