Bibbi Svahlstedt skrifaði:
Fina sockar, bra beskrivning
29.09.2023 - 23:01
Susi skrifaði:
Die Antwort an Nancy ist natürlich falsch, bitte um Korrektur: Man verteilt die Maschen nicht auf 3, sondern auf 4 Nadeln und strickt dann mit der 5. Nadel und nicht mit der 4. ;-)
20.07.2023 - 12:52
Ita skrifaði:
Räcker det verkligen med 50 gr grön till hela sockan
09.06.2021 - 21:36DROPS Design svaraði:
Hej Ita. Det går åt 100 g grön, 50 g pistage och 50 g natur till dessa sockar. Mvh DROPS Design
10.06.2021 - 08:54
Heidi skrifaði:
Today the parcel with the wool arrived, I am sooo happy! - These socks are going to be for my daughter. However, my daughter said that the other socks (193-16) are knitted too loosely, so I decided to try with a thinner needle. Now I found out that for the 10 x 10 cm I have 32 stitches and 45 rows!! I will manage to calculate the pattern. My QUESTION is: Based on your experience, do you think the pattern will still look good with these tiny stitches? Or will it look too miniature-like? Thank you
02.04.2020 - 22:28DROPS Design svaraði:
Dear Heidi, both patterns, these socks and Nordfjord are worked with same tension, 26 sts x 34 rows in stocking st = 10 x 10 cm. If you work with another tension, you would have to edit the pattern to fit your new tension,otherwise socks won't fit. Read more about tension here. Happy knitting!
03.04.2020 - 07:56
Lydia skrifaði:
Hej! jag håller på att sticka efter denna design och har gjort klart resåren. Men jag förstår inte hur minskningen ska gå till och jag har läst minskningstips-1, ett fåtal gånger men förstår fortfarande inte när man ska sticka ihop maskorna och allt som hör till. så skulle jag kunna få lite förtydligande på det? tack på förhand! :)
07.09.2019 - 20:53DROPS Design svaraði:
Hej. Du minskar maskor genom att sticka 2 räta maskor tillsammans. För att veta hur ofta du ska minska för att det ska bli ca jämnt fördelat kan man dela antal m på antal m som ska minskas t.ex som här 108/24= 4,5. Du stickar då varannan gång ihop den 3:e + 4:e maskan och varannan gång den 4:e + 5:e maskan. Dvs. du stickar 2 m, stickar ihop de nästa 2 maskorna, stickar 3 m, stickar ihop de nästa 2 maskorna osv... Lycka till!
10.09.2019 - 10:29
Linni skrifaði:
Hei! Når det står i oppskriften 100 g farge 15 grønn og 50g farge pistasj- vil det si at jeg trenger bare et garn nøste med 50g for å fullføre sokken?
13.03.2019 - 18:04DROPS Design svaraði:
Hej Linni, der står at du skal bruge 100 g fv 15 grøn, 50 g fv 16 pistasj og 50 g fv 01 natur i DROPS Flora . God fornøjelse!
14.03.2019 - 11:22
Nisha skrifaði:
Er det rigtigt forstået, at diagrammerne skal strikkes nedefra og op? Altså så den række, der er nederst i diagrammet, er den, man strikker først, og den øverste række i diagrammet (med stjernen) er den, man strikker sidst?
20.10.2018 - 11:11DROPS Design svaraði:
Hei Nisha. Ja, det stemmer. Strikkediagrammer leses alltid fra nederst til øverst, fra høyre mot venstre. Det vil si at du begynner nederst i høyre hjørne og jobber deg mot venstre, rad for rad oppover. God fornøyelse
22.10.2018 - 08:27
Pernille Skou skrifaði:
I har glemt at tegne pistacie ind i diagrammet
27.10.2017 - 17:12
Nancy skrifaði:
Worden deze sokken met 4 naalden gebreid en hoeveel per naald zet je dan op? Heb nog nooit sokken gebreid😉maar wil het proberen want ben bezig met de trui ervan en de sokken zijn zo mooi😍
01.10.2017 - 20:24DROPS Design svaraði:
Hoi Nancy, Ja, je zet eerst het aantal op te zetten steken op en die verdeel je dan over 3 naalden. Met de 4e naald begin je te breien en zo schuiven de naalden steeds door in de rondte tijdens het breien.
07.10.2017 - 17:03
Nieuwendijk R. skrifaði:
Prachtig!!! Zeer aangename kleur
31.07.2017 - 16:28
Perles du Nord Socks#perlesdunordsocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir háir sokkar með marglitu norrænu mynstri úr DROPS Flora. Stærð 35-43.
DROPS 180-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4,5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við miðju aftan á sokknum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-3 (á við um tá): Byrjið 2 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að prjónfestan verði ekki of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið ef til vill yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8-9-9 lykkjur eru eftir, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8-9-9 lykkjur eru eftir, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja brugðið, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, takið næstu lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja brugðið, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var brugðið, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 108-108-116 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-24-20 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 84-84-96 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 7-7-8 mynstureiningar 12 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.1 (merkt með stjörnu í mynsturteikningu) er fækkað um 4-4-8 lykkjur jafnt yfir = 80-80-88 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn (= 10-10-11 mynstureiningar 8 lykkjur). Í síðustu umferð í A.2 (merkt með stjörnu í mynsturteikningu) er fækkað um 2-2-4 lykkjur jafnt yfir = 78-78-84 lykkjur. Prjónið A.3 hringinn (= 13-13-14 mynstureiningar 6 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 23 cm. Setjið 1 merki í byrjun á stykki (= miðja að aftan), látið merkið fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum grænn. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir með litnum grænn er fækkað um 2 lykkjur við miðju að aftan – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 5.-7.-7. hverri umferð alls 11-9-10 sinnum = 56-60-64 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-42-44 cm (úrtaka við miðju að aftan á nú að vera lokið), prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 42-45-48 lykkjur slétt, setjið síðan síðustu 28-30-32 lykkjur af þessum 42-45-48 lykkjum á þráð (= miðja ofan á fæti) og prjónið sléttar lykkjur yfir þær 14-15-16 lykkjur sem eftir eru = 28-30-32 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Lesið LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl lykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 merki mitt í umferð. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýring að ofan. Á eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið 14-14-16 lykkjur frá hæl, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið lykkjur af þræði og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram annarri hlið á hæl = 68-72-80 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki hvoru megin við 28-30-32 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn og fækkið lykkjum hvoru megin við 28-30-32 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra merki ofan á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna merki ofan á fæti slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá merki á hæl (nú eru eftir ca 4-5-6 cm að loka máli). Setjið 1 merki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði merkin – lesið ÚRTAKA-3 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-8-10 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-2-1 sinni = 12-16-16 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #perlesdunordsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.