Daniela skrifaði:
Sono alla parte in cui si lasciano sui fermamaglie le maglie corrispondenti alle maniche
27.02.2020 - 00:06DROPS Design svaraði:
Buongiorno Daniela. Nel video che alleghiamo, a partire dal minuto 7:00 , trova spiegato come mettere in attesa le maglie delle maniche e avviare le nuove maglie sotto le maniche. Buon lavoro!
27.02.2020 - 09:18
Daniela skrifaði:
Salve, come e su quale ferro si aggiungono le quattro maglie per la manica? Grazie
26.02.2020 - 18:04DROPS Design svaraði:
Buonasera Daniela, può spiegarci meglio a quale parte del modello sta facendo riferimento? Grazie, buon lavoro!
26.02.2020 - 21:14
Geraldine skrifaði:
Como aumento los 4 puntos de las mangas? Dice que tejas una vuelta de derecho y solo se aumenta en las mangas. No entiendo
22.12.2018 - 02:45DROPS Design svaraði:
Hola Geraldine. Se trabajan los aumentos después del marcapuntos entre el cuerpo y la manga y antes del marcapuntos entre la manga y el cuerpo.
30.12.2018 - 15:34
Melinda Fülöp skrifaði:
Hej Ska göra resåret nere på tröjan. Ska man sticka 2 maskor räta och sen fortsätta med 1 rät och 2 aviga? Eller hur menar ni?
25.09.2018 - 14:08DROPS Design svaraði:
Jo, det blir precis så, först 2 rätstickade maskor, sedan 1 rät, 2 aviga, 1 rät, 2 aviga, osv.
26.09.2018 - 14:21
Melinda Fülöp skrifaði:
Hej Har stickat raglanökningen. Har 132 maskor. Ska arbetet mäta 25 cm direkt efter det eller ska man fortsätta sticka tills arbetet mäter det och sen dela av för ärmarna?
12.09.2018 - 18:31DROPS Design svaraði:
Hei Melinda. Arbeidet skal måle 25 cm når alle økninger til raglan er ferdig. Om ikke det gjør det skyldes nok dette en litt stram strikkefasthet. Litt avhengig av hvor mye kortere bærestykket ditt er kan du strikke videre (uten økning til raglan) til arbeidet måler 25 cm. Du kan eventuelt prøve plagget på for å se hvordan det blir. Om du setter av til ermer før arbeidet måler 25 cm blir bærestykket for kort. God fornøyelse
13.09.2018 - 08:08
J De Weme skrifaði:
Kan ik de mouwen ook gewoon rondbreien?
27.08.2018 - 14:08DROPS Design svaraði:
Dag J De Weme, Ja, dat kan. Je hoeft dan geen steken op te zetten aan beide kant van de mouwen, maar in plaats daarvan plaats je een hulpdraad midden onder de mouw en minder je aan beide kanten van de hulpdraad (ipv naast de kantsteken)
27.08.2018 - 21:23
Rita skrifaði:
Cosa significa: 1 giro in cui aumentare solo per il raglan delle maiche (= 4 aumenti sul giro)? grazie rira
05.07.2018 - 21:59DROPS Design svaraði:
Buonasera Rita. Deve lavorare un giro e durante questo giro aumenta per il raglan come fatto in precedenza, ma aumenta solo sulle maglie delle maniche e non aumenta sul davanti e sul dietro. Quindi aumenta dopo il 1° segnapunti e prima del secondo (tra questi segnapunti ci sono le m della manica) e dopo il 3° segnapunti e prima del 4°. Gli aumenti non sono 8, ma solo 4. Buon lavoro!
05.07.2018 - 22:13
Marithé skrifaði:
Comment tricoter ce pull avec des aiguilles droites ?? merci -
20.05.2018 - 06:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Marithé, vous trouverez ici quelques indications vous permettant d'adapter un modèle sur aiguilles droites. Il est parfois plus simple de tricoter en rond, n'hésitez pas à essayer à l'aide de nos vidéos, beaucoup ont réussi à les "dompter" en essayant et ne les lâchent plus. Bon tricot!
22.05.2018 - 08:28
Karin Knöbel skrifaði:
Aus der Anleitung geht nicht hervor wofür die Rundnadel Nr 12 40cm gebraucht wird.Gibt es eine 40cm lange Rundnadel überhaupt in 12mm??
13.05.2018 - 11:03DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Knöbel, die 40 cm Rundnadel wird am Anfang (Halsausschnitt) gebraucht, dh wenn es zu wenig Maschen für die 80 cm Nadel gibt - Diese Nadel können Sie mit dem Set und austauchbare Spitze haben. Gerne können Sie auch mit dem Magic-Loop technik stricken. Viel Spaß beim stricken!
14.05.2018 - 10:49
Aleksandra Karolina Strugacz skrifaði:
Den har jeg lyst å strikke :-)
01.01.2018 - 21:47
Wild Berries#wildberriessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu, ¾ langar ermar og klauf í hliðum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 1 þræði DROPS Big Delight og 1 þræði DROPS Melody.
DROPS 191-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið fram að 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – það á að myndast gat! ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 18. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 18. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið síðustu lykkju á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað í hring á hringprjón, síðan er fram- og bakstykki prjónað niður að klauf í hvorri hlið og að lokum er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 36-39-39-42-42-45 lykkjur á hringprjón 12 með 1 þræði Bid Delight og 1 þræði Melody (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-1-3-8-10-9 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 38-40-42-50-52-54 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjur þannig: Setjið fyrsta prjónamerkið eftir 7-8-8-10-11-11 lykkjur (= hálft bakstykki), annað prjónamerki eftir 4 nýjar lykkjur (= ermi), þriðja prjónamerkið eftir 15-16-17-21-22-23 nýjar lykkjur (= framstykki), fjórða prjónamerkið eftir 4 nýjar lykkjur (= ermi) nú eru 8-8-9-11-11-12 lykkjur eftir fyrir hálft bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-11-11-12-13-14 sinnum = 118-128-130-146-156-166 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónuð 1 umferð slétt, síðan er prjónuð 1 umferð þar sem aukið er út fyrir laskalínu einungis á ermum (= 4 lykkjur fleiri í umferð) = 122-132-134-150-160-170 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið á nú að mælast 23-25-25-27-29-31 cm frá prjónamerki á eftir stroffi í hálsmáli við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 17-19-19-22-24-25 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 26-28-28-30-32-34 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-6-6-6-6 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 35-38-39-45-48-51 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 26-28-28-30-32-34 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-6-6-6-6 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 18-19-20-23-24-26 lykkjur sem eftir eru á prjóni (= hálft bakstykki). Setjið eitt prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 78-84-90-102-108-114 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir hvorri ermi (= 2-2-3-3-3-3 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2 = 82-88-94-106-112-118 lykkjur. Haldið síðan áfram hringinn þar til stykkið mælist 16-16-18-18-18-18 cm. Klippið frá. Setjið 41-44-47-53-56-59 lykkjurnar á milli 2 prjónamerkja á framstykki á þráð og haldið áfram fram og til baka yfir 41-44-47-53-56-59 lykkjur á bakstykki þannig – frá réttu: 2 lykkjur garðaprjón, (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. Setjið til baka 41-44-47-53-56-59 lykkjur af þræði á hringprjón og prjónið stroff á framstykki á sama hátt og á bakstykki. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin. Setjið til baka 26-28-28-30-32-34 lykkjur af þræði á hringprjón 12 og fitjið upp 2-2-3-3-3-3 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 3-2-3-3-4 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við stykki – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-3-3-2-2-1 cm millibili alls 5-6-6-7-7-8 sinnum = 20-20-22-22-24-24 lykkjur. Þegar ermin mælist 19-17-18-16-15-14 cm prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 1-1-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 21-21-24-24-24-24 lykkjur. Prjónið stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 2 lykkjur, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Haldið svona áfram með stroff með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist ca 27-25-26-24-23-22 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wildberriessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.