Elvi skrifaði:
Vielen Dank fuer diese schoene Anleitung. Ich habe ein Problem mit der Maschenaufteilung. Die Gesamtzahl der Maschen wird durch 5 geteilt. Ein Nadelspiel hat aber nur 4 Maschen plus eine Arbeitsnadel. Daher habe ich nach der Abnahme von 7 Maschen keine 88 Maschen auf der Nadel sondern nur 68. Ist das ein Fehler oder habe ich es falsch Verstanden. Vielen Dank fuer Ihre Hilfe.
07.05.2022 - 11:07DROPS Design svaraði:
Liebe Elvi, wenn Sie die Maschen mit je einem Rapport von A.1 einteilen möchten, dann könnne Sie je 1 Rapport (=23 M) auf je einer Nadel 3 Mal teilen und auf die letzte haben Sie dann 2 Rapporte, so haben Sie richtig: 23+23+23+46= 115 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
09.05.2022 - 08:25
Mária skrifaði:
Üdv! Köszönöm a gyönyörű mintát! Sajnos, eredeti nyelven nem tudom elolvasni, de a magyar leírásban szerintem hiba van. Azt írja, a hátulja mintánál minden második körben, öt alkalommal, majd minden körben még tíz alkalommal fogyasszunk. Ez szerintem így nem jó! Egy darabon megkötöttem, majd lebontottam. A kép alapján próbálok rájönni, mi a helyes fogyasztás. Először minden negyedik, majd minden második sorban? Köszönöm a segítséget!
19.11.2020 - 22:13
Ancient Dreams#ancientdreamssocks |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir háir sokkar með sólfjaðrakanti og gatamynstri úr DROPS Nord. Stærð 35-43.
DROPS 189-37 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um miðju aftan á sokk): Byrjið 2 lykkjum á undan A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.3 (= 5 lykkjur), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um tá): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtöku með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 15-15-17 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. Byrjun á umferð = miðja að aftan. SOKKUR: Fitjið aðeins laust upp 115 lykkjur í öllum stærðum á sokkaprjóna 2,5 með Nord. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 5 mynstureiningar með 23 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 85-95-95 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2 hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 3-7-1 lykkjur jafnt yfir = 82-88-94 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan byrjun á umferð, prjónið A.3 (= 5 lykkjur – miðjulykkja í A.3 = miðja að aftan), prjónið 32-35-38 lykkjur sléttprjón, A.4 (= 13 lykkjur), 32-35-38 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm frá uppfitjunarkanti (mælt þar sem er styst), fækkið um 2 lykkjur við miðju að aftan – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 8. hverri umferð alls 4-5-6 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 10-10-10 sinnum = 54-58-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-36-38 cm þar sem það er styst (úrtaka að aftan á nú að vera lokið), prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 41-44-47 lykkjur slétt, setjið síðustu 27-29-31 lykkjur sem voru prjónaðar (af þessum 41-44-47 lykkjum) á þráð (= mitt ofan á fæti), prjónið sléttar lykkjur yfir þær 13-14-15 lykkjur sem eftir eru = 27-29-31 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í þessa umferð – stykkið er síðan mælt héðan frá þessu prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Á eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 15-15-17 lykkjur frá hæl, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið 27-29-31 lykkjur sem eftir eru á þræði (haldið áfram með A.4 í réttri umferð miðað við hvar endað var áður en hællinn byrjaði) og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram annarri hlið á hæl = 68-72-80 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 27-29-31 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn, en haldið áfram með A.4 mitt ofan á fæti eins lengi og hægt er fram að úrtöku fyrir tá (endið eftir heila mynstureiningu á hæð). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 27-29-31 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum á hvorri hlið = 52-56-60 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 17-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 5-5-6 cm til loka og A.4 á nú að vera lokið eftir heila mynstureiningu á hæðina). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-7-8 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4-5-5 sinnum = 8 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. Klippið silkiborða í tvo jafn langa hluta. Byrjið við miðju að aftan á öðrum sokknum og þræðið silkiborðann upp og niður í gegnum gataumferð (A.2) efst á sokknum. Hnýtið litla slaufu við miðju að aftan. Gerið það sama við hinn sokkinn. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ancientdreamssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.