Kate Andersen skrifaði:
Flot skøn tunika. Men AK der er ikke overensstemmelse mellem modellen og mønsteret. Jeg følger nøjagtig mål og strikkefastheden og Ifølge mønstret bliver det en meget kort V udskæring men hvis vi ser på den viste model så er der en lang flot V udskæring. Indtagningen på modellen starter ved starten af et \"blad\" men ifølge mønstret starter indtagningen først halvt oppe på \"bladet\"! Ifølge mønstret går V hals helt til halsen. Håber på hurtig svar. Mvh Kate
26.03.2018 - 15:15DROPS Design svaraði:
Hej Kate, Jeg kan se hvad du mener. Forklaringen er nok at der ifølge diagrammet bliver en naturlig indtagning når man hopper et omslag over i siden mod V-halsen. Jeg kan spørge Design men du må ikke regne med at diagrammet bliver lavet om. :)
04.04.2018 - 14:47
Else skrifaði:
Jeg mangler angivelser af symboler i alle felter under beskrivelsen af diagrammet
04.03.2018 - 12:50DROPS Design svaraði:
Hej Else, diagram-symboler og tekster finder du lige over diagrammerne (mellem opskriften og diagrammerne) God fornøjelse!
06.03.2018 - 17:02
Carinne skrifaði:
Bonjour Pouvez vous me dire quand les explications de ce modèle seront mises en ligne ? Merci
07.02.2018 - 17:29Amel skrifaði:
Très joli style
26.01.2018 - 10:55
Katja Desmidt skrifaði:
Het onderste gedeelte tot aan de taille langer breien en je hebt een mooi los zomerkleedje of strandkleedje
24.12.2017 - 13:14
Portofino#portofinotunic |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð tunika með gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.
DROPS 187-16 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Til að fá kantinn að framan fallegan þegar úrtaka fyrir hálsmáli byrjar, prjónið stuttar umferðir yfir síðustu 4 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar A.7 er prjónað, prjónið stuttar umferðir frá réttu þannig: Prjónið allar lykkjur í umferð, snúið og prjónið sléttar lykkju yfir 4 lykkjur í kanti að framan, snúið, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 4 lykkjur í kanti að framan, snúið og prjónið næstu umferð til baka yfir allar lykkjur. Þegar A.7b er prjónað, prjónið stuttar umferðir frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 4 lykkjur í kanti að framan, snúið og prjónið sléttar lykkjur yfir 4 lykkjur í kanti að framan, snúið og prjónið eins og áður yfir allar lykkjur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka neðan frá og upp í tveimur stykkjum og saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 99-117-135-153 lykkjur á hringprjón 5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið mynstur þannig: 4 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 10 lykkjur), A.2 (= 18 lykkjur) 4-5-6-7 sinnum á breidd, A.3 (= 9 lykkjur), 4 lykkjur garðaprjón. Á eftir fyrstu umferð í A.1 til A.3 eru 89-105-121-137 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 til A.3 er lokið er haldið áfram í sléttprjóni og 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 26-28-30-32 cm. Prjónið nú mynstur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 2-0-4-2 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) þannig: 4 lykkjur garðaprjón, A.4 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.4, 4 lykkjur garðaprjón = 87-105-117-135 lykkjur. Í næst síðustu umferð í A.4 er aukið út um 3-1-5-3 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) = 90-106-122-138 lykkjur. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 45-53-61-69 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir hægra framstykki. Haldið áfram yfir síðustu 45-53-61-69 lykkjur (= vinstra framstykki). VINSTRA FRAMSTYKKI: = 45-53-61-69 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið mynstur frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, A.5a (= 2 lykkjur), A.5b (= 4 lykkjur) yfir næstu 8-16-24-32 lykkjur, A.5c (= 3 lykkjur), A.6 (= 5 lykkjur), A.7a (= 23 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 10-10-8-8 cm eru fitjaðar upp 8 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá röngu = 53-61-69-77 lykkjur. Haldið áfram með mynstur frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, A.5a, A.5b yfir næstu 16-24-32-40 lykkjur og haldið áfram með A.5c, A.6 og A.7a eins og áður. Í umferð með stjörnu í A.7a eru prjónaðar stuttar umferðir svo að kantur að framan liggi fallega – lesið LEIÐBEININGAR! Þegar allt mynstur A.7a hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 44-52-60-68 lykkjur fyrir öxl og stykkið mælist ca 38 cm í öllum stærðum. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af – en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Stykkið mælist ca 68-70-72-74 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 45-53-61-69 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið mynstur frá réttu þannig: A.7b (= 23 lykkjur), A.6 (= 5 lykkjur), A.8a (= 3 lykkjur), A.8b (= 4 lykkjur) yfir næstu 8-16-24-32 lykkjur, A.8c (= 2 lykkjur), 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 10-10-8-8 cm fitjið upp 8 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 53-61-69-77 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka í mynstri eins og áður, en yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar sléttar lykkjur. Haldið áfram með mynstur frá réttu þannig: A.7b, A.6 (= 5 lykkjur), A.8a, A.8b yfir næstu 16-24-32-40 lykkjur, A.8c, 4 lykkjur garðaprjón. Í umferð með stjörnu í A.7b eru prjónaðar stuttar umferðir alveg eins og á vinstri kant að framan, nema spegilmynd svo að kanturinn að framan liggi fallega – munið eftir LEIÐBEININGAR! Þegar allt mynstur A.7b hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 44-52-60-68 lykkjur fyrir öxl og stykkið mælist ca 38 cm í öllum stærðum. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af – en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Stykkið mælist ca 68-70-72-74 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið alveg eins og framstykki fram að A.4. Stykkið mælist nú 26-28-30-32 cm. Prjónið nú mynstur JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 2-0-4-2 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) þannig: 4 lykkjur garðaprjón, A.4 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.4, 4 lykkjur garðaprjón = 87-105-117-135 lykkjur. Í næst síðustu umferð í A.4 er aukið út um 4-2-6-4 lykkjur jafnt yfir = 91-107-123-139 lykkjur. Þegar allt mynstur A.4 hefur verið prjónað til loka er sett prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið mynstur þannig: 4 lykkjur garðaprjón, A.5a (= 2 lykkjur), A.5b (= 4 lykkjur) yfir næstu 8-16-24-32 lykkjur, A.5c (= 3 lykkjur), A.6 (= 5 lykkjur), A.9a (= 47 lykkjur), A.6 (= 5 lykkjur), A.8a (= 3 lykkjur), A.8b (= 4 lykkjur) yfir næstu 8-16-24-32 lykkjur, A.8c (= 2 lykkjur), 4 lykkjur garðaprjón. Þegar fyrstu 2 umferðir í A.9a hafa verið prjónaðar, endurtakið A.9b alls 3 sinnum á hæðina, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-8-8 cm eru fitjaðar upp 8 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir ermar = 107-123-139-155 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur frá réttu: 4 lykkjur garðaprjón, A.5a (= 2 lykkjur), A.5b (= 4 lykkjur) yfir næstu 16-24-32-40 lykkjur, A.5c (= 3 lykkjur), A.6 (= 5 lykkjur), A.9a (= 47 lykkjur), A.6 (= 5 lykkjur), A.8a (= 3 lykkjur), A.8b (= 4 lykkjur) yfir næstu 16-24-32-40 lykkjur, A.8c (= 2 lykkjur), 4 lykkjur garðaprjón. Þegar A.9b hefur verið prjónað til loka alls 3 sinnum á hæðina eru prjónaðar síðustu 4 umferðirnar í mynstri A.9a. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 30-38-46-54 lykkjur, prjónið A.9c (= 14 lykkjur) og setjið þessar 44-52-60-68 lykkjur á þráð (= hægri öxl), fellið af næstu 19 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið A.9d (= 14 lykkjur), prjónið síðustu 30-38-46-54 lykkjur eins og áður. Prjónið nú fram og til baka yfir síðustu 44-52-60-68 lykkjur sem voru prjónaðar yfir eftri affellingarkantinn í hálsmáli (= vinstri öxl). Haldið áfram fram og til baka þar til A.9d hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar 44-52-60-68 lykkjur. Fellið af – en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Stykkið mælist ca 68-70-72-74 cm frá öxl og niður. Setjið til baka 44-52-60-68 lykkjur af þræði á hringprjón 5 og haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til A.9d hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar 44-52-60-68 lykkjur. Fellið af – en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Stykkið mælist ca 68-70-72-74 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! Saumið saum undir ermum og haldið síðan áfram niður yfir fram- og bakstykki niður að fyrstu umferð í A.4, svo að það verði klauf í hlið frá A.4 og niður. Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið saman kant að framan við miðju að framan með því að sauma í ystu lykkjubogana á lykkjum eina og eina upp frá fyrstu umferð í A.7a/A.7b og þar til eftir eru ca 14 umferðir í garðaprjóni þar til úrtaka í hálsmáli byrjar. TVINNUÐ SNÚRA OG SKÚFAR: Klippið 2 þræði ca 65 cm. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum hvern kant að framan ca 12 umferðum á undan þar sem úrtaka í hálsmáli byrjar og hnýtið einn hnút. Klipið 15 þræði ca 18 cm. Þræðið þeim í gegnum enda á tvinnuðu snúrunni og skiptið þráðunum þannig að þeir liggi jafnt. Vefjið þræði í kringum skúfinn, herðið að og hnýtið hnút. Endurtakið á hinum endanum á snúrunni þannig að það verða tveir eins skúfar á hvorum enda á snúru. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #portofinotunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.