DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12298.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Primrose Dress

Heklaður kjóll úr DROPS Cotton Merino með gatamynstri og hringlaga berustykki, heklaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-2
DROPS Design: Mynstur cm-083
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-750-800-900-1000-1050 g litur 13, kórall

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12298.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning A.1 og A.5 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Í 7., 11. og 13. umferð kemur ekki A.5 og A.1 í stað fyrstu lykkju í A.4 og A.2, þ.e.a.s. umferðin byrjar með 3 loftlykkjum (koma ekki í stað fyrsta stuðuls) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í A.2 og A.4. Í þeim umferðum sem eftir eru, er fyrsta lykkja í A.2 og A.4 skipt út fyrir A.1 og A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir).
Til að reikna út hvernig auka eigi út jafnt yfir, teljið fjölda lykkju í umferð (t.d. 94 stuðlar) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 5,2. Í þessu dæmi þá eru heklaðir 2 stuðlar í ca 5. hvern stuðul.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa stuðla), heklið 2 stuðla í næsta stuðul. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 stuðlar fleiri).

HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN – sjá útskýringu að ofan, heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), heklið næstu 2 stuðla saman. Fækkið lykkjum svona við bæði prjónamerkin (= alls 4 stuðlar færri).

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi eru heklaðar 9. og 10. hver lykkja saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Umferðin byrjar ca við miðju að aftan (þetta fer aðeins eftir stærðum og vegna fjölda mynstureininga á bakstykki).

BERUSTYKKI:
Heklið 108-108-117-117-124-124 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino og tengið þær saman í 1 hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið fyrstu umferð þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-3-5-5-5-5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* = 94-94-102-102-108-108 stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið út um 18-18-22-22-28-40 stuðla jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 112-112-124-124-136-148 stuðlar.
Heklið næstu umferð og setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar – lesið MYNSTUR. Heklið A.2 (= 6 stuðlar) yfir fyrstu 18-18-24-24-24-30 stuðla (= 3-3-4-4-4-5 sinnum á breidd) (= ca hálft bakstykki), A.3 (= 4 stuðlar), setjið 1. prjónamerki, A.2 yfir næstu 12 stuðla (= 2 sinnum á breidd), setjið 2. prjónamerki, A.3 yfir næstu 4 stuðla (= ermi), A.2 yfir næstu 36-36-42-42-48-54 stuðla (= 6-6-7-7-8-9 sinnum á breidd) (= framstykki), A.3 yfir næstu 4 stuðla, setjið 3. prjónamerki, A.2 yfir næstu 12 stuðla (= 2 sinnum á breidd), setjið 4. prjónamerki, A.3 yfir næstu 4 stuðla (= ermi) og endið með A.2 yfir síðustu 18-18-18-18-24-24 stuðla (= 3-3-3-3-4-4 sinnum á breidd).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.3.
JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir á ermum (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis) þannig:
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur svona og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.3.
JAFNFRAMT sem aukið er út jafnt yfir á ermum (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis) þannig:
UMFERÐ 8: Aukið út um 0-6-6-6-6-6 stuðla á hvorri ermi (= 0-12-12-12-12-12 alls stuðlar fleiri).
UMFERÐ 10: Aukið út um 0-0-0-0-6-6 stuðla á hvorri ermi (= 0-0-0-0-12-12 stuðlar fleiri alls).
UMFERÐ 14: Aukið út um 0-0-0-0-0-6 stuðla á hvorri ermi (= 0-0-0-0-0-12 alls stuðlar fleiri).
Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 240-252-264-264-288-312 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 15 cm.
Heklið fyrstu 0-0-2-2-4-4 umferð af A.2a yfir allar lykkjur. Stykkið mælist ca 15-15-17-17-19-19 cm.
Heklið nú stuðla yfir fram- og bakstykki og mynstur yfir ermar þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 33-33-39-39-39-45 stuðlum og aukið út um 0-2-2-2-2-2 stuðla jafnt yfir (= ca hálft bakstykki), heklið A.4 (= 6 stuðlar) yfir næstu 54-60-60-60-66-72 stuðla (= 9-10-10-10-11-12 sinnum á breidd) (= ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 66-66-72-72-78-84 stuðlum og aukið út um 0-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir (= framstykki), A.4 yfir næstu 54-60-60-60-66-72 stuðla (= 9-10-10-10-11-12 sinnum á breidd) (= ermi) og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 33-33-33-33-39-39 stuðlum og aukið út um 0-2-2-2-2-2 stuðla jafnt yfir (= ca hálft bakstykki) (= alls 0-8-8-8-8-8 stuðlar fleiri). Aukið svona út í hverri umferð alls 0-2-2-3-4-5 sinnum = 240-268-280-288-320-352 lykkjur.
Í umferð 7, 10 og 12 í mynsturteikningu A.4a er hekluð skipting á milli stuðla og mynstur þannig: Heklið stuðla þar til 1 stuðull er eftir á undan mynstri, heklið 2 loftlykkjur og 1 fastalykkju í síðasta stuðul, heklið mynstur eins og áður, heklið 1 fastalykkju í fyrsta stuðul á eftir mynstri og 2 loftlykkjur.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-21-23-25-27 cm. Nú skiptist ermar og fram- og bakstykki þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 33-37-43-45-47-55 stuðlum (= ca hálft bakstykki), heklið 6-6-6-12-12-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 54-60-60-60-66-72 lykkjur (= A.4) fyrir ermi, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 66-74-80-84-94-104 stuðlum (= framstykki), heklið 6-6-6-12-12-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 54-60-60-60-66-72 lykkjur (= A.4) fyrir ermi og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 33-37-37-39-47-49 stuðlum (= ca hálft bakstykki). Ermar og fram- og bakstykki er nú heklað til loka hvort fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 144-160-172-192-212-232 stuðlar/loftlykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir hvorri ermi. Haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, fækkið um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 stuðlar færri) – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 0-3½-6- 3½-3½-0 cm millibili alls 1-3-2-3-3-1 sinnum = 140-148-164-180-200-228 stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul.
Þegar stykkið mælist 37-39-41-43-45-47 cm frá kanti í hálsmáli, aukið út um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 stuðlar fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 1½ cm millibili alls 16-17-16-15-19-18 sinnum = 204-216-228-240-276-300 stuðlar. Þegar stykkið mælist 47-48-48-48-48-48 cm frá þar sem stykkið skiptis frá ermum, heklið A.4a yfir allar lykkjur (= 34-36-38-40-46-50 sinum á breidd). Mynsturteikning A.5 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Þegar A.4a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 59-60-60-60-60-60 cm frá þar sem stykkið skiptist frá ermum. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 77-79-81-83-85-87 cm frá kanti í hálsmáli.

ERMI:
Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður. Heklið 1 fastalykkju í 1. loftlykkju við 6-6-12-12-12-12 loftlykkjur sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið A.4a yfir loftlykkjur (= 1-1-1-2-2-2 sinnum á breidd), stillið af mynstur við afgang af ermi, heklið síðan mynstur eins og áður yfir 54-60-60-60-66-72 lykkjur (þ.e.a.s. heklið A.4a, A.5 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar) = 60-66-72-72-78-84 lykkjur.
Mynsturteikning A.4a er nú hekluð 10-11-12-12-13-14 sinnum á breidd. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem ermar skiptust frá fram- og bakstykki, stillið af að næsta umferð sé 1 umferð með stuðlum, fækkið um 6 stuðla jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1. A.4a er nú heklað 1 sinni færri á breiddina. Fækkið lykkjum svona með 8-6-6-5-5-3 cm millibili alls 2-3-3-3-3-4 sinnum = 48-48-54-54-60-60 stuðlar. A.4a er nú heklað 8-8-9-9-10-10 sinnum á breidd. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 22-22-20-18-17-15 cm frá þar sem ermar skiptust frá fram- og bakstykki, stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. Í næstu umferð er aukið út um 24-24-30-30-36-36 stuðla jafnt yfir = 72-72-84-84-96-96 stuðlar. A.4a er nú heklað 12-12-14-14-16-16 sinnum á breidd. Haldið svona áfram þar til ermin mælist 34-34-32-30-29-27 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, stillið af að endað sé fallega miðað við mynstur. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 52-53-53-53-54-54 cm frá kanti í hálsi.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant í kringum hálsmál. Byrjið við miðju að aftan. Heklið * 1 fastalykkju í fyrsta/næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1cm *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Passið vel uppá að kanturinn verði ekki stífur, stillið af þannig að endað sé með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.01.2019
Leiðrétting - BERUSTYKKI: UMFERÐ 10: Aukið út 0-0-0-0-6-6 stuðla á hvorri ermi (= 0-0-0-0-12-12 stuðlar fleiri alls)... Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 33-37-43-45-47-55 stuðlum (= ca hálft bakstykki), heklið 6-6-12-12-12-12 loftlykkjur...
Yfirfarið á vefsvæði: 28.04.2020
L= Heklið 6 loftlykkjur (ekki 12 loftlykkjur):Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 33-37-43-45-47-55 stuðlum (= ca hálft bakstykki), heklið 6-6-6-12-12-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 54-60-60-60-66-72 lykkjurnar (= A.4) fyrir ermi, heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 66-74-80-84-94-104 stuðlum (= framstykki), heklið 6-6-6-12-12-12 loftlykkjur,

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja
symbols = fastalykkja á milli 2 stuðla
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = þessi umferð hefur þegar verið hekluð, hún sýnir bara hvernig hekla á næstu umferð í/um lykkjurnar
symbols = keðjulykkja
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (72)

country flag Thérèse wrote:

Is it possible to have the written pattern? I find it harder to follow with a diagram.. and to always go back and forth with the instructions… I prefer to read line by line…

17.06.2023 - 02:09

DROPS Design answered:

Dear Thérèse, the format online is the only available format of this pattern. You can also read the following lesson to better understand our charts: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=69&cid=19. Happy crocheting!

17.06.2023 - 16:39

country flag Silje Wiig wrote:

Er de noe feil etter eg har heklet rad 2 av 2,a2 når eg følger det så står nedføre "hekles det staver over bolen og mønster over ermene " får ikke det til å stemme. Har 264, og summen skal bli 280 etter økning x 2 runder. Men på mønster på rad 2 ved 2,a2 minker jo i staver.

07.07.2022 - 01:50

DROPS Design answered:

Hej Silje, du har 6 masker i hver rapport (du mindsker ikke antal masker i A.2a) så efter de 2 rækker har du samme antal masker hvor du så tager ud når du starter på A.4 :)

02.08.2022 - 13:52

country flag Adele wrote:

Pattern DROPS 186-2 Primrose Dress for the measurements in the schematic, is this 40" or 40 cm in the body of the dress ?

18.02.2022 - 18:57

DROPS Design answered:

Dear Adele, the measurements in the schematic are all in cm; in the written instructions, if you are reading the US version, you will find the measurements both in cm and in inches. Happy crochetting!

19.02.2022 - 18:24

country flag Divya Sundaram wrote:

I am making a small size dress using this pattern. I am confused with the increases in the yoke part (A2 and A3). Since, I am making a small size one, can I simply follow A2, as it doesn't have any increase? Or is it combination of A2 and A3?

25.12.2021 - 17:59

DROPS Design answered:

Dear Divya, it is a combination of A.2 and A.3, so you need to work both. Happy knitting!

31.12.2021 - 19:38

country flag Steffi wrote:

Hallo, ich habe nochmal eine Frage zu dem Abschnitt in Diagramm A4a nachdem man in Runde 7,10+12 die Luftm gearbeitet hat, soll man in Größe L weiter arbeiten, bis Arbeit eine Länge v ca 21 cm hat. Ich bin jetzt in Runde 7 v. A4a und meine Arbeit hat jetzt schon eine Länge von ca 27 cm. Sollte vor A4a überhaupt A4 gehäkelt werden oder fängt man dem Muster A3 gleich mit A4a an? Danke für die Hilfe

09.01.2021 - 18:29

DROPS Design answered:

Liebe Steffi, Sie sollen mit A.4 häkeln bis die Arbeit 21 cm misst, dh einfach mit A.4 aufhören auch wenn diese 7. Reihe noch nicht gehäkelt wird (je nach der Grösse werden diese Reihen bei der Passe oder nicht gehäkelt). Hauptsache ist hier, daß Sie die Passe nach 21 cm teilen, A.4a häkeln Sie dann wieder nur bei den Ärmeln. Viel Spaß beim häkeln!

11.01.2021 - 08:28

country flag Steffi wrote:

Ich meinte die Zunahmen davor für die Ärmel. In der Anleitung steht in Reihe 8 von Muster A2/ A3 werden gleichmäßig verteilt an jedem Ärmel 6 Stäbchen zugenommen. Meine Frage war darauf gerichtet, dass sich der Ärmel nicht zwischen dem ersten und zweiten markierer sondern danach befindet. Das irritiert mich in der Anleitung oder verstehe ich was falsch? Entschuldigen Sie meine vielen Nachfragen dazu. Vielen Dank!

06.01.2021 - 16:46

DROPS Design answered:

Liebe Steffi, es wird zwischen den 1. und 2. + zwischen den 3. und 4. Markieren regelmäßig zugenommen, d.h. in die Maschen von A.2, zwischen beiden A.3. A.3 gilt als Raglanlinien, wenn Sie dann die Arbeit verteilen, werden die Maschen von A.3 durch Rücken-/Vorderteil und Ärmel verteilt. Häkeln Sie wie erklärt, Zunahmmen in A.2 auf den beiden Ärmeln und nehmen Sie wie in A.3 zu, dann wird die Verteilung richtig sein. Viel Spaß beim häkeln!

07.01.2021 - 09:31

country flag Steffi wrote:

Antwort (siehe meine Frage v. 5.1.21): ja ich habe alles so gemacht wie angegeben. Ich bin jetzt in Reihe 8 von Muster A2/ A3. Ich häkel Größe L und bin irritiert wegen der Zunahme für die Ärmel. Am Anfang der Passe steht, dass der erste Ärmel nach dem Markierungsfaden kommt. Und jetzt bei den Zunahmen in Reihe 8 soll zwischen dem 1 und 2 sowie dem 3 und 4 Markierer zugenommen werden. Die Ärmel kommen aber jeweils danach. Was mache ich falsch? Danke für die Hilfe.

06.01.2021 - 12:30

DROPS Design answered:

Liebe Steffi, bei den Ärmeln sollen Sie keine Masche zunehmen, nur beim Rücken- (= 2 Maschen 2 Mal für jeden halben Teil) und Vorderteil (= 4 Maschen 2 Mal) = es waren 264 Maschen + 8 maschen x 2 Reihen = 264+16= 280 M = 43 M für das 1. Rückenteil, 60 M für jede Ärmel, 80 M für das Vorderteil und 37 M für das 2. Rückenteil = 43+60+80+60+37= 280 M. Hoffentelich wird es Ihnen helfen. Viel Spaß beim häkeln!

06.01.2021 - 13:23

country flag Steffi wrote:

Ich bin etwas verwirrt wegen der Aufteilung: Beim setzen der Markierungen wird beschrieben, dass der 1. Ärmel nach dem Setzen der zweiten Markierung kommt. An der Stelle, wo für den Ärmel zugenommen werden soll, heißt es: und zwar zwischen der 1. und 2. Markierung. Der Ärmel kommt aber erst danach laut der anfänglichen Aufteilung! HILFE!!! 😁

05.01.2021 - 21:43

DROPS Design answered:

Liebe Steffi, haben Sie die richtige Maschenanzahl nach allen Zunahmen? Welche Größe häkeln Sie?

06.01.2021 - 07:37

country flag Daniella wrote:

När man virkar kragen i början av mönstret, ska A3 virkas där ärmarna ska vara eller precis framför o bakom? Tack på förhand!

03.01.2021 - 20:56

DROPS Design answered:

Hej Daniella, det er flere masker som indgår i ærmerne, sæt mærkerne som beskrevet, så bliver det tydeligere for dig hvilke masker som hører til ærmerne. God fornøjelse!

14.01.2021 - 13:58

country flag Beth wrote:

Now I'm really confused. There are no decreases in the instructions where i am. It says "Work 1 double crochet in each of the first 33-33-39-39-39-45 double crochets and increase 0-2-2-2-2-2 double crochets evenly (= approx. half back piece), work A.4 (= 6 double crochets) over the next 54-60-60-60-66-72 double crochets (= 9-10-10-10-11-12 times in width) (= sleeve), work 1 double crochet in each of the next 66-66-72-72-78-84 double crochets and increase 0-4-4-4-4-4 double crochets evenly"

26.10.2020 - 13:12

DROPS Design answered:

Dear Beth, you have to increase evenly in the 5 larger size, ie working 1 dc in each of the next 33-33-39-39-39-45 dc/sts increasing 0-2-2-2-2-2 dc evenly means you will have 33-35-41-41-41-47 dc over the 33-33-39-39-39-45 dc from previous round. See how to increase evenly here. Happy crocheting!

26.10.2020 - 13:40