Olga skrifaði:
Hallo! Ich möchte diese Jacke mit Fabel Stricken, muss ich da auch mit zwei Knäueln arbeiten damit man schönere Muster bekommt?
20.03.2018 - 23:25DROPS Design svaraði:
Liebe Olga, die Farbverläufen sind unterschiedlich im Fabel (Print oder Long Print) und Delight, das sollen Sie dann selbst entscheiden, wie Sie am besten möchten, Ihr DROPS Laden wird Ihnen auch gerne damit helfen. Viel Spaß beim stricken!
21.03.2018 - 09:25
Billaudel Nathalie skrifaði:
Je viens de commencer le gilet Cecina et ne ne comprends absolument rien à vos explications pour le raglan. Où puis je trouver plus d’informations ?
11.03.2018 - 19:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Billaudel, n'hésitez pas à bien expliquer ici ce que vous ne comprenez pas, en indiquant bien la taille que vous tricotez. Pour toute assistance personnalisée, vous pouvez également contacter le magasin où vous avez acheté votre laine, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
12.03.2018 - 11:03
Sara skrifaði:
What are the finished measurements - particularly bust size and length for this pattern?
05.03.2018 - 16:24DROPS Design svaraði:
Dear Sara, you can find the diagram with the schematics and measurements at the bottom of the page, below the pattern. Happy Knitting!
05.03.2018 - 16:32
Katrin skrifaði:
Die Farben des Garns auf diesem Foto gefallen mir so gut! Wenn sie in der Realität so aussehen, würde ich sie sofort kaufen. Auf der Garnqualitäten- Seite sind sie aber deutlich „schriller“ abgebildet.. :-(
12.12.2017 - 19:26
Cecina#cecinacardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa í garðaprjóni með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Delight.
DROPS 188-25 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. RENDUR: Til að flíkin verði meira röndótt er prjónað til skiptis með 2 dokkum með sama lit, passið uppá að dokkurnar byrji með 2 mismunandi litum. * Prjónið 2 umferðir með fyrri dokkunni, prjónið 2 umferð með seinni dokkunni *, prjónið frá *-*. Fyrsta umferð með nýrri dokku er prjónuð frá réttu. Þræðirnir fylgja með í stykkinu. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 1½ cm. Fellið síðan af fyrir 7 næstu með ca 7-7½-8-8-8½-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 132-136-144-148-156-160 lykkjur á hringprjón 3 með Delight. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjum garðaprjón og 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan, til loka. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 16-17-19-20-22-23 lykkjur í garðaprjóni (= vinstra framstykki), A.1 (= 7 lykkjur), 15 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir 7 lykkjur (= vinstri ermi), 32-34-38-40-44-46 lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), A.1 yfir 7 lykkjur, 15 lykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 7 lykkjur (= hægri ermi), 16-17-19-20-22-23 lykkjur í garðaprjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Útauknar lykkjur í A.1 eru prjónaðar í sléttprjóni, aukið út um 2 lykkjur í hverju mynstri A.1 í hverri umferð frá réttu (= alls 8 lykkjur fleiri í annarri hverri umferð). Prjónið A.1 alls 4-8-13-13-16-19 sinnum á hæðina = 164-200-248-252-284-312 lykkjur. Prjónið síðan A.2 yfir A.1. Aukið út um 2 lykkjur í hverju A.2 í 4. hverri umferð (= alls 8 lykkjur fleiri í 4. hverri umferð). Prjónið A.2 alls 15-14-13-16-16-16 sinnum = 284-312-352-380-412-440 lykkjur. Prjónið síðan A.3 yfir A.2, aðrar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 21-23-24-26-28-31 cm frá uppfitjunarkanti skiptist stykkið frá réttu þannig: Prjónið 43-46-52-57-63-69 lykkjur garðaprjón (= vinstra framstykki), setjið næstu 60-68-76-80-84-86 lykkjur á þráð fyrir ermi (= vinstri ermi), fitjið upp 12 nýjar lykkjur undir ermi, 77-83-95-105-117-129 lykkjur garðaprjón (= bakstykki), setjið næstu 60-68-76-80-84-86 lykkjur á þráð fyrir ermi (= hægri ermi), fitjið upp 12 nýjar lykkjur undir ermi og endið með 44-47-53-58-64-70 lykkjur garðaprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 188-200-224-244-268-292 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki 49-52-58-63-69-75 lykkjum inn frá hvorri hlið á stykki (= framstykki = 90-96-108-118-130-142 lykkjur á bakstykki). Látið prjónamerkið verða eftir í stykkinu, prjónamerkið fylgir áfram með í stykkinu. Haldið áfram í garðaprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 2 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-3-4-5-5-4 cm millibili alls 6-8-7-6-6-7 sinnum = 212-232-252-268-292-320 lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-32-33-33-33-32 cm aukið út um 28-32-36-36-40-44 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 240-264-288-304-332-364 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 2 cm (stykkið mælist alls 55-57-59-61-63-65 cm frá kanti í hálsi). Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. ERMI: Setjið 60-68-76-80-84-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af 12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-80-88-92-96-98 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Stykkið er prjónað í hring. Setjið 1 prjónamerki mitt í 12 lykkjur sem teknar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn verða eftir í stykkinu, prjónamerkið fylgir áfram með í stykkinu! Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og rendur. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum cm alls 0-7-11-14-17-17 sinnum, síðan í 3. hverjum cm alls 13-9-8-6-4-4 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-40-40-38-36-34 cm frá merkiþræði er aukið út um 2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm (stykkið mælist alls 65-65-66-66-66-67 cm frá kanti í hálsmáli) fellið af með sléttum lykkjum, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cecinacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.