Laura skrifaði:
Hello, at the moment knitting sleeves of this sweater, shouldn’t it be on DECRASE TIP 2, 4 stitches remaining before marker thread instead of 2, because when i leave 2 sts before, marker thread does not comes in the middle of 4 moss sts, or i’m understand something wrong? Thank you
28.08.2018 - 22:07DROPS Design svaraði:
Dear Laura, We are sending your question do our design team so they can check it out. Should there be any correction, please check back the pattern for any correction. Happy Knitting!
30.08.2018 - 13:46
Helen skrifaði:
Love this pattern & have downloaded it ........... however ....... I have a wish - it would be so much easier if your patterns had actual measurements instead of "S - XXXL" :) That simple change would avoid one having to look at the diagram, double the cm to see the all-around dimension, convert to inches (if you are me) and repeat if you wish to compare sizes ......... Failing that, perhaps a size chart included in the Terms & Sizes section?
07.05.2018 - 13:57DROPS Design svaraði:
Dear Helen, since different styles require different ways of fitting, different ease for example, also people prefer different ease, we do not have a general sizing chart. Giving the "S-XXXL" type of sizing will give you the idea which size would be suitable, but you also cannot avoid to chek the measurements for each individual patterns. Happy Crafting!
12.05.2018 - 08:20
Zenatti skrifaði:
Pouvez vous m,envoyer un modèle de pull en LIMA manches raglan mais qui ne se tricote pas en rond et l,encolure en V
19.03.2018 - 09:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Zenatti, vous trouverez ici tous nos modèles de pulls femme dans les laines du groupe B (= comme Lima). Vous pourrez ajuster la quantité à l'aide de notre convertisseur. Bon tricot!
19.03.2018 - 11:20
Zenatti skrifaði:
J’aimerais faire un pull raglan en LIMA pour femme mais pas en rond car je ne peux pas tricoter en rond
17.03.2018 - 13:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Zenatti, vous trouverez ici quelques indications pour vous aider à ajuster les explications, n'hésitez pas à contacter votre magasin pour toute assistance complémentaire. Attention toutefois, ce pull se tricote avec 3 fils Kid-Silk, Lima ne vous donnera pas le même échantillon ni les mêmes mesures - voir ici les alternatives possibles. Bon tricot!
19.03.2018 - 09:28
Ella skrifaði:
Loara
26.01.2018 - 09:49
Ginny skrifaði:
This sweater is AMAZING!! I cannot wait to knit it! I always love the babyalpaca with kid silk!!!! However, could please start adding the size the model is wearing? It can be very frustrating, because I'll knit something for my size and it won't have the same fit because the model might be wearing Medium instead of her Xs.
25.01.2018 - 11:02
Joanne Coull skrifaði:
I love this pattern . When will it be available. Have just the wool for it in my stash.
24.01.2018 - 17:37
Lisette Van Raadshooven skrifaði:
Love this one! Beautiful colour combo.
16.01.2018 - 20:59
Marit Gåseidnes skrifaði:
Blir en meget lett og luksøriøs genser. Gleder meg.
03.01.2018 - 16:14
Malene skrifaði:
Hvor er den fin - hvor og hvornår kan jeg få fat i opskriften?
21.12.2017 - 14:02
Blackberry Crush#blackberrycrushsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu, röndum og perlugprjóni (tvöfalt á hæðina), prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk.
DROPS 187-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. PERLUPRJÓN (tvöfalt á hæðina): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 4: Eins og umferð 2. Endurtakið umferð 1 til 4. RENDUR (berustykki og fram- og bakstykki): RÖND 1: 3 þræðir í litnum kirsuber í 23-23-24-25-25-26 cm. RÖND 2: 2 þræðir í litnum kirsuber + 1 þráður í litnum gráblár (= 3 þræðir) í 8-9-9-9-10-10 cm. RÖND 3: 1 þráður í litnum kirsuber + 2 þræðir í litnum gráblár (= 3 þræðir) í 8-9-9-9-10-10 cm. RÖND 4: 3 þræðir í litnum gráblár í 24-24-25-26-26-27 cm. RENDUR (ermi): RÖND 1: Haldið áfram með 2 þræði í litnum kirsuber + 1 þráður í litnum gráblár (= 3 þræðir) þar til prjónaðar hafa verið alls 8-9-9-9-10-10 cm (þ.e.a.s. ca 0-2-3-4-5-6 cm á berustykki og ca 8-7-6-5-5-4 cm á ermi). RÖND 2: 1 þráður í litnum kirsuber + 2 þræðir í litnum gráblár (= 3 þræðir) í 8-9-9-9-10-10 cm. RÖND 3: 3 þræðir í litnum gráblár til loka (ca 21-19-19-18-17-16 cm). LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í perluprjón (tvöfalt á hæðina). ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 19. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 18. og 19. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur perluprjón (= prjónamerki er staðset mitt í þessum lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón. Stykkið er prjónað með 3 þráðum Kid-Silk. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-84-88-96 lykkjur með 3 þráðum í litnum kirsuber á stuttan hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 72-76-80-80-84-92 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki við miðju að aftan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 6. BERUSTYKKI: Prjónið nú RENDUR (berustykki og fram- og bakstykki) – sjá útskýringu að ofan og mynstur þannig: 7-8-9-9-10-12 lykkjur PERLUPRJÓN (tvöfalt á hæðina) – sjá útskýringu að ofan, (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= 6 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur perluprjón (tvöfalt á hæðina) (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 17-19-21-21-23-27 lykkjur perluprjón (tvöfalt á hæðina) (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkju perluprjón (tvöfalt á hæðina) (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8-9-10-10-11-13 lykkjur perluprjón (tvöfalt á hæðina) (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fyrstu útaukningu fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið svona áfram og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 22-23-25-27-29-31 sinnum = 248-260-280-296-316-340 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 23-25-27-29-30-32 cm frá prjónamerki við miðju að aftan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 32-34-37-39-42-46 lykkjur (= hálft bakstykki), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og setjið næstu 58-60-64-68-72-76 lykkjur á þráð (= ermi), prjónið næstu 67-71-77-81-87-95 lykkjur (= framstykki), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermum), setjið næstu 58-60-64-68-72-76 lykkjur á þráð (= ermi), prjónið þær 33-35-38-40-43-47 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-152-168-176-192-208 lykkjur. Haldið áfram í perluprjóni og röndum eins og áður þar til stykkið mælist 40-40-40-40-41-41 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca. 4. hverja lykkju, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. Stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 58-60-64-68-72-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum mitt undir ermi = 64-66-72-76-82-86 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur í hlið undir ermi. Haldið áfram með tvöfalt perluprjón á hæðina og RENDUR (ermi) – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-3.-2.-2.-2. hverri umferð alls18-18-21-22-25-26 sinnum = 28-30-30-32-32-34 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 33-31-30-28-28-26 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 32-36-36-40-40-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 6 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Ermin mælist ca 37-35-34-32-32-30 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blackberrycrushsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.