DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Belle Époque Sweater

Prjónuð aðsniðin peysa með gatamynstri, laskalínu og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Big Merino. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-6
DROPS Design: Mynstur mb-044
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-700-800-850-950-1050 g litur 06, gleym-mér-ei

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni í kringum hálsmál og neðst á báðum ermum.

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – fyrir kant með garðaprjóni neðst niðri á fram- og bakstykki.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið þeim fjölda lykkja sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,9.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.2 og A.3).

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á ermum og eftir mynsturteikningu á fram- og bakstykki.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi):
Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-2 (á við um brugðnu mynstureiningarnar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni mynstureiningu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan öllum 2 lykkjum brugðið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat.
Næst þegar aukið er út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir öllum 3 lykkjum brugðið.
Haldið svona áfram með útaukningu með því að auka út til skiptis í byrjun og í lok á brugðinni mynstureiningu.

ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-4 (á við um mynstureiningu í sléttprjóni yfir A.3 á fram- og bakstykki):
Þegar A.3 er lokið er prjónað sléttprjón yfir 9-9-9-11-11-11 lykkjur með gatamynstri. Aukið yfir þessar 9-9-9-11-11-11 lykkjur þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir í sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með Big Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-14-10-18-14-10 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 106-106-106-118-118-118 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið A.1 (= 8 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= ermakúpa), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 (= 35-35-35-41-41-41 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= ermakúpa), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 (= 35-35-35-41-41-41 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 118-118-118-130-130-130 lykkjur (meðtalinn uppsláttur í A.1).
Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til aukið hefur verið út alls 14-18-20-21-24-26 sinum hvoru megin við A.1 (meðtalin útaukning í fyrstu umferð á eftir kanti í hálsmáli).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ATH: Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með mynstur alveg eins, en næstu útauknu lykkjur hvoru megin við A.1 eru prjónaðar í sléttprjóni. Í stærð S eru útaukniningu fyrir laskalínu lokið þegar eftir eru 3 umferðir í A.2, haldið áfram með mynstur án útaukningar eins og útskýrt er að neðan.
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 230-262-278-298-322-338 lykkjur í umferð ef það er umferð með 8 lykkjum í A.1 eða 234-266-282-302-326-342 lykkjur ef það er umferð með 9 lykkjum í A.1.
Haldið áfram með mynstur eins og áður án útaukningar fyrir laskalínu þar til stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan, en endið þannig að síðasta umferðin er umferð með 8 lykkjum í A.1.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-0-0-0-0-1 lykkjur í sléttprjóni, setjið næstu 48-56-60-62-67-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram í sléttprjóni og mynstur eins og áður yfir næstu 65-73-77-85-93-101 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 50-58-62-64-68-68 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram í sléttprjóni og mynstur eins og áður yfir næstu 65-73-77-85-93-100 lykkjur (= bakstykki) og setjið þær 2-2-2-2-1-0 lykkjur sem eftir eru á þráð fyrir ermi. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 142-158-170-186-206-226 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við annað af prjónamerkjum og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu.
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 7-11-14-13-18-23 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 55-55-55-65-65-65 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 11-11-11-13-13-13 lykkjum, haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu), prjónið 2 umferðir brugðið, 14-22-28-26-36-46 lykkjur í sléttprjóni, A.3 yfir næstu 55-55-55-65-65-65 lykkjur, 2 lykkjur brugðið og sléttprjón yfir þær 7-11-14-13-18-23 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur, en LESIÐ ALLAN KAFLANN Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

ÚRTAKA Á HLIÐUM:
Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum í hvorri hlið = 122-138-150-166-186-206 lykkjur.

ÚTAUKNING Í BRUGÐNU EININGUNUM:
Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu (= 12 lykkjur fleiri í umferð) – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 6 sinnum í hverri brugðinni einingu (nú eru 8 lykkjur í hverri og einni af þessum brugðnu einingum).

ÚTAUKNING Í HLIÐUM:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið.

ÚTAUKNING Í SLÉTTUM MYNSTUREININGUM:
Þegar stykkið mælist ca 15 cm frá skiptingu endar A.3. Prjónið síðan sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þessar lykkjur. Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur í hverri einingu með sléttprjóni yfir A.3 – lesið ÚTAUKNING-4 (= 20 lykkjur fleiri).
Endurtakið þessa útaukningu eftir 2 cm (= 20 lykkjur fleiri).

Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru 246-262-274-290-310-330 lykkjur í umferð. Prjónið síðan með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm frá öxl og niður.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 50-58-62-64-68-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-64-70-72-78-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón í hring.
Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-2-1½-1-1 cm millibili alls 7-10-12-12-14-14 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 26-25-24-21-20-19 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 40-40-40-48-48-48 lykkjur. Prjónið A.4 hringinn (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á sokkaprjón 4.
Prjónið 4 umferð garðaprjón hringinn. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 30-29-28-25-24-23 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar saman
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, steypið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir tvær lykkjurnar sem voru prjónaðar þannig að fyrsta lykkjan liggi utan um hinar tvær
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Noelle wrote:

Bonjour, A l'empiècement on augmente 20 fois 1m de chaque côté de A1 et en même temps on tricote A2. Pourquoi de 188m on passerait à 278 m soit juste les 20 X8m d'augmentation de A1 ? Quand est il des augmentations de A2 (voir diagramme) soit 15 X 4m = 60m ? Merci

07.10.2023 - 14:23

DROPS Design answered:

Bonjour Noelle, dans les 118 mailles après le 1er tour, on compte les jetés de A.1 (soit 4 mailles en plus); quand les augmentations du raglan sont faites, on a 278 mailles, autrement dit, y compris les augmentations de A.2, mais sans les jetés de A.1.Bon tricot!

09.10.2023 - 08:40

country flag Beata Iwanek wrote:

Dziękuję za odpowiedź. Tak, wiem, że oczek automatycznie przybywa, ale u mnie zdarzyło się to podwójnie. Teraz po wielu próbach zrozumiałam, że trzeba się trzymać wyłącznie schematu A2, ja zaś dodawałam kolejne oczka na podstawie informacji: "W TYM SAMYM CZASIE co 2 okrążenia dodawać oczka na reglan", stąd ich liczba nadmiernie się zwiększała. Pozdrowienia przesyłam:))))

02.03.2022 - 10:39

country flag Beata wrote:

Dzień dobry! Przy dodawaniu oczek na reglan nie zgadza mi się ich ilość. Skoro robię w rzędach nieparzystych narzut (dziurka ozdobna) a w parzystych nie przerabiam go razem z innym oczkiem, to ich ilość automatycznie się zwiększa. Na przykład jeśli w drugim rzędzie mam dwa oczka na rękaw to w czwartym rzędzie jest już ich 6 a nie 4. Bardzo proszę o poradę.

28.02.2022 - 13:11

DROPS Design answered:

Witaj Beato, gdy przerabiasz od góry i dodajesz oczka na reglan to naturalnie liczba oczek zarówno na przodzie i tyle jak i na rękawach będzie się zwiększać. Tak powinno być. Jeśli niewłaściwie zrozumiałam problem, napisz jaki rozmiar wykonujesz i dokładnie, w którym fragmencie opisu się znajdujesz. Pozdrawiamy!

02.03.2022 - 08:49

country flag Sima Alise Nepal wrote:

Hei, ønsker å strikke denne oppskriften med merino ull ikke big merino, strikkefastheten min er 22 masker = 10 cm. Jeg har allerede regnet om hvor mange flere masker jeg må legge til, men hvordan kan jeg strikke mønster ( altså A1 og A2) med denne tråden! trenger hjelp !

16.02.2022 - 10:39

country flag ADRIANA wrote:

MI DOMANDO PERCHÉ’ NON DATE ANCHE LE SPIEGAZIONI CON I FERRI DIRITTI E SEMPRE TOP DOWN NON MI AVETE MAI RISPOSTO SI POSSONO SICURAMENTE LAVORARE ANCHE DAL BASSO

20.01.2021 - 15:37

DROPS Design answered:

Buonasera Adriana, abbiamo sempre risposto alle sue domande: le chiediamo di non scrivere in maiuscolo! La lavorazione in tondo è molto diffusa in tutto il mondo e la maggior parte dei designer progetta modelli lavorati con i ferri circolari. Sul nostro sito può trovare tantisssimi modelli lavorati in piano per come tutti i cardigan e alcuni maglioni, per cui può tranquillamente utilizzare i ferri dritti. Riguardo la lavorazione, il top down permette una maggiore flessibilità di lavoro e di adattamento del modello, ma sul nostro sito può trovare anche modelli lavorati bottom up, cioè dal basso verso l'alto. Buon lavoro!

20.01.2021 - 18:58

country flag Graciela wrote:

Hola no se como se aumentan los puntos para la manga me podrían ayudar indicándome donde esta la indicación?

16.12.2020 - 05:36

DROPS Design answered:

Hola Gabriela! Estás hablando de los aumentaciones para el raglán a cada lado de A.1 o de montar 6-6-8-8-10-12 nuevos puntos en la aguja (= en el lado bajo la manga)?

17.12.2020 - 12:52

country flag Regine Hersche wrote:

I thought that when you knit in the round in stockinette you knit every row but the pattern mentions knit and purl so I am confused, don't know what to do,please help

08.07.2020 - 22:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hersche, you are right, when you work stocking stitch in the round you have to knit all rounds, but when you work garter stitch in the round you will alternately knit 1 round and purl 1 round. In this pattern you will work some stitches knit and some other will be purled - as shown in diagrams. Happy knitting!

09.07.2020 - 09:36

country flag Enrica wrote:

Buongiorno Sto provando a fare il modello per una taglia S, non riesco a capire come fare l’aumento raglan. Perché nel giro successivo mi trovo con una maglia gettata di troppo. Come posso fare? Grazie dell’aiuto

09.05.2020 - 11:00

DROPS Design answered:

Buonasera Enrica, le spiegazioni sono corrette, e non è semplice capire perchè si ritrova con una maglia in più: ha contato correttamente e lavorato gli aumenti come descritto? Ci rispieghi nel dettaglio il suo problema. Buon lavoro!

11.05.2020 - 22:22

country flag Nidaa wrote:

After I finish the raglan YOs increases , still I continue doing the YOs between A.1 and A.2 as described at yoke part? Thanks for u r time replying to my Question :)

20.02.2020 - 22:26

DROPS Design answered:

Dear Nidaa, when all increases for raglan are done, continue in pattern without yarn overs on each side of each A.1 until piece measures 17 cm. The yarn overs explained under yoke were for raglan increases, you do not need them anymore now. Happy knitting!

21.02.2020 - 08:32

country flag Nidaa wrote:

All the YOs before and after the sleeve cap are always worked at Stocking stitch? they aren't recorded at a diagram?

16.02.2020 - 16:57

DROPS Design answered:

Dear Nidaa, the yarn overs worked for the increases on sleeves are worked in stocking stitch, the yarn overs worked for the increases on front and back pieces are worked as shown in diagramA.2. Happy knitting!

17.02.2020 - 09:29