DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blackberry Crush Cardigan

Prjónuð peysa með laskalínu, röndum og perlugprjóni (tvöfalt á hæðina), prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk.

DROPS 187-39
DROPS Design: Mynstur ks-131
Garnflokkur A + A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-175-200-200-225 g litur 13, kirsuber
150-150-175-200-200-225 g litur 08, gráblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 14 lykkjur og 16 umferðir með sléttprjóni eða 14 lykkjur og 22 umferðir með perluprjóni (tvöfalt á hæðina) með 3 þráðum Kid-Silk verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 17 umferðir með sléttprjóni með 3 þráðum Kid-Silk verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (rauð) NR 610: 4 st í allar stærðir.
DROPS PERLUTALA, Hringlaga (blá) NR 612: 3 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

PERLUPRJÓN (tvöfalt á hæðina):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 4: Eins og umferð 2.
Endurtakið umferð 1 til 4.

RENDUR (berustykki og fram- og bakstykki):
RÖND 1: 3 þræðir kirsuber í 23-23-24-25-25-26 cm.
RÖND 2: 2 þræðir kirsuber + 1 þráður gráblár (= 3 þræðir) í 8-9-9-9-10-10 cm.
RÖND 3: 1 þráður kirsuber + 2 þræðir gráblár (= 3 þræðir) í 8-9-9-9-10-10 cm.
RÖND 4: 3 þræðir gráblár í 24-24-25-26-26-27 cm.

RENDUR (ermi):
RÖND 1: Haldið áfram með 2 þræði kirsuber + 1 þráður gráblár (= 3 þræðir) þar til prjónaðar hafa verið alls 8-9-9-9-10-10 cm (þ.e.a.s. ca 0-2-3-4-5-6 cm á berustykki og ca 8-7-6-5-5-4 cm á ermi).
RÖND 2: 1 þráður kirsuber + 2 þræðir gráblár (= 3 þræðir) í 8-9-9-9-10-10 cm.
RÖND 3: 3 þræðir gráblár til loka (ca 21-19-19-18-17-16 cm).

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1 (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í perluprjón (tvöfalt á hæðina).

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 86 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 15,6. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 15. og 16. hver lykkja slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan.

ÚRTAKA-2 (á við um ermar):
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki,prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur perluprjón (= prjónamerki er staðset mitt í þessum lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT (ofan frá og niður):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 4 cm. Fellið síðan af næstu 6 með ca 10 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón. Stykkið er prjónað með 3 þráðum Kid-Silk.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 86-90-94-94-98-106 lykkjur með 3 þráðum kirsuber á hringprjón 5,5.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til eftir eru 6 lykkjur á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir kanta að framan) – lesið ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 81-85-89-89-93-101 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Munið eftir HNAPPAGAT! Setjið eitt prjónamerki mitt framan í kant að framan.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 6.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú RENDUR (berustykki og fram- og bakstykki) – sjá útskýringu að ofan og mynstur frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 8-9-10-10-11-13 lykkjur PERLUPRJÓN (tvöfalt á hæðina) – sjá útskýringu að ofan, (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= 6 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur perluprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 17-19-21-21-23-27 lykkjur perluprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur perluprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8-9-10-10-11-13 lykkjur perluprjón (= hægra framstykki), 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fyrsta útaukningin fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið svona áfram að auka út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 22-23-25-27-29-31 sinnum = 257-269-289-305-325-349 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 23-25-27-29-30-32 cm frá prjónamerki í kanti við miðju að framan og niður.

Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 37-39-42-44-47-51 lykkjur (= vinstra framstykki), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermum) og setjið næstu 58-60-64-68-72-76 lykkjur á þráð (= ermi), prjónið næstu 67-71-77-81-87-95 lykkjur (= bakstykki), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermum), setjið næstu 58-60-64-68-72-76 lykkjur á þráð (= ermi), prjónið þær 37-39-42-44-47-51 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki).
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 153-161-177-185-201-217 lykkjur. Haldið áfram með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, perluprjóni (tvöföldu á hæðina) og röndum eins og áður þar til stykkið mælist 40-40-40-40-41-41 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 58-60-64-68-72-76 lykkjurnar af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum mitt undir ermi = 64-66-72-76-82-86 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur í hlið undir ermi. Haldið áfram með tvöfalt perluprjón á hæðina og RENDUR (ermi) – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-3.-2.-2.-2. hverri umferð alls 18-18-21-22-25-26 sinnum = 28-30-30-32-32-34 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 33-31-30-28-28-26 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 32-36-36-40-40-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 6 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Ermin mælist ca 37-35-34-32-32-30 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.09.2018
LEIÐRÉTTING: ÚRTAKA-2 (á við um ermar):
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki,

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Louise Désilets wrote:

Tout de suite après la séparation sous les manches, on tricote 42 m., on monte 8 m., ensuite 77 m. mais ensuite, après 77 + 8 m. , ça ne peut plus arriver vu que les77 m. sont impaires, je suis rendue à une m. endroit alors que je dois tricoter envers.

12.05.2022 - 03:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Désilets, lors de la séparation, tricotez les mailles de A.1 comme avant de part et d'autre des 71 mailles du dos, au rang suivant (= sur l'envers), tricotez toutes les mailles au point de blé, même celles de A.1. Bon tricot!

12.05.2022 - 09:09

country flag Zofia wrote:

Czy można w tym wzorze zastąpić podwójny ryż pojedynczym?

29.10.2021 - 12:05

DROPS Design answered:

Witaj Zofio! Oczywiście, że tak. Zrób tylko próbkę i ważne aby zgadzała się również na wysokość, z uwagi na reglany. Pozdrawiamy!

29.10.2021 - 12:19

country flag Patricia wrote:

Bonjour, doit-on continuer à faire le diagramme A1 lorsqu'on arrive au dos et devant merci Il est bien dommage que les photos misent en ligne ne soit pas autant exploitable on ne voit que rarement des photos de dos, ni le tricot vraiment porté dans toute sa longueur (les personnes sont souvent assise pliée ) en fait on ne peut pas avoir un vrai rendu de ce que cela va donné au final cordialement

26.10.2020 - 08:30

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, après la division de l'ouvrage, on tricote au point de blé sur toutes la mailles, avec 4 m de bordure devant au point mousse comme avant, autrement dit, on ne tricote plus A.1 sur la partie basse du gilet. Bon tricot!

26.10.2020 - 09:37

country flag Katrīne Kļaviņa wrote:

For this pattern, I don't quite understand how to start and how stiches should I cast on for the beginning. Where can I read on how to understand your pattern information?

13.03.2020 - 17:17

DROPS Design answered:

Dear Katrine, we have a number of videos here and a number of lessons here that can help you make sense of our patterns. Also you can always get help (either in person, or over the phone) in the store where you got your DROPS yarn from. Happy Crafting!

14.03.2020 - 22:13

country flag Sari wrote:

Hei, kun minulla on 161 silmukkaa työssä ja alan neuloa etu- ja takakappaletta (hihat apulangalla), niin en saa helmineuletta oikein: jälkimmäisen hihan kohdalle päädyttyäni huomasin, että kuuden luodun silmukan tienoilla joutuisin tekemään peräkkäin kaksi oikeaa tai nurjaa silmukkaa, jotta kerroksen loppu helmineule menisi oikein. Miten tämä pitäisi tehdä oikeaoppisesti?

28.09.2018 - 15:49

DROPS Design answered:

Hei, helmineuleen pitäisi jatkua rikkoutumattomana, koska apulangalle siirretään parillinen määrä silmukoita ja tilalle luodaan myös parillinen määrä silmukoita.

19.11.2018 - 17:25

Maria Francisca wrote:

Buenas, estoy iniciando las mangas y no se cómo disminuir para que no me queden dos puntos de derecho juntos. Por favor su ayuda. Les saluda. Francisca Gracias y saludos.

13.09.2018 - 04:41

Maria Francisca wrote:

Buenas, estoy iniciando las mangas y no se cómo disminuir para que no me queden dos puntos de derecho juntos. Por favor si ayuda. Gracias y saludos.

13.09.2018 - 04:39

country flag Lonni Eriksen wrote:

Jeg vil gerne strikke denne cardigan ensfarvet i 1tråd Alpaca Silk uni colour + 1 tråd Alpaca uni colour ?

13.08.2018 - 12:47

DROPS Design answered:

Hej Lonne, for at få samme strikkefasthed (for rigtige mål) som der står i opskriften skal du bruge 3 tråde fra garngruppe A (se link i opskriften). God fornøjelse!

14.08.2018 - 13:06

country flag Mercedes wrote:

¡Hola! Muchas gracias por los patrones que comparten. Acabo de empezar esta chaqueta. Tengo el escote, el primer ojal y la primera fila de aumentos para el canesú tal y como se indica en el patrón, pero no puedo avanzar porque no se explica cómo van los aumentos en las siguientes vueltas del canesú (es imposible que sean iguales a la primera). ¿Podrían especificarlo, por favor? Muchas gracias.

08.04.2018 - 00:04

DROPS Design answered:

Hola Mercedes, las siguientes filas del canesú se trabajan como la primera fila del canesú- fíjate en el RAGLÁN.

08.04.2018 - 19:12

country flag Tianna Stokes wrote:

Very nice patterns I've been using for a few years now as love Drops Alpaca Yarns but just lately I can not print or use the patterns off line in iBooks as all the diagrams don't show.

02.03.2018 - 17:08

DROPS Design answered:

Dear Mrs Stokes, make sure your browser is updated, you should see all diagrams/measurement chart. Happy knitting!

05.03.2018 - 07:50