Heike skrifaði:
Sorry für die dumme Frage... Hab den Fehler gefunden
03.06.2024 - 23:09
Heike skrifaði:
Ich stricke die Jacke in xl und habe eine frage zum Rumpfteil. Bei 250 Maschen nehme ich unter den Ärmeln je 12 Maschen zu und habe dann 274 Maschen auf der Nadel. Dann werden noch gesamt 24 Maschen zugenommen, also sind es 298 Maschen und nicht wie in der Anleitung 274 Maschen. Habe ich einen Rechenfehler?
03.06.2024 - 21:21DROPS Design svaraði:
Liebe Heike, die 12 Maschen unter jeder Ärmel gehörten zu den 250 Maschen, dh bei der Verteilung haben Sie: 59 M (linkes Vorderteil), 12 M (unter 1. Ärmel), 108 M (Rückenteil), 12 M (unter 2. Ärmel), 59 M (rechtes Vordreteil) = 59+12+108+12+59=250. Viel Spaß beim Stricken!
04.06.2024 - 08:08
Maritta Jattu skrifaði:
Miksi helman aina oikein osa kääntyy ylöspäin?
09.05.2022 - 13:00DROPS Design svaraði:
Hei, kostuta tai höyrytä neule kevyesti, niin reuna ei käänny ylöspäin.
19.05.2022 - 17:19
Gabriela Barca skrifaði:
Hello, could you please tell in centimeters the length of the raglan , I mean measured from the neck to underarm, for size XL.Thank you!
19.05.2021 - 19:40DROPS Design svaraði:
Dear Gabriela, all the relevant measurements, that we have on this pattern, can be found in the schematic drawing at the bottom of the pattern. Just below the diagrams. Happy Knitting!
20.05.2021 - 00:22
Sandra Huckaby skrifaði:
Thank you for the prompt answer regarding the chart. I am still confused about how to work increases into the pattern.
12.12.2019 - 14:21DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Huckaby, the increases for the raglan are simply worked in stocking stitch; the yarn overs in diagrams are worked as shown in diagram (= purl from WS), but these are not increased, these are for the lace patterns. Happy knitting!
12.12.2019 - 14:24
Sandra Huckaby skrifaði:
191-19 after completing 1st inc row for raglan under yoke, how are extra sts worked when continuing in pattern Charts: are the even # rows worked on the wrong side behind odd # rows
12.12.2019 - 13:05DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Huckaby, first row in diagrams (and every odd numbered row) is worked from RS and every even numbered rows are worked from WS. Increases for raglan are worked in stocking stitch. Happy knitting!
12.12.2019 - 14:14Sujata skrifaði:
How can I knit this pattern in down to up pattern, please guide, with regards.
14.11.2018 - 06:39DROPS Design svaraði:
Dear Sujata, you would have to completely readjust the pattern, it would be much easier to work top down as explained in the pattern, or then look for another pattern worked bottom up if you rather. Happy knitting!
14.11.2018 - 09:00Rosie skrifaði:
The neckline an tension look different in the two pictures, is the first one knitted on larger needles?
28.06.2018 - 07:42DROPS Design svaraði:
Dear Rosie, both ladies in the pictures are wearing the same jacket, so tension is the same on both. Happy knitting!
28.06.2018 - 08:58
Inez Lutjeboer skrifaði:
Voor oudere dames is de hals erg laag. Ze hebben het wat gauwer koud... Hoe is de hals hoger te maken?
08.05.2018 - 10:10DROPS Design svaraði:
Dag Inez, Dit ontwerp is inderdaad met een lage hals. Het is voor ons helaas niet mogelijk om de patronen naar persoonlijke wensen aan te passen. Eventueel kun je ook hulp vragen bij de winkel waar je het garen hebt gekocht.
10.05.2018 - 10:35
Doris skrifaði:
Sehr schön auch mit dem Pullover als Twinset.
25.12.2017 - 09:41
Peonia Cardigan#peoniacardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri, laskalínu og A-formi, prjónuð fram og til baka ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Muskat.
DROPS 191-19 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja sem á að auka/fækka yfir (t.d. 100 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 2,8. Í þessu dæmi er aukið út með 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum jafnt yfir, prjónið ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út hvoru megin við mynstureiningu A.2 (= 8 útaukningar í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það á að myndast gat. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu með ca 8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 111-115-119-123-128-136 lykkjur á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 21-21-25-29-32-32 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA, (en ekki yfir 5 ystu lykkjur í hvorri hlið) = 132-136-144-152-160-168 lykkjur – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð er mynstur prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 10 lykkjur), 3-4-6-8-10-12 lykkjur sléttprjón, (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= 12 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 26-28-32-36-40-44 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3-4-6-8-10-12 lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), A.1, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 22-25-27-30-33-36 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning) = 308-336-360-392-424-456 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma og A.1 + 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti og niður meðfram kanti við miðju að framan. Haldið áfram með mynstur eins og áður og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 46-50-54-59-64-69 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 67-73-77-83-89-95 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 82-90-98-108-118-128 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 67-73-77-83-89-95 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 46-50-54-59-64-69 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-210-230-250-274-298 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (þ.e.a.s. mitt á milli 10-10-12-12-14-16 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorir hlið). Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og A.1 + 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 12.-12.-14.-14.-14.-14. hverri umferð alls 7-7-6-6-6-6 sinnum = 222-238-254-274-298-322 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-31-32-32-32-32 cm frá skiptingu er skipt yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 67-73-77-83-89-95 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-83-89-95-103-111 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur sem prjónaðar voru upp í hvorri hlið (= mitt undir ermi/hlið á peysu). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 15-18-20-22-26-29 sinnum = 47-47-49-51-51-53 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 44-42-42-40-39-37 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #peoniacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.