DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4437.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Perles du Nord Jacket

Peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.

DROPS 180-4
DROPS Design: Mynstur fl-009
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-400-450-500-550 g litur 15, grænn
50-100-100-100-100-100 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 16, pistasía

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS STÁLTALA, NR 534: 8 st í allar stærðir.

Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Flora 01, 14, 10.
B) DROPS Flora 01, 07, 08.
C) DROPS Flora 03, 04, 05.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4437.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA-/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 lykkjur) mínus kant að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 6,4.
Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 5. og 6. hverja lykkju og 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan.
Ef auka eigi út þá er það gert til skiptis eftir ca 6. og 7. hverja lykkju (aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið inn í mynstur svo að ekki myndist gat).

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 10-10-11-12-12-13 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 20-20-22-24-24-26 lykkjur brugðið. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 30-30-33-36-36-39 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið 40-40-44-48-48-52 lykkjur brugðið. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 50-50-55-60-60-65 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið 60-60-66-72-72-78 lykkjur brugðið. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 70-70-77-84-84-91 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina (kantur að framan er prjónaður slétt).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan):
Þegar mynsturbekkurinn er prjónaður með tveimur litum í berustykki, prjónið með grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR-2:
Til þess að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar þá er mikilvægt þegar mynstrið er prjónað að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af 7 næstu hnappagöt með ca 7½-8-8-8½-8½-9 cm á milli hverra.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 132-136-140-144-152-160 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 19-17-15-13-15-17 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 113-119-125-131-137-143 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 sléttum kantlykkjum að framan í hvorri hlið. Til að flíkin passi betur er nú prjónuð smá UPPHÆKKUN í hnakka – sjá útskýringu að ofan.
Þegar upphækkuninn hefur verið prjónuð til loka er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 17-18-19-20-21-22 mynstureiningar 6 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR-1 OG LEIÐBEININGAR-2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umferð merktri með stjörnu í A.1 (þ.e.a.s. síðasta umferð frá réttu í A.1) eru 232-245-258-271-326-341 lykkjur í umferð, aukið jafnframt út 11-22-33-36-21-22 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 243-267-291-307-347-363 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð frá réttu prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 29-32-35-37-42-44 mynstureiningar 8 lykkjur), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur, en í umferð merktri með stjörnu í A.2 (þ.e.a.s. síðasta umferð frá réttu í A.2) er aukið út um 8-16-24-24-16-16 lykkjur jafnt yfir = 251-283-315-331-363-379 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð frá réttu prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 15-17-19-20-22-23 mynstureiningar 16 lykkjur), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynstri.
Þegar næst síðasta umferð í A.3 er eftir (merkt með ör í hverri stærð) eru 326-368-410-431-473-494 lykkjur í umferð, aukið jafnframt út 11-11-1-11-0-5 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu = 337-379-411-442-473-499 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 24-26-28-30-32-34 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan. ATH: Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað áfram í sléttprjóni með litnum grænn og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið að réttu máli.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu með grænn þannig: Prjónið 55-60-64-70-76-81 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 99-109-117-130-141-151 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 55-60-64-70-76-81 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 229-249-269-294-321-345 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 60-65-70-76-83-89 lykkjur inn frá hvorri hlið = 109-119-129-142-155-167 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Haldið áfram með litinn grænn og prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum við miðju að framan í hvorri hlið í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 10. hverri umferð (ca í 3. hverjum cm) til loka (ef prjónfestan passar á hæðina þá jafngildir þetta ca 9 útaukningar í hvorri hlið).
Þegar stykkið mælist 30 cm frá skiptingu í öllum stærðum eru ca 265-285-305-330-357-381 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 83-87-95-106-115-123 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 348-372-400-436-472-504 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *,endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið síðan af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 64-75-83-86-90-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-85-95-98-104-109 lykkjur á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn með grænn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 11-15-19-19-21-22 sinnum í S: Í 9. hverri umferð, í M: Í 6. hverri umferð, í L og XL: Í 4. hverri umferð, í XXL: Til skiptis í 3. hverri umferð og 4. hverri umferð og í XXXL: Í 3. hverri umferð = 52-55-57-60-62-65 lykkjur. Þegar ermin mælist 31-29-28-26-25-23 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 16-17-19-20-18-19 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 10 cm (eða að óskaðri lengd) er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 41-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.09.2017
Ný mynsturteikning A.3b í stærð XL-XXL-XXXL

Mynstur

symbols = natur
symbols = grænn
symbols = pistasía
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn svo að ekki myndist gat
symbols = útaukningsumferð
symbols = endið eftir þessa umferð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Birgitta Mörnefält wrote:

Jag vill sticka den här koftan nerifrån och upp. Hur gör jag?

03.11.2023 - 13:05

DROPS Design answered:

Hei Birgitta. Les oppskriften godt, husk f.eks gjør økninger istedenfor minskninger, les diagrammene oppned osv. mvh DROPS Design

06.11.2023 - 14:05

country flag Gravina wrote:

C'est bon j'ai trouvé, tout va bien 👌👌

28.01.2023 - 22:57

country flag Gravina wrote:

Bonjour Il y a un problème sur le graphique A.3A Si l'on fait un les jetés des lignes 11 15 et peut être aussi 25 cela ne cadre plus avec le graphisme du pull !!

28.01.2023 - 16:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gravina, lorsque vous faites 1 jeté dans le diagramme, cela augmente le nombre de mailles du motif à tricoter, au rang suivant, tricotez la nouvelle maille comme indiqué dans le diagramme, le motif va s'élargir et s'aligner tout comme dans le diagramme. (même si vous n'avez par ex que 3 m de la couleur du fond à la fin du rang 11 (et 4 m au début du diagramme), continuez bien ainsi, tel que le diagramme est représenté). Bon tricot!

30.01.2023 - 08:55

country flag Renate Nijk wrote:

The sleeve for M must be 29 cm+ 10. If I do that it is a short sleeve until :between elbow and wrist. Is this correct? Renate

14.09.2022 - 22:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Nijk, that's correct, check measurements on a similar garment you have and like the size, don't forget to measure from neck too (including yoke)- and adjust to your own size if needed. Happy knitting!

15.09.2022 - 09:53

country flag Ana wrote:

Los aumentos marcados en el gráfico A.3A, los 3 últimos, no se pueden realizar en los sitios donde se marcan por que desvirtúan el dibujo..., yo estoy realizando una talla XXXL y tuve que cambiar de sitio y deshacer un buen trozo.

18.01.2022 - 13:05

country flag Kirsten Mogensen wrote:

Ifølge opskriften 180-4, skal der strikkes udtagningspinde efter diagrammet, hvor der er markeret med stjerne. Jeg kan se det drejer sig om ret mange masker, men kan ikke gennemskue hvor mange og hvordan. Håber du kan hjælpe mig. Venlig hilsen Kirsten

01.06.2021 - 10:11

DROPS Design answered:

Hej Kirsten, Det er lidt forskelligt, det kommer an på hvilken størrelse du strikker. I A.1 tages der 11-22-33-36-21-22 masker ud jævnt fordelt (vælg det antal som står i din størrelse). Næste gang tager du ud i A.2, her skriver vi også hvor mange masker du skal tage ud.

02.06.2021 - 12:10

country flag Astrid Flage Larsen wrote:

Har dere ikke Drops Flora farge grønn nr 15?

19.03.2021 - 18:28

DROPS Design answered:

Hei Astrid. Jo, DROPS Flora farge 15 grønn er fremdeles i vårt sortiment. mvh DROPS design

22.03.2021 - 12:11

country flag Marlene wrote:

Bonjour j aimerais savoir si il est possible d agrandir la largeur de la manche Nous a.vous des mailles sur notre aiguille et on en rajoute pour le dessous du bras Carmela serre au début et c est très fatiguant Si on rajoute des mailles est ce que cela l’agrandirait et ne déformerait pas la manche ?

01.03.2021 - 15:57

DROPS Design answered:

Bonjour Marlene, si vous ajoutez des mailles, vous allez modifier la largeur/circonférence de la manche qui ne passera plus avec les explications du modèle. Vous pouvez ajuster sur la base d'un modèle présentant les mêmes manches que celles que vous souhaitez (cherchez bien un modèle de même tension). Pour toute assistance complémentaire, n'hésitez pas à contacter votre magasin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

01.03.2021 - 16:12

country flag Lubica wrote:

I am working on pattern A.3A, in row 11 I add a loop at the beginning and then each time after 18 loops. This means that then the diamonds are moved and their points are not centered above the crosses below them-this happens if I follow the pattern of 1 green loop, 4 white, 1 green... How to proceed? Should I follow pattern 1-4-1 or should I create a green loop always according to the bottom tip of the cross in order to keep it centered? In the second case, there would be 5 loops instead of 4

27.02.2021 - 13:42

DROPS Design answered:

Dear Lubica, work diagram as shown - the diamonds have to be worked like that, you will increase 1 stitch at the end of each repeat some rows later, so that the diamond will match perfectly. Happy knitting!

01.03.2021 - 10:38

country flag Ľubica wrote:

V 11 rade vzoru A.3A pridávame očko na začiatku a vždy po 18 očkách. To znamená, že potom sa nám kosoštvorce posúvajú a nie sú vycentrované ich hroty nad krížikmi pod nimi, ak dodržíme vzor 1 zelené očko, 4 biele, 1 zelené,... Ako teda pokračovať, dodržať vzor 1-4-1 alebo aby to nebolo posunuté, dať zelené očko vždy podľa spodného hrotu krížika? Vtedy by tam, kde bol nákyd, neboli 4 ale 5 očiek. Nejako to nevychádza. Prosím o radu. Ďakujem.

20.02.2021 - 23:23

DROPS Design answered:

Dobrý den, Lubico, myslím, že máte chybě zorientované schéma: vzorek čteme zprava doleva (a zdola nahoru). V 11. řadě nahazujeme 1 oko vždy na konci sekvence, tj. vždy za 17. okem vzoru. Pak by mělo být vše v pořádku a kosočtverce by měly ležet nad sebou. Hodně zdaru! Hana

28.02.2021 - 00:30