Evelin Giraldi skrifaði:
Ciao, ho appena fatto i primi aumenti del sprone ed ora devo iniziare il Raglan però ho un dubbio: gli aumenti del Raglan devono essere fatti ogni 2 giri questo significa che il giro subito dopo gli aumenti deve essere fatto tutto a diritto? Se si il ferro a diritto corrisponde alle righe pari del diagramma A1 cioè 1rov 9dir 1rov? Grazie per la risposta!!
29.03.2020 - 00:17DROPS Design svaraði:
Buongiorno Evelin. Gli aumenti per il raglan vengono fatti sulle righe dispari del diagramma A1. Il giro successivo viene lavorato a diritto (le maglie aumentate a diritto ritorto) e il diagramma A1 viene lavorato con 1 m rov, 9 dir, 1 rov. Buon lavoro!
30.03.2020 - 12:32
Conny skrifaði:
Das Bild ist leider nichtssagend. Warum nicht 1-2 weitere Bilder die die Form des Pullovers zeigen?!
22.08.2019 - 13:55
Frede Jaulin skrifaði:
Bonjour, J'ai commencé ce modèle aujourd'hui et je suis coincée. Pour le raglan, je fais bien un jeté avant et après A1 et autour suivant je tricote mes jetés torses à l'endroit. Sauf que j'ai quand même des trous moches. Alors je me suis dit que je loupais peut-être mes jetés, c'est la première fois que j'en fais avant une maille envers ... Et là, je découvre qu'il existe des jetés endroit ET envers. Lesquels dois-je faire? Merci!
29.03.2019 - 22:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Jaulin, les jetés vont se faire soit après une maille endroit et avant une maille envers (avant A.1) soit après 1 maille envers et avant 1 maille endroit (après A.1), À chaque fois, vous ne devez avoir qu'un seul fil (= jeté) avant et après A.1 (entre les 2 mailles), faites bien attention à ce que le jeté ne soit pas trop lâche pour que le trou ne soit pas trop gros. Si vous préférez une méthode sans trou, vous pouvez augmenter différemment. Bon tricot!
01.04.2019 - 11:42
Irena skrifaði:
Ujęcie takie, że nie widać jaki to model :(
28.12.2017 - 15:39
Lazy Summer#lazysummersweater |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa með áferðamynstri og laskalínu. prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.
DROPS 191-10 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 13,7. Í þessu dæmi þá er slegið uppá prjóninn til skiptis eftir ca 13. og 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við A.1 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjón/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 82-85-88-91-97-102 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 6-15-16-13-19-18 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 88-100-104-104-116-120 lykkjur. Prjónið nú mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið 8-11-12-11-14-15 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= 11 lykkjur, laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-6-6-8-8-8 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn,16-22-24-22-28-30 lykkjur slétt (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-6-6-8-8-8 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8-11-12-11-14-15 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram svona hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 19-21-23-25-27-29 sinnum = 240-268-288-304-332-352 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka á stykkið að mælast 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður. Ef stykkið er styttra en þetta er haldið áfram með mynstur eins og áður (án þess að auka út fleiri lykkjur) þar til stykkið hefur náð réttu máli. Næsta umferð er prjónuð í sléttprjóni þannig: Prjónið 34-38-40-43-47-51 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 52-58-64-66-72-74 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 68-76-80-86-94-102 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 52-58-64-66-72-74 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 34-38-40-43-47-51 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-164-176-188-208-224 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi = 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 172-188-200-212-232-248 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 38 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón/sokkaprjóna. Setjið 52-58-64-66-72-74 lykkjur af bandi á annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5,5 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 58-64-72-74-82-84 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýju lykkjurnar – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-14-17-17-20-20 sinnum = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 33-33-32-29-28-26 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur. Ermin mælist 34-34-33-30-29-27 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lazysummersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.