DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Paris yarn
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4862.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Belle Époque

Prjónuð aðsniðin peysa með gatamynstri, laskalínu og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 186-7

#belleepoquecardigan

DROPS Design: Mynstur w-699
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-700-800-850-950-1050 g litur 101, ljós blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni í kringum háls og neðst í kringum báðar ermar.

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – fyrir kant með garðaprjóni neðst niðri á fram- og bakstykki.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4862.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 98 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim fjölda lykkja sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 5,2.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverri lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.2, A.4, A.5, A.7 og A.8). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á ermum og eftir mynsturteikningu á fram- og bakstykki.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Byrjið 4 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-2 (á við um brugðnu mynstureiningarnar á fram- og bakstykki):
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju í hverri brugðnu mynstureiningu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan öllum 2 lykkjum brugðið. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Næst þegar aukið er út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir öllum 3 lykkjum brugðið.
Haldið svona áfram með útaukningu með því að til skiptisauka út í byrjun og í lok á brugðinni mynstureiningu.

ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-4 (á við um mynstureiningu með sléttprjóni yfir A.7/A.8 á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Þegar A.7/A.8 er lokið er prjónað sléttprjón yfir 9-9-9-11-11-11 lykkjurnar með gatamynstri. Aukið yfir þessar 9-9-9-11-11-11 lykkjur þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir með sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsi með garðaprjóni. Fellið síðan af 6-6-6-7-7-7 næsta hnappagat með ca 7-7-7½-7-7½-7½ cm á milli hnappagata.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 98-102-106-110-114-118 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-13-9-15-11-7 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 115-115-115-125-125-125 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 7 lykkjur), A.2 (= 10-10-10-12-12-12 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 (= 8 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur í sléttprjóni (= ermakúpa), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.4 (= 35-35-35-41-41-41 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= ermakúpa), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.5 (= 10-10-10-12-12-12 lykkjur), prjónið A.6 (= 7 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan = 129-129-129-139-139-139 lykkjur (meðtalinn uppsláttur í A.1/A.3/A.6). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til aukið hefur verið út alls 14-18-20-21-24-26 sinnum hvoru megin við A.3 (meðtalin útaukning í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsmáli). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ATH: Þegar A.2/A.4/A.5 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með mynstur alveg eins, en næstu útauknar lykkjur hvoru megin við A.3 eru prjónaðar í sléttprjóni. Í stærð S er útaukning fyrir laskalínu lokið þegar eftir eru 3 umferðir í A.2/A.4/A.5, haldið áfram með mynstur án útaukningar eins og útskýrt er að neðan.
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 237-269-285-303-327-343 lykkjur í umferð ef það er í umferð með 7/8/7 lykkjur í A.1/A.3/A.6 eða 243-275-291-309-333-349 lykkjur ef það er í umferð með 8/9/8 lykkjur í A.1/A.3/A.6.
Haldið áfram með mynstur eins og áður án útaukningar fyrir laskalínu þar til stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan, en endið þannig að síðasta umferð sé umferð með 7/8/7 lykkjur í A.1/A.3/A.6.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með kant að framan, mynstur og sléttprjón eins og áður yfir fyrstu 37-41-43-47-51-55 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 49-57-61-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram í sléttprjóni og mynstur eins og áður yfir næstu 65-73-77-85-93-101 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 49-57-61-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og haldið áfram í sléttprjóni, mynstur og kant að framan yfir þær 37-41-43-47-51-55 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 153-169-181-197-217-237 lykkjur (meðtalinn uppsláttur í A.1/A.6). Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og látið prjónamerki fylgja áfram með í stykkinu.
Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 (= 7 eða 8 lykkjur), prjónið A.7 yfir næstu 22-22-22-26-26-26 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 11-11-11-13-13-13 lykkjur, haldið áfram með slétta umferð í mynstureiningu þar sem mynstrið endaði við skiptingu), prjónið sléttprjón yfir næstu 13-21-27-26-36-46 lykkjur, A.8 yfir næstu 55-55-55-65-65-65 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 11-11-11-13-13-13 lykkjur, haldið áfram með slétta umferð í mynstureiningu), 2 lykkjur brugðið, 13-21-27-26-36-46 lykkjur sléttprjón, A.8 yfir næstu 22-22-22-26-26-26 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 11-11-11-13-13-13 lykkjur, haldið áfram með sléttri umferð í mynsturteikningu), haldið áfram með A.6 (= 7 eða 8 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur.
LESIÐ ALLAN KAFLANN Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

ÚRTAKA Á HLIÐUM:
Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5 sinnum í hvorri hlið = 131-147-159-175-195-215 lykkjur (án uppsláttar í A.1/A.6).

ÚTAUKNING Í BRUGÐNUM MYNSTUREININGUM:
Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni mynstureiningu merktri með ör í mynsturteikning (þ.e.a.s. aukið út í öllum brugðnum mynstureiningum að frábrugðinni einni brugðinni mynstureiningu sem er næst miðju að framan í hvorri hlið = 12 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 6 sinnum í hverri brugðinni mynstureiningu (nú eru 8 lykkjur í hverri af þessum brugðnu mynstureiningum).

ÚTAUKNING Í HLIÐUM:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið.

ÚTAUKNING Í MYNSTUREININGUM MEÐ SLÉTTPRJÓNI:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 15 cm frá skiptingu er A.7 og A.8 endað eftir heila mynstureiningu á hæðina. Síðan eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þessar lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur í hverri mynstureiningu í sléttprjóni yfir A.7/A.8 – lesið ÚTAUKNING-4 (= 18 lykkjur færri).
Endurtakið þessa útaukningu eftir 2 cm (= 18 lykkjur fleiri).

Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 251-267-279-295-315-335 lykkjur í umferð (án uppsláttar í A.1/A.6). Prjónið síðan með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm frá öxl og niður, en stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir í garðaprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 49-57-61-62-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-63-69-70-76-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón í hring.
Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-2-1½-1-1 cm millibili alls 7-10-12-12-14-14 sinnum = 41-43-45-46-48-50 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 26-25-24-21-20-19 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 40-40-40-48-48-48 lykkjur. Prjónið A.9 í hring (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á sokkaprjón 4.
Prjónið 4 umferð garðaprjón hringinn. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 30-29-28-25-24-23 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
brugðið frá réttu, slétt frá röngu = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð <br />
<br />
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
prjónið 3 lykkjur slétt, steypið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar tvær þannig að fyrsta lykkjan liggi utan um hinar tvær = prjónið 3 lykkjur slétt, steypið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar tvær þannig að fyrsta lykkjan liggi utan um hinar tvær
engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
í þessari brugðnu mynstureiningu er aukið út = í þessari brugðnu mynstureiningu er aukið út
Diagram for DROPS 186-7
Diagram for DROPS 186-7
Diagram for DROPS 186-7
Diagram for DROPS 186-7
Diagram for DROPS 186-7

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (65)

country flag Elaine skrifaði:

I am working the body section, size medium., using diagrams A.1, A.6, A.7 and A.8, per the paragraph labeled BODY. In the section INCREASE IN PURL SECTIONS, it indicates to increase 1 stitch in every purl section marked by the arrow. The arrow appears in only diagrams A.1 and A.6. Are these the only places where an increase is made? How are the 12 stitches counted? Within a row? Vertically? The comment about “all purl sections except....” seems to contradict the diagram arrows.

31.08.2020 - 01:38

DROPS Design svaraði:

Dear Elaine, you increase 1 stitch in every Purl section on the needle except in the first P-section and in the Last P-section, ie in A.1 and A.6 increase only in the P-section with the arrow. Happy knitting!

31.08.2020 - 10:13

country flag Elaine skrifaði:

Let me ask the question another way. I am knitting the pattern for size medium. On row 1, RS, right side, there are yarn overs before and after each A.3. On row 2, WS, wrong side, do I also include these same yarn overs before and after each A.3?

20.08.2020 - 20:24

DROPS Design svaraði:

Dear Elaine, the yarn overs described on row 1 under yoke worked on each side of A.3 are for the raglan, these yarn overs are worked only on every right side rows, ie from WS these yarn overs won't be worked. Hope I properly answered your question now, let us know if it is still not the case. Happy knitting!

21.08.2020 - 07:55

country flag Elaine skrifaði:

I am working the pattern for side medium. For the yoke, the number of stitches after the first row is 129. How many stitches should there be after row 2 and row 3? Are the yarn overs around the sleeve cap made on each row?

19.08.2020 - 19:42

DROPS Design svaraði:

Dear Elaine, you will increase for the raglan on every row from RS, this means you increase 8 sts on every row from RS - the number of stitches will then vary depending on the row worked in A.3 - A.1 and A.6 (if you are working a row with yarn over and K3 between purl sts (= as on row 1 and 2 for ex.) or if you decreased (as on row 3 and 4 for ex) - you will then increase 2 sts in A.5, A.2 and A.4 on row 5 - see diagram. You should have 269 or 275 sts after all increases are done and depending on which row you worked. Happy knitting!

20.08.2020 - 10:01

country flag Hege Etterlid skrifaði:

Strikker denne i str M og har lagt opp 102 masker, deretter økt 13 masker = 115 masker. Deretter 5 stolpemasker, A1 (7 masker), A2 (10 masker), 1 kast, A3 (8 masker), 1 kast, 2 masker glattstrikk, 1 kast, A3, 1 kast, A4 (35 masker) 1 kast, A3, 1 kast, 2 m glattstrikk, 1 kast, A3, 1 kast, A5 og A6, 5 stolpemasker. Her er det 8 kast og masketallet skulle bli 123, men i oppskriften står 129. Hva er rett? Hvor mange masker skal det være etter 18 raglanøkninger i str M?

11.07.2020 - 00:04

DROPS Design svaraði:

Hej Hege, således tæller du: 5 +7+10, 1 kast +8, 1 kast+ 2, 1 kast, +8, 1 kast, 35, lag 1 kast, 8, lag 1 kast, 2, lag 1 kast, 8, lag 1 kast 10+ 7+5 (+ 6 kast i A.1/A.3/A.6) = 129 masker

28.07.2020 - 13:47

country flag Nina skrifaði:

Jeg har samme problem Kathryn, får ikke mønsteret til å stemme. Jeg strikker str S, og har 129 m etter første runde inkl alle kast og stolper. Men rad 2 fra vrangen er i følge mønsteret 125 m (A1=8m, A2=11m, A3=9m, 2m, A3=9m, A4=37m, A3=9m, 2m, A3=9m, A5=11m og A6=8m +10 stolpemasker). Det betyr at jeg har 4m til overs som ikke står i mønsteret. Hvor skal de være??

02.07.2020 - 19:25

DROPS Design svaraði:

Hej Nina, Kastene i diagrammerne strikkes ifølge diagrammerne og kastene på hver side af A.3 strikkes i glatstrik på ærmerne og ifølge diagram på for og bagstykket. God fornøjelse!

07.07.2020 - 10:03

country flag Paméla skrifaði:

Bonjour, finalement j'me suis débrouillée, j'ai fait de moi même des diminutions, parce que attendre après votre réponse, je ne pourrais plus m'avancer dans mon tricot. Cordialement.

29.04.2020 - 18:59

country flag Paméla skrifaði:

Bonjour, je viens de finir les augmentations du raglan, donc cela me fait 8 fois 24 mailles plus les mailles des diagrammes avec les augmentations qui ont été faites jusqu'au bout, mais quand je compte toutes mes mailles, ça m'en fait 389 au lieu de 327,je comprends pas pourquoi parce que j'ai bien suivi toutes les instructions. Du coup pour faire la séparation des manches y'a rien qui correspond, vous pouvez m'aider et m'expliquer pourquoi j'ai 62 mailles de trop. Merci d'avance.

23.04.2020 - 16:20

country flag Paméla skrifaði:

Bonjour, je dois continuer les augmentations du raglan en taille XXL, mais je ne comprends pas comment je dois continuer après avoir fait tous les rangs des diagrammes A2, A4 et A5. Je continue en point fantaisie ? Sans augmenter dans les cessions envers ? Et ça veut dire quoi "mais tricoter en Jersey les augmentations suivantes de chaque côté de A3"? Merci d'avance pour votre aide et bonne journée à vous.

21.04.2020 - 10:10

DROPS Design svaraði:

Bonjour Paméla, vous continuez à augmenter pour le raglan jusqu'à ce que les 26 augmentations aient été faites de chaque côté de A.3, ces augmentations après les diagrammes se tricotent en jersey endroit, en même temps, vous continuez à répéter les points ajourés en hauteur comme avant, autrement dit, le point ajouré n'augmente plus en largeur et les augmentations des raglans que vous ferez à partir de la fin des diagrammes se tricotent en jersey endroit. Bon tricot!

21.04.2020 - 10:15

country flag Century skrifaði:

Bonjour, Je suis rendu au rang 2 (rang envers) de l'empiècement (taille XL). Dois-je tricoter les motifs comme ils viennent (A6 - A5 - A3 - 2 mailles jersey - A3 - A4 - A3 - 2 mailles jersey - A3 - A2 - A1) sans refaire de jetés? Je ne suis pas bien sûr de comprendre les instructions. Pourriez-vous m'indiquer par exemple le nombre de mailles après le 2ème rang de l'empiècement (ou mieux, la manière de réaliser ce rang)? Je vous remercie.

17.04.2020 - 01:05

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Century, tout à fait, sur l'envers vous tricotez le rang suivant des diagrammes en les lisant de gauche à droite, sur l'envers vous n'aurez ni diminutions, ni jeté, vous tricoterez donc les mailles soit à l'envers soit à l'endroit en fonction des diagrammes. Tricotez les jetés des raglans à l'envers. Vous augmentez pour les raglans 8 m tous les rangs = 1 m pour chaque devant, 2 m pour le dos et 2 m pour chaque manche. (attention à votre nombre de mailles en fonction de A.3, il peut varier d'1 m pour chaque A.3). Bon tricot!

17.04.2020 - 09:07

country flag Anna skrifaði:

Witam, ten model bardzo mi się podoba lecz nigdy nie robiłam techniką na okrągło jak również od góry do dołu ani reglanu. Czy można zrobić ten model od dołu do góry? Jeśli tak to czy wystarczy odwrócić schemat "do góry nogami" i przerabiać według niego? Czy znajdę u Was kurs reglanu od dołu? Pozdrawiam serdecznie Anna

15.04.2020 - 12:01

DROPS Design svaraði:

Witaj Aniu! Jest to bardzo proste i zawsze musi być ten pierwszy raz:) Ten sweterek będzie przerabiany w tę i z powrotem tylko na drutach z żyłką, jak to się robi znajdziesz TUTAJ. TUTAJ znajdziesz cały kurs, jak krok po kroku przerabiać sweterek od góry do dołu. Czekamy na efekty na naszej grupie DROPS Workshop na facebooku. Pozdrawiamy!

15.04.2020 - 17:12