Doris WIgren skrifaði:
Jag kan inte se förklaringen till mönstret! Det är bara tomma rutor
18.03.2019 - 10:10DROPS Design svaraði:
Hej. Det ska inte vara något fel på den, jag ser allt här på min dator. Kanske du kan prova en annan webläsare och se om det kan hjälpa?
18.03.2019 - 10:19
Lenka Chvostalová skrifaði:
Dobrý den, potřebovala bych prosím poradit. Nejmenší velikost je S a šířka je 44cm. Šlo by prosím upravit návod na menší velikost na šířku 38cm? Šířka 44cm je moc velká. Předem moc díky. Chvostalová
10.02.2019 - 14:32DROPS Design svaraði:
Dobry den! Pak máte taky právo žádat po svém prodejci, u něhož jste nakoupili, pomoc a rady. Srdečné pozdravy!
04.12.2019 - 15:54
Renate Marx skrifaði:
Wie kommt man von 118 Maschen zu 334 ? Es ist keine Zunahme beschrieben.
30.12.2017 - 17:35DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Marx, die Zunahmen sind in A.2 beschrieben, dh wenn Sie A.2 stricken, werden Sie automatisch zunehmen, am Ende der Diagramme sollen Sie 334 M haben. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2018 - 10:58
Sussi Beck skrifaði:
Hej. Vil i være søde og få lagt opskriften rigtigt ind og i det rigtige sprog.
14.08.2017 - 16:23DROPS Design svaraði:
Hei Sussie. Da er det lagt inn riktig tittel :)
14.08.2017 - 16:48
De Mol Monque skrifaði:
Een mooi bolerovestje met en creatieve dessin
04.07.2017 - 08:57Evelyn Rowley skrifaði:
A perfect pattern for our mild winter days and the most glorious colour too.
04.07.2017 - 05:07
Autumn Vines Top#autumnvinestop |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Peysa með stuttum ermum, blaðamynstri og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Alpaca.
DROPS 179-31 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsi í garðaprjóni, síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 8 cm millibili. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman og 1 lykkju brugðið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, frá miðju að framan, ofan frá og niður. PEYSA: Fitjið upp 106-110-116-122-128-134 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-24-22-24-22-12 lykkjur jafnt yfir (5 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar brugðið í hverri umferð = kantur að framan) = 118-134-138-146-150-146 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt til baka. Næsta umferð er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 5 lykkjur brugðið (= kantlykkjur að framan) A.1 (= 13-15-17-13-15-17 lykkjur) og 7-7-5-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni (= vinstra framstykki), A.2 (= 1 lykkja), prjónið 12-16-18-16-12-6 lykkjur í garðaprjóni (= ermi), A.2, prjónið 40-44-44-50-56-60 lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), A.2, prjónið 12-16-18-16-12-6 lykkjur í garðaprjóni (= ermi), A.2, prjónið 7-7-5-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni, A.1 (= hægra framstykki) og endið með 5 lykkjur brugðið (= kantlykkjur að framan). Haldið áfram með A.1, A.2 og 5 lykkjur brugðið fyrir kant að framan í hvorri hlið. Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.1 og A.2 alls 3-3-3-4-4-4 sinnum á hæðina, passið uppá að fyrsta lykkjan í A.2 verði beint yfir miðju lykkju frá fyrri mynstureiningu = 334-374-402-434-470-498 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-23-25-27-30-33 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 53-58-61-67-74-80 lykkjur (= vinstra framstykki), LESIÐ AFFELLING – fellið af næstu 66-76-84-88-92-94 lykkjur, prjónið 96-106-112-124-138-150 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 66-76-84-88-92-94 lykkjur og prjónið þær 53-58-61-67-74-80 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem fitjaðar eru upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í hvorri hlið (á milli framstykkis og bakstykkis). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 222-242-258-282-314-342 lykkjur. Haldið áfram með garðaprjón, A.1 og 5 brugðnar kantlykkjur að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Þegar stykkið mælist ca 26-25-25-25-24-23 cm, stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.1 á hæðina, prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið 10 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur (kantur að framan heldur áfram eins og áður), fellið síðan laust af – lesið AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnvinestop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.